Alþýðublaðið - 05.10.1920, Qupperneq 1
Vísir og tog-arasalan.
í gær ritar hr. Jakob Möller
grein í Vísi, málgagn sitt og ís-
landsbanka, er hann nefnir „Botn-
vörpungasala Alþýðubiaðsins".
Byrjar hann greinina á að lýsa
því yfir, að það sé „auðvitað með
öllu tilhæfuiaus hauga þvættingur“
að til mála hafi komið að selja
botnvörpuflotann, eða eitthvað af
honum.
Nú er hætt við að margur
spyrji: Hvernig getur Jakob vitað
það með vissu, að slíkt hafi ekki
komið til mála? Hefir hann geng-
ið fyrir hvern mann og spurt að
þessu, svo hann með réttu geti
viðhaft svona sterk orð? Eða er
JJakob nokkurskonar Mr. Peters,
aðeins þeim mun snjallari en Pe-
ters, að hann þykist geta lesið í
einu í hug allra hérlendra kaup-
sýslumanna og stjórnmálamanna ?
Alþýðublaðið skal ekki efast
um, að síðan hr. Jakob Möller
gerðist opinber málsvari fiskhrings-
Ins og ísiandsbanka, þá sé hann
svo vel inmmdir hjá þeim, að
hann viti um ýmislegt sem þar er
bruggað. En væri samt ekki rétt-
ara af honnm að viðurkenna að
orðin „tilhæfulaus hauga þvætting-
ur“ hafi verið of sterk. Hann hafi
í mesta lagi getað sagt: „Hús-
bændur mínir í fiskhringnum og
tslandsbanka hafa ekkert á þetta
minst, svo eg hafi heyrt.“ Og svo
hefði hann auðvitað um leið, ef
hann hefði viljað vera alveg ær-
legur, átt að bæta því við, að
húsbændurnir segðu nú ekki smal-
anum fyrir um allar fyrirætlanir
sínar eða hugsanir.
Hið allra eftirtektarverðasta í
grein Jakobs er það, að hann við-
urkennir, að „það mætti nú í
‘fljótu bragði ætla, að eitthvað
hyni að vera hæft í þessari sögu
boínvöipungasöluna," og þessu
bl sönnunar Iýsir hann hve útgerð-
la sé að mörgu leyti erfið fyrir
^tgerðarmenn. En að því búnu
segir hann: „En þó einhverjum
útgerðarmanninum kynni að hafa
dottið í hug að selja skip sín, þá
ætti það auðvitað ekkert skylt við
neina almenna ráðstöfun til að
greiða úr fjárkreppu landsins."
Þessi klausa er í miðri greininni,
svo menn sjá á henni, að þegar
Jakob hefir verið hálfnaður með
hana, hefir hann, þessi einkenni-
lega „stefnufasti" stjórnmálamaður,
verið horfinn frá því, sem hann
hélt fram í byrjun greinarinnar,
að ummæli Alþýðublaðsins væru
„tilhæfulaus hauga þvættingur".
En hvað hefir svo sá góði Jakob
fram að færa, til þess að ósanna
það sem Alþbl. heldur fram, að
þörf sé á séstökum ráðstöfunum
gegn því að togararnir verði seldir?
Hann hefir ekkert, bókstaflega
ekkert, nema himnastiga-draum
sinn um það, að engir erlendis
vilji kaupa togarana, því það eru
helstu rökin hjá honum, að eftir-
spurn sé engin. En skyldi nokkr-
um manni detta. í hug að það sé
trygging gegn sölunni, þó satt
væri? Aðalatriðið er þetta: Vilji
einhverjir útgerðarmenn selja, ann-
aðhvort af því þeir eru í klípu
eða af því þeim býðst gott verð
(eða af hvorutveggja), mundi þá
verða nokkur fyrirstaða hjá lands-
stjórninni að leyfa söluna? Efast
nokkur um — þegar jafnframt er
Iitið til peningakreppunnar — að
landstjórnin mundi taýarlausí leyfa
söluna, þó allir viðurkenni nú þeg-
nr fyrirfram, að slíkt væri sams-
konar athæfi eins og hjá mann-
inum í dæmisögunni, er lógaði
hænunni sem verpti gulleggjunum.
Það er því í fylsta máta var-
hugavert að draga úr þörfinni
sem er á þvf, að búa hér tryggi-
iega um hnútana, þannig að al-
menningur vakni ekki einn góðan
veðurdag við pípublástur togara-
flotans, sem sé að kveðja landið
í hinsta sinnl Og áreiðanlega
verða það fáir sem þakka hr„
Jakob Möller fyrir að draga úr
þeirri þörf, enda er óvíst að hús>-
bændunum sé mikil þægð í þvL
En þó svo væri, þá mætti nú fyr
vera tuskan!
jKýjusin símskeyti.
Khöfn, 4. oktbr.
Pýzki fiotinn afhentur.
Sfmað er frá London, að í gær
hafi afhending þýzka flotans verið
lokið og liggi nú öll skipin á
Forthfirðinum.
Pólverjar sækja á.
Símað er frá Varsjá,-að Pól-
verjar hafi sótt fram, farið yfir
Servinzána og hrakið bölsivíka
aftur um 100—150 km. og tekið
42000 fanga og 160 fallbyssur.
Saitmingar strandaðir.
Auðvaldsblaðið „Aftenposten*
segir, að Litvinofif hafi hætt samn-
ingunum við norsku stjórnina,
vegna þess að hún hafi neitað að
ganga að verzlunarsamningum hans.
Stjórnarskrá Anstnrríkis.
Símað er frá Vín, að stjórnar-
skráin hafi nú verið samþykt. Er
Austurríki nú sambandsrfki með
þjóðkjörnu þjóðarráði og sam-
bandsráði kosnu af þingum lands-
hlutanna. Ráðin kjósa forsetann l
sameiningu.
Forsetakosningin í U. S. A.
Símað frá New York, að Wilson
fari þegar frá og afhendi Harding
(forsetaefni republikka) stjórntaum-
ana ef hann nái kosningu.
Sögnrnar „Koli konungur" og
„Skógarandinn" koma sinn daginn.
hvor þar til „Kola“ er lokið, sem
mun verða um helgina.