Morgunblaðið - 16.08.1986, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1986
45
Þessir hringdu .
Sjónvarpið ætti
að fjalla um efni
g^reinarinnar
Konur í saumaklúbb hringdu:
„Við viljum þakka kærlega fyr-
ir greinina „Druliupollar og
alkalískemmdir" sem birtist í Vel-
vakanda 8. ágúst sl.
Þetta var ákaflega vel ritað og
langar okkur til að sýna mannin-
um sem það skrifaði þakklæti
okkar. Okkur fyndist tilvalið að
sjónvarpið fjallaði um efni grein-
arinnar í umræðuþætti eða
einhveiju því um líku.
Greinarhöfundurinn ætti að
taka oftar til máls því að ekki er
vanþörf á slíkum skrifum eins og
komið er.
Svo viljum við gjaman þakka
Morgunblaðinu fyrir greinar Billy
Graham, „Svar mitt“, það mætti
að ósekju birta meira af þeim í
blaðinu.“
Hver fann gráa
veiðistöng?
Logi Þór Laxdal bankaði upp
á hjá Velvakanda.
Hann hafði týnt grárri veiði-
stöng uppi við Elliðavatn í vor.
Maður nokkur hafði fundið veiði-
stöngina og hringt í Loga þegar
hann var ekki heima og hafði
maðurinn þá sagst ætla að hringja
síðar. Síðan hefur ekkert til hans
spurst. Vill Logi því endilega hafa
upp á manninum og biður hann
um að hringja í síma 38107.
Hver fékk lánað
fjólublátt
burðarrúm?
Rósa Svavarsdóttir hringdi. Hún
hafði lánað konu fjólublátt burð-
arrúm en mundi ómögulega
hverri. Rósa þarf endilega að fá
burðarrúmið til baka og vill hún
því benda konunni sem fékk rú-
mið lánað á að hafa samband við
sig að Hátúni 4 eða að hringja í
síma 21054
Erlendur Einars-
son reisti húsið
Dótturdóttir Erlends Einars-
sonar hringdi:
„Mig langar til að leiðrétta
misskilning sem virðist hafa gert
vart við sig varðandi byggingu
húss sem afi minn, Erlendur Ein-
arsson, reisti að Breiðabólsstöðum
á Álftanesi.
Sá misskilningur virðist vera
kominn á kreik að Erlendur
Bjömsson hafí reist húsið en það
er rangt enda var Erlendur
Björnsson einungis unglingur
þegar húsið reis. Erlendur Einars-
son var hins vegar fæddur 1829
og reisti húsið árið 1884.
Þetta er fyrsta steinhúsið sem
reis hérlendis að Bessastaðastofu
undaskilinni og var reist með
sama hætti og Alþingishúsið.
Þótt húsið sé farið að láta á
sjá vegna aldurs er það mjög
rammgert að allri byggingu enda
var vandað mjögtil smíðarinnar.
Til dæmis hefur það staðist alla
jarðskjálfta sem orðið hafa á þess-
urn tíma án þess að haggast.“
Veski var stolið
í Hólagarði
Kolbrún hringdi:
„Mánudaginn 11. ágúst skrapp
ég í banka til að sækja barnameð-
lag. Þaðan fór ég upp í verslunina
Hólagarð að versla. Ég var þar
einungis í smástund og hafði
bílinn í {jangi fyrir utan. I veskinu
var ég með 15.000 kr. en þurfti
ekki að nota þær þar sem ég er
í reikningi hjá Hólagarði.
Tveimur eða þremur mínútum
síðar uppgötvaði ég að ég hafði
gleymt veskinu inni í Hólagarði
og flýtti ég mér þangað til að ná
í það. Þegar ég kom á staðinn
var veskið horfíð og enginn kann-
aðist við að hafa séð það.
Ég lét ná í lögregluna en þeir
gátu ekkert gert í málinu.
Vil ég því biðja þann sem gerði
þetta að hugsa sig um. Fyrir utan
það hve það kom sér illa að tapa
peningunum, við áttum að greiða
af íbúð þennan sama dag, voru í
veskinu ýmis skilríki sem mér
kemur afar illa að missa.
Ef þjófurinn sér að sér getur
hann hringt í síma 75172 og iátið
mig vita hvernig ég get nálgast
veskið."
Ytrasta hrein-
lætis gætt
á Þingvöllum
Aðstoðarmaður þjóðgarðsvarð-
ar á Þingvöilum hringdi:
„Mig langar til að svara konu
sem skrifar í Velvakanda þriðju-
daginn 13. ágúst og kvartar meðal
annars undan því að kamramir á
Þingvöllum hafí verið óþrifalegir
þegar hún sótti Þingvelli heim um
verslunarmannahelgina.
Ég sá sjálfur um að hreinsa
kamrana fostudaginn fyrir versl-
unarmannahelgina og treysti mér
til að halda því fram að þeir geti
alls ekki hafa verið eins og hún
lýsir þeim. Ýtrasta hreinlætis er
gætt á þessum stað og langar
mig til að lýsa því hvemig þeir
eru hreinsaðir.
1. Hreinsað umhverfís salemið.
2. Pappír og annað msl á gólfí
hreinsað burt.
3. Heitu vatni sprautað með hand-
dælu á setu, veggi og gólf.
4. Ajax hreinsivökva hellt yfír
setu, gólf og veggi og síðan skrúb-
bað.
5. Seta, gólf og veggir spúluð
með heitu vatni undir þrýstingi.
6. Klór hellt yfír setu og gólf og
síðan spúlað.
Þetta var sem sé gert föstudag-
inn fyrir verslunarmannhelgina
og auk þess var rusl sem til féll
hreinsað eftir því sem hægt var
um helgina sjálfa.
Þetta er gert að staðaldri á
Þingvöllum og meira er held ég
varla hægt að kreíjast. Að
minnsta kosti eru kamramir á
Þingvöllum alls ekki óþrifalegri
en gengur og gerist þótt kamrar
séu auðvitað aldrei aðlaðandi."
Fyrir-
spurn til
borgar-
yfir-
valda
Hvaða jarðrask á sér stað við
stokkana gömlu í Öskjuhlíðinni,
rétt fyrir ofan listaverkið
Vatnsberann? Það er verið að
rífa gömlu stokkana, en von-
andi verða þeir byggðir aftur,
því margir nota þá sem göngu-
leið. En svo er búið að merkja
fyrir einhveiju öðru, sem mér
leikur forvitni á að vita hvað
er. Er þetta holt friðað? Við
íbúar Hlíðahverfis vonum svo
sannarlega að svo sé.
Ég fór um holtið bæði á sunnu-
dag og mánudag og í bæði skiptin
sat lóa á sama steininum og virt-
ist jafn óhamingjusöm og ég að
sjá vinnuvélar vera að störfum, já,
kannski þar sem hún átti hreiður
í vor.
Ein sem gengur oft um
Öskjuhiíðina
Mikið atriði
að fylla full-
virðisréttinn
— segir Guðlaug’ur bóndi í Lækjarbotnum
Selfossi.
„Það er mjög mikið atriði að ná
að fylla fullvirðisréttinn,“ sagði
Guðlaugur Kristmundsson bóndi
á Lækjarbotnum i Landsveit og
kvaðst þess vegna vera tilbúinn
að kaupa mjólk af öðrum til að
ná þessu, en líkur væru þó á að
hann næði að fylla kvótann.
Guðlaugur kvaðst hafa skorið
niður gripi og minnkað fóðurbætis-
gjöf strax og ljóst var hver kvótinn
væri. Hann sagði þetta hafa farið
illa með kýmar sem vonlegt væri
og erfitt að ná þeim upp aftur.
Guðlaugur fékk úthlutað 82 þúsund
lítrum, þar af eru 8 þúsund lítrar
viðbótarúthlutun. Hann kvaðst hafa
farið að reyna að ná kúnum upp
aftur í nyt þegar viðbótin kom og
líklega næðist að framleiða upp í
fullvirðisréttinn. Útlitið hefði hins
vegar verið þannig að hann hefði
alveg eins búist við að um 3000
lítrar gengju af.
„Það þarf ekki annað en að kým-
ar veikist og þá getur illa farið og
Guðlaugur Kristmundsson, bóndi
á Lækjarbotnum.
maður nær ekki upp í fullvirðisrétt-
inn. En til að standa vel að vígi
fyrir næsta verðlagsár og kvótaút-
hlutun þarf maður að fylla kvótann,
annars á maður á hættu að verða
skorinn enn meira niður,“ sagði
Guðlaugur í Lækjarbotnum.
Sig Jóns.
HÁSKÓLABÍÓ AUGLYSIR
i ■
NY MYNDB0ND
MEÐ ÍSLENSKUM TEXTA
Byltingin
Ný stórmynd frá leikstjóra
Chariots of fire og Grey-
stoke, Hugh Hudson, með
úrvalsúrvalsleikurunum Al
Pacino, Donald Suther-
land og Nastassia Kinski.
Space
Nýr myndaflokkur byggð-
ur á metsölubók James .
Mitchener, með fjölda úr-
valsleikara. Einn vinsæl-
asti sjónvarpsþáttur
heims um þessar mundir.
Sjálfboða-
liðar
Stjörnurnar úr Splash, þeir
John Candy og Tom Hanks
fara á kostum í þessari
bráðskemmtilegu
grínmynd.
i a.
Fást á öllum betri myndbandaleigum