Morgunblaðið - 21.08.1986, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 1986
p tr ./ m/Wí W-f/'-'?■ m
fpKI w\~ ~ m
Greifarnir á sviðinu við Arnarhól.
Morgunblaðið/Börkur
„Gleymum þessu
sumri aldrei“
-segir einn Greifanna, sem léku á
tónleikunum á Arnarhóli í fyrrakvöld
„VIÐ höfum fengið slíkar móttökur síðustu mánuði að það er
öruggt að við gleymum þessu sumri aldrei," sagði Felix Bergs-
son, einn Greifanna frá Húsavík, í samtali við Morgunblaðið í
gær. Hljómsveitin var ein þeirra, sem fram komu á rokktónleikun-
um á Arnarhóli í fyrrakvöld.
„Rokktónleikarnir á Amarhóli
tókust alveg stórkostlega, vægast
sagt og það sem upp úr stendur
er að þetta er fjölsóttasta rokk-
hátíð sem haldin hefur verið á
íslandi fyrr og síðar,“ sagði Ólaf-
ur Jónsson, forstöðumaður
Tónabæjar, en hann sá um skipu-
lagningu tónleikanna.
„Fjöldi fólks, sem á hlýddi var
á milli 20 og 30 þúsund að því
er mér taldist til og held ég að
svona hátíð hafí aldrei farið jafn
vel fram. Krakkamir hegðuðu sér
vel og ölvun var tiltölulega lítið
áberandi. Þessi hátíð tók töluverð-
an undirbúning og gekk upp
hundrað prósent eins og allt
Reykjavíkurafmælið hefur gert
hingað til. Við byrjuðum á hljóm-
sveitum framtíðarinnar og
enduðum á þeim elstu og reynd-
ustu. Ég held að nýja hljóðkerfið
hafi endanlega sannað ágæti sitt
með því að halda fyrir fólki vöku
um allt Stór-Reykjavíkursvæðið.“
Lögreglan í Reykjavík sagði
rokktónleikana hafa farið vel fram
og áætlaði að þar hefðu verið
samankomnir á bilinu 15-20.000
manns. Einhver ölvun hefði verið
eftir tónleikana en engin vand-
ræði á fólki. Kvartanir yfir hávaða
hefðu borist víða að úr Reykjavík
og Kópavogi, enda barst hljóð
sérlega vel í hægviðrinu á mið-
vikudagskvöld.
„Þessir tónleikar vom mjög
skemmtilegir, meiri háttar eigin-
lega og við emm mjög ánægðir
með þær viðtökur sem við feng-
um,“ sagði Felix Bergsson. „Við
æfðum mikið fyrir hljómleikana
og tvo síðustu dagana lokuðum
við okkur inni í bílskúr vegna
undirbúningsins. Stemmningin
var hreint ótrúleg, mest upp við
sviðið, en klappað og sungið upp
allan hól,“ sagði Felix.
„Ég er ánægður með tónleik-
ana og fannst ég ná til fólksins,"
sagði Bubbi Morthens í gær, en
hann kynnti þarna hljómsveit sína
MX-21. „Hljóðið á sviðinu var
slæmt og dálítið kalt, en þetta var
mjög gaman. Þetta hefði gjarnan
mátt standa lengur og hver hljóm-
sveit mátt leika í klukkutíma,
fyrst við vomm að þessu á annað
borð. Þessir tónleikar vom með
þeim stærstu sem ég hef leikið á
hérlendis. Það er langt síðan ég
hef stigið á svið og rokkað, en
það er voðalega gaman, því rokk-
ið hefur lengi verið ríkjandi í mér
og er partur af mínu lífsmynstri."
Þeir Felix og Bubbi vom sam-
mála um að framtak sjónvarpsins
með beinni útsendfingu hefði ver-
ið hið bezta.
Þúsundimar sem fylgdust með tónleikunum.
„Karatemeistarinn 2
hluti“, í Stjörnubíó
STJÖRNUBÍÓ frumsýndi 22. ágúst kvikmyndina
„Karatemeistarann, 2. hluta“. Hún er bandarísk,
gerð af sömu aðilum og gerðu „Karatemeistarann"
1984.
John Avildsen er leikstjóri og með helstu hlutverkin
fara Noriyuki Morita og Ralph Macchio. Myndin var
fmmsýnd í júni sl. í Bandaríkjunum. I fréttatilkynn-
ingu frá Stjömubíó kemur m.a. fram að myndin er,
eins og fyrri myndin, um Daníel og karatekennara
hans Miyagi. Þeir fara í heimsókn til æskuslóða Miyag-
is á japönsku eyjunni Okinawa, þar sem gamlir óvinir
reyna að gera upp gamlar skuldir. Myndin er að mestu
tekin á Okinawa, en þar sem eyjan er undirlögð hernað-
armannvirkjum, varð að taka hluta hennar á Hawai-
eyjum.
Sýningin Kæra
Reykjavík í
Kaupmannahöfn
Jónshúsi.
14. ÁGÚST sl. opnaði Tryggvi Árnason myndlistarmaður grafíksýn-
ingu í Galleri Knabro í Knabrostræti. Sýninguna nefnir hann Kæra
Reykjavík og sáu margir reykvískir listunnendur hana á Kjarvalsstöð-
um í fyrrasumar. Gleður nafnið og myndirnar margan Reykvíkinginn
og aðra þá, sem fjarri eru höfuðborginni á merkisafmælinu, en vildu
gjarnan hverfa heim um stund, enda sýningin haldin í tilefni af
afmælinu.
A sýningunni eru 22 myndir, all-
ar unnar með silkiþrykki og allar
sýna þær gömul hús og stemmn-
ingu í Reykjavík. Ljóðrænn texti
listamannsins fylgir hverri mynd
og má þar skynja æskuminningar
Tryggva, sem fæddur er við Tjörn-
ina og hefur lengst af búið í gamla
bænum. Óvenjuleg litasamsetning
myndanna vekur athygli, ekki sízt
Dana, sem hafa litaskyn svo ólíkt
því íslenzka.
Tryggvi Ámason á sér ekki lang-
an feril sem myndlistarmaður, þótt
fæddur sé 1936. Hann lauk námi
frá Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands 1983, en var áður starfsmað-
ur Verzlunarbankans. Fyrsta
einkasýning hans var á Kjarvals-
stöðum í fyrra eins og áður sagði,
en í sumar sýndi hann í Gallerí-
Laxdal á Akureyri nokkrar mynd-
anna úr Kæru Reykjavík og einnig
nýrri myndir unnar með mezzotintu
og landslagsmyndir með svonefndu
collograph. Lýkur þeirri sýningu nú
um helgina.
Afar vönduð sýningarskrá er til
sölu á sýningunni og var hún gefin
út með styrk frá menntamálaráðu-
neytinu og lögð á það áherzla að
vinna hana heima. Sverrir Her-
mannsson menntamálaráðherra
skrifar formála og ámar listamann-
inum heilla. í skránni er ljósmynd
af gamla miðbænum í Reykjavík,
vettvangi grafíkmyndanna, en þær
eru allar litprentaðar ásamt með
hinum hugljúfu textum Tryggva.
Eigulegasta bók og vel unnin af
List-Gallerí í Reykjavík. Segir í
umsögn um listamanninn, að hann
hafi gefið gömlum Reykvíkingum
nýja innsýn í borgina sína. „Eitt
er að horfa, annað að sjá.“
Sýning Tryggva Ámasonar í
Galleri Knabro verður opin út
ágústmánuð. G. L. Ásg.
Sumarbústaðurinn gjöreyðilagðist I eldinum. Morgunbiaðið/Amór
Sumarbústaður
eyðilagðist í eldi
SUMARBÚSTAÐUR í Hvassa-
hrauni, skammt fyrir austan
Kúagerði, brann til kaldra kola
í fyrrinótt. Bústaðurinn, sem var
einlyft timburhús, var mannlaus
þegar eldurinn braust út.
Lögreglunni í Keflavík var til-
kynnt um eldinn laust eftir klukkan
þtjú umrædda nótt og var slökkvi-
liðið í Hafnarfirði kallað á staðinn.
Mikill eldur var þá í húsinu og gekk
greiðlega að ráða niðurlögum hans,
en bústaðurinn var þá ónýtur af
eldi og reyk. Eldsupptök em ókunn
en rannsóknarlögreglan í Keflavík
hefur málið til meðferðar.
Þrettán ára söludrottning:
Seldi fjögfurhundr-
uð fimmtíu off eitt
afmælismerki
Guðrún Eva Guðmundsdóttir, 13 ára Reykjavíkurmær, varð sölu-
drottning á afmælismerki Reykjavíkurborgar. Guðrún seldi alls 451
merki á þremur dögum. Sölukóngur varð Sigurður Kristjánsson, en
hann seldi 797 afmælismerki.
í samtali við Morgunblaðið sagð-
ist Guðrún hafa selt mest á Kjar-
valsstöðum og í heimahverfi sínu
Fossvoginum, en þar gekk hún í
hús og bauð merkið til sölu. Flestir
hefðu verið mjög jákvæðir og al-
mennilegir en einstaka maður brást
illur við og sagðist ekki vilja hafa
svona „drasl" í barminum.
Guðrún ergamalreynd sölustúlka
þrátt fyrir ungan aldur. Hún hefur
margsinnis selt merki og annan
varning fyrir meðal annars Björg-
unarsveit Ingólfs og Slysavamafé-
lagjð og undanfarin ár hefur hún
alltaf unnið Viðeyjarferð hjá Slysa-
varnafélaginu.
Hjá Æskulýðsráði Reykjavíkur
fengust þær upplýsingar að vitað
væri um að rúmlega 10.000 merki
hefðu selst, en að enn væru um
2.000 merki útistandandi. Ætlunin
væri að veita öllum sem selt hefðu
yfir 200 merki viðurkenningu og
að sölukóngi og söludrottningu yrðu
veitt sérstök verðlaun.