Alþýðublaðið - 01.03.1932, Blaðsíða 2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Þessir dagar.
Fyrir nokkrum dögum stó'ð hér
í blaðinu frétt um að togaii hefði
aflað svo vel, að hann hef'ði verið
fyltur á fjórum dögum. En þessi
frétt er ekkert einsdæmi um þess-
ar mundir, því úr hverri veiðistöð
er sama sagan um landburð af
fiski.
Ætla mætti, að þegar svona er
góður afli þá væru allar fleytur
á floti. En þa'ð er öðru nær.
Línuveiðararnir hafa svo að segja
.allir legið við land, og togararnir
eru sem óðast að hætta nú. Og
það er tvent, sem eigendum tog-
aranna kemur til. í fyrsta lagi að
þeir vita ekki með vissu hvort út-
gerðin getur gefið arð, og í öðru
lagi þá hafa þeir, sem óvitrastir
eru í félagi botnvörpuskipaeig-
enda, fengið ráðið því, að tog-
ararnir séu látnir hætta í biii,
af því a'ð þeir halda, að þeir með
því geti frekar hrætt verkalýðinn
til kauplækkunar.
En me'ð þessu eru þeir að eins
að vinna á móti sjálfum sér. Það
hefir ekki verið svd mikii vinna
undanfarið við þessa togara að
það minki neitt sem munar vinn-
an í landi, þó þeir hætti, og
verkalýðurinn veit það fullvel, að
ekki batnar hagur hans, þó ofan
á atvinnuleysið komi kauplækkun,
og er pví ciils ekki pess sinnis ad
lœkka kaupid.
Það, sem útgerðarmenn geta
með þessari stöðvun togaranna e"
því ekki annað en að benda
mönnum á, hvílíkt ólag á fram-
leiðslunni stafar af því, að ein-
stakir menn skuli eiga þessi fram-
leiðslutæki, og framleíðslan því
vera rekin með gróða þeirra fyr-
ir augum, í stað þess að togar-
arnir væru þjóðareign og reknir
með það fyrir augum, að láta
Vinnuna í landinu ganga jafnt og
reglulega.
WIsisj i 13 poknm
teklð i Tryegva
gamla.
í nótt kom togarinin Tryggvi
gamli hingað frá Englandi. Toll-
þjónar fundu í sMpiinu inni í sér-
stöku tilbúnu rúmi í kolageymsl-
unni mjög mikið af áfengi: 24
heilflöskur af rommi, 69 heilflösk-
ur af genever og 186 hálfflösikur
af wbisky.
Brnggarl
teklnn.
I gær tók lögreglan bruggara
einn hér í bænum, og fanst hjá
honum 15 lítra brúsi með spíri-
tus, sem var íslenzkur iðnaður,
Maðurinn, sem á þennan hátt
hafði orðið við hrópunum um a'ð
efla íslenzkan iðnað, heitir ólaf-
ur, og á heimiai í A'uðsholti í Fl óa.
Búnaðsiliingið og verkalanpið.
Áskorun.
Vegna atvinnuleysis í bænum
skorum við á alla verkamenn og
konur, að koma eigi hingað í at-
tvinnuleit í vor eða sumar óráðin,
því samtöMn hér munu leggja á-
herzlu á að tryggja bæjarbúumi
þá vinnu, sem um verður að ræðet
á staðnum.
Siglufirði, 26/2 1932.
Stjórn Verkamannafélagsins.
Stj órnarskrárbrey tingar.
Jafnrétti kjósenða.
Kosningaréttur nnga fólksins.
Fátækrastyrkur svifti ekki kosningarétti.
®asalar og nýjar kröfnr Alpýðuflokkssns.
Á fundi í Félagi ungra jafnað-
armanna í gærkveldi var sam-
þykt eftirfarandi ályktun:
. F. U. J. í Rví,k lýsir megnustu
óbeit sinni á því athæfi Búnaðar-
þingsins að ganga út fyrir verk-
svið sitt og reka erindi stórat-
vinnurekenda me'ð því að beiía
sér fyrir stórkostlegri kauplækk-
un. Enda eru fuiltrúar bænda-
stéítarinnar með þessiari svívirði-
legu árás á kjör verkalýðsins
beinlínis a'ð berjast á .möti hags-
munum meginþorra allra sveita-
bænda, sem einvörðungu eiga
samleið með verkalýðnum og eru
í megnustu hagsmunaandstöðu
við stóreigna- og hátekju-menn
yfirstéttarinnar.
FollnaðarsamBvkt verðtoilsins
í Bretiandi.
Lundúnum, 1. marz. U. P. FB.
Lávarðadeildin hefir samþykt
verðtollsfrumvarpið við 3. um-
ræðu. Lagaffumvarpið hefir feng-
ið staðfestingu konungs og gekk
í gildi á miðnætti.
Lappónppreisnía
Helsingfors, 29. febr. U. P. FB.
Uppreistarmenn hpfa sett Svinhuf-
vud úrslitakosti og krafist þess,
að ný stjórn verði mynduð, sem
telji sér skylt að kveða ni'ður
Marxismann.
Helsingfors, 29. febr. U. P. FB.
Lappómenn flykkjast að hvar-
vetna úr landinu til Tavastehus
(ién. inini í landi), og halda þar
fundi undir forystu Lappómanna-
leiðtogans Kosola bónda. — Ko-
sola segist búast við þvi, að til
alvarlegra átaka kunni að koma,
þar eð Lappómenn séu fastráðnir
í að koma áformum sínum í
framkvæmd. — Alt með kyrrum
kjörum í Helsingfors.
Helsinigfors, 1. marz: Svinhuf-
vud hefir gefið út tilsMpun, seiu
heimilar yfii'völdunum að baiina
útgáfu blaða og tímiarita og
kröfugöngur, leyfir yfirvöldunum
húsrannsóknir án sérstakrar beim-
ildar, eftirlit me'ð pöstflutning-
um, bréfaskoðun, símskeytasend-
ingum, talsímanotkun, og loks er
heimilað að banna ferðalög. —
Til engra óeirða eða bardaga hef-
ir enn komið. — Hims vegar bú-
i!st við, að herinn fari á kreife
innan skamms.
Jardarför Karolínu Gottskálks-
dóttur, konu Þórðar Árnasonar,
fer fram miðvikudaginn 2. marz
frá þjóðkirkjunni, hefst rneð hús-
kweðju frá heimili hinnar látnu,
Amtmannsstíg 4, kl. 1 e. m.
Alþýðuflokkurinn hefir árum
saman barist fyrir þessum réttar-
bótum: Jafnrétti kjósenda, sivo að
hver þingflokkur fái þingmanna-
fölu í réttu hlutfalli við kjósenda-
tölu hans. Kosni'ngarétti frá 21 árs
aidri. Menn missi ekki ko.S'niinga-
rétt, þótt þeir verði að þiggja
sveitarstyrk. 1 stjórnarskrárfrum-
varpi því, er Héðinn Valdimars-
son flutti á alþingi 1927, voru
þannig allar þesisiar réttarbætur,
og flokkurinn hefir unnið að því
um margra áta skeið bæði utan
þings og innan, að þær nái fram
að ganga.
Svo var það á alþiugi í fyrra
vetur, að íhaldsflakkurinn gekk
inn á þessar kröfur.
Nú flytja fulltrúar beggja þess-
ara flokfca, Alþýðuflokksins og
íhaldsflofefcsins, í kjördæmanefnd-
inni, þ. e. Jón Baldvinsson fyrir
hönd Alþýðuflokksiins og Jón
Þorláksson og Pétur Magnússon
af hálfu íhaldsflokksins, frumvarp
á alþingi um þá breytingu á
stiórnarskránni, er veiti þessar
réttarbætur.
Þar segir svo (26. gr. stjórnar-
skrárinnar verði þannig):
• „Á alþingi eiga sæti þjóðikjömir
fulltrúar. Alþingi skal svo skipað,
að hver þingflokkur hafi þlng-
sæti í samræmi við atfcvæðiatölu
þá, sem greidd er frambjóðendum
floikksins samtals við alimennar
kosningar, '
Kjósa skal varaþingménn á
sama hátt og samtímis og þing-
menn eru kosnir. Ef þingmaður
deyi’ eða fer frá á kjörtímanum,
tekur varaþingmaður sæti hans,
það sem eftir er kjörtímans. Saima
er og ef þingmaður forfallast, svo
að hann getur ekki setið á ein-
hverju þingi eða þiað, sem eftir
er af því þingi.
Þingmenn sikulu kosnir til fjög-
urra ára.“
Kosningarétt öðlist menn, karl-
ar og konur, 21 árs, og fátækra-
Útvarpid í dag: Kl. 16,10: Veð-
urfregnir. Kl. 19,05: Þýzka, 2. fl-
Kl. 19,30: Veðurfregnir. Kl. 19,35;
Ensika, 2. fl. Kl. 20: Erindi: Varn-
ir gegn kynsjúkdómum (Hannes
styrkur svifti ekki kosningarétti,.
svo sem áður er sagt.
Kjörgengur sé hver sá ríkis-
borgari, er kosningarétt befir.
Felt sé burtu úr stjórnarskránni
ákvæðið um, að kjóisandi skuli
hafa verið heimilisfaistur í kjör-.
dæminu eitt ár.
Ákvæði um, ó hvern hátt það
sikuli trygt, að hver þingilokkurí
fái þingmenln. í samræmi við kjós-
endatölu fiokksins, og önnur nán-
ari ákvæði um alþingiskosmingar,
skulu sett í kosningalögum, 4
samræmi við hina breyttu stjórn-
arskrá.
Þriðjungur þingmanna sé í eM
deild, þeir er sameinað alþingi
kýs úr hópi þingmanna með hlut-
faliskosningu í byrjun fyrsta
þings á kjörtímabilinu. Hinir tveir
þriðju hlutár séu í neðri deild.
Ef tala þingmianna er ekki að
fullu deilanleg með þremur, eigi
þeir einn eða tveir þingmienn, .
sem umfram eru, sæti í neðri i
deild. — í griednargerð frumvairps--
ins áskilur Jón Baldvinsson sér
rétt til að fylgja eða koma fram
með breytingartillögu um deilda-
skipun þingsins, þ. e. að alþingi
verði ein málstofa.
Á sama hátt ásMlur hann sér-
rétt til að flytja eða fylgja breyl-
ingartillögu um búsetuskilyrðið,.
sem látið er haldast í frumvarp'
inu eins og það er í núgildandi
stjórnarsikrá, sem er, að skilyrði
fyrir kosningarétti sé að hafa ver-
ið búsettur í landinu síðustu 5 ár
á undan kosningu. Alþýðuflokkur-
inn vill afnema þetta skilyrði.
Hann vill, að allir íslenzMr ríkis-
borgarar, sem heimia eiga hér á
landi, hafi kosningarétt
Loks er það ákvæði í etjórnar-
sikrárfrumvarpinu, að umboð
þingmanna falli niður þegar
stjórnarskrárhreytingin hefir öðl-
ast gildi, og fari þá fram al-
mennar kosningar til alþingis;.
Guðmundsson). Kl. 20,30: Fréttir.
Kl. 21: S öngvélartóinlieikar. Kl.
21,15: Upplestur (Theódór Frið-
riksson). Kl. 21,35: Söngvélartón-
leikar.