Morgunblaðið - 02.09.1986, Síða 46
46
MORGUNBLADIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SÉPTEMBER 198G
„ Vt& erum alLta-f c& leita duylegmrj
°9 gáfa&um,ungum mönnum eÁnsog þ'ef.'
-..-í
*
»
. . . að snyrta og fegra heimil-
ið.
TM R*o. U.S. Pat Oft.—all rights reserved
© 1986 Los Angeles Times Syndicate
POLLUX É
Það var lán í óláni að það
var ekki handleggurinn!
Litlu númerin eru auðvit-
að ódýrari?
HÖGNI HREKKVÍSI
Slæm þjón-
usta við
Garðbæinga
Ein reið skrifar:
„Eg er ungur Garðbæingur sem
er mjög óánægður með samgöngur
við- nágrannabæi okkar, aðallega
Reykjavík. Daglega þarf ég að fara
þangað og til baka og í hvert sinn
verð ég fyrir miklum vonbrigðum
með þjónustuna, sem er alveg í lág-
marki.
Fyrst og fremst er það að vagn-
amir fara ekki nema á klukkutíma
fresti, og sleppa úr tveimur ferðum
á kvöldin. Við Garðbæingar erum
nú ekkert öðruvísi en annað fólk,
við þurfum að fara okkar ferðir á
kvöldin, og tíðar en á klukkutíma
fresti.
Annað er það að vagnar Land-
leiða ættu flestir frekar að vera á
fornminjasafni en á götunum.
Margir þeirra eru beinlínis hættu-
legir umferðinni.
Ekki eru bílstjóramir til þess að
bæta ástandið. Þeir virðast hvorki
kunna á klukku né almennar um-
ferðarreglur, og hvað þá algengustu
kurteisi, t.d. að reykja ekki í bílnum,
eins og margir þeirra gera.
Fyrir allar þessar hörmungar
borgar maður svo 50 kr., tvöfalt
það sem Breiðholtsbúar greiða fyrir
sömu vegalengd."
Halldór
Júlíusson
góður maður
„Ég var vistmaður á Kópavogs-
hæli, þar sem Halldór Júlíusson var
starfsmaður, en hann er nú for-
stöðumaður Sólheima í Grímsnesi.
' Halldór hefur alltaf verið mér góður
og ég er reiður yfir greininni sem
birtist í DV á þriðjudag. Halldór
talaði við mig og var mér góður
og okkur öllum.
Með kærri kveðju til Halldórs.
Sæmundur Kristjánsson."
Úr grasagarðinum í Laugardal.
Þessi blettur
er til skammar
Þórunn Guðmundsdóttir skrif-
an
„Þegar gömlu sundlaugamar
voru lagðar niður var allt sem þeim
tilheyrði hreinsað burt enda úr sér
gengið. Svæðið átti víst að gera að
fallegri grasflöt.
Svo illa tókst til að sú flöt greri
aldrei og hefur ætíð síðan verið lítið
augnayndi. Hygg ég að þama hafi
verið kastað til höndunum, aldrei
var næg gróðurmold þama og að
auki var flötin lægst í miðjunni svo
að þar myndast svell á vetram með
tilheyrandi kali.
A góðum sumram, eins og í
fyrra, grær flötin að hluta. Þama
voru einu sinni gróðursett nokkur
tré en þau þrífast ekki frekar en
annað þama. Hefur mér og fleiram
þótt þessi merki staður eiga betra
skilið.
Þama hefði gjaman mátt setja
minnismerki um þá starfsemi sem
einu sinni var. Slíkt hefur nú verið
gert af ómerkara tilefni.
í vor var hrúgað upp miklum
hrygg á blettinum og hann þakinn
að nokkra með grasi. Síðan vora
tré gróðursett eftir endilöngum
hryggnum og við báða enda hans.
Þetta var nú svo sem ágætt að sínu
leyti en götumegin við hrygginn
vora skildir eftir óþaktir blettiV með
óreglulegri lögun og millibili. í þessi
smáflög vora sett blóm og ein tijá-
planta í hvert. AUs staðar skín sfðan
í moldina.
Þessi frágangur fínnst mér
ósmekklegur. Síðan er eftir stór
hluti af gamla flaginu. Fyrir framan
húsin að baki blettinum era vel hirt-
ir garðar og gerir það þetta
óræktarflag enn ömurlegra að sjá.
Þannig er þessi blettur útlits á
200 ára afmæli borgarinnar.
Oft er talað um að æskilegt sé
að útlendingar sem hingað koma
fái jákvæða hugmynd um land og
þjóð. Við Sundlaugaveg eru tjald-
stæði sem útlendingar nota mikið
og líka strætisvagnar. Við þeim
blasir þetta flag sérhvern dag.“
Víkverji skrifar
Um heim allan leggja menn sig
fram um að draga úr umferð-
arslysum með öllum tiltækum
ráðum. Ólafur Ólafsson, landlækn-
ir, hefur verið ólatur við að láta í
sér heyra um nauðsyn þessa. Máli
sínu til stuðnings vísar hann meðal
annars til þess gífurlega kostnaðar,
■ sem lendir á þjóðarbúinu við hvert
alvarlegt umferðarslys — svo að
ekki sé minnst á harm þeirra, sem
fyrir slysunum verða. Dauðasiysum
í umferðinni hefur Qölgað svo mjög
í Noregi undanfarið, að þar grípa
stjómvöld og fjölmiðlar til sérstakra
ráða og sérkennilegra, ef svo má
segja, til að minna almenning á
hættumar. Víkveiji rakst fyrir
nokkra á heila opnu í norsku dag-
blaði, þar sem ekkert var birt annað
en krossar til minningar um þá, er
farist hafa í bílslysum í Noregi það
sem af er árinu.
Það hefur löngum verið sagt, að
þær vikur, sem nú fara í hönd séu
þær hættulegustu í umferðinni hér
á landi. Skólabömin eru að hefja
göngu sína eftir sumarleyfi; mörg
í fyrsta sinn. Mikillar aðgæslu er
því þörf og sjálfsagt að minna alla
foreldra á að brýna hana fyrir böm-
um sínum. Töluverðar ráðstafanir
hafa verið gerðar af hálfu yfírvalda
til að draga úr hættu á fjölförnustu
leiðum skólabama. Bílaeign og
umferð eykst á hinn bóginn jafnt
og þétt og sjást þess æ víðar merki,
að gatnakerfið er ekki miðað við
hinn mikla þunga. Viðunandi lausn
fæst ekki með hindranum og hraða-
takmörkunum; hún fínnst ekki
nema það takist að beina umferðar-
þunganum í nýja farvegi fjarri
skólagötum.
XXX
*
Inýlegri forystugrein í bandaríska
blaðinu New York Times er á
það minnt að á ári hveiju farist um
45.000 Bandaríkjamenn í umferð-
arslysum. Blaðið segir, að til sé
einföld leið til að lækka þessa tölu
um 3% eða um 100 á mánuði. Þessi
leið hafí verið farin á Norðurlöndum
og Kanadamenn séu að velja hana.
Bandaríkjamenn ættu að gera slíkt
hið sama og það fyrr en seinna.
Þessi einfalda leið eða „litla krafta-
verk“ eins og blaðið orðar það sé
að hafa ökuljósin kveikt að degi til.
Blaðið segir, að auðvelt sé að
breyta rafkerfí bíla á þann veg, að
„parkljósin" kvikni að framan og
stöðvunarljósin að aftan um leið og
vélin er ræst. Þá kemur fram, að
rannsóknir í Kanada bendi til þess,
að með því að hafa ljósin ávallt á
í akstri megi fækka. umferðarslys-
um um 3 til 6%. Leggur kanadíska
samgönguráðuneytið til, að frá 1.
september 1988 verði ölium skylt
að aka með ljósin á í Kanada.
New York Times segir að það
sé tregðulögmálið og lagaákvæði,
sem tefji fyrir breytingu í þessa átt
í Bandaríkjunum. í sumum ríkjum
Bandaríkjanna er beinlínis bannað
að nota bílljós að degi til. Fyrir
stjómvöldum í Bandaríkjunum
liggja nú tillögur um akstur með
ljósum. Afgreiðsla hennar hefur
þegar tekið sex mánuði. Hvetur
New York Times samgönguráð-
herra landsins til að láta hendur
standa fram úr ermum og skylda
ökumenn til að nota ljósin jafnt að
nóttu sem degi.
XXX
Hér á landi hefur Salome Þor-
kelsdóttir, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjaneskjör-
dæmi, verið helsti talsmaður þess
á Alþingi, að ökumenn verði skyld-
aðir til að aka með ljósum allan
sólarhringin. Þegar framvarp til
nýrra umferðarlaga var til umræðu
á Alþingi sl. haust lagði Salome til
breytingu á því ákvæði framvarps-
ins, þar sem mælt var fyrir um að
ljósatími yrði lögleiddur allan sólar-
hringinn frá 1. október til 1. apríl.
Vildi Salome, að ljósaskyldan yrði
frá 1. september til 1. maí. Sagðist
hún hafa í huga þau rúmlega
40.000 böm, sem he§a skólagöngu
1. september á haustin.
Framvarpið að nýjum umferðar-
lögum náði ekki fram á síðasta
þingi; annað þingið í röð. Okkur
Islendingum er því ekki enn lög-
skylt að aka með ljósum allan
sólarhringinn. A hinn bóginn færi
vel á því að sem flestir færa að til-
lögu Salome Þorkelsdóttur og
kveiktu á Ijósunum nú í september,
þegar þeir leggja af stað á morgn-
ana.
J