Morgunblaðið - 20.09.1986, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1986
17
Fáein orð nni
blómlauka
Túlípanabreiða
Nú er rétti tíminn til að hugsa
fyrir vorinu.
Svo er sagt að Hollendingar,
mesta blómlaukaþjóð í heimi, geri
orð sem þessi að einkunnarorðum
sínum þegar hausta tekur. Og
vissulega eru þau í tíma töluð því
ef við ætlum okkur að njóta
ánægjunnar af fegurð og litskrúði
blómlaukanna veitir ekki af að
hafa tímann fyrir sér.
Blómlaukar eru afar fjölbreyti-
legir og tegundir óteljandi — og
alltaf er eitthvað nýtt og spenn-
andi að bætast við. Þeir sem þegar
hafa náð einhveijum árangri á
ræktunarbrautinni reyna vitan-
lega að komast yfir eitthvað
fágætt og nýstárlegt — en byij-
endur halla sér venjulega að
þrautreyndum tegundum svo sem
páskaliljum, túlípönum, krókusum
og ýmsum smálaukum sem harð-
gerðastir eru og auðveldastir í
rætkun. Besti gróðursetning-
artíminn er talinn vera september-
BLÓM
VIKUNNAR
21
Umsjón:
Ágústa Björnsdóttir
mánuður og framanaf október því
allflestum laukum þarf að ætla
góðan tíma til þess að mynda
rætur áður en veður harðna. Nær
undantekningarlaust njóta blóm-
laukar sín best í þyrpingum (ekki
í einföldum röðum) og ætti ekki
að láta færri en 3—5 í hveija
holu og í mörgum tilfellum allt
upp í 15—20 ef efni og ástæður
leyfa. Smálaukar mynda mjög
fallegar breiður með tímanum, en
til þess að svo verði þarf að setja
þá all þétt í byijun. Notið ekki
plöntupinna við gróðursetningu
lauka. Besta aðferðin við það er
sú, að grafa hæfilega djúpa og
víða holu með stunguskóflu, losa
vel moldina í botni holunnar svo
að moldin verði laus og létt og
raða síðan laukunum í hana með
hæfilegu millibili, án þess að
þrýsta þeim ofan í moldina. Til
þess að veija moldina sveppum,
sem stundum vilja sækja á þá,
er ráð að sáldra ofurlitlu af efninu
BRASSICOL (eða Eu paren) í
hvetja holu. Þegar moldin hefur
verið sett yfir laukana má strá
yfir hana ögn af garðáburði. Gróð-
ursetningardýpt laukanna fer að
mestu leyti eftir stærð þeirra.
Aiþekkt og auðveld regla í því
máli er sú, að ofan á lauknum
eigi að vera moldarlag sem svarar
þrefaldri hæð lauksins. Dæmi:
Ofan á lauk sem er 4 sm á hæð
á að leggjast 12 sm þykkt moldar-
lag. Þess ber og að gæta að undir
botni lauksins sé a.m.k. 10 sm
djúp gróðurmold vel unnin og
laus.
Flestir blómlaukar eru fjölærir,
þó skyldi fara varlega í að treysta
túlípönum í því efni, þeir geta átt
það til að blómstra aðeins einu
sinni, einkum ef þeir eru mjög
kynbættir. En svo geta þeir líka
blómstrað ánim saman ef sá gáll-
inn er á þeim. Páskaliljur og
margar fleiri tegundir fjölga sér
hins vegar svo mjög að nauðsyn-
legt er að stinga hnausana upp
og grisja þá á nokkurra ára fresti.
Meira um lauka í næstu þátt-
um.
11 1 —
Erum að
fá undratækið
3JA DYRA, 5 DYRA OG 4RA DYRA SEDAN.
—
Betri bfll
j munvaria
bjóðast
Gerið ekki bílakaupin
í ár fyrr
en þið hafið séð
undratækið
INGVAR HELGASON
sýningarsalurinn v/Rauöageröi sími 33560.
HF.