Morgunblaðið - 20.09.1986, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1986
Sex borgir vilja halda
Ólympíuleikana 1992
— leikarnir eru stórgróðafyrirtæki
BARÁTTAN um gullið á Ólympíuleikunum sumarið 1992 er hafin. Að þessu sinni er ekki keppt um verð-
launapeninga, heldur um að fá að halda leikana, því það er stórgróðafyrirtæki. Frá 1896 til 1980 sáu
borgarstjórnir viðkomandi borga um Ólympfuleikana og voru þeir ávallt reknir með tapi. Mesta tapið varð
í Montreal í Kanada 1976, 1 milljarður dollara, aðallega vegna gífurlegra byggingaframkvæmda, sem
hafa ekki staðið undir kostnaði. OL í Los Angeles 1984 voru reknir af kaupsýslumönnum og hagnaðurinn
varð 215 milljónir dollara. Næstu OL verða í Seoul í Suður-Kóreu, en 6 borgir sækja um að halda leik-
ana 1992. Þæreru Amsterdam, Barcelona, Belgrad, Birmingham, Englandi, Brisbane, Astralíu, og Parfs.
í Los Angeles var kostnaði hald-
ið niðri með því að nota mannvirki,
sem fyrir voru, sjálfboðavinnu og
stuðningi stórfyrirtækja. Sala að-
göngumiða og sala sjónvarpsrétt-
ar utan Bandaríkjanna og Kanada
gekk upp á móti kostnaði, þannig
að þær 225 milljónir dollara, sem
bandaríska sjónvarpsstöðin ABC
greiddi fyrir sjónvarpsréttinn í
Bandaríkjunum og Kanada, urðu
nær hreinn hagnaður. Allar borgir,
sem sækja um OL 1992, hafa
skipulagningu og framkvæmd OL
í Los Angeles að leiðarljósi.
Leynileg kosning
Alþjóðaólympíunefndin (IOC) er
skipuð 90 sjálfkjörnum fulltrúum.
Hver þjóð getur aðeins átt einn
fulltrúa, en tvo hafi hún haldið
Ólympíuleika eða íbúafjöldi sé það
mikill að mati nefndarinnar, að
hann réttlæti tvo fulltrúa. í nefnd-
inni eru 4 konur og meðalaldur
nefndarmanna er 64 ár. Nefndar-
menn eru ekki fulltrúar þjóða
sinna, heldur fulltrúar Alþjóða-
ólympíunefndarinnar í heimalandi
sínu. Þeir fá engin laun, en allan
kostnað vegna starfa fyrir nefndina
greiddan. Aætlaður kostnaður í ár
er fjórar milljónir svissneskra
franka sem jafngildir um hundrað
milljónum íslenskra króna. Bene-
dikt Waage var i nefndinni á sínum
tíma, en hann tilnefndi ekki eftir-
mann áður en hann féll frá og er
því enginn íslendingur í nefndinni.
Á fundi nefndarinnar 17. októ-
ber nk., sem haldinn verður í
höfuðstöðvunum í Sviss, verður
leynileg kosning um hvar halda
skuli OL 1992. Fyrst verður kosið
um vetrarleikana, en um sumar-
leikana strax á eftir. Sú borg, sem
fær meirihluta atkvæða, hreppir
hnossið. Nokkrar umferðir þarf til
að skera úr um sigurvegarann, en
í hverri umferð fellur sú borg úr,
sem fæst atkvæði fær. Haldið er
áfram þar til ein borg fær hreinan
meirihluta atkvæða.
Þrennt hafa nefndarmenn eink-
um í huga við kosninguna. Að sem
flestar þjóðir geti sætt sig við
borgina stjórnmálanna vegna og
hætti ekki við þátttöku þess vegna,
en slíkt hefur færst í aukana á
síðustu þrennum Ólympiuleikum
og nú síðast á samveldisleikunum
í sumar. í öðru lagi að ekki sé
hætta á hryðjuverkum og síðast
en ekki síst, hvort viðkomandi borg
geti fjármagnaö leikana, skipulagt
þá og haldið með sóma.
Kynningarbar-
átta borganna
Los Angeles var eina borgin,
sem sótti um OL 1984, en sex
borgir sækja um sumarleikana
1992 og sjö um vetrarleikana.
Gert er ráð fyrir að kynningarstarf
borganna kosti samtals um 100
milljónir dollara. Gefnir hafa verið
út kynningarbæklingar, gerðar
kvikmyndir um borgirnar, nefndar-
mönnum IOC boðið á staðina og
þeim færðar veglegar gjafir. „Þú
verður að sannfæra hvern einasta
nefndarmann IOC um að þín borg
sé best," segir Alain Danet, sem
stjórnar kynningarstarfi Parísar.
Brisbane
Skipuleggjendur kynningar-
starfsins í Brisbane telja að
baráttan standi fyrst og fremst á
milli Parísar, Amsterdam og Barc-
elona, sem fái samanlagt um 50%
atkvæöa. Þeir vonast til að komast
í gegnum fyrstu tvær umferðirnar
og fái eftir það atkvæöi greidd
þeim borgum, sem þá verða fallnar
út, og hreppi þannig leikana. Sally-
anne Atkinson, borgarstjóri Bris-
bane, hefur verið helsti málsvari
borgarinnar varðandi leikana.
Ástralíumenn taka mark á henni
en innan við 20% íbúa Brisbane
eru andvíg því að halda leikana.
Samveldisleikarnir voru í Bris-
bane fyrir fjórum árum, þannig að
flest íþróttamannvirki eru til stað-
ar. Loftslagið er þægilegt, hryðju-
verk óþekkt og fái Brisbane að
halda leikana, mun borgin niður-
greiða flugfar til Ástralíu, svo ekki
verði dýrara að fljúga þangað en
til Evrópuborga.
Það sem helst mælir á móti
Brisbane er að margir í ólympíu-
nefndinni eru þeirrar skoðunar að
OL 1992 eigi að vera í Evrópu.
Belgrad
Helsti kosturinn við að halda
OL í Belgrad er sú, að engin hætta
er talin vera á hryðjuverkastarf-
semi. Einnig eru þjóðir, sem hætt
hafa við þátttöku á fyrri leikum,
vinveittar Júgóslövum. Þá er öll
íþróttaaöstaða fyrir hendi til
keppni í öllum greinum á afmörk-
uðu svæði, en eitt helsta vandamál
í Los Angeles var, hvað langt var
á milli keppnisstaða.
Þrátt fyrir augljósa kosti
Belgrad, er ýmislegt sem mælir á
móti því að borgin fái leikana.
Mörgum finnst of stutt síðan
Ólympíuleikar voru í Júgóslavíu, en
vetrarólympíuleikarnir 1984 voru
haldnir í Sarajevo. Borgin hefur
ekki verið eins dugleg í kynningar-
starfinu og aðrir umsækjendur og
tíminn er að renna út. Símakerfið
er langt frá því að vera viðunandi
og fáir tala erlend tungumál.
En Ólympíuleikar eru á dagskrá
hjá Belgrad og fái borgin ekki að
halda leikana 1992, verður stefnan
sett á næstu leika.
Amsterdam
Fulltrúar Amsterdam leggja
áherslu á að verði leikarnir haldnir
í borginni, fari keppni í 20 af 23
greinum fram í næsta nágrenni
miðborgarinnar, og þar sem sam-
göngur séu mjög góðar, fari lítill
tími í ferðir á milli staða. Hollend-
ingar hampa Amsterdam sem
heimsborg, þar sem allir tali mörg
tungumál, en sama sé ekki hægt
að segja um keppinautana. Þeir
segja öryggi keppenda gagnvart
hryðjuverkum meira en í París,
Birmingham og Barcelona og bún-
aður til fjarskiptamóttöku og
-sendinga sé fullkominn.
En það er langt í frá, að ein-
hugur ríki í Hollandi um að halda
leikana, og aðilar, andvígir leikun-
um, hafa mótmælt kröftuglega
bæði með mótmælagöngum og
eins eru sprengingar í höfuðstöðv-
um hollensku ólympíunefndarinnar
og í símstöð í Amsterdam fyrir
skömmu talin verk mótmælenda.
Skipuleggjendur leikanna í Amst-
erdam óttast þessi mótmæli,
minnugir þess að Seoul í Suöur-
Kóreu fékk leikana 1988 en ekki
0 Pasqual Maragall, borgarstjóri Barcelona og Juan Carlos I, Spánar-
konungur, með baráttugögn Barcelona.
0 Þessi trukkur hefur verið á ferðinni um Spán sfðan í marz til að
kynna Ólympíuleikana 1992.
Nagoya í Japan, en þar höfðu
umhverfisverndarmenn mótmælt
leikunum.
Birmingham
Breska ólympíunefndin tók
Birmingham fram yfir London og
Manchester til að sækja um að
halda OL 1992 vegna bestu örygg-
isgæslunnar. Verði leikarnir
haldnir í Birmingham, verður einn
öryggisvörður á móti hverjum sex
keppendum og gestum, og segja
talsmenn borgarinnar öryggi
hvergi betra hjá keppinautunum.
Þeir hampa stuðningi Önnu Breta-
prinsessu og Thatcher, forsætis-
ráðherra. Þá leggja þeir áherslu á
að Birmingham sé vel í sveit sett
og margt sé hægt að sjá og gera
í næsta nágrenni.
Hætta á ólátum i Birmingham
er engu að síður þyrnir í augum
IOC, en talsmenn borgarinnar
segja að ólæti undanfarinna ára
megi að miklu leyti rekja til atvinnu-
leysis, en unnið sé að lausn þeirra
mála.
París
Frakkar leggja áherslu á að þeir
vilji að OL 1992 verði í París, en
séu ekki að sækja um leikana til
að hlaupa í skarðið. Talsmenn
borgarinnar segja að París sé vel
í stakk búin til að halda leikana.
Frakkar aðstoðuðu Mexíkana við
að skipuleggja öryggisgæslu á HM
í sumar og þar urðu engin teljandi
vandræði að þeirra sögn. Þeir und-
irstrika að París sé alheimsborg
menningar tækni og vísinda, borg
sem ráði við stórverkefni og í því
sambandi sé þess skemmst að
minnast, að París var tekin fram
yfir Barcelona, þegar valin var borg
fyrir skemmtigarðinn Disneyland í
Evrópu.
Helsti keppinautur Parísar er
ekki ein hinna fimm borga, sem
sækja um sumarleikana 1992,
heldur franska borgin Albertville,
sem vill halda vetrarleikana sama
ár. IOC kýs fyrst um vetrarleikana,
en sumarleikana strax á eftir og
vita fulltrúarnir þá ekki um úrslit
fyrri atkvæðagreiðslunnar. Verði
Albertville með í lokaumferðinni,
er talið ólíklegt að París hljóti sum-
arleikana, því almennt samkomu-
lag ríkir um að engin þjóð eigi að
halda báða leikana sama árið, þó
fordæmi séu fyrir því.
Barcelona
Ólympíuleikarnir hafa aldrei ver-
ið haldnir á Spáni, þrátt fyrir að
bæði Barcelona og Madrid hafi
sótt það stíft í meira en 60 ár.
Fyrst og fremst þess vegna er al-
mennt talið að leikarnir 1992 verði
í Barcelona.
Engin borg hefur lagt eins mikið
í kynningarstarf og Barcelona.
Nær öllum stjórnarmönnum IOC
hefur verið boðið til borgarinnar
og m.a. hefur fulltrúi Brasilíu, Joao
Havelange, sem einnig er formað-
ur alþjóðaknattspyrnusambands-
ins, hvatt alla nefndarmenn til að
velja Barcelona.
Formaður IOC er Spánverjinn
Juan Antonio Samaranch og hann
hefur alla tið viljað að Ólympíuleik-
ar yrðu haldnir á Spáni, en að
þessu sinni ætlar hann að sitja hjá
við atkvæðagreiðsluna. Nefndar-
menn bera mikla virðingu fyrir
honum og það hefur mikið að
segja, þegar til atkvæðagreiðsl-
unnar kemur.
17. október fæst úr því skorið,
hvaða borg hreppir Ólympíuleik-
ana 1992, en eftir miklu er að
slægjast og má búast við að bar-
átta borganna eigi eftir að harðna
enn meira þegar nær dregur kosn-
ingum.
(S.G. Byggt á greinum úr Herald Tribune.)