Morgunblaðið - 05.10.1986, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 05.10.1986, Qupperneq 34
MÖTRGtfmmi), 'SÖíWÚBÁGlíK 5. mtGBES'im 3T Saga mannkyns, ritröð AB Þýzkir straumar Békmenntir Jóhann Hjálmarsson Saga mannkyns, ritröð AB. 8. bindi. Ný ásýnd Evrópu. 1500-1750 Eftir Kurt Ágren. Helgi Skúli Kjartansson íslenskaði. Ritstjórar: Knut Helle, Jarle Simonsen, Sven Tágil og Káre Tönnesson. Ritstjórn íslensku útgáfunnar: Eiríkur Hreinn Finnbogason og Helgi Skúli Kjartansson. Almenna bókafélagið 1986. „Þessi bók verður full af fyrir- boðum um þróun síðari tíma. Sögutíminn er umskiptatími á mörkum ólíkra heima.“ Þannig skrifar Kurt Ágren í formála bók- ar sinnar sem hann nefnir Ný ásýnd Evrópu og fjallar um tíma- bilið 1500-1750. Kurt Ágren hefur frá mörgu að segja. Hann rekur stjómmála- og menningarsögu og ekki síst atvinnusögu af mikilli nákvæmni. Textinn er furðu ítarlegur í ekki lengri bók því eins og í öðrum bindum Sögu mannkyns er bókin full af myndum. Ágren velur þá leið að skýra veigamikla þætti sögunnar í staðinn fyrir að drepa á ijölmörg atriði. Engu að síður kemur hann víða við. Meðal stórtíðinda sem greint er frá í Ný ásýnd Evrópu er klofn- ingur kirkjunnar, hnignun Spán- arveidis og gullöld Hollands. England á byltingartíð og Frakk- land fyrir byltingu eru líka kaflar sem segja töluvert um efni bókar- innar. Til marks um alþýðlegan, um leið færðilegan málflutning höf- undar er það sem hann hefur að segja um Martein Lúther. Hvað gerði Lúther sérstaklega til þess fallinn að marka þáttaskil? spyr Kurt Ágren. Svarið er m.a. fólgið í eftirfarandi mannlýsingu: „Tveir sterkir drættir hjá Lúther voru sjálfstraust hans og ósveigjanleiki í skoðunum. Hvort tveggja kann að vera nauðsynlegt byltingar- manninum og þó auðvitað ekki einhlítt til sigurs. Kannski var sig- urstranglegra fyrir Lúther hve hugrakkur hann var og mælskur á þann veg að geta hrifíð með sér ólært almúgafólk. Gagnrýni hans á kirkjuna hafði komið fram fyrr, en þá verið sett fram f flóknu máli með lærdómsþrungnum til- vísunum og formsatriðum að hætti háskólamanna, svo að þorri fólks var engu nær. Boðskapur Lúthers var nógu einfaldur til að hjóta skvndilega útbreiðslu." Kurt Agren eyðir miklu rúmi í hvers kyns trúarhetjur, en einnig vísindamenn á borð við Kópemik- us og Kepler og að sjálfsögðu Galilei og Newton. Hann þarf að vonum að gera skil keisurum og konungum og virðist ekki vera það á móti skapi. Hann gleymir þó aldrei alþýðumanninum og skýrir af nákvæmni frá því hvemig brölt yfírstéttanna, peningagræðgi og valdabarátta koma niður á smæl- ingjum. Þannig segir til dæmis í skýringu við málverk eftir David Vinckeboons: „Á ófriðarsvæði breytti litlu fyrir íbúana hvort þeir lentu á valdi innrásarhers eða vamarliðs; hermenn vom settir niður á heimilin, þungir á fóðmm, ófrómir til handanna og ofstopa- fullir við heimafólk." Málverk Vinckeboons segja þó meira en textinn því að þau lýsa í senn kúgun alþýðu og uppreisn. I bókmenntamati er Ágren stundum nokkuð einsýnn. Til dæmis segir hann eftirfarandi um höfunda Robinsons Cmsoe og Ferða Gullivers: „Það sem Defoe vildi skrifað hafa var mótunar- skáldsaga, og Swift pólitískt ádeilurit, en báðum hefur verið snúið upp í bamabækur, oft með styttingum og jafnvel afskræm- ingu.“ Þótt sannleikskjami sé fólginn í þessum athugasemdum má spyija hvort skáldin hafí í raun tapað á endurskoðunum verkanna. Fyrir þá sem hafa áhuga á efnahagsmálum og viðskiptum er þessi bók hrein gullnáma því að höfundurinn stundar mjög vanga- veltur um þessi efni. I kynningu á bókarkápu helgaðri honum seg- ir að meðal bóka hans og greina um fræðileg efni sé „háskólarit- gerð um skatta og aðrar álögur á bændur i hluta Svíþjóðar á seinni hluta 17. aldar". Maður andar léttar að losna við að lesa þessa ritgerð. En hvað sem um Kurt Ágren má segja virðist hann vand- virkur fræðimaður í skandinav- ískum anda og passar þvi vel fyr- ir Sögu mannkyns. Helgi Skúli Kjartansson hefur þýtt Nýja ásýnd Evrópu á vandað mál og af góðri íþrótt. Myndlist Bragi Ásgeirsson Nýlistasafnið við Vatnsstíg kynnir um þessar mundir tvo full- trúa nýrra viðhorfa frá Vestur- Berlín, sem er eitt höfuðvígi nýlista í Evrópu um þessar mund- ir. Listamennimir eru báðir kom- ungir og á miðri þroskabraut af sýningunni að dæma. Volker Nikel er það sem menn nefna „Meisterschuler" Háskóla fagur- lista í Vestur-Berlín, en svo nefna menn þá sem lokið hafa tilskildu sémámi og hlotnast eigið afdrep innan skólans. Hann hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og listvið- burðum í heimalandi sfnu Sambandslýðveldinu svo og víðar. Myndir hans hafa yfír sér svip ný-expressjónismans og em fag- lega gerðar einkum vakti athygli mína stór rauð mynd af kvenfíg- úm til vinstri á endavegg á neðstu hæð svo og önnur á hægri hliðar- vegg á pallinum yfír gólfþrónni. Báðar þessar myndir þykir mér í sérflokki um sterka og tilfínning- aríka útfærslu og hin síðamefnda hefur yfír sér munúðarfullt yfír- bragð. Wolfgang Preilowsky er fyrr- verandi afreksmaður í dýfíngum og er flóttamaður frá austurhlut- anum. Ekki veit ég hvemig hann hefur difíð sér yfír til Vestursins en um einn afreksmann í sundi veit ég sem synti á haf út og tókst að komast fram hjá öllum vamar- görðum heimamanna og klifra upp á bauju á siglingaleið fetjunn- ar til Trawemiinde, er sá hann og tók um borð. Var það mikið og frægt afrek hjá Axel Mitbauer en svo minnir mig að hann hafí heitið. Preilowsky sýnir nú í fyrsta skipti á Vesturlöndum. I Austur-Þýskalandi eiga þeir marga ágæta myndlistarmenn er hafa um sumt tæknilega yfirburði yfír starfsbræður sína í hinum landshlutanum. Þeir vöktu mikla athygli á Biennalinum í Feneyjum árið 1984 fyrir sérstæða og áhrifaríka deild. Geta má þess að Museum Ludwig í Aachen og Köln hefur fest sér allmikið af nýrri a-þýskri myndlist. Preilowsky er ný-expressjónisti í húð og hár og einkum vekja hinar litlu myndir á efri hæðinni drjúga athygli fyrir umbúðalausa tjáningu og skynræna tilfínningu fyrir efniviðnum. Þetta er óvenju- leg sýning í sölum Nýlistasafnsins og er það til vansa að ekki skuli vera betur gegnið frá henni með því að merkja myndimar betur og búa henni verðuga sýningar- skrá með kynningu á listamönn- unum — í versta falli ljósritaðan einblöðung. Mér leist vel á margar myndimar og sýningin er hressi- leg viðbót við aðrar sýningar haustsins fyrir það hve ólík hún er þeim. Söfn og einstaklingar ættu að vera óhrædd við að festa sér myndir því að þetta kunna að vera menn framtíðarinnar ... Von lieimsins Myndlist Bragi Ásgeirsson í Listasafni ASÍ við Grensásveg stendur þessa dagana yfír sýning á tillögum að altaristöflu í Há- teigskirkju. Forsagan er að ákveðið var á síðasta ári að hefja flársöfnun að gerð altaristöflu í kirkjuna og mun kvenfélag kirkj- unnar hafa átt hér frumkvæði að. Leitað var til Bjöms Th. Bjöms- sonar listsagnfræðings er kom fram með þá hugmynd að velja þijá listamenn til að gera tillögur að altaristöflunni. Fyrir valinu urðu þau Benedikt Gunnarsson, Björg Þorsteinsdóttir og Þorbjörg Höskuldsdóttir. Dómnefnd hefur nú Qallað um tiliögumar og lokið störfum, — valdi lausn Benedikts Gunnars- sonar til sérstakra verðlauna og verður hún sett upp í kirkjunni í náinni framtíð. Það er rétt að málum staðið er leitað er til nútímalistamanna um skreytingar guðshúsa því að yfirleitt hafa þeir mestu menntun- ina að baki og víðustu yfírsýnina. Vil ég geta þess að er Þýska- land reis upp úr rústum eftir síðustu heimsstyijöldina var þetta einmitt gert með frábæram ár- angri í mörgum tilvikum. Ævagamlar kirkjur voru skreytt- ar nútfmalistaverkum og er þessi blanda sláandi falleg í mörgum tilvikum. Átti þetta ekki svo lítinn þátt í því blómaskeiði er eftir fór í þýskri mjmdlist og sem er í full- um gangi í dag. Sérstök deild var í Listaháskólanum í Miinchen er ég var þar á árunum 1958-60, og hana sóttu verðandi kaþólskir prestar. Þannig lét kirkjan sér annt um að mennta upprennandi kynslóð í listrænu handbragði og auka skilning þeirra á gildi mynd- listar. Vildi svo til að það var fyrri prófessor minn, Franz Nagel, er sá um þessa hlið mála. Þegar leitað er til listamanna er litla sem enga reynslu hafa af kirkjulist þá vill útkoman oft verða nokkuð blandin og svo er einnig f þessu tilviki. Benedikt Gunnarsson er eini þátttakandinn sem hefur markvisst gengið til verks enda bera tillögur hans af um þekkingu á verklegri úr- vinnslu slíkra verkefna. Þegar slík verkefni era í gangi er nauðsynlegt að þátttakendur hafí rúman tíma til ráðstöfunar og helst ekki minna en heilt ár. Þeir sem ekki þekkja til undirbún- ingsvinnu þurfa að leita til færastu fagmanna á þessu sviði og á ég við þá sem era sérhæfðir í útfærslu helgimynda í gler og mósaik. Hér þýðir ekki að vinna sem málarar því að hin mestu listaverk kunna að reynast óhæf til út- færslu í guðshúsi. Þó era til undantekningar svo sem þegar Femand Léger var falið að mála altaristöflu f kapellu klausturs nokkurs í Frakklandi. Munkamir vora svo óánægðir með árangur- inn að þeir vildu múra yfír lista- verkið og var það gert. En fyrir forsjálni ábótans var nokkurra sentimetra bil haft á milli lista- verksins og múmingarinnar. Annar listamaður var fenginn til að mála á nýja veginn þóknanlega mynd fyrir munkana. En er svo Léger var orðinn heimsfrægður áratugum seinna var múrinn brot- inn niður og kom þá í ljós undurfagurt listaverk, sem er stolt klaustursins í dag. Hins veg- ar var seinna málverkið með öllu laust við listrænt innihald. Tillaga Benedikts Gunnarsson- ar er mjög vel úthugsuð fyrir rýmið og önnur tillaga hans einn- ig — hún hefði dempast mjög við útfærslu f mósaik og ekki orðið jafh yfírþyrmandi sterk og dóm- nefndin mun hafa óttast — þá var hún nýstárlegri og meira af lista- manninum sjálfum í henni. En verðlaunatillagan mun sóma sér vel og nú ríður á að útfærslan verði falin færastu fagmönnum er vinni undir stjóm listamanns- ins. Tillögur Bjargar Þorsteins- dóttur era margar vel hugsaðar og þá einkum ein þar sem lóðrétt- ur geisli sker tvo hringi. Hún kæmi til að vera mjög falleg í mósaik en er ekki gott að segja hvort hún falli inn í hið sérstaka rými kirkjunnar. Björg hefur eytt miklum kröftum í útfærslu margra tilbrigða af hringformum, sem hún hefði vísast fremur átt að eyða í rannsóknir á fyminu við gerð módela af kirkjuskipinu og altarinu. Svipað er að segja um Þor- björgu Höskuldsdóttur sem að auki er alllangt frá sínu besta í kristsmynd sinni. Hér skortir dýptina og litræn blæbrigðin sem era aðal listar hennar. Þessi samkeppni áréttar mikil- vægi þess sem fyrr segir að fagmenn séu hafðir í ráðum við útfærslu slfkra tillagá. Hér minnist ég svipaðrar sam- keppni varðandi Skálholtskirkju árið 1957. Þar sigraði Gerður Helgadóttir glæsilega fyrir þekk- ingu sína á útfærslu glermynda, Nína Tryggvadóttir varð í öðra sæti og hún þekkti hér einnig vel til, en allir hinir voru úti að aka fyrir verklegan þekkingarskort á þessu sviði. Hvað samkeppni um altari- stöflu Háteigskirkju varðar var vel að verki staðið og listamenn- imir lögðu sig alla fram og hafa sóma af. Er svo ekki annað eftir en að óska sigurvegaranum til hamingju og hvetja sem flesta að leggja leið sfna f Listasafn ASÍ um helgina en sýningunni lýkur á sunnudagskvöld.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.