Morgunblaðið - 05.10.1986, Síða 75

Morgunblaðið - 05.10.1986, Síða 75
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986 75 heimilið hefði nægjanlegt kjöt hvem vetur. Ráðsmaðurinn varð að sjá um slátrunina og verkun afurðanna og að búa um þær til vetrar- geymslu. Til þess þurfti sérstaka útsjónarsemi. Sérstaka athygli vakti meðal bænda undir Eyjafjöllum hve fljótur Ámi var að átta sig á ólíkum veður- skilyrðum og búskaparskilyrðum þar nyrðra, m.a. til heyskapar. Hann tók fljótt að verka hey í vot- hey og fékk einnig fljótlega súgþurrkun. Ráðsmannsheimilið hafði margvíslegum skyldum að gegna við skólaheimilið, m.a. að sjá starfs- fólki búsins fyrir viðurværi og annast ýmsa gesti skólans. Jóhanna og Ámi höfðu lítinn tíma fyrir sig og sína að Skógum. Ámi hætti ráðs- mannsstarfi í Skógum vorið 1968. Þá fluttu þau til Kópavogs þar sem þau hafa átt heimili á Borgar- holtsbraut 23. Sfðustu árin sem Ami var í Skóg- um var hann annar fulltrúi Rangæinga á fundum Stéttarsam- bands bænda. Eftir að hann flutti suður var hann fyrst í stað lausráð- inn frá Búnaðarfélagi íslands við ýmsa skýrslugerð. Haustið 1968 var hann eftir frá- fall Kristjáns Karlssonar ráðinn erindreki Stéttarsambands bænda og hefur gegnt því starfi samfellt í nær átján ár. Auk þess að vera erindreki Stéttarsambandsins hefur hann síðustu sjö árin unnið mikið hjá Framleiðsluráði landbúnaðarins við svokallaða búmarksstjóm, þ.e. að undirbyggja gerð búmarks fyrir öll lögbýli í landinu, að taka á móti umsóknum um breytt búmörk og að annast breytingar á búmarks- skrá skv. ákvörðunum þar um á hveijum tíma, og að vinna að upp- gjöri afurðaverðs til bænda skv. settum regium. Um nokkur ár var hann yfírkjötmatsmaður á Suðvest- urlandi. Sl. sextán ár hefur Ámi einnig verið formaður veiðineftidar sem fjallar um lax og silungaveiðimál f landinu í umboði ríkisins. Ámi hef- ur í þessu efni erft áhuga afa síns Þórðar f Svartárkoti, sem var frum- kvöðull að klaki og seiðaeldi í landinu og var landsþekktur fyrir áhuga sinn á fiskeldismálum og fraeðslustarf um þessi mál. Ámi er fjölfróður um fiskeldis- mál og hefur lagt mikla vinnu fram í veiðimálanefnd fyrir þau málefni. Einnig hefur hann verið skipaður í flölda matsnefnda til að ákveða Sterkurog hagkvæmur auglýsingamiðill! arðskrár og sker úr deilumálum um veiðiréttindi víða um landið. Ámi þekkir alla byggð íslands betur en flestir aðrir menn og þekkir til mannlífs víða um landið. Ámi er mjög vinnusamur maður. Hann er glöggur á aðalatriði mála og fylginn sér til að koma fram því sem hann telur að rétt sé og horfí til bóta. Hann er mikill unnandi gróðurs og gróandi þjóðlífs. Ami er glaður í umgengni og góður í samstarfí, hógvær og öfga- laus. Honum hefur því orðið vel til vina á lffsleiðinni og notið margvís- legs trúnaðar sem hér er ekki upp talinn. Ég kjmntist Áma fyrst á ferð til Skotlands vorið 1964. Þau 22 ár sem síðan eru liðin höfum við átt mikið saman að sælda og síðustu átján árin haft daglegt samstarf sem hefur verið einkar gott. Ekki get ég kosið mér traustari, liprari né vinnufúsari samstarfsmann. Ámi er ávallt tilbúinn að leysa úr vanda manna sé það í hans valdi og hirðir ei um að „alheimta dag- laun að kveldum". Hann er einn af þeim sem trúir á landið og mátt moldarinnar og telur að því aðeins verði gróandi þjóðlíf í landinu að landið sé nytjað og byggt. Gott er að eiga slíka menn að sálufélögum og vinum. Ég og kona mín sendum Áma, konu hans og sonum, Ingvari og Amaldi, og Qölskyldum þeirra okk- ar innilegustu heillaóskir vegna þessara tímamóta um leið og ég þakka Áma störf hans fyrir bænda- stéttina og gott samstarf um málefni bænda. Við óskum þeim allrar farsældar í framtíðinni. Gunnar Guðbjartsson Sjálfstæðisflokurinn í Reykjavík: Kynning á prófkjörsframbjóðendum Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík efnirtil kynn- ingarfunda með frambjóðendum í prófkjöri flokksins í Reykjavík sem fram fer 18. október nk. Fundirnir verða haldnir þriðjudaginn 7. og miðvikudaginn 8. október og hefjast kl. 20:30 í sjálfstæðishúsinu Valhöll, Háaleitisbraut 1. Dregið var um röð frambjóðenda. Á fyrri fundinum (7. októ- ber) koma eftirtaldir frambjóðendur fram. Albert Guðmunds- son ráðherra, Jón Magnússon lögmaður, Rúnar Guðbjartsson flugstjóri, Vilhjálmur Ecjilsson hagfræðingur, Esther Guðmunds- dóttir markaðsstjóri, Asgeir Hannes Eiríksson verslunarmaður, María E. Ingvadóttir viðskiptafræðingur, Ragnhildur Helgadóttir ráðherra. Á seinni fundinum (8. október) koma eftirtaldir frambjóð- endur fram: Friðrik Sophusson alþingismaður, Eyjólfur Konráð Jónsson alþingismaður, Sólveig Pétursdóttir lögfræðingur, Birgir ísleifur Gunnarsson alþingismaður, Guðmundur H. Garðarsson viðskiptafræðingur, Geir H. Haarde hagfræðingur, Bessí Jóhanns- dóttir framkvæmdastjóri. Hver frambjóðandi flytur framsöguerindi og fær til þess fimm ,-c. mínútur, en að því búnu geta fundargestir borið fram fyrirspurnir til þeirra. Sjálfstæðismenn eru hvattir til að fjölmenna. Fulltrúaráð sjálfstæðísfólaganna í Reykjavík. r HUGBÚNAÐARSAMKEPPNI IBMS/36 IBM efnir til samkeppni meðal íslenskra hugbúnaðar- framleiðenda um nýtt hugbúnaðarverkefni fyrir IBM S/36tölvur. Veitt verða tvenn verðlaun fyrir tillögur sem dómnefnd telur þess maklegar. 1. verðlaun kr. 500.000 2. verðlaun kr. 200.000 Skriflegum tillögum skal skilað til IBM Skaftahlíð 24 105 Reykjavík, merktum „IBM HUGBÚNAÐARSAM- KEPPNI" fyrir 1. desembern.k. > Samkeppnisskilmálar liggja frammi í afgreiðslu I IBM. mmmm mmmmmmr mmm t ■■■ VANDWIRKNI í hMVETNA Skaftahlið 24 105 Reykjavík Sími 27700

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.