Morgunblaðið - 05.10.1986, Page 14

Morgunblaðið - 05.10.1986, Page 14
14 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986 Ljósm./Rúnar Helgi Vignisson Þegar Steven litli Judkins var 12 ára sá Berry Gordy, eigandi útgáfufyr- irtækisins Tamla, nú Motown, að þarna var kominn prýðis efniviður í blakka stjörnu. Þessi blindi negra- strákur þótti syngja undursamlega, auk þess sem hann hafði náð mik- illi leikni á munnhörpu og bongótrommur. Gordon beið ekki boðanna, gerði samning við guttann og ári síðar var hann búinn að leggja undir sig banda- riska vinsældalistann. Upp frá því var þessi músíkalski piltur aldrei kallaður annað en Stefán Undur — Stevie Wonder. eftir Rúnar Helga Vignisson Nú er undrabamið lögnu vaxið úr grasi og ber nafn sitt enn með reisn. Á 24 ára ferli sínum hefur Stevie sent frá sér margt listaverkið og ber tvöfalda albúmið Songs in the Key of Life e.t.v. hæst, en það kom út fyr- ir tíu árum. Wonder hefur síður en svo lagt upp laupana, hann hefur brallað ýmislegt síðustu árin, en í fyrra sendi hann frá sér langþráða plötu. Bar hún heitið In Square Circle, í ferhymdum hring, og um þessar mundir er Stevie á sam- nefndu hljómleikaferða- lagi um Bandaríkin. Hér segir af viðkynningu við hinn ferkantaða tónleika- hring kappans. Sveipaður bleikum ljós- geislum fetar Stevie sig upp á sviðið í ömggri fylgd Calvins bróður síns. Hann horfir upp á við eins og hann gerir á öllum myndum, brosið fræga og gleraugun dökku á sínum stað. Hann tekur sér stöðu á sviðinu miðju og um leið og hann hefur upp raust sína kemur í ljós að röddin sem svo lengi hefur ómað um heims- byggðina er líka á sínum stað. Það er engum blöð- um um það að fletta — Stevie Wonder, maðurinn á bak við nafnið og músíkina, er mættur í holdinu, hversu óraun- verulegt sem það kann að virðast þegar maður þekkir hann aðeins í fjöldaframleiddu formi. Að inngöngumarsinum Ioknum ávarpar hann áheyrendur, kallar því næst á trommarann og spyr hvað hann geti gert til að hefja herlegheit kvöldsins. Trymbillinn þarf ekki að hugsa sig um tvisvar, hann smellir kjuðunum í húðimar og salurinn hefur eignast sameiningartákn í Master Blaster. Tónninn er sleg- inn og næstu þijá tímana bylgjast Wonder-taktur- inn um íþróttahöllina í Iowa City. rátt fyrir blindu söngvarans reynast þessir tónleikar ekki síður höfða til augans en eyr- ans. Innan í ferköntuðu sviðinu í salnum miðjum er hringur sem snýst all- an tímann og nærmynd- um af goðinu er varpað beint upp á fjóra stóra skerma yfir sviðinu. Stundum birtast þar líka Ijóðræn myndskeið sem undirstrika boðskap tón- listarinnar. Þessu til viðbótar reynast bak- raddasöngvaramir fjórir vera hinir liprustu dans- arar og í nokkrum lögum fá þeir ballerínu eða dans- flokk til liðs við sig, þannig að sviðið iðar allt af lífí. Sjálfur er Stevie ekki mikið á ferðinni af eðlilegum ástæðum, en í fjörugustu lögunum, s.s. „Shout“, lætur hann sig Stevie Wonder á tónleikunum sem fjallað er um í greininni. ífer- hyrndum hring Stevie Wonders — af tónleikum undramanns þó ekki muna um að hoppa og tralla, stundum óstuddur. Stevie Wonder lætur sér greinilega ekki allt fyrir bijósti brenna þótt undir smásjá mörg þús- und augna sé. Hann er bersýnilega sjóaður skemmtikraftur, a.m.k. virkar hann álíka afslapp- aður og sæti hann að spjalli heima hjá sér. Hann rabbar notalega við áhorfendur, lætur þá klappa, lætur þá syngja, lætur þá hugsa og jafnvel fínna til. Eitt sinn gerir hann stutt hlé á tónleik- unum til að borða ijóma- ís, segist ekki hafa fengið ís í þijú ár og áfergjan eftir því. Á eftir fær hann fólk til að syngja með sér: „I love icecream". Hlær svo stríðnislega. Stríðinn maður Stevie, sagður láta vini sína hlaupa apríl á öllum tímum sólarhrings allt árið um kring. Hann kvað geta hermt svo vel eftir Berry Gordy að rit- ari hans hafí látið blekkj- ast einhveiju sinni þegar hann hringdi í hann og skipaði svo fyrir að Stevie Wonder skyldi send ávís- un upp á hálfa milljón dollara strax. Ritarinn hélt að forstjórinn væri að ganga af göflunum. n það er ekki stríðnin sem situr í fyrirrúmi á þessum tónleikum, heldur hin jákvæða mannúðarstefna sem Wonder hefur tileinkað sér. Það er af þeim brunni sem hann eys fyrst og fremst í tónlistarsköpun sinni, lög hans eru gjarn- an óður til lífsgleðinnar og hins fallega, eins og t.d. lagið Isn’t She Love- ly. Stundum gætir þó trega, en hann leiðir yfír- leitt til jákvæðrar útkomu á endanum. Þess vegna þetta tíða bros og þessar líflegu höfuðsveiflur í takt við músíkina. Þannig sér maður hann fyrir sér að loknum þessum tón- leikum. Stevie flutti flest af sínum þekktustu lögum, en þau eru mörg og löngu orðin hluti af sameigin- legum músíkforða nú- tímamannanna, hafa öðlast sjálfstætt líf. GARÐYRKJUFÉLAG ISLANDS Félagar G.í. Laukarnir tilbúnir til afhendingar. SNURPUVIR 3“, 31A“ og 31/2“ fyrlrliggjandi. Fjölmörg loðnuskip hafa árum saman verið með snurpuvírfrá okkur. Gæðin því alkunn. Jónsson & Júlíusson Ægisgötu 10, sími 25430. í Kaupmannahöfn F/EST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OGÁ RÁÐHÚSTORGI Það er samkeppni milli tannlækna - segir Ragnhildur Helgadóttir heil- brigðis- og tryggingaráðherra „ÞAÐ er samkeppni milli tann- Iækna,“ sagði Ragnhildur Helgadóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra en í grein eftir Hörð Bergmann sem birtist í Morgunblaðinu l.okt. sl. segir hann að tímabært sé að koma á samkeppni milli tann- læknastofa um verð á þjónustu þeirra. „Tannlæknafélagið hefur sett sér taxta sem sumir fara eftir en aðrir ekki,“ sagði Ragnhildur. „Verðlags- stofnun ákveður ekki neitt fyrir þá. Sú gjaldskrá sem ráðuneytið setur fyrir tannlækna varðar aðeins þá hópa sem Ttyggingastofnun ríkis- ins greiðir fyrir.“ Ragnhildur sagðist vera sammála Herði um að taka bæri fé úr tannvemdarsjóði til að vinna að tannvemdun enda hefði verið veitt tveimur og hálfri milljón til þessa málaflokks á þessu ári, en var fímm hundruð þúsund á síðasta ári. Þá fullyrðir Hörður að ekki sé neinn tannfræðingur sem sinni tannvemd hjá hinu opinbera og sagði Ragnhildur að það væri ekki rétt. „Það hefur verið ráðinn tannfræðingur til að vinna að tann- vemd í skólum og fræða bömin um hvað hægt er að gera til að halda tönnunum heilum, auk annars fræðslustarfs sem tannvemd varð- ar,“ sagði Ragnhildur. Að hálfu ráðuneytisins vinnur Magnús R. Gíslason tannlæknir að skipulagningu tannvemdar í samráði við Tannlæknafélag ís- lands og tannlæknandeild Háskóla íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.