Morgunblaðið - 05.10.1986, Qupperneq 18
18 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986
Brids
Arnór Ragnarsson
Hluti safnsins á vikurbreiðunum ofan við Sölvahraun á leið í Áfangagil.
Stíft við brúkum staf og hest
og stefnum fé að réttum
an í pylsuendanum eru heitu
laugamar steinsnar frá skálanum.
Er það notaiegt fyrir þreytta og
svitastorkna gangnamenn að láta
líða úr sér í heitu vatninu. Annars
var það furðulegt hversu fáir nýttu
sér þessa perlu Lauganna. Var það
aðallega yngri kynslóðin sem lagði
leið sína í heitu böðin.
Haldið vestur úr
Á öðrum degi voru smalaðir
Austur- og Vestur-Reykjadalir,
Vandagil, Höfðamir, Suðumámur,
Norðumámur, Tjörvafell, Dóma-
dalshraun og var féð rekið í girð-
ingu á fjalli sem Sáta heitir og er
það alveg við skálann í Helli. Þegar
hér var komið var ljóst að óvenju
vel hafði tekist til við smölun og
var búið að smala svæði sem venju-
lega vom ekki smöluð fyrr en á
þriðja degi. Var þessu þakkað af-
bragðsgóðu veðri og svo hinu að
óvenju margt manna var í smölun
fram á sunnudagskvöld. Höfðu
nokkrir komið þama til að taka
þátt f göngunum um helgina fyrir
einskæran áhuga.
Eftir því sem vestar dregur á
afréttinum vom hestar meira notað-
ir enda landið ekki eins bratt og
illt yfírferðar. Vom menn yfírleitt
með einn hest hver, þannig að sami
hesturinn var ekki notaður tvo daga
í röð og er það mikill kostur að
þurfa ekki að dragast með hest í
taumi sem oft getur verið til traf-
ala ef þarf að fara fyrir kind í
ijöllóttu landi. Flestir hestamir virt-
ust í góðu formi til fjallaferða og
smölunar, en þó vom þama leiðar
undantekningar og virðist þar því
miður of algengt að menn fari með
hesta í göngur sem aðeins em brúk-
aðir einu sinni á ári. Venjulega em
þessir hestar afmyndaðir af fítu
þannig að hvergi er hægt að fínna
fyrir beinum í þeim nema þá helst
á fótunum. Mikið reynir á hestana
í erfíðri smalamennsku og undrast
maður hversu þolgæði fslenska
hestsins er mikið. Virðist sem þol
þeirra og geta aukist eftir því sem
lengra er riðið, þó innan skynsam-
legra marka.
Á þriðja degi vom smalaðir
Hnausar, Dyngjur norðan við Loð-
mund, sem einnig var smalaður og
Herbjamarfell sem er norðvestan
við Loðmund. Þetta fé var einnig
rekið í girðinguna við Helli og var
fénu farið að íjölga þannig að heyra
mátti jarminn frá fénu fram eftir
kvöldi, sem óneitanlega jók á smöl-
unarstemmninguna.
Á §órða degi var smalað frá
Krakkatindi niður Krókagiljabrúnir
að sunnan og að norðanverðu við
Helliskvísl vom smalaðar Sauðleys-
ur, Hrafnabjörg, Lambfítarhraun,
Kvistar og var féð sem þama náð-
. ist rekið að girðingunni við Áfnaga-
gil sem er sunnan í Vakafelli, en
þar var féð réttað á fímmtudegi.
Ekki var látið hér við sitja heidur
var farið í svokallaða Bjalla sem
em á milli Heklu og Ytri Rangár
og var féð sem þar náðist rekið inn
hjá „vímum" sem minnst var á í
upphafí og því síðan ekið upp í
Áfangagil. Að öllu jöfnu hefurþetta
Afrakstur mánudagsleitarinnar rekinn yfir Helliskvfsl yfir i Sátu.
Ærnar og lömbin komin ofan i Jökulgil og bíða þess að verða handsömuð og sett á kerruna.
Landmannahelli eitt árið og síðan
í Áfangagili. Koma bændur með
grindur og staura og er réttin byggð
á einu augabragði. Þegar bændur
hafa svo hirt fé sitt er réttin tekin
niður. Ástæðan fyrir því að ekki
er rekið niður í Landrétt er sú að
ófært þykir að reka féð yfír vikur-
inn sem féll í gosinu ’80 á Sölva-
hraun og næsta nágrenni. Einnig
þykir tímafrekt að reka féð svo
langa leið.
Ekki em allir sáttir við þetta
fyrirkomulag og þykir mörgum sem
öll réttar stemmning sé úr sög-
unni, en hér áður fyrr var bæði
sungið og dansað í Landrétt. Sér-
staklega er það eldra fólkið sem
saknar stemmningarinnar í Land-
rétt. Ekki er útséð með hvemig
verður staðið að þessum málum en
líklegt þykir að áfram verði réttað
upp á afréttinum. Féð er flutt á
bflum og vögnum til byggða og flest
lömbin flutt beint til slöktunar.
Að loknum leitum vom menn
almennt ánægðir með hvemig til
tókst og var fullyrt að sennilega
hafí aldrei tekist jafnvel með smöl-
un afréttarins. Þessar fímm kindur
sem töpuðust við Jökulgilið reynd-
ust vera af Rangárvöllunum og
komu þær fram í seinni leit hjá
Rangvellingum. Heimtur vom góð-
ar og töldu leitarmenn sig ekki vita
um neinar kindur sem töpuðust
aðrar en þessar fímm.
Þetta var harðsnúið lið sem fór
á afréttinn að þessu sinni og greini-
legt að ekki vantaði metnaðinn, þvf
iðulega kom fyrir að farið var í leit
á kvöldin eða seinnipart dags eftir
að smölun dagsins lauk. í eitt skipt-
ið fundust ellefu kindur og komu
þessir vösku smalar í náttstað um
ellefuleytið. Kvenþjóðin lét sitt ekki
eftir liggja og telst mér til að þær
hafí verið fimm að ráðskonunum
meðtöldum, sem einnig tóku þátt í
smölun. Bílar vom notaðir mikið
og vom tveir ávallt tiltækir til flutn-
inga á fé þar sem ekki vom
aðstæður til reksturs og einnig lat-
rækt og uppgefið fé. Talstöðvar
vom mikið notaðar við smölunina
og vom þá margir smalanna með
labb-rabb stöðvar auk þess sem
talstöðvar vom í öllum bílunum.
Var að þessu mikið hagræði sem
sparaði mörg sporin.
Góður mórall ríkir ávallt í
göngum og á kvöldin er slegið á
létta strengi en þó kom það mér á
óvart að ekkert var sungið fyrr en
síðasta kvöldið í Helli. Vín sást
vart á nokkmm manni að undan-
skildu síðasta kvöldinu, enda var
þá ærin ástæða að fagna velheppn-
uðum göngum. Kveðskapurinn var
töluvert stundaður og var þar
fremstur í flokki Þórður Guðnason
í Köldukinn sem þuldi upp heilu
rímnabálkana og vísur eftir sjálfan
sig og aðra. Var talið að hann hafí
mælt meira í bundnu máli en
óbundnu þann tíma sem hann var
á afrétti. Fyrirsögnin á þessari
grein er t.d. fyrri partur á einni
vísunni af mörgum sem varð til í
þessari ævintýraför. Margar góðar
sögur heyrði maður úr leitum fyrri
ára, því aldrei er farið á fjall að
ekki gerist eitthvað skoplegt sem
lifir í minningunni. Ekki verða þær
sagðar hér en við hæfí er að þakka
þeim ágætu samferðamönnum sem
ég kynntist fyrir ógleymanlega ferð
og kannski ekki sist þeim sem gerðu
mér kleift að láta gamlan draum
rætast.
svæði verið smalað á fímmtudegin-
um, en þar sem allt hafði gengið
vel fyrir sig og skammt liðið á dag-
inn, þótti sjálfsagt að létta á
fímmtudeginum með því að smala
þetta svæði. Að síðustu var svo
smalað úr girðingunni við Helli og
féð rekið í Áfangagil og þá um leið
var smalað Valafellið og Sölva-
hraun.
Réttir í Áfangagili
Allt fram til ársins 1980 var rétt-
að í Landrétt en eftir Heklugosið í
ágúst þetta ár hefur verið réttað í
Siggi söðlasmiður og Óli á Ketilstöðum, ómissandi menn á afréttin-
um, búa sig undir að svífa á fjallafálurnar. Guðni yngri í Skarði
gætir þess að einn af hundunum geri engan óskunda.
Bridsfélag Reykjavíkur
Á síðara keppniskvöldinu í
Hausttvímenningi BR náðu Jón
Hjaltason og Hörður Amþórsson
mjög góðu skori eða 412 stigum
(meðalskor 312) og dugði það til
yfírburðasigurs í mótinu. Páll Valdi-
marsson og Magnús Ólafsson unnu
hinn riðilinn með 390 stigum. Loka-
röð efstu para varð:
Jón Hjaltason —
Hörður Amþórsson 740
Helgi Ingvarsson —
Gissur Ingólfsson 685
Böðvar Magnússon —
Þorfinnur Karlsson 685
Sigurður B. Þorsteinsson —
Guðni Þorsteinsson 682
Páll Valdimarsson —
Magnús Ólafsson 671
Þorgeir P. Eyjólfsson —
Helgi Jóhannsson 668
Kristján Blöndal —
Jónas P. Erlingsson 661
Næsta miðvikudag hefst Aðal-
sveitakeppnin. Tilkynnið þátttöku
til Sigurðar B. Þorsteinssonar í síma
622236 en þegar em 14 sveitir
skráðar til leiks.
Tafl- og
Bridsklúbburinn
Fimmtudaginn 2. október hófst
4 kvölda hausttvímenningur
klúbbsins. Spilað var í tveimur 12
para riðlum. Hæstu skor hlutu þess-
ir:
A-riðilI
Þórður Jónsson —
Gunnar K. Guðmundsson 200
Daði — Guðjón 189
Ipgólfur Böðvarsson —
Sigríður 186
ívar — Reynir 184
Hermann Erlingsson —
Eymundur Sigurðsson 181
B-riðill
Jacqui Mcgreal —
Þorlákur Jónsson 196
Sigfús Ö. Ámason —
Friðjón Þórhallsson 182
Gfsli Tryggvason —
Guðlaugur Níelsson 181
Reynir Á. Eiríksson —
Sigtryggur Jónsson 180
Jón I. Bjömsson —
Kristján Lilliendahl 175
Meðalskor 165.
Spilarar em beðnir að mæta
stundvíslega svo keppni sé lokið á
kristilegum tíma. Við byijum kl.
19.30.
Athygli skal vakin á því að skrán-
ingu í Landstvímenning þann 16.
október innan TBK skal vera lokið
á fimnmtudaginn næsta, 9. október.
Við skráningu taka Gísli í síma
34611 og Anton í síma 651714.
Svo sjáumst við hress við græna
borðið.
Hjónaklúbburinn
Sl. þriðjudag hófst þriggja kvölda
hausttvímenningur. Spilað er í
þremur 14 para riðlum. Úrslit sl.
þriðjudag:
A-riðUl
Hulda Hjálmarsdóttir —
Þórarinn Andrewsson 182
Edda Thorlacius —
Sigurður ísaksson 175
Svava Ásgeirsdóttir — •
Þorvaldur Matthíasson 174
Friðgerður Benediktsson -
Jón ísaksson 169
B-riðill
Erla Siguijónsdóttir —
Kristmundur Þorsteinsson 194
Ásthildur Sigurgísladóttir —
LámsAmórsson 175
Kristín Guðbjömsdóttir —
Bjöm Arnórsson 174
Ámína Guðlaugsdóttir —
Bragi Erlendsson 162
C-riðill
Dröfn Guðmundsdóttir —
Einar Sigurðsson 175
' Sigríður Ottósdóttir —
Ingólfur Böðvarsson 171
Guðrún Reynisdóttir —
Ragnar Þorsteinsson 167
Elín Jóhannsdóttir —
Sigurður Siguijónsson 165
Meðalskor 156.