Morgunblaðið - 05.10.1986, Page 22
fl:*H<Ynrn 3 «nn*nTmr/TT? rrtriA wT/inrnmw
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986
-
Ingvar Valdimarsson, flugstjórí i þessarí ferð, Sigurður og Eanes, við TF-DUA áður en lagt var af stað.
Afmælis veisla-
fallhlífárstökksins
FALLHLÍFARSTÖKK
þykja ekki í frásögur fær-
andi í dag, en þótt undarlegt
megi virðast eru ekki nema
20 ár síðan fyrsti íslending-
urinn henti sér út úr flugvél
með fallhlíf á bakinu. Það
var Agnar Kofoed Hansen,
sem beitti sér fyrir því að
árið 1966 var fenginn maður
frá bandaríska hernum á
Keflavíkurflugvelli til að
kenna tíu knáum Flugbjörg-
unarsveitarmönnum úr
Reykjavík þessa íþrótt. Svo
skemmtilega vildi til að
Stewart Eanes sem kenndi
þessum hópi var staddur hér
á landi í síðustu viku og
féllst á að taka þátt í e.k.
afmælisveislu fallhlífa-
stökksins. Sigurður Bjark-
lind dreif hann um borð í
TF-DUA, sem flaug með þá
yfir Reykjavík og svo var
stokkið. Að sjálfsögðu var
ljósmyndari Morgunblaðsins
í vélinni og tók hann þessar
myndir.
Sigurður var 18 ára þegar
Eanes kenndi honum að
stökkva, og hefur ekki linnt
látum síðan. Er hann sá einu
úr nemendahópnum sem enn
stekkur í fallhlíf. Það var ein-
mitt TF-DUA sem notuð var
við þjálfunina á Sandskeiði, og
veittu eigendur hennar góð-
fúslegt leyfí fyrir því að hún
yrði farkostur afmælisges-
tanna. Eanes er enn tengdur
hernum, vinnur nú við að
pakka fallhlífum og heldur sér
við með því að stökkva af og
til. Sumar bakteríur eru nefni-
lega harðgerðari en aðrar...
Siguröur Bjarklind á Sandskeiði
fyrir 20 ánun. Þau eru orðnar
margar flugferðirnar sem Sig-
urður hefur faríð með fallhlíf á
bakinu síðan þá.
Goldie Hawn
er margt til
listanna lagt
— Stendur sig vel sem þjálfari
liðs í amerískum fótbolta
GOLDIE Hawn er aftur komin á
stjörnuhimininn, nú sem þjálfari
hjá fýldum, þrekvöxnum óþokk-
um f liöi í amerískum fótbolta í
grínmyndinni Wildcats, sem nýt-
ur geysimikilla vinsœlda f
Bandaríkjunum.
Ameríski fótboltinn er ein vin-
sælasta íþróttin vestan hafs.
Leikflétturnar, óskiljanlegt tungu-
mál leikmannanna og hin gífurlega
mikla harka er það sem fólkið vill.
En Goldie vissi ekki um hvað íþrótt-
in snerist fyrr en farið var að
undirbúa töku kvikmyndarinnar.
Hún fór að fylgjast með leikjum
LA Raiders, lærði reglurnar og
kynnti sér helstu leikfléttur. Þá fór
hún að taka þátt í æfingum undir
stjórn John Sanders, sem er fyrr-
verandi atvinnumaður í leiknum.
„Það var ekki nóg fyrir Goldie
að læra reglurnar," sagði Sanders.
„Hún varð að ná fullkomnu valdi á
leiknum, stjórna og ákveða leik-
flétturnar og læra tungumálið, sem
tilheyrir. En hún var fljót að tileinka
sér leikinn enda vel til þess fallin."
Þar átti hann við, að reynsla henn-
ar í dansi var ómetanleg.
Það næsta sem Goldie hafði
komist íþróttum var að stjórna
hvatningarhrópum á hornabolta-
leikjum, þegar hún var í skóla. „Nú
ber ég mikla virðingu fyrir amerísk-
um fótbolta," sagði Goldie. „Þar
er mikil samvinna, sem skiptir allt-
af miklu máli, hvort sem það er i
Strákarnir í ameríska fótboltanum eru
venjulega þyngri og sterkari en gengur
og gerist og munar ekki um að halda á
einni Goldie.
Fjölskyldan Cosby eins og við íslendingar þekkjum hana úr sjónvarps-
þáttunum um „Fyrirmyndarföður“. „Bill er frábær pabbi“ sagði
Keshia.