Morgunblaðið - 05.10.1986, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1986
B 31
Of mikil svailsýni
um vöxt eyðni
- segir Ólafur Ólafsson, landlæknir, um spá ríkisstj ómarinnar
„SPÁ um fjölda sýktra af eyðni
árið 1988 sem rikisstjórnin hefur
látið frá sér fara ber vott um
allt of mikla svartsýni“ sagði
Ólafur Ólafsson, landlæknir, i
samtali við Morgunblaðið. „Ég
trúi því ekki að þróunin hér verði
á þessa leið. Samkvæmt þessu
er gert ráð fyrir að sjúkdómur-
inn breiðist jafn hratt út hér eins
og í Bandaríkjunum. Það getur
einfaldlega ekki staðist."
um notkun á verjum" sagði Ólafur.
„Aðgerðir gegn þessum sjúkdómi
kunna að vera fjárfrekar, en í því
sambandi vil ég minna á að sam-
kvæmt bandarískum og breskum
útreikningum kostar sjúklingur
með eyðni þjóðfélagið frá hálfri upp
í eina milljón króna á ári. Þetta eru
erfiðar staðreyndir, sem við verðum
að horfast í augu við. Það borgar
sig að eyða meiri peningum í vam-
ir.“
Flokkur U.N.I.
Aðeins 249 kr. kg.
Allt skorið og pakkað
KJÖTMIÐSTÖÐIN Slmi 686511
Ólafur taldi að höfundar spáarinnar
hafi gefið sér rangar forsendur.
Eins og þeir sjálfir tækju fram
væri þetta „ítrasta svartsýnisspá."
Gert væri ráð fyrir því að tala
sýktra tvöfaldaðist á hveijum 6
mánuðum. Miðað við það ættu
198.000 íslendingar að ganga með
AIDS-veiruna árið 1990 og 396.000
árið 1991. „Mér finnst þetta heldur
svartsýnt, því samkvæmt þessu
þurrkast þjóðin út fyrir árið 2000,
og ef þetta reynist rétt þarf ríkis-
stjómin ekki á neinum framtíðarsp-
ám að halda" sagði Ólafur. „Það
er mjög varhugavert að senda slíka
spá frá sér, því eins og sést er þetta
það eina sem talið er fréttnæmt."
Hann benti á að hér á landi vant-
aði marga þeirra þátta sem stuðla
að útbreiðslu sjúkdómsins. A ís-
landi væru t.d. ekki sá Qöldi
heróínneytandi vændiskvenna sem
eru í ýmsum borgum Banda-
ríkjanna. „Læknar í Evrópu em
margir hveijir komnir á þá skoðun
að sjúkdómurinn muni ekki breiðast
jafn hratt út í álfunni eins og í
Bandaríkjunum. Vestra em allt
aðrar aðstæður, og þar er gengið
út frá því hvemig eyðni smitast í
borgum eins og Los Angeles þar
sem myndast hafa nýlendur
homma, sem jafnvel hafa fulltrúa
í bæjarstjóm. Við getum að sjálf-
sögðu ekki miðað við þessar for-
sendur."
Heilbrigðisyfirvöld leggja nú
mikla áherslu á það að kynna eyðni
og stuðla að vömum gegn sjúk-
dómnum að sögn Olafs. I því skyni
hefur landlæknir lagt til að ráðinn
verði erindreki landlæknis sem ferð-
ist um landið og veiti fræðslu um
eyðni í skólum, á vinnustöðum og
víðar. „Við höfum reynt að eiga
góða samvinnu við ijölmiðla til þess
að reka áróður fyrir því sem getur
vamað sýkingu. Á síðastliðnum
mánuðum hafa að meðaltali þrisvar
í viku birst greinar með upplýsing-
um um feril, afleiðingar og vamir
gegn sjúkdómnum frá heilbrigðis-
yfirvöldum, læknum eða úr lækna-
tímaritum. Með hliðsjón af því að
dagblöðin fara á hvert heimili lands-
ins er hér um mjög útbreidda
fræðslu að ræða.“
„Meðal þess sem við setjum nú
á oddinn em upplýsingar og áróður
„Fjallaborg-
in“ í Tónabíói
TÓNABÍÓ sýnir bráðlega
myndina „Fjallaborgin". Mynd-
in gerist í Indlandi um 1865.
Englendingurinn Ashton Hilaty
var alinn upp af hindúakonunni
Situ. Hann er sendur til náms til
Englands og kemur aftur sem
foringi í breska hemum. Þá logar
allt í ófriði í Indlandi. Hilary hitt-
ir aftur bemskuvinkonu sína,
Anjuli prinsessu og það verða
þáttaskil í lífí hans.
LYKILUNN AD...
Útsendingar hefjast fimmtudaginn 9. október næstkomandi.
Sjónvarpsdagskráin er ýmist læst eða opin. Læsta dagskráin verður
send út í yfir 60 tíma á viku og er eingöngu ætluð áskrifendum. Áskriftar-
gjaldið er 950 kr á mánuði. Opna dagskráin spannar um 20 tíma á viku til
viðbótar.
Staðgreiddur kostar lykillinn (afbrenglarinn) 11.200 kr. Boðið er upp á
mjög sveigjanleg greiðslukjör. T.d. er hægt að fá lykilinn með 2500 kr
útborgun og afganginn á 10 mánuðum. Einnig er mögulegt að semja um
mun lægri útborgun og mun lengri greiðslufrest.
Áskriftarsíminn er (91) 62 12 15.
...1X51HJÁ OKKUR!
Heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 - SÆTÚN 8 SÍMI 27500