Morgunblaðið - 24.10.1986, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1986
11
Mótmælir til-
færslu á frétta-
ágripi á táknmáli
STJÓRN Öryrkjabandalagsins
hefur sent útvarpsráði mótmæli
gegn því að fréttaágrip á tákn-
máli í ríkissjónvarpinu skuli hafa
verið fært til. Er á það bent að
núverandi tími, klukkan 17.55,
henti ekki heyrnarlausum þar
sem þeir séu flestir í vinnu eða
á leið úr vinnu á þessum tíma.
í bréfí, sem formaður og varaform-
aður Öryrkjabandalagsins hafa sent
útvarpsráði vegna þessa máls segir
m.a. að heyrnarlausir hafi kunnað
vel að meta þá þjónustu sem sjón-
varpið hafi veitt á undanförnum
árum. Hafi sú þjónusta leitt til auk-
innar víðsýni og áhuga þessa hóps.
Stjórn Öryrkjabandalagsins skorar
á útvarpsráð að sjá til þess að
fréttaágrip á táknmáli verði á ný
tengt aðalfréttatíma sjónvarps með
útsendingu þess 10 minútum fyrir
hann. Með því móti fái heyrnarlaus-
ir notið að nokkru leyti þess
myndefnis, sem fylgir fréttum í
aðalfréttatíma sjónvarpsins.
Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka:
Auglýst eft-
ir handritum
Morjfunblaðið/Kr. Ben
Á þessari mynd sést vel hvernig þjóðvegurinn liggur inn í bæinn Malarbíll á ferðinni framhjá íþróttahúsinu þar sem börnin streyma
með íbúðarhúsin á hægri hönd en verslunarmiðstöðina á þá vinstri. til og frá oft á dag, daglega.
Grindavík:
Hraðakstur inn í bæinn verður að stöðva
Gríndavfk.
SLYSAHÆTTA hefur mjög
færst í vöxt þar sem þjóðvegur-
inn liggur inn í bæinn. Þannig
háttar til að vestan götunnar
eru ibúðarhús og mörg börn
að leik, en austan við verslunar-
miðstöð og umferð gangandi
oft töluverð yfir götuna.
Sú staðreynd, sem íbúarnir í
nágrenninu horfa upp á daglega,
að ökutæki komi keyrandi á 80
km hraða eða meira inn í bæinn,
hefur að vonum vakið ugg hjá
þeim og skal engan undra þegar
tekið er mið af staðháttum. Ein
húsmóðirin sem þama býr sagði
fréttaritara blaðsins að mesta
mildi væri að ekki hefði orðið stór-
slys fyrir skömmu þegar bam
varð fyrir bíl þarna. í ráði væri
að safna undirskriftum meðal íbú-
anna til að þrýsta á að bæjaryfir-
völd geri gangskör í að stemma
stigu við þessum hraðakstri inn í
bæinn.
Þá er einnig slysagildra við
Iþróttahúsið en þar streyma
krakkar og unglingar til leikfimi
og íþróttaiðkana á degi hveijum
innan um malarflutningabfla sem
oft koma á miklum skrið austan
að inn f bæinn.
Samkvæmt því sem fréttaritari
blaðsins kemst næst mun bæjar-
ráð nýverið hafa óskað eftir tillög-
um frá umferðamefnd um leiðir
til að draga úr umferðarhraðanum
á þessum stöðum og er beðið eft-
ir þeim.
Það er von undirritaðs og vafa-
laust allra bæjarbúa að brugðist
verði fljótt við áður en að á þess-
um stöðum verði hörmulegt slys.
Kr. Ben
VERÐLAUNASJÓÐUR
íslenskra barnabóka auglýsir eft-
ir handritum að barna og ungl-
ingabókum til keppni um
íslensku barnabókaverðlaunin
1987. Þetta er í annað sinn sem
veitt verður úr sjóðnum, í ár
hlaut Guðmundur Ólafsson rit-
höfundur verðlaunin fyrir bók
sína Emil og Skundi.
Sjóðurinn var stofnaður í tilefni
sjötugsafmælis Ármanns Kr. Ein-
arssonar rithöfundar, en að honum
standa auk Ármanns eiginkona
hans Guðrún Runólfsdóttir, dætur
þeirra Ásdís, Hrafnhildur og Kristín
og bókaútgáfan Vaka sem gefið
hefur út bækur Ármanns síðustu
árin. Stjórn sjóðsins skipa þau Ólaf-
ur Ragnarsson, Sigrún Klara
Hannesdóttir og Armann Kr. Ein-
arsson.
Reyðarfirði.
SÍLDARVERKSMIÐJUR ríkisins
hér á Reyðarfirði höfðu á mið-
vikudag brætt um 8.000 lestir.
Fyrsta loðnan barst hingað 14.
september.
Bræðsla hófst sama sólarhring
og hefur gengið mjög vel, nema
hvað þrisvar hefur þurft að stoppa
vegna þess að hráefni hefur skort.
20 manns vinna við verksmiðjuna.
Gréta
Yfir 5.000 myndlyklar hafa veríð pantaðir;
„Byrj unarerfiðleikar Stöðv-
ar 2 leysast í lok vikunnar“
- segir Jón Ottar Ragnarsson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2
„VISSIR byrjunarerfiðleikar hafa óneitanlega verið hjá okkur á
Stöð 2, en gert ei- ráð fyrir að búið verði að leysa þá í lok þessarar
viku,“ sagði Jón Óttar Ragnarsson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, á blaða-
mannafundi er haldinn var sl. þriðjudag. Bjarni Ágústsson hjá
Heimilistækjum sagði að ljóst væri að vandamálið við tengingu lykl-
anna við sjónvörpin hefði verið að snúrurnar í myndlyklunum hefðu
ekki gengið að tíðni 12, sem Stöð 2 sendir út efni sitt á. Starfsmenn
Heimilistækja hafa þvi verið að skipta um snúrur í þeim myndlykl-
um, sem komnir voru til landsins. Framvegis verður skipt um þessar
snúrur hjá framleiðanda í Frakklandi.
Jón Óttar sagði að viðbrögð reiknum með að ná til 80% lands-
áhorfenda hefðu verið mjög góð og
hefðu nú yfír 5.000 lyklar verið
pantaðir - að meðaltali kæmu inn
150 pantanir á dag. Biðtími eftir
lyklinum væri þó hátt í sex vikur
og fyrirsjáanlegt væri, að eftirspurn
yrði ekki fullnægt fyrr en um ára-
mót. „Stöð 2 getur nú náð til
rösklega 60% landsmanna, en við
manna á fyrsta starfsárinu. Innan
skamms verða teknar upp persónu-
legar kynningar á dagskráratriðum
- eða svokallaðir þulir - og í ráði
er að bæta dagskrána jafnt og þétt
til áskrifenda og lengja útsending-
artímann," sagði Jón Óttar.
Stöð 2 mun kappkosta að endur-
sýna allt það efni sem þegar hefur
verið sýnt truflað svo að nýir áskrif-
endur missi ekki af þeim dagskrár-
atriðum, sem þegar hafa verið sýnd
í stöðinni. Innlend dagskrárgerð,
fyrir utan fréttirj mun hefjast innan
tveggja vikna. Ymsir þættir verða
á dagskrá nýju sjónvarpsstöðvar-
innar, að sögn Páls Magnússonar
fréttastjóra, m.a. umræðuþættir,
yfirheyrslur, einvígi stjómmála-
manna o.fl. Þá hefst upp úr
áramótunum nýr þáttur í umsjá
Helga Péturssonar fréttamanns
sem mun bera nafnið „Snillingam-
ir“ og verður hann í anda þátta
Magnúsar Magnússonar hjá BBC
„Master Mind“. Fljótlega hefst út-
sending á bamaefni fyrir áskrifend-
ur á laugardags- og sunnudags-
morgnum. Útsending á trufluðu
efni mun því áður en langt um líður
verða 60 stundir á viku í stað 30
nú. Við bætist tíminn frá kl. 13.30
til 17.30.
Á næstunni verður a.m.k. þremur
endursendum komið fyrir, þeim
fyrsta á Borgarspítalanum, næsta
í Mosfellssveit og þeim þriðja
líklega í námunda við Háskóla Is-
lands fyrir gamla miðbæinn og
Þingholtin, þar sem útsendingar
nást sums staðar illa. Dagskrá
Stöðvar 2 er nú þegar send tveimur
kapalkerfum daglega, á Ólafsvík
og á Ólafsfiði. Fimm önnur kapal-
kerfi úti á landi munu bætast við
innan tíðar, þar á meðal í Borgar-
nesi, Blönduósi og í Stykkishólmi.
Þá er gert ráð fyrir að Sjónvarps-
félag Eyjafjarðar hefji útsendingar
Verðlaunin nema um fimmtíu-
þúsundum króna að viðbættum
höfundarlaunum samkvæmt samn-
ingi Rithöfundasambands íslands
pg Félags íslenskra bókaútgefenda.
í heild gætu verðlaunin orðið á
annað hundrað þúsund krónur mið-
að við meðalupplag og verð bama-
bóka.
Dómnefnd velur úr þeim handrit-
um sem berast, en síðast bárust
fjörutíu og fjögur handrit. Engin
mörk eru sett um lengd sagnanna
en miðað við að þær höfði til 10-13
ára barna. Sögumar skulu merktar
dulnefni en rétt nafn höfundar látið
fylgja í lokuðu umslagi. Frestur til
að skila handritum er til 31. des-
ember, en stefnt er að því að
verðlaunabókin komi út á vegum
Vöku/Helgafells vorið 1987. Nánari
upplýsingar fást hjá forlaginu en
utanáskrift samkeppninnar er:
Vaka/Helgafell
Síðumúla 29
108. Reykjavík
Rey ðarfj örður:
8.000 lestir
af loðnu bræddar