Morgunblaðið - 26.10.1986, Side 1

Morgunblaðið - 26.10.1986, Side 1
241. tbl. 72. árg. Svíþjóð: Rúmur helming- ur rafork- unnarfrá kjarnorku Stokkhólmi, frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins. í FYRSTA sinn i sögu sænskrar rafmagnsframleiðslu kemur rúmur helmingur orkunnar frá kjarnorkuverum. Á þessu ári munu þau framleiða 36 terra- wattstundir á móti 31 í vatnsafls- stöðvum. Framleiðsla olíukyntra orkuvera er þijár terrawatt- stundir. Eftir Chemobylslysið var mikið um það rætt að hætta smám saman raforkuvinnslu í kjamorkuvemm en nú er það að renna upp fyrir flest- um, að það er hægara ort en gjört. Ef Barsebáck-verinu við Eyrarsund yrði lokað eins og danska þjóð- þingið hefur krafist ylli það aJvar- legum rafmagnsskorti í Svíþjóð og gerði að engu áætlanir stjómvalda um að flest hús verði hituð upp með rafmagni en ekki olíu. Birgitta Dahl, orkumálaráðherra, er nú mjög varkár í orðum þegar talað er um að loka kjamorkuverun- um upp úr aldamótunum og um það að byija strax að draga saman segl- in er alls ekki talað lengur. í leiðurum dagblaðanna og á pólitísk- um vettvangi snýst nú umræðan um það, að undið verði ofan af kjamorkuvinnslunni um allan heim samtímis. Segja Svíar, að það sé eins með hana og kjamorkuvopnin, að það gangi ekki að þeir „af- vopnist" einir á sama tíma og aliir aðrir „vígbúist" af kappi. Spánn: Baskar vega hers- höfðingia San Sebastian, AP. HERSHÖFÐINGI í her Spán- ar, eiginkona hans, sonur þeirra og ekill létu lífið í sprengjutilræði í San Sebast- ian á Spáni í gær. Hryðju- verkamenn baska eru taldir hafa staðið að baki tilræðinu. Tveir ungir menn á mótor- hjóli óku upp að bifreið hers- höfðingjans í miðborg San Sebastian og vörpuðu sprengju að honum, að sögn vitna. At- burðurinn átt sér stað nærri útimarkaði og brak úr bílnum slasaði að minnsta kosti 15 manns. Enn hafa engin samtök lýst yfir ábyrgð á ódæðisverkinu en lögreglan telur fullvíst það hafi verið framið af hryðju- verkamönnum Baska. ETA, aðskilnaðarhreyfíng baska, berst fyrir stofnun sjálfstæðs ríkis þeirra. Talið er að hryðju- verkamenn á vegum samtak- anna hafí vegið um 600 manns frá árinu 1968. STOFNAÐ 1913 96 SÍÐUR B/C SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1986 Prentsmiðja Morgunblaðsins Rauða kross- þingið í Genf: Fulltrúar S.-Afríku reknir út úr salnum __ Genf, AP. í GÆR var samþykkt með at- kvæðagreiðslu á Alþjóðaþingi Rauða krossins að víkja full- trúum Suður-Afríkustjórnar af þinginu. Fór svo að lokum að fulltrúamir vora reknir út úr ráðstefnusalnum. Sam- þykktin kom ekki á óvart þótt margir hafi orðið til að vara við afleiðingum hennar fyrír framtíð Rauða krossins. Fulltrúar Kenya fluttu tillöguna og var hún á þá leið, að fulltrúum stjómarinnar í Pretoriu yrði vikið af þinginu en sérstökum fulltrúum suður-afríska Rauða krossins leyft að sitja áfram. Fulltrúar flestra þrifja heimsríkja og Sovéríkjanna og Kína studdu tillöguna en full- trúar Suður-Ameríkuríkja sátu hjá. Fulltrúar ríkisstjóma Vestur- landa og gestgjafarnir, Svisslend- ingar, vom tillögunni andsnúnir og sögðu, að brottrekstur af þessu tagi ætti sér ekkert fordæmi í sögu Rauða krossins og gengi þvert á hugsjónir samtakanna. Fulltrúar ríkja þriðja heimsins sögðu tillögu sendinefndarinnar frá Kenýa fullkomnlega löglega þar sem stjóm hvíta minnihlutans í Suður-Afríku hefði ítrekað gerst sek um mannréttindabrot. Fulltrúar hinna ýmsu félaga Rauða krossins á Vesturlöndum nýttu sér ekki rétt sinn til að taka þátt i atkvæðagreiðslunni. Jeremy B. Shearar, formaður suður-afrísku sendinefndarinnar, brást hinn versti við þegar honum neitað um að taka til máls áður en gengið var til atkvæðagreiðsl- unnar. Hljóp hann að ræðustóln- um, fleygði nafnspjaldi sínu á skrifborð forseta ráðstefnunnar og stormaði síðan út úr salnum. Þeg- ar talning atkvæða var langt komin reyndi hann aftur að taka til máls en forsetinn skipaði suð- ur-afrísku sendinefndinni að hverfa á braut. Hvatt til efnahagslegra refsi- aðgerða gegn Sýrlendingum NOKKRIR bandarískir þingmenn hafa hvatt til þess að Bandaríkja- stjórn grípi til efnahagslegra refsiaðgerða gegn Sýrlendingum. Bandarikin og Kanada hafa kall- að heim sendiherra sfna í Sýrlandi til stuðnings þeirri ákvörðun bresku rikisstjórnarinnar að slfta stjóramálasambandi við Sýrlend- inga. Svo sem fram hefur komið í frétt- um ákváð breska ríkisstjómin í fyrradag að slíta stjómmálasam- bandi við Sýrlendinga. Ríkisstjómin kvað fullsannað að Sýrlendingar hefðu staðið að baki tilraun til að koma fyrir sprengju um borð í ísra- elskri farþegaflugvél í London þann 17. apríl síðastliðinn. Bob Dole, leiðtogi repúblíkana við öldungadeild Bandaríkjaþings, hvatti Bandaríkjastjóm í gær til að grípa til efnahagslegra og pólitískra refsiaðgerða gegn Sýrlendingum. Dole sagði ríkisstjóm Margaret Thatcher hafi staðið með Banda- ríkjamönnum þegar þeir gerðu loftárásir á Líbýu og nú þyrfti breska ríkisstjómin á stuðningi Bandaríkja- manna að halda til að brjóta á bak aftur hryðjuverkastarfsemi Sýrlend- inga. Frank Lautenberg, þingmaður Demókrataflokksins, birti í gær bréf sem hann og 18 aðrir bandarískir þingmenn rituðu Ronald Reagan þar sem lagt er til að bandarískum fyrir- tækjum verði meinað að starfa í Sýrlandi. Sýrlandsstjóm tilkynnti í gær að allir starfsmenn breska sendiráðsins í Damascus yrðu að hverfa úr landi innan viku. Ennfremur var landinu lokað fyrir umferð breskra skipa og flugvéla.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.