Morgunblaðið - 26.10.1986, Side 35

Morgunblaðið - 26.10.1986, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1986 35 St^örmi- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson í dag ætla ég að fjalla um árið framundan hjá Sporð- drekanum (23. okt.—21. nóv.). Athygli lesenda er vakin á því að einungis er fjallað um afstöður á sólar- merkið. Hver maður á einnig önnur merki og geta afstöður á þau sett strik í reikning- inn. Sólarmerkið sem er táknrænt fyrir lífsorku, vilja og grunneðli, er eigi að síður grundvallandi. Rólegt ár Undanfarið ár hefur verið heldur rólegt fyrir Sporð- drekann, ef undan eru skildir þeir sem fæddir eru fremst í merkinu. Svo verður og næsta ár. Júpiter Júpíter, pláneta þenslu, út- færslu, ferðalaga og þekk- ingar er í Fiskamerkinu fram til mars ’87 og eftir það í Hrútsmerkinu. Það táknar að hann lætur Sporðdrekann að mestu í friði. Hann ætti því ekki að vera stórtækur á næsta ári, heldur frekar hóg- vær og rólegur. Engin sérstök hvöt til að reisa stór- ar hallir ætti að angra hann. Þeir sem eru fæddir frá 6.—21. nóvember ættu þó að geta notið góðs af mjúkri Júpíterafstöðu, haft ánægju °g gagn af ferðalögum og verið í góðu jafnvægi til að gera skynsamlegar áætlanir. Þetta á sérstaklega við fram í mars 1987. Satúrnus Satúmus verður áfram í Bogmanni allt næsta ár. Ekkert bendir því til að um mikið álag verði að ræða hjá Sporðdrekanum eða að margir veggir verði á vegi hans. Straumar lífs og nátt- úru verða leið Sporðdrekans því ekki andsnúnir. Á hinn bóginn bendir veikur Satúm- us til þess að sjálfsagi er ekki með sterkara móti, né metnaður og áhugi á að af- kasta miklu og gagnlegu verki. Úranus Úranus er sömuleiðis í Bog- manni. Breytingar, byltingar og óróleiki er því ekki að angra Sporðdrekann. Neptúnus Neptúnus er í Steingeit og kemur til með að mynda mjúka afstöðu á þá Sporð- dreka sem fæddir eru frá 27. okt.—1. nóv. Það getur tákn- að aukinn áhuga á listum, sjónvarpi eða andlegum mál- um. Víðsýni og næmleiki þessara aðila getur aukist og augu þeirra opnast fyrir fleiri þáttum tilvemnnar en áður. Plútó Plútó er nánast eina plánetan sem eitthvað hefur að segja hjá Sporðdrekanum á næst- unni og þá aðailega þeim sem fæddir em frá 30. októ- ber til 1. nóvember. Þessir aðilar em að ganga í gegnum endurfæðingu, em að breyt- ast, en á lítt sjáanlegan hátt. Plútó er sáiræn pláneta sem starfar djúpt í undirmeðvit- undinni. Honum má líkja við garðyrkjumann, sem reytir arfa og kastar því sem miður hefur vaxið, þjónar ekki lengur tilgangi eða stendur í vegi fyrir frekari þróun garðsins. Þessi garðyrkju- maður er nú að störfum, er í óðaönn að endurskipuleggja dýpstu sálarfylgsn Sporð- drekans, rífa upp gamia mnna og dauð blóm. Það getur verið sárt, en er lífgef- andi og endumýjandi. Sál- fræði, sáigreining, lestur bóka um sjálfsrækt og viðtöl við góða vini geta hjálpað meðan þetta stendur yfir. GRETTIR t>AR KEMUR FÖSTURINN.NO er. MITT TÆItOFyGRI TIL AE> KLÓÍZA iBCrx NAS.KALMARy^R hans TOMMI OG JENNI lH|j 1 IA Ol/ A LJOSKA FERDINAND Hér læðist grimma kyrki- Grípur í nef fómarlambs- slangan í grasinu_ ins og kreistir! Ég vissi ekki að til væri neyðarsimi vegna kyrki- slangna ... BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson í síðasta hefti The Bridgftr World skrifar Kanandamaðurinn Eric Kokish um eftirfarandi spil, sem kom upp í kanadísku meist- arakeppninni fyrir tveimur árum. Spil, sem iðar af lífí, bæði í sókn og vöm: Suður gefur; AV á hættu. Vestur ♦ D1064 ¥D42 ♦ 75 ♦ 8642 Norður ♦ 3 ♦ Á10765 ♦ K843 ♦ ÁK9 Austur ♦ Á9752, V8 ♦ G1092 ♦ D75 Suður ♦ KG8 ▼ KG93 ♦ ÁD6 ♦ G103 Suður vakti á einu grandi, og norður sagði tvo tígla, sem sýndi hjartalit. Suður yfirfærði eins og um var beðið, og þá stökk norður í þijá spaða, sem hann taldi sýna stuttan spaða og áhuga á slemmu í hjarta. Suður var á öðm máli og lyfti í fjóra spaða, svo norður varð að segja sex hjörtu til að hreinsa and- rúmsloftið. Vestur spilaði kænlega út litlu laufí, sém sagnhafí drap á ás blinds og spilaði einspiiinu í spaða. Austur dúkkaði og fann sælubylgjur fara um líkama sinn þegar vestur drap gosa suðurs með drottningunni. Vestur spilaði aftur laufí og nú lagðist sagnhafi undir feld. Eftir dtjúga stund ákvað hann þó að fara upp með kónginn. Næst fór hann heim á tígulás og spilaði spaðakóng! Þegar vestur setti lítið án umhugsun-' ar, taldi sagnhafí víst að austur ætti ásinn og hefði dúkkað snilldarlega í öðmm slag. En það hefði hann líklega aldrei gert ef hann hefði átt ein- hveija von um að fá slag á tromp. Svo sagnhafi var ekki í vandræðum með trompíferðina. Hann tók á kónginn og svínaði fyrir drottningu vesturs. Svo trompaði hann spaða, tók hjarta- ás, fór heim á tíguldrottningu til að spila síðasta trompinu, sem hann henti laufí í úr borðinu. Og þar með var 12. slagurinn mættur, því austur réð ekki við að valda báða láglitina. Eftirmáli þessa skemmtilega spils getur verið sá að líkleg#a hefði spilið tapast ef vestur hefði farið upp með spaðaás í öðmm slag, eins og minni spámenn hefðu vafalaust gert. Umsjón Margeir Pétursson Sovézka skákfélagið Tmd tryggði sér sæti í úrslitum Evr- ópukeppni skákfélaga með þvf að sigra sænsku meistarana Rockaden í undanúrslitunum>> sem fram fóm fyrr í mánuðinum. Þessi staða kom upp á fyrsta borði, Alexander Beljavsky hafði hvítt og átti leik gegpi Svíanum Roland Ekström. 32. Rxd6! — cxd6, 33. c7 — Dc8, 34. Bfl! og svartur gafst upp. Sovétmennirnir sigmðu 9-3 í keppninni. f úrslitunum mætast sovézku liðin Tmd oc CSKA. r

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.