Morgunblaðið - 26.10.1986, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1986
35
St^örmi-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
í dag ætla ég að fjalla um
árið framundan hjá Sporð-
drekanum (23. okt.—21.
nóv.). Athygli lesenda er
vakin á því að einungis er
fjallað um afstöður á sólar-
merkið. Hver maður á einnig
önnur merki og geta afstöður
á þau sett strik í reikning-
inn. Sólarmerkið sem er
táknrænt fyrir lífsorku, vilja
og grunneðli, er eigi að síður
grundvallandi.
Rólegt ár
Undanfarið ár hefur verið
heldur rólegt fyrir Sporð-
drekann, ef undan eru skildir
þeir sem fæddir eru fremst
í merkinu. Svo verður og
næsta ár.
Júpiter
Júpíter, pláneta þenslu, út-
færslu, ferðalaga og þekk-
ingar er í Fiskamerkinu fram
til mars ’87 og eftir það í
Hrútsmerkinu. Það táknar
að hann lætur Sporðdrekann
að mestu í friði. Hann ætti
því ekki að vera stórtækur á
næsta ári, heldur frekar hóg-
vær og rólegur. Engin
sérstök hvöt til að reisa stór-
ar hallir ætti að angra hann.
Þeir sem eru fæddir frá
6.—21. nóvember ættu þó
að geta notið góðs af mjúkri
Júpíterafstöðu, haft ánægju
°g gagn af ferðalögum og
verið í góðu jafnvægi til að
gera skynsamlegar áætlanir.
Þetta á sérstaklega við fram
í mars 1987.
Satúrnus
Satúmus verður áfram í
Bogmanni allt næsta ár.
Ekkert bendir því til að um
mikið álag verði að ræða hjá
Sporðdrekanum eða að
margir veggir verði á vegi
hans. Straumar lífs og nátt-
úru verða leið Sporðdrekans
því ekki andsnúnir. Á hinn
bóginn bendir veikur Satúm-
us til þess að sjálfsagi er
ekki með sterkara móti, né
metnaður og áhugi á að af-
kasta miklu og gagnlegu
verki.
Úranus
Úranus er sömuleiðis í Bog-
manni. Breytingar, byltingar
og óróleiki er því ekki að
angra Sporðdrekann.
Neptúnus
Neptúnus er í Steingeit og
kemur til með að mynda
mjúka afstöðu á þá Sporð-
dreka sem fæddir eru frá 27.
okt.—1. nóv. Það getur tákn-
að aukinn áhuga á listum,
sjónvarpi eða andlegum mál-
um. Víðsýni og næmleiki
þessara aðila getur aukist
og augu þeirra opnast fyrir
fleiri þáttum tilvemnnar en
áður.
Plútó
Plútó er nánast eina plánetan
sem eitthvað hefur að segja
hjá Sporðdrekanum á næst-
unni og þá aðailega þeim
sem fæddir em frá 30. októ-
ber til 1. nóvember. Þessir
aðilar em að ganga í gegnum
endurfæðingu, em að breyt-
ast, en á lítt sjáanlegan hátt.
Plútó er sáiræn pláneta sem
starfar djúpt í undirmeðvit-
undinni. Honum má líkja við
garðyrkjumann, sem reytir
arfa og kastar því sem miður
hefur vaxið, þjónar ekki
lengur tilgangi eða stendur
í vegi fyrir frekari þróun
garðsins. Þessi garðyrkju-
maður er nú að störfum, er
í óðaönn að endurskipuleggja
dýpstu sálarfylgsn Sporð-
drekans, rífa upp gamia
mnna og dauð blóm. Það
getur verið sárt, en er lífgef-
andi og endumýjandi. Sál-
fræði, sáigreining, lestur
bóka um sjálfsrækt og viðtöl
við góða vini geta hjálpað
meðan þetta stendur yfir.
GRETTIR
t>AR KEMUR FÖSTURINN.NO er.
MITT TÆItOFyGRI TIL AE> KLÓÍZA
iBCrx NAS.KALMARy^R hans
TOMMI OG JENNI
lH|j 1 IA Ol/ A
LJOSKA
FERDINAND
Hér læðist grimma kyrki- Grípur í nef fómarlambs-
slangan í grasinu_ ins og kreistir!
Ég vissi ekki að til væri
neyðarsimi vegna kyrki-
slangna ...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
í síðasta hefti The Bridgftr
World skrifar Kanandamaðurinn
Eric Kokish um eftirfarandi spil,
sem kom upp í kanadísku meist-
arakeppninni fyrir tveimur
árum. Spil, sem iðar af lífí, bæði
í sókn og vöm:
Suður gefur; AV á hættu.
Vestur
♦ D1064
¥D42
♦ 75
♦ 8642
Norður
♦ 3
♦ Á10765
♦ K843
♦ ÁK9
Austur
♦ Á9752,
V8
♦ G1092
♦ D75
Suður
♦ KG8
▼ KG93
♦ ÁD6
♦ G103
Suður vakti á einu grandi, og
norður sagði tvo tígla, sem sýndi
hjartalit. Suður yfirfærði eins
og um var beðið, og þá stökk
norður í þijá spaða, sem hann
taldi sýna stuttan spaða og
áhuga á slemmu í hjarta. Suður
var á öðm máli og lyfti í fjóra
spaða, svo norður varð að segja
sex hjörtu til að hreinsa and-
rúmsloftið.
Vestur spilaði kænlega út litlu
laufí, sém sagnhafí drap á ás
blinds og spilaði einspiiinu í
spaða. Austur dúkkaði og fann
sælubylgjur fara um líkama sinn
þegar vestur drap gosa suðurs
með drottningunni.
Vestur spilaði aftur laufí og
nú lagðist sagnhafi undir feld.
Eftir dtjúga stund ákvað hann
þó að fara upp með kónginn.
Næst fór hann heim á tígulás
og spilaði spaðakóng! Þegar
vestur setti lítið án umhugsun-'
ar, taldi sagnhafí víst að austur
ætti ásinn og hefði dúkkað
snilldarlega í öðmm slag.
En það hefði hann líklega
aldrei gert ef hann hefði átt ein-
hveija von um að fá slag á
tromp. Svo sagnhafi var ekki í
vandræðum með trompíferðina.
Hann tók á kónginn og svínaði
fyrir drottningu vesturs. Svo
trompaði hann spaða, tók hjarta-
ás, fór heim á tíguldrottningu
til að spila síðasta trompinu, sem
hann henti laufí í úr borðinu.
Og þar með var 12. slagurinn
mættur, því austur réð ekki við
að valda báða láglitina.
Eftirmáli þessa skemmtilega
spils getur verið sá að líkleg#a
hefði spilið tapast ef vestur hefði
farið upp með spaðaás í öðmm
slag, eins og minni spámenn
hefðu vafalaust gert.
Umsjón Margeir
Pétursson
Sovézka skákfélagið Tmd
tryggði sér sæti í úrslitum Evr-
ópukeppni skákfélaga með þvf
að sigra sænsku meistarana
Rockaden í undanúrslitunum>>
sem fram fóm fyrr í mánuðinum.
Þessi staða kom upp á fyrsta
borði, Alexander Beljavsky
hafði hvítt og átti leik gegpi
Svíanum Roland Ekström.
32. Rxd6! — cxd6, 33. c7 —
Dc8, 34. Bfl! og svartur gafst
upp. Sovétmennirnir sigmðu
9-3 í keppninni. f úrslitunum
mætast sovézku liðin Tmd oc
CSKA. r