Morgunblaðið - 26.10.1986, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1986
I
Á vígsludegi
Hallgrí mskirkj u
dag höldum við hátíð og vígjum kirkju Hallgríms Péturssonar á Skólavörðuhæð. Til þess að það
geti orðið hafa margir lagt hönd að og segja má að allir íslendingar eigi þar hlut í, því að
sameiginlegur sjóður okkar og sjóður borgarinnar hafa lagt til fjármagn auk §ölda einstaklinga
og fyrirtækja. Guðjón Samúelsson, sem teiknaði kirkjuna, og þeir sem tóku við að honum látn-
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
um, geta nú senn lagt frá sér áhöld sín að loknu vel unnu dagsverki. Það er um smíði Hallgrímskirkju að segja að margt er
líkt með henni og smíði hinna fögru dómkirkna miðalda, sem voru mannsaldra í smíðum. Við Hallgrímskirkju hafa unnið
og vinna menn sem hafa haft það að ævistarfi að byggja þessa kirkju svo að vígsludagur þessa fagra húss mætti renna upp,
og nú gleðjumst við öll með þeim.
í 8. versi fyrsta Passíusálms segir:
„Ó, Jesú gef þinn anda mér,
allt svo verði til dýrðar þér
uppteiknað, sungið, sagt og téð,
síðan þess aðrir njóti með.“
Þessi bænarorð Hallgríms Péturssonar í upphafi Passíusálma gengu öll eftir, því þar er ort svo hvert bam skildi og
Passíusálmamir urðu þjóðareign.
Kryddkaka með marengs
og appelsínum
100 g smjörlíki
3 egg
250 g dökkur púðursykur
rifinn börkur af 1 appelsínu
300 g hveiti
1 tsk. natron
2 tsk. kanill
1 tsk. negull
l'/2 dl súrmjólk
1. Bræðið smjörlíkið, kælið örlítið.
2. Hrærið eggin með púðursykri þar til það
er ljóst og létt.þ
3. Rífið appelsínubörkinn og setjið út í.
4. Sigtið hveitið með natróni, kanil og neg-
ul. Setjið helming þess út í deigið og
hrærið saman, setjið síðan súrmjólkina
og smjörlíkið út í og loks hinn hluta
mjölsins.
5. Smyijið aflangt, helst breitt jólaköku-
mót, stráið raspi inn í það. Hellið deiginu
í mótið.
6. Hitið ofninn í 190°C, blástursofn í
170°C, setjið kökuna neðarlega í ofninn
og bakið í 50—60 mínútur.
7. Takið kökuna úr ofninum, látið standa
smástund og kólna örlítið, skerið þá nið-
ur með brúnunum og hvolfið henni síðan
á bökunarplötu.
Ofan á kökuna
2 eggjahvítur
200 g flórsykur
safi úr V2 appelsínu
2 appelsínur í sneiðum
50 g heslihnetukjamar
8. Þeytið eggjahvítumar ásamt sykri, setj-
ið sykurinn smám saman út í.
9. Hrærið appelsínusafann út í.
10. Smyijið marengsinum jafnt á alla kök-
una.
11. Saxið hnetukjamana fremur smátt,
stráið yfir marengsinn.
12. Hitið ofninn í 210°C, blástursofn í
190°C, setjið kökuna neðarlega í ofninn
og bakið í 15—20 mínútur. Kælið.
13. Afhýðið appelsínumar, skerið síðan í
sneiðar og raðið ofan á kökuna.
Kökuhringur með núgga og kremi
Deigið
3 egg
100 g sykur
Núgga
75 g sykur
50 g möndlur eða hesilhnetur
6. Saxið hnetumar eða möndlumar fínt.
7. Hitið sykurinn á pönnu, látið hann brún-
ast örlítið, stráið þá hnetum út í.
8. Smyijið eldfast fat, hellið núgganu á
, fatið, látið kólna, losið þá af fatinu og
kælið alveg.
9. Steytið í morteli eða setjið í plastpoka
og sláið á með kjöthamri. Setjið í skál.
Krem
50 g smjör
75 g jurtasmjörlíki
2>/2 msk. kakó
125 g flórsykur
1 egg
10. Hrærið lint smjör og jurtasmjörlíki með
flórsykri og kakói, setjið síðan eggið
út í.
11. Smyijið kreminujafnt á allan hringinn.
12. Takið núggað í lófann og þrýstið f krem-
ið eins jafnt og þið getið.
13. Setjið kökuna í kæliskáp í V2 klst.
90 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
1. Hrærið eggin með sykri þar til það er
ljóst og létt.
2. Sigtið hveiti með lyftidufti, setjið út í
deigið með sleikju.
3. Smyijið slétt hringmót, stráið raspi inn
í það. Setjið deigið í mótið.
4. Hitið ofninn í 170°C, blástursofn í
150°C, setjið kökuna í miðjan ofninn og
bakið í 30—40 mínútur.
5. Látið kökuna kólna örlítið, skerið síðan
niður með brúnunum og hvolfið á grind
og látið kólna alveg.
Kaka með súkkulaðikremi
og ananas
3 botnar
Botnarnir
3 egg
125 g sykur
1 msk. heitt vatn, ekki sjóðandi
50 g hveiti
50 g kartöflumjöl
V2 tsk. hjartarsalt
1. Þeytið eggin með sykri og vatni þar til
það er ljóst og létt.
2. Myljið hjartarsaltið út í hveitið, setjið
kartöflumjöl saman við.
3. Smyijið 3 kökumót, 20—22 sm í þver-
mál. Skiptið deiginu jafnt í mótin.
4. Hitið ofninn í 210°C, blástursofn í
190°C. Setjið botnana í miðjan ofninn
og bakið í 7—10 mínútur.
5. Kælið botnana örlítið en losið þá úr
mótunum,
Kremið
2 pelar ijómi
2 pk. suðusúkkulaði (200 g)
1 msk. kaffíduft
1 lítil dós ananaskurl (crushed) 237 g
6. Setjið ijóma, súkkulaði og kaffi í pott.
Hafið hægan hita. Bræðið súkkulaðið
og hrærið vel saman.
7. Setjið í skál og geymið í kæliskáp þar
til þetta er orðið mjög vel kalt.
8. Hellið þá í hrærivélarskálina og þeytið
þar til þetta er ljóst og létt.
9. Síið ananasinn, setjið saman við 2/s hluta
deigsins, smyijið því ofan á 2 botna,
leggið saman.
10. Setjið Va kremsins ofan á efsta
botninn.
VANTAR ÞIG VEISLUSAL?
Fyrirárshátíðfna, þorráblótið,
fundi eða annan mannfagnaö.
Hafiö þá samband við okkur
og látið okkursjá um herleg-
heitin.
VEISLUSALURINN
Suðurlandsbraut 30,5. hæð,
X*íml688565.
Rúnar Þ. Árnason, sfmi 40843.
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
Fiskmarkaður
Undirbúningsfundur fyrir stofnun hlutafé-
lags um rekstur fiskmarkaðar í Hafnarfirði
verður haldinn í Gaflinum við Reykjanes-
braut, 2. hæð, laugardaginn 1. nóvember
kl. 13.30.
Allir áhugamenn velkomnir.
Útvegsmannafólag Hafnarfjarðar.