Morgunblaðið - 26.10.1986, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1986
49
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
GILDI HfSI
Framtíðarstarf
Óskum eftir að ráða mann til framtíðarstarfa
í ráðstefnusali okkar.
Starfið felst m.a. í uppstillingu á húsgögnum
og tækjum fyrir ráðstefnur, ásamt frágangi
og umsjón með áhaldageymslu.
Nánari upplýsingar gefur starfsmannastjóri
á staðnum frá kl. 9.00-13.00 næstu daga.
Ath. frítt fæði á staðnum.
Suðumenn
Okkur vantar suðumenn í verksmiðju okkar
í Hafnarfirði. Upplýsingar veitir verkstjóri
Jakob Friðþjófsson í s'ma 52711.
HF. OFNASMIÐJAN
Skrifstofustúlka
Stúlka óskast til skrifstofustarfa hálfan dag-
inn eða eftir nánara samkomulagi. Starfið
er fólgið í spjaldskrárvinnu, vélritun og öðru
þess háttar.
Nauðsynleg er góð íslensku- og vélritunar-
kunnátta, æskileg nokkur enskukunnátta.
Tilboð ásamt upplýsingum um aldur og fyrri
störf sendist augldeild Mbl. fyrir 30. okt. nk.
merkt: „Félagssamtök — 3148“.
Ung kona
óskar eftir vinnu frá byrjun janúar. Ýmislegt
kemur til greina, en hefur helst áhuga á
ferðamálum, fjölmiðlun, út- og innflutnings-
fyrirtækjum og góðum sérverslunum.
Hefur mikla reynslu af verslunar- og verslun-
arstjórastörfum og hefur stúdentspróf.
Bjargar sér vel í ensku og frönsku og hefur
mjög góð meðmæli.
Tilboð sendist augldeild Mbl. merkt: „RX — 17“.
Deildarstjóri
Okkur vantar deildarstjóra í hönnunardeild
Álafoss hf. Starfið er laust strax. Um er að
ræða stjórnunarstarf vegna hönnunar á fatn-
aði innan og utan fyrirtækisins. Starfið krefst
þess að viðkomandi geti sótt sýningar er-
lendis. Tungumálakunnátta er nauðsynleg.
Frekari uppl. gefur starfsmannastjóri í síma
666300.
át
Álafoss hf.
Hveragerðishreppur
óskar eftir að ráða:
1. Skrifstofustjóra. Viðskipatmenntun og/
eða víðtæk reynsla í skrifstofustörfum
áskilin. Umsækjendur þurfa að geta haf-
ið störf sem fyrst.
2. Garðyrkjustjóra. Garðyrkjustjóri sjái um
vinnuskóla, auk þess að annast umsjón
og fegrun á opnum svæðum í Hvera-
gerði. Staðan veitist frá 1. janúar 1987
eða eftir nánara samkomulagi.
Umsóknir með uppl. um menntun og fyrri
störf sendist sveitarstjóranum í Hveragerði
Hverahlíð 24, 810 Hveragerði fyrir 5. nóv.
og gefur hann einnig uppl. um störfin.
Myndbandagerð
Myndbandagerð Reykjavíkur er nýtt og kraft-
mikið fyrirtæki á sviði sjónvarpsauglýsinga,
heimildamynda og þáttagerðar.
Myndbandagerð Reykjavíkur óskar nú þegar
eftir dugmiklu fólki í eftirtalin störf í mynd-
veri sínu.
1. Kvikmyndatökumanni.
2. Klippara.
3. Starfsmanni á skrifstofu.
Umsóknir sendist augldeild Mbl. merktar:
„M.R. video — 1868“ fyrir 10. nóv. nk.
MYNDBANDAGERÐ
REYKJAVIKUR HF.
BORGARTUNI 27105 REYKJAVIK SIM111661
Starfsmaður óskast til ræstingastarfa.
Upplýsingargefurveitingastjóri nk. þriðjudag
milli kl. 14.00 og 17.00. Uppl. ekki gefnar í
síma.
Brautarholti 20.
Skrifstofustúlka
Stúlka óskast til skrifstofustarfa hálfan dag-
inn eða eftir nánara samkomulagi. Starfið
er fólgið í spjaldskrárvinnu, vélritun og öðru
þess háttar.
Nauðsynleg er góð íslensku- og vélritunar-
kunnátta, æskileg nokkur enskukunnátta.
Tilboð ásamt upplýsingum um aldur og fyrri
störf sendist augldeild Mbl. fyrir 30. okt. nk.
merkt: „Félagassamtök -i- 3148“.
Heilsugæslustöðin
Fossvogi
2 aðstoðarmenn óskast í 50% starf hver.
Góð almenn menntun áskilin.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri i síma
696780, mánudag frá kl. 9-10.
Starfsfólk óskast frá
og með 1. nóvember
Vön sölukona til að selja tískuvörur. Snyrti-
sérfræðingur og afgreiðslustúlka til af-
greiðslu í snyrtivöruverlsun. Upplýsingar í
síma 611130 milli kl. 13.00-19.00 í dag
sunnudag.
Verkstjóri óskast
Iðnfyrirtæki óskar eftir að ráða verkstjóra til
að veita forstoðu einni deild fyrirtækisins.
Góð laun í boði fyrir réttan mann.
Þeir sem hafa áhuga skili inn umsóknum til
augldeildar Mbl. í síðasta lagi fyrir hádegi
miðvikudaginn 29. okt. merktum: „Verkstjóri
- 547“.
Málarameistari
Tek að mér alhliða málningarvinnu.
Góð umgengni.
Upplýsingar í síma 30018.
Tæknimenntaður
framkvæmdastjóri
Raf mag nsverkf ræðing u r/
rafmagnstæknifræðingur
Samband ísl. rafveitna, SÍR, auglýsir
stöðu framkvæmdastjóra lausa til
umsóknar
Starfið er laust um næstu áramót eða eftir
nánara samkomulagi.
Áskilið er að viðkomandi hafi próf í raf-
magnsverkfræði eða próf í rafmagnstækni-
fræði sem fullnægjandi geti talist með
hliðsjón af verksviði framkvæmdastjóra.
Við leitum að aðila með stjórnunarreynslu,
sem vinnur sjálfstætt og skipulega, hefur
frumkvæði og á gott með að vinna með
öðrum. Þarf að geta tjáð sig í ræðu og riti.
Tungumálakunnátta nauðsynleg, enska og
eitt Norðurlandamál.
Góð laun í boði. Þægileg og góð vinnuað-
staða.
Farið verður með allar umsóknir sem algjört
trúnaðarmál.
Umsóknir er tilgreini menntun og starfs-
reynslu ásamt öðru er máli skiptir sendist
skrifstofu okkar fyrir 1. nóv. nk.
Guðnt íónsson
RÁÐGJÖFfr RÁÐNINCARHÓNUSTA
TÚNGÖTU 5, 101 REYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322
Prjónavélaviðhald
Okkur vantar duglegan mann til þess að sjá
um viðhald og viðgerðir prjónavéla. Æskilegt
er að viðkomandi hafi vélvirkjamenntun og
þekkingu á tölvustýrðum vélum eða sé vanur
prjónavélaviðgerðum. Starfið er laust strax.
Frekari uppl. hjá starfsmannahaldi Álafoss
hf. sími 666300.
&
Álafoss hf.
Sunnuhlíð
Kópavogsbraut 1 Sími 45550
Hjúkrunarfræðingar
1. Deildarstjóri óskast 1. janúar.
2. Hjúkrunarfræðingar óskast á næturvaktir.
Sjúkraliðar — lausar stöður nú þegar
Allar upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í
síma 45550.
Hjúkrunarforstjóri.
Hlutastarf
Hagsmunasamtök í Reykjavík óska eftir að
ráða starfsmann til skrifstofustarfa sem
fyrst. Vinnutími er frá kl. 8.00-12.00. Nauð-
synlegt er að umsækjendur hafi reynslu í
almennum skrifstofustörfum, svo sem vélrit-
un, bókhaldi og meðferð fjármála. Boðið er
uppá góð laun og góða vinnuaðstöðu í hjarta
borgarinnar.
Umsækjendur sendi umsóknir á augldeild
Mbl. fyrir 3. nóvember merktar: „Framtíðar-
starf - 694.“