Alþýðublaðið - 12.03.1932, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 12.03.1932, Blaðsíða 2
alþýðublaðið 1 ■ . Utanríkismál íslendinga. í gamla daga, meðan milliríkja- verzlun var að eins lítil, af pvi flutningar milli landa voru dýr- ir, voru utanríkismálin aðallega eambönd til varnar eða sóknar. En eftir því sem viðskifti ntilli fanda hafa vaxið, befir þetta breyst, svo utanríkismálin eru nú viðskiftamál þjóðanna. Þegar fsland varð sjálfstætt konungsríki, var nokkuð um það rætt aÖ við þyrftum sjálfir að annast utanríkismál vor, og var talað um að hafa einn mann í stjórnarráðinu, er einhvern hluta úr deginum annaðist þau. En ekki virðist svo sem menn hafi raun- verulega skoðað þetta nema sem eins konar tildur, enda varð það naumast nema ráðagerðin. En þó ekki séu árin mörg síðan fsland varð sjálfstætt ríki, hefir á þessum tíma breyzt geisilega aðstaðan um utanríkismál vor,‘og þörfin fýrir að sinna þeiim aukist og vaxíð. Mörgum er minnisstæð kjöt- tolls-deilan við Norðmenn, sem reyndar ekki var nein deila af fslendinga hálfu, þar sem tafar- laust var látið undan öllum kröf- tim Norðmanna, er þeir ætluðu að auka toll á íslenzku saltkjöti, og dýrmæt fiskveiðaréttindi af- söluð þeim, í stað þess að hóta þeim að láta tolla komia á móti tolli, á þær vörur, er Norðmenn selja okkur. Nú eru Norðmenn búnir að segja upp samningunura, og ef ekki eiga vitrari menn að ráða nú en þá, getur varla hjá því farið að við afhendum Norðmönn- um sjálfa íslenzku landhelgina! Englendingar eru búnir að leggja lOo/o innflutningstoll á nýjan físk, og með sömu stjórn eða réttara sagt stjórnleysi á ut- anrikismálunum og verið hefir, má búast við að þeir hækki hann með tímanum svo milkið, að ó- gerlegt verði aÖ selja fisk til Englands. En með þeirri leið, sem búið er aÖ vísa útlendingum á með kjöttollssamningunum, væri ekki óhugsanlegt að Englendingiar vikju sér að að hækka tollinn þannig, nema þeir fengju að láta togara sína veiða í landhelgi. Værum vér þá laglega settir, er vér værum búnir að gefa Norðmönnum landhelgina að norðan, en Englendingum hana að sunnan. Utanríkismál vor ntega ekki /lengur vera í þeirri vanhirðu, sem þau eru nú í, því þá fer óhjá- kVæmilega eins og hér að fram- an er greint. Það þarf að hefja nákvæma rannsókn á því, hvernig viðskift- tm vorum er varið, við hin ýmsu lönd, og mun þá kotna í ljós, að við höfum nóg spil á hendinni íil þess að fá afnuminn bæði Forsetakosnlngarnar f Þýzkalandi. Flsnm framlijóðendar erra i kjori. Ógrarlegar æsiogar í landinra. Frandarhöld bönnrað. Lokað fyrir áfengisfléðið. Á miðri myndinni sést Hendenburg forseti. Hann er að koma út úr þinghúsinu í Berlín. Myndin er tekin um það Leyti, er þing- kosningar fóru fram 1930, og eru mennirnir með spjöldin kosn- ingasmalar. kjöttoll í Noregi og fisktöll í Englandi, án þess að afsala ofck- ur landhielginm'eða öðrum lands- réttindum. Eggert Bjarnason bankaritari. Eggert Bjarnason bankaritari, foimaður Félags ungra jafnaðar- manna síðast liðið ár, lézt í gær kl. 6 í Landsspítalanum. Hainn hafði legið þungt haldinn síðan um miðjan janúar, og nú síðustu dagana var hann meðvitundar- laus. Eggert heitinn var einhver langefmlegasti starfskraftur með- al yngri man>na hér í bænum, er alþýðuhreyfingin hafði á lað skipa. Hann var sonur hjónanna Hölm- fríðar Jónsdóttur og Bjarna Egg- ertssönar að Tjörn á Eyrarbakka.' Hans verður nánar minst síðar, Barsið ekM fnnðlð enn. Hopeweli, N. J., 11. marz. UP,- FB.: Lögreglan tilkynnir, að aliar tilraunir tii þess að komiast að því, hvert farið hafi verið með barn Lindberghs og konu hans, hafi reynst árangurslausar, bæði i Bandaríkjunum og öðrum lönd- um. Lögreglan hefir að undain- förnu gefið út tilkynningar um rannsóknarstörf sín í sambandi við barnsstuldinn og í þeirn alið á vonurn um, að takast mundi að finna barnið, en er nú hætt að gefa út slíkar tilkynningar. Búist er við, að Lindbergh muni enn á ný reyna að hafa áhrif á þjófana, til þess að skila barninu aftur, ef tilrauhir lögneglunnar og „undir- heimakónganna“, sem hánn léit- aði til á dögunum, reynast ár- angurslausar. 9s5SnaFf|SpðEir« Alþýðublaðið hefir verið beðið að geta þess, að þeir, sem hafi í hyggju að panta smjörlíki, hrein- lætisvörur, bökunardropa og þess háttar hjá Pöntunarfélagi verka- mannafélagsins „Hlíf“, geti eins og að undanförnu snúið sér til Guðjóns Gunnarssonar, skósmiðs, Gunnarssundi 6. — Verkamenn! Eflið samtökin og skiftið við ykk- ar eigið pöntunarfélag, sem er rekið með heill fjöldans fyrir aug- um, A. S. V. heldur skemtifund í kvöld kl. 8,30 stundvíslega. Að- göngumiðar fást í útibúi Hljóð- færahússdns og við innganginn og kosta 50 aura. Fimleikakeppni (flokkakeppni) um Osló-bikar Turnforiening fer fram 5. maí n. k. Þátttökubeiðn- ir ásamt stundaskrá flokkanna séu sendar formanni Ármanns éigi síðar en 21. apríl. Berlín í morgan. Samkvæmt símskeyti, sem Fréttastofu blaðamanna barst í roorgun frá United Pness, eiga forsetakosningarnar að fara fram í Þýzkalandi á morgun, og er kosið um þessa frambjóðendur: - Hindenburg fyrverandi hers- höfðingja og núverandi forseta. Adolf Hitler foringja svartliða, en þeir eru eins og kunnugt er studdir af hinu harðsviraðasta í- haldi. Thalmann, leiðtoga kommún- iista. Dusterbierg, leiðtoga þjóðernis- sinna, og Winter, sem er flokksLeysingi. En talið er að hann fái sáralítið fylgi. Vegna þess hve mLklar æsing- ar eru í landinu, hefir lögreglan bannað öll fundahöld undir beru lofti í kvöld og á morgun. Og sala allra áfengra drykkja er líka bönnuð hvarvetna í landiinu tiil mánudagskvölds. Kosningabaráttan er sögð vera imiiklu harðari en nokkru sinni ^áður í sögu landsihs og talið er, að hún standi aðallega milli Hiin- denhurgs og HitLers, þótt hins vegar muni lítill vafi leilka á um> það, að Hindenburg nái kosningu, þar sem hann er studdur af milli- flokkunum og Jafnaðiarmanna- flokkurinn hefir engan í kjöri, en það er sama og fylgjendur hans kjósi Hindenburg. — Ástæðan fyrir því," að jafnaðarmenn hafa engan í kjöri, er sú, að þeir vilja ekki síuðla að því, að svart- Skatafélagiið „Ernir“. Otiæfing í fyrra máliið kl. 9,30 frá gamla barnaskólianum, allar sveitir. liðar komist til valda, en þeir myndu, ef svo færi, þegar í stað afnema lýðveldið, banna verk-- Iýðsfélög og verklýðsblöð og Hitler. „kæfa Marx-ismann í blóði“, einsv. og Hitler komst að orði í ræðuv í Brúnsvík í haust. Síðrastra fregrair* Samkvæmt fregnum frá Berlín; sem. útvarpað var þaðan kl. i/2.12: í dag, hefir í kosningabardagan- um' orðið mjög mitóð vart við að atkvæði manna væru föluð fyrir peninga, en út af því hefir stjórnin gefið út yfiríýsitnigu, þar sem hún varar menn vdð slíku, því að hörð refsing liggi við at- kvæðamutum, og geti sá, er sek- ur verði fundiun um s.líkt, fengið tveggja ára fangelsi. - Togararntr. Ólafur fór á veiðar í gær. Baldur, Otur og Skalla- grímur fara á veiðar í dag.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.