Morgunblaðið - 26.10.1986, Side 56
56
»aer. íTsrprynro »s «mr>*rrrT'<rprT'»? rfTfí*.TS(V[TTr>jTOM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1986
* >T
—
>u
FERÐASKRIFSTOFAN ÚRVAL
%0r—
Ferdaskrifstofan
Úrval v/Austurvöll.
Sími (91) 26900.
FLUGLEIÐIR
(jlasgow er girnileg verslunarborg eins og
allir vita, ekki síst núna þegar pundiö hefur
lækkað. En Glasgow er líka og ekki síður
girnileg skemmtanaborg, þar sem allir geta
fundið eitthvað við sitt hæfi.
Með Úrvali getur þú farið í ódýrar
þriggja, fimm eða sjö daga ferðir þar
sem þú verslar, skemmtir þér og býrð
á góðu hóteli í hjarta borgarinnar.
K Úrval býður þér einnig ódýrar borgar-
« ferðir til London frá aðeins kr.
g 12.570.-, Amsterdam frá aðeins kr.
£ 14.450.- og New York frá kr. 20.399.-
O
o
Allar nánari upplýsingar veita sölu-
og umboðsmenn Úrvals um land allt.
Þrjár nœtur á glœsilegu
hóteli í Glasgow.
Verð frá kr. 12.440.-
Innifalið er flugið til og frá Glasgow,
gisting í þrjár nætur á fjögurra stjörnu
hóteli með baði, síma, útvarpi og
sjónvarpi og skoskur morgunveröur.
Viljirðu taka börnin með færðu ríflegan
afslátt fyrir þau.
Garðar S. Sveins-
son — Kveðjuorð
Fæddur 31. maí 1947
Dáinn: 21. október 1986
Við hrökkvum við þegar einhver
nákominn fellur frá, sér í lagi þeg-
ar menn kveðja í blóma lífsins.
Þrátt fyrir undangengin veikindi
Garðars vonuðum við að hans mikli
lífsvilji og orka myndi hafa betur í
þeirri viðureign. Kynni okkar vörðu
ekki nema fá undangengin ár og
því eru hér ekki rakin æviágrip, en
minningar okkar um Garðar eru
um dagfarsprúðan drengskapar-
mann, léttan í lund og góðan heim
að sækja og fá í heimsókn. Garðar
var heimakær og ástríkur eigin-
maður og faðir, einn af þessum
homsteinum sem þjóðfélagið byggir
svo mikið á. Því má ljóst vera að
það er skarð fyrir skildi hjá eigin-
konu og bömum sem og öðrum
vinum og vandamönnum og sendum
við þeim öllum innilegar samúðar-
kveðjur. Við verðum að vona að
tíminn lækni þeirra sár sem fyrst,
en kveðjum Garðar með orðum spá-
mannsins:
„Því hvað er það að deyja annað en
standa nakinn í blænum og hverfa inn í
sólskinið?
Og hvað er að hætta að draga andann
annað en frelsa hann frá friðlausum öldum
lífsins,
svo að hann geti risið upp í mætti sínum
og ófjötraður
leitað á fund guðs síns?
Aðeins sá, sem drekkur af vatni þagnarinnar,
mun þekkja hinn volduga söng.
Og þegar þú hefur náð ævitindinum, þá fyrst
munt þú hefja fjallgönguna. Og þegar jörðin
krefst
líkama þíns, muntu dansa í fyrsta sinn.“
(Kahlil Gibran)
Gerður og Bergur
Minning:
Inga, Rúna Warrick
Fædd 21. mars 1925
Dáin 18. október 1986
Á morgun, 27. október, kveðjum,
við ástkæra móðursystur okkar,
Ingpi Rúnu.
Hún var elsta bam Ingólfs Jóns-
sonar hæstaréttarlögmanns og fyrri
konu hans, Ingibjargar Steinsdóttur
leikkonu.
Við vorum ekki gömul systurböm
hennar þegar við fómm að njóta
umhyggju hennar og hlýju, sem
veitt var ómælt og óskilyrt. Þessir
eiginleikar frænku breyttust í engu
þó hún flytti úr landi og hafið skildi
okkur að. Alltaf fylgdist hún með
okkur og tók okkur opnum örmum
í hvert sinn er við sóttum hana
heim, á sinn sérstaka, hlýja máta.
Það er okkar gæfa að hafa fengið
að eiga þessa elskulegu móðursyst-
Askriftarsíminn er 83033
ur.
Ótal minningar koma upp í hug-
ann nú þegar komið er að leiðarlok-
um hjá frænku, minningar, sem
munu ylja um ókomin ár.
Son sinn, Michael Ingólf Warrick,
eignaðist Inga Rúna með eigin-
manni sínum, James Warrick, en
þau bjuggu í Raleigh, North Caro-
lina, meðan hjónaband þeirra varði.
Þau slitu samvistir. Michael stóð
eins og klettur við hlið móður sinnar
í hennar síðustu og erfiðustu bar-
áttu, sem hún háði af æðruleysi.
Elsku Michael, þótt þú eigir að-
eins 23 ár að baki, þá vitum við
að styrkur þinn er mikill og mun
hann vísa þér leið um ókomin ár.
Við sendum þér okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Þessar fáu línur áttu ekki að
vera upptalning staðreynda um líf
frænku okkar heldur einföld þakk-
lætiskveðja.
Hafí elsku frænka þökk fyrir allt
og allt.
Hvíli hún í friði.
Anna Bogga og Inga Rúna
Birting afmæl-
is- og minning-
argreina
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins eru birt-
ar greinar um fólk sem er 70 ára
eða eldra. Hins vegar eru birtar
afmælisfréttir með mynd í dagbók
um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að
handrit séu vel frá gengin, vélrit-
uð og með góðu línubili.