Morgunblaðið - 26.10.1986, Page 58

Morgunblaðið - 26.10.1986, Page 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1986 Nýmyndaf L pigirimannÍTHim sem Karen Blixen gerði svo litið úr Nú fyrir næstu jól kemur út samtímis í Bandaríkjun- um og Svíþjóð bók um sænska baróninn og ævintýra- manninn Bror von Blixen-Finecke, sem í margra augum hefur til þessa unnið sér það heizt til f rægðar að hafa verið kvæntur dönsku skáldkonunni Karen Blixen, eða Dinesen, eins og eftirnafn hennar var fyrir giftinguna. Höfundur bókarinnar er Ulf Aschan, sem er guðson- ur Brors og starfar sem leiðangursstjóri veiðimanna í Kenýa, og í bókinni er dregin upp allt önnur mynd af söguhetjunni en fram kemur í bókum eiginkonu hans. Leitaði höfundur heimilda hjá ættingjum í Svíþjóð, Danmörku og Kenýa og hjá fyrrum ástkonum hans, sem voru nokkrar enn á lifi. Sjálfur lézt Bror von BIixen-Finecke í bílslysi á Skáni veturinn 1946 tæplega sextugur að aldri. Einnig byggir höfundur á tveimur bókum sem Bror skrifaði, „Nyama“ („African Hunter“ á ensku) sem út kom árið 1936, og „Brev frán Afrika“ (1943). Sjálfur hélt Bror dagbók og fjölskyldan átti mikið safn bréfa frá honum, sem geymd voru uppi í risi á ættarsetrinu Násbyholm á Skáni, en öll þessi gögn eyðilögðust I eldi sem kviknaði í risinu á árunum fyrir fyrri heimsstyijöldina. sem hann pantaði dýrasta kampavín með matnum á þeirri forsendu að hver flaska af því væri þó ódýrari en ilmvatn frúarinnar. Þau keyptu sér kristalsglös af öllum stærðum fyrir heimilið. Og hún fat- aði sig upp hjá dýrustu tízkuhúsun- um. Reikningamir fyrir dvölina í París á leiðinni til Danmerkur 1919 vom enn ógreiddir þegar Karen Blixen loks yfirgaf búgarðinn í Kenýa árið 1931. Frá París var haldið til London og þar var óhófinu haldið áfram. Árið áður, 1918, hafði Karen kynnzt brezka aðalsmanninum Denys Finch Hatton. í einni frásögn sinni lýsir hún því hvernig hún náði sér niðri á kvennamanninum Bror, sem hún nefnir svo: Þessi eigin- maður sem er svo upptekinn af sjálfum sér gat ekki skilið hvers vegna eiginkonan var orðin svo þögul og kyrrlát og vildi aldrei fara út með honum á mannamót. „En kæri vinur," segir hún þá, „skilur þú ekki að það er erfítt að láta sjá Cockie hin brezka, önnur barón- essa Blixen. ror stundaði nám í Lundi ásamt tvíburabróður sínum, Hans, og vom þeir þar í sambýli. Kemur fram í frásögn Brors að þeir hafí haft meiri áhuga á að smygla inn til sín ungum stúlkum en að liggja jrfír bókum. Buðu þeir stúlkunum venjulega upp á hálfflösku af kampavíni, en vínið tóku þeir út í reikning hjá kaupmanninum og reikningurinn síðan sendur heim til pabba. Þegar bræðumir komu heim í jólafrí vom þeir kallaðir á fund föðurins sem sat með reikninga vínkaupmannsins í höndunum. ..^Skjálfandi biðu þeir eftir átölum ■‘iöðurins, en hann sagði aðeins með fyrirlitningarsvip: — Drekkið þið hálfflöskur af kampavíni strákar? Tvíburabróðirinn var ímynd ungs aðalsmanns þeirra tíma: foringi í hemum, mikill hestamaður og áhugamaður um flug. Fræg er sag- an af því þegar hann vann kappreið- ar í Malmö, fór beint út á flugvöll og flaug vél sinni yfír til Dan- merkur þar sem hann sigraði í öðmm kappreiðum sama dag. Bror gekk aldrei í herinn. Hann var öðmvísi, og honum var það ljóst 3RjáIfum. Hann var sendur á land- búnaðarskóla, sem þótti ekki sér- lega æmverðugt. Á þessum ámm varð hann ástfanginn af Margaretu prinsessu, þá 17 ára og dóttir Carls prins og Ingeborg prinsessu. En hún kaus heldur að giftast Axel Danaprins. Þá kom Karen Dinesen til sög- unnar. Karen bjó á ættarsetrinu Rungstedlund rétt utan við Kaup- mannahöfn og vom þau Bror þremenningar. Hún var þá jafnan kölluð Tanne. í fyrstu bók sinni „Sju romantiska beráttelser", sem út kom 1934, er Bror fyrirmynd sögupersónunnar Anders Kube í sjöundu sögunni, „Poeten". Kube er jarðbundinn 24 ára maður, sem telur að enginn taki eftir sér, hann sé ekki eins og allir hinir. En þetta breytist þegar hann hittir Fransine. Hún sá strax hvað í honum bjó. „Hann fann strax að fýrir hennar tilstilli hafði hann öðlazt nýja til- vem. Framtíðin varð bjartari og betri." Á svipaðan hátt lýsir Bror einnig áhuga sínum á Tanne í bókinni „Nyama". Tanne var alveg einstök frænka sem opnaði augu hans fyrir umheiminum. Allt umhverfíð fékk á sig nýjan svip, og saman dreymdi þau um nýja heima, og sá draumur rættist. Móðurbróðir Karenar, Aage Westenholz, hafði grætt milljónir á gúmmírækt í Malaju. Annar frændi hennar, nýkominn heim eftir villi- dýraveiðar í Afríku, ráðlagði þeim að fara til Kenýa. Fjölskyldum þeirra beggja þótti ráðlegt að leggja fé í búgarð í Kenýa. Framtíð Brors virtist ráðin. Þau Bror og Tanne opinbemðu trúlofun sína, og birtist tilkynning þess efnis í Sydsvenska Dagbladet á aðfangadag jóla 1912. Þetta kom nokkuð flatt upp á fjölskylduna, því talið var að Bror væri að taka nið- ur fyrir sig. Unnustan var ekki einu sinni auðug. Fyrir ungan mann úr Blixen-Finecke-flölskyldunni mátti finna bæði auðugri og eðalbomari stúlkur. Auk þess var Karen nærri tveimur ámm eldri en Bror. Ekkert varð úr því að þau giftu sig áður en Bror hélt af stað til Afríku. Og enginn hafði gert ráð fyrir því að hún ætti að fylgja með í kaupunum þegar ráðizt var í að festa kaup á búgarði í Kenýa. Ári eftir trúlofunina hélt Tanne af stað áleiðis til Afríku til að gifta sig. Systir hennar og móðir fylgdu henni til Napólí þaðan sem hún svo sigldi til Kenýa. Um borð í skipinu vom meðal farþega Svíamir Wil- helm prins og aðstoðarmaður hans, Gustaf Lewenhaupt greifí. Lewen- haupt segir í dagbók sinni að Karen Dinesen hafí verið að kvarta yfír því að hafa verið veik í tvær vikur í Napólí fyrir brottförina og legið rúmföst með háan hita. Henni hafí einnig mislíkað að þurfa að sitja ein við borð sitt í matsal skipsins og segir Lewenhaupt að þeir Wil- helm prins hafi rætt um að bjóða henni yfir að sínu borði. Við komuna til Kenýa skrifar Tanne móður sinni og kveðst þreytt, máttfarin og niðurdregin, en samt hamingjusöm með sínum útvalda, eins og hún komst að orði. Hún er hreykin af því að Bror virðist alls staðar mjög vinsæll, en sjálf á hún stöðugt við veikindi að stríða. Læknir í Nairobi ráðlagði henni þá að fara til London og leita ráða hjá sérfræðingi í hitabeltissjúkdómum. Það er ekkert minnzt á sárasótt, en síðar hélt Karen Blixen því fram að strax eftir komuna til Kenýa hafí Bror smitað hana af sýfílis. — Ef Karen Blixen hefur fengið sárasótt, hlýtur hún að hafa smit- ast áður en hún fór frá Napólí, segir blaðamaðurinn Tony Lewenhaupt, og vitnar til ummæla í dagbók Lew- enhaupts greifa. Og í nýrri bók Ulfs Aschan er haft eftir lækni: „Af hveiju fékk hún ein sárasótt, en engin önnur af mörgum ástkonum Brors?" Af bréfum þeirra hjóna fyrstu hjónabandsárin er ljóst að þau hafa bæði verið hamingjusöm. Karen er hreykin af manni sínum og framtíð- ardraumum hans, og ástin skín í gegn. Stríða þær yfírlýsingar nokk- uð gegn þeim ásökunum hennar síðar að hann hafí þá þegar smitað hana af sárasótt. Enda dregur Ulf Aschan þá ályktun í bók sinni að hvorugt þeirra hjóna hafí nokkum tíma fengið sýfílis. í bréfum Brors kemur ekki síður fram umhyggja og ást í garð eiginkonunnar. En líf þeirra Brors og Tanne var alls ekkert öfundsvert í Kenýa. Þau voru I raun alls ekki ftjáls. Þau voru algjörlega háð fjárframlögum fíölskyldunnar heima í Danmörku og Svíþjóð, og fjölskyldan beið þess með óþreyju að þessi fjárfesting skilaði arði. En reksturinn gekk illa og kaffíuppskeran brást. Bror gerði árangurslausar tilraunir til að ná sér í aukið rekstrarfé. Oft varð hann að grípa til þess að selja vinum sínum skika úr landi sínu. En allt kom fyrir ekki, og árið 1919 halda bau hjónin til Danmerkur til að ræða við fjölskylduna. Þótt fjárhagurinn væri bágur, ferðuðust þau á fyrsta farrými. I París snæddu þau á Maxim’s þar sig með kokkáluðum eiginmanni?" í London hittir hún Finch Hatton á ný, og á meðan kynnist Bror á laun þeirri konu sem níu árum síðar varð eiginkona númer tvö, Jacquel- ine „Cockie" Birkbeck, auðugri brezkri fegurðardís. Við komuna til Danmerkur er fótunum kippt undan rekstri bú- garðsins í Kenýa. Hluthöfunum fínnst nóg komið og Blixen-Fin- ecke-fjölskyldan vill losna við frekari skuldbindingar. Og þá er það að Karen fer frá Bror. Hann heldur þá einn yfír til Svíþjóðar og dvelst þar nokkra mánuði áður en hann heldur á ný til Afríku til að reyna að byggja upp búreksturinn á ný og finna leiðir út úr Ijár- hagsvandanum. Það er um þetta leyti sem Karen skrifar mömmu sinni, og kvartar yfír eiginmanninum, sem hún segir að haldi stöðugt fram hjá sér og hafí smitað sig af sárasótt. Hún talar um skilnað. En svo fer hún ásamt Thomas bróður sínum til Kenýa veturinn 1920—21, og er þá búin að fá umboð hluthafa til að sjá um búgarðinn. Skömmu síðar kom frændi hennar, Aage Westen- holz, í heimsókn og var ætlun hans að selja búgarðinn og reyna þar með að bjarga því sem bjargað varð. Karen tókst að fá Aage frænda sinn til að skipta um skoðun, og samþykkja að rekstri búgarðsins skyldi haldið áfram undir hennar stjóm, en gegn því skilyrði að Bror léti aldrei framar sjá sig þar. Þetta féllst Karen á, og um leið virðist hún hafa skipt um skoðun varðandi skilnað. í bréfum sínum ræðir Kar-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.