Morgunblaðið - 26.10.1986, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1986
59
en nú um Bror sem ágætis mann
er þurfi að eiga einhvem að sem
trúi á hann.
Bror var þá peningalaus og at-
vinnulaus. Honum hafði verið vikið
til hliðar, en hann var ekki vina-
laus. Allir virtust standa með
honum. Ríkisstjórinn í Kenýa bauð
honum að búa hjá sér til að hann
losnaði við ásókn skuldheimtu-
manna. Cockie Birkbeck, sem þá
var flutt til Kenýa, bauðst til að
láta skartgripi sína sem tryggingu
fyrri einni af skuldum hans, en
henni var þá tjáð að skuldin hefði
verið afskrifuð.
Það kom eins og reiðarslag yfir
Karen Blixen þegar Bror fór fram
á skilnað árið 1922. í sögunni „Po-
eten“ lýsir hún örvæntingu sinni.
Hún hélt að hún lifði þetta ekki af.
Afbréfum þeirra hjóna fyrstu
hjónabandsárin er Ijóst að þau
hafa bæði verið hamingjusöm.
Karen erhreykin afmanni sínum
og framtíðardraumum hans og
ástin skín ígegn. Stríða þæryfir-
lýsingar nokkuð gegn þeim
ásökunum hennarsíðarað hann
hafiþá þegarsmitað hana afsára-
sótt.
hefði látið þetta viðgangast hefði
sambandi þeirra verið lokið innan
hálfs árs. Nú missti ég þann mann
sem mér var allt í lífinu."
Eva Dickson varð aldrei þriðja
eiginkona Brors, en hún kallaði sig
oft barónessu. Samband þeirra var
oft stormasamt, og hún fór oft í
leiðangra á eigin vegum án hans.
Svo fórst hún í bílslysi í síðasta
leiðangrinum, sem var ökuferð um
Mesópótamíu, árið 1935. Þá hafði
bróðir hennar, útgefandinn Áke
Lindström, fengið Bror til að skrifa
bók með aðstoð reyndari rithöfund-
ar, og var það bókin „Nyama".
Karen Blixen varð lítt hrifín þeg-
ar hún frétti um þessi ritstörf hans.
Hún var þá sjálf að skrifa bókina
„Den afrikanska farmen“ (Jörð í
Afríku), og i bókinni minnist hún
Bror, t.h., í veiðiferð með Emest Hemingway og fjórðu ástinni
sinni, Evu Dickson.
Síðasta ástkonan, Ruth Rasmuson.
Eins og allar ástkonur Brors var
hún mjög háð honum kynferðislega,
en nú virtist ekkert geta breytt
ákvörðun hans. í bréfi sem Karen
skrifar heim um þetta leyti kennir
hún Ijölskyldunni um hvemig kom-
ið sé og hótar að koma aldrei aftur
heim til Danmerkur og jafnvel að
hætta að skrifa móður sinni.
í sjöttu sögu sinni, „Drömmare",
í bókinni „Sju romantiska beráttels-
er“, dregur hún upp ýkta mynd af
Bror sem hrottafengnum nautna-
segg. Þar er hann sænski baróninn
Gyllenstiema, sem „hvorki verð-
skuldar aðdáun né umburðarlyndi“,
maður sem vill „taka frá öðmm
allt sem þeim er verðmætast". Um
þessar sjö smásögur hennar sagði
Bror aðeins: „Það hefði verið nóg
að hafa sögumar fimm.“
Eftir að leiðir þeirra hjóna skildi
stóð Bror uppi tómhentur, „en ég
átti enn byssuna mína“, segir hann.
Bror var afbragðsskytta og ólíkur
flestum öðmm hvítum mönnum í
Afríku á þeim ámm að því leyti að
hann virti blökkumenn og taldi sig
ekki yfir aðra hafinn. Hann ferðað-
ist víða um Kenýa, Kongó og
Uganda og varð alls staðar vel til
vina. Sérstæðustu ferð sína fór
hann eftir að hafa verið leiðsögu-
maður auðugs ferðamanns við
fiskveiðar í Chad. í Chad rákust
þeir á sendiferðabfl af gerðinni Int-
emational Harvester og ákváðu að
kaupa bflinn og aka þvert yfir Sa-
hara-eyðimörkina og taka síðan
skip frá Alsír yfir til Evrópu. Eng-
inn hafði fyrr reynt að fara yfir
eyðimörkina í bfl sem ekki var sér-
staklega útbúinn til ferðarinnar.
Þrátt fyrir hrakspár tókst ferðin
vel, og henni lauk með þriggja daga
kampavínsveizlu í íbúð Coekie á
Ritz-hótelinu í París. Síðar fóm þau
Cockie í samskonar bfl frá París til
Svíþjóðar þar sem þau giftu sig
árið 1928.
En mesta athygli vakti þegar
Bror varð leiðsögumaður prinsins
af Wales á ljónaveiðum í Kenýa
árið 1929. Það var Denys Finch
Hatton („elskhugi konu minnar og
bezti vinur minn“, eins og Bror
komst að orði) sem sá til þess að
„frændinn" með bláa blóðið yrði
veiðistjóri hjá prinsinum. Ferðin
vakti mikla athygli, og varð meðal
annars til þess að bæta lánstraust
Brors. En heima á búgarðinum í
Kenýa sat fyrri barónessa bæði af-
brýðisöm og einmana. Reiði hennar
í garð Denys Finch Hatton vegna
vináttu hans við Bror og velvilja í
sambandi við heimsókn brezka
prinsins varð upphafið að því að
upp úr slitnaði með þeim. En í sum-
um sögum sínum hefúr hún líkt
sambandi þeirra Brors og Finch
Hattons við samkynhneigð tveggja
karlmanna er njóta sömu konu.
Eftir ferðina með prinsinum af
Wales varð Bror eftirsóttur leið-
sögumaður og fór hvem leiðangur-
inn á fætur öðrum með auðmenn
frá Bandaríkjunum og víðar. En
þrátt fyrir hjónabandið átti hann
það alltaf til að stíga í vænginn við
aðrar konur. „Hann var dásamlegur
en ótrúr eiginmaður," sagði Cockie
í viðtali við Ulf Aschan. „Við rif-
umst aldrei út af ástarævintýrum
hans. Hann var bezti elskhugi sem
hægt var að kjósa sér.“
Um skeið var Bror hugfanginn
af Beryl Markham, sem skrifar
formála að bók Ulfs Aschans. Hún
var tíu árum yngri en hann, af-
bragðs flugmaður, sem Denys
Finch Hatton lýsir sem fegúrsta
flugmanni heims, og flaug hún
bæði með farþega og póst í flugvél
sinni af gerðinni Leopard Moth.
Hún var góð vinkona Finch Hatt-
ons, og tilviljun ein réð því að hún
var ekki með þegar hann fórst í
flugvél sinni nokkru síðar.
Beryl Markham segir frá sam-
bandi sínu við Bror í bók sinni
„West with the Night“ sem út kom
árið 1942. Hun hafði fylgt eftir
hugmynd Finch Hattons um leit að
fílum úr flugvél, og það hentaði
Bror ágætlega. Hún fylgdi Bror
hvert sem leið hans lá, og Iýsti því
hvemig hann gat skotið villinaut
sem kom æðandi að honum milli
augnanna um leið og hann gaf fyrir-
mæli um hvort hann vildi gin eða
viskí ■ fyrir kvöldverðinn. Hún var
einnig með honum þegar æstur fíll
ætlaði að ráðast á hann, en Bror
rak fílinn burt með því að ausa
yfir hann formælingum á sænsku.
Bror stofnaði nú fyrirtækið
Tanganyika Guides Ltd. með félaga
sínum Philip Percival. Hann hagn-
aðist það að hann gat loks keypt
sér sinn fyrsta eigin búgarð. Verr
gekk hjá Karen, en hún afþakkaði
með öllu þegar hann bauðst til að
lána henni peninga svo hún fengi
haldið búgarði sínum. Fór svo að
búgarðurinn var seldur fyrir 100
þúsund krónur (danskar), og hafði
þá fjölskyldan varið rúmri milljón
króna til að halda honum gang-
andi. Var það árið 1931, og hélt
Karen þá vonsvikin heim til Dan-
merkur.
En ný ævintýri biðu Brors. Dag
nokkum var bfl ekið upp að bú-
garði hans og út stigu glæsileg
sænsk stúlka og vinkona hennar.
Þær höfðu ekið í einum áfanga frá
Dar-es-Salaam — 700 kflómetra
leið — eftir þessum vegleysum, og
nú vildu þær fá eitthvað að drekka.
Þegar Bror spurði hver tilgangur
heimsóknarinnar væri, svaraði hún:
„Að hitta yður.“
Þetta var Eva Dickson, en hún
var þekkt sænsk ævintýrakona á
fjórða áratugnum og fyrirmynd
margra kvenna á þeim ámm.
Þegar eiginkonan Cockie kom
heim nokkrum dögum síðar eftir
að hafa skroppið í heimsókn til
Englands, tjáði Bror henni að hann
ætlaði að taka Evu Dickson með í
ráðgerða veiðiferð þeirra hjóna. Þá
brást Cockie hin versta við og
heimtaði að Bror gerði það upp við
sig hvora þeirra hann kysi. Bror
svaraði án miskunnar: Þá kýs ég
Evu Dickson.
„Hvemig gat ég verið svona
heimsk,“ segir Cockie um atburðinn
í viðtali við Ulf Aschan. „Ef ég
ekki á Bror.
Þegar finnska vetrarstríðið
brauzt út 1939 var Bror staddur í
New York, þar sem hann hóf íjár-
söfnun til styrktar Finnum. Tókst
honum að safna fyrir hersjúkrahúsi
með 200 rúmum og tveimur skurð-
stofum, auk þess sem hann fékk
bandarískt sjúkralið sér til aðstoð-
ar. Þá tók hann á leigu farþegaskip-
ið „Drottningholm" til að flytja
búnaðinn til Finnlands.
Með í förinni um borð í Drottn-
ingholm var nýjasta ástkona Brors,
Polly Peabody, sem var rúmlega
30 árum yngri en Bror. Var hún
skráð í ferðina sem einkaritari
Brors, og sýndi hún sama áhuga
og aðrar konur á að fylgja honum
hvert sem leið hans lá. En þetta
varð engin fræðgarför. Drottning-
holm kom til Oslo í apríl 1940.
Vetrarstríðinu var þá lokið og Þjóð-
veijar vom að hemema Noreg.
Bandaríkjamenn vom ekki orðnir
aðilar að heimsstyijöldinni og ekki
mátti nota sjúkrahúsið nema með
sérstakri heimild frá Bandaríkjun-
um. Var það síðar flutt yfír til
Svíþjóðar og bandarísku starfs-
mennimir héldu heim. En Bror fékk
ekki dvalarleyfi í Bandaríkjunum
og fluttist því til Svíþjóðar. Þar
settist hann að í Nasbyholm, en
dvaldist á sumrin í Falsterbro með
fleiri Svíum sem áður höfðu verið
búsettir í Kenýa. Meðal þeirra var
Aschan-fjölskyldan, og þar kynntist
Bror á ný guðsyni sínum Ulf.
í Falsterbro hitti svo Bror síðustu
stóm ástina sína, Ruth Rasmuson,
glæsilega konu og glaðlynda. Eyddi
hann síðustu ámm ævinnar í ham-
ingjusamri sambúð með Ruth. Það
var í húsi hennar við ströndina sem
hann skrifaði síðari bók sína „Brev
frán Afrika“. „Hann gaf mér bestu
ár ævi minnar," segir Ruth í sam-
tali við Ulf Aschan. Hún var með
Bror í bflnum þennan kalda vetrar-
dag árið 1946 þegar bfllinn fór út
af, rakst á tré og Bror fórst. Eftir
það gat hún ekki hugsað sér að búa
áfram í Svíþjóð og fluttist til Dan-
merkur.
Þegar Karen Blixen frétti lát
Brors, lét hún söknuð sinn í ljós
með þessum orðum: „Ég á þá eina
ósk eftir að fá einu sinni enn að
fara í veiðiferð með Bror." Sjálf
lézt Karen Blixen árið 1962, þá 77
ára að aldri.
(Hcimild: M&nads Journalen)
Tanne varalveg einstök frænka
sem opnaði augu hans fyrir um-
heiminum. Allt umhverfið fékk á
sig nýjan svip, og saman dreymdi
þau um nýja heima, og sá draum-
urrættist.
Siglufjörður:
Nýtt félags-
heimili opnað
Siglufirði.
FELAGSHEIMILI Lions- og ~
Lionessuklúbba Siglufjarðar hef-
ur verið opnað og mun það hafa
mikil áhrif á starfsemi klúb-
banna.
Lionsklúbbur Siglufjarðar var
stofnaður 16. nóvember árið 1968.
Klúbburinn hefur allt frá stofnun
unnið að líknar-, félags- og mening-
armálum og voru Lionsmenn
aðalhvatamenn að stofnun æsku-
lýðsheimilis á Siglufirði og fer þar
fram blómleg æskulýðsstarfsemi.
Að undanförnu hefur klúbburinn
unnið að málefnum aldraðra oa^
stutt myndarlega við byggingu sem
ætluð er eldri borgurum. Formaður
Lionsklúbbs Siglufjarðar er Vigfús
Þór Ámason.
Lionessuklúbbur Siglulfjarðar er
fyrsti slíki klúbburinn sem stofnað-
ur er hér á landi en hann var
stofnaður 1. nóvember 1979.
Fréttaritari
Stykkishólmur:
Vetrarlegt'
um að litast
Stykkishólmi.
VETURINN er kominn, þótt ekki
sé það á almanakinu, en það er
stutt í fyrsta vetrardag þegar
þetta er skrifað 21. október. Það
er hálka á götum og fjallvegir
verða erfiðir ef ekki eru nagla-
dekk eða keðjur notaðar, enda
eru nú flestir að huga að vetrar-
dekkjum og margir þegar búnir
að skipta um dekk. Þótt ekki
hafi komið mildll siy'ór niður í
bæ, þá eru fjttllin hvit fyrir
löngu. Vepjulegir fólksbílar fara
ekki fjallvegi á veqjulegum
dekkjum.
Þetta allt hefír samt ekki haft
áhrif á ferðir áætlunarbfla og rút-
umar em enn akandi eftir sumar-
áætlun og koma á venjulegum tíma.
Haustslátmn er nú að ljúka og hér
mun hafa verið slátrað í slátur-
húsinu um 11 þúsund fjár. Er það
nokkm minna en í fyrra, en nú í
fyrsta sinn er ekkert sláturfé á veg-^-
um Kaupfélags Stykkishólms endai '
mun staifrækslu þess lokið eftir því
sem talið er og Kaupfélag Gmnd-
firðinga leggur sitt fé í sláturhúsið
í Búðardal og eins munu nokkrir
fyrrverandi viðskiptamenn Kaup-
félags Stykkishólms hafa gert.
Áskorun til sjón-
varpsstöðva
Standið vörð—
um sálarheill
barnanna
KENN ARAFÉLAG skóla ísaks
Jónssonar skorar á sjónvarps-
stöðvar að sýna ekki myndir sem
eru óhollar börnum.
í áskoruninni segir: „Að gefnu
tilefni skorar Kennarafélag skóla
Isaks Jónssonar á sjónvarpsstöðvar
að sýna ekki snemma kvölds mynd-#T*
ir sem era bömum óhollar og aldrei
án þess að varað sé við efni þeirra.
Vonumst við eindregið eftir að aðr-
ir kennarar og uppalendur taki
undir þessa áskomn okkar. Stönd-
um vörð um sálarheill ungu kyn-
slóðarinnar. Bjóðum henni aðeins
það besta."