Morgunblaðið - 26.10.1986, Blaðsíða 60
Alnæmi
Nýttlyf
væntanlegft
^hingað
Þrír íslendingar
með sjúkdóminn
á lokastigi
TILRAUNIR hafa verið gerðar
með nýtt lyf gegn alnæmi og
gefur það góðar vonir um að
hægt sé að lengja líf sjúklinga
og draga úr sjúkdúmseinkenn-
iim. Um 30 nmnini hafa fengið
veiruna hér & landi, en þrír karl-
menn eru með alnæmi, þ.e.
sjúkdóminn á lokastigi..
Að sögn Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar var lyfið gefíð 140
j_J».sjúkiingum úr hópi 280 qúklinga
sem voru með sjúkdóminn á svipuðu
stigi. Fylgst var með þeim í 20 vik-
ur, en á því tfmabili lést einn
sjúklingur f þeim hópi sem fékk
lyfíð, en 16 í hinum hópnum. Lyfið,
sem heitir azidothymidine, dró einn-
ig úr sjúkdómseinkennum, sjúkling-
um leið betur og þeir þyngdust.
Að sögn Ólafs Ólafssonar land-
læknis gefur þetta lyf góðar vonir.
Hann sagði að Bandaríkjamenn og
Frakkar væru að hefla rannsóknir
«— á því hvort hægt væri að koma í
veg fyrir alnæmiseinkennin, en of
snemmt væri að segja til um hvort
lyfið gæti komið í veg fyrir þróun
sjúkdómsins. Landiæknir bjóst við
að lyfíð kæmi hingað til lands á
næstunni.
Kasparov
á Reykja-
víkurmót?
NOKKRAR líkur eru taldar á þvf
■ að Garrí Kasparov heimsmeistari
verði meðal þátttakenda á
Reykjavfkurskákmóti í febrúar.
Reykjavíkurmót eru haldin annað
hvert ár, síðasta mót var haidið á
þessu ári og ætti því ektó að haida
næsta mót fyrr en ’88. A tímabili
stóð til að Kasparov yrði meðal
þátttakenda á síðasta Reykjavíkur-
skákmóti, en er ekkert varð af því
sagðist Kasparov fús til að tefla
hér seinna.
Að sögn Þráins Guðmundssonar
forseta Skáksambandsins hafa
komið fram hugmyndir um að halda
Reykjavíkurskákmót árlega og nú
er verið að kanna hvort hægt sé
að fá heimsmeistarann hingað til
'■■tlands. „Við vitum ekkert um þetta
ennþá, en væntanlega verður þetta
ljóst seinni hluta næstu viku.“
Aðalvél Sögu
bræddi úr sér
AÐALVÉL flutningaskipsins
Sögu bræddi úr sér í upphafi
nýliðinnar viku.
Skipið var þá að fara frá Lorient
í Frakklandi áleiðis til Bordeaux
_ með fiskimjöl. Skipið var dregið til
^hafnar í Lorient og verður gert við
vélina þar.
Saga er í eigu fyrirtækisins Sjó-
leiða. Guðmundur Karlsson, fram-
kvæmdastjóri, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að þetta væri mjög
bagalegt, einkum þar sem skipið
tefðist í allt um þijár vikur vegna
Maþessa.
STERKTKORT
SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Örnáflugi I
yfir höfuð-
borginni
ÖRN sást á flugi yfir höfuð-
borginni í gær. Að sögn Ævars
Petersen fuglafræðings, hefur
það verið árlegur viðburður
sfðustu ár að ernir hafa sést á
flugi yflr höfuðborgarsvæðinu.
Það var Viðar Ólafsson verk-
fræðingur Rituhólum 7, sem kom
auga á öminn og fylgdist með ferð-
um hans í sjónauka. Þetta var
ungur öm, hann flaug um Elliða-
árdalinn, settist á skemmu við
Árbæjarsafnið, sat þar góða stund
og flaug síðan í átt að miðbænum.
„Við höfum fregnað af að
minnsta kosti einum emi á ári hér
yfir höfuðborginni undanfarin ár“
segir Ævar Petersen fuglafræðing-
ur. „Ég hef heyrt af einum emi hér
á svæðinu í haust, hann hefur verið
í Kollafírði og Mosfellssveit, ég
frétti fyrst af honum í október. I
febrúar- mars í fyrra vom þrír em-
ir hér á svæðinu, í Kópavogi, á
Seltjamamesi og við Elliðaár. Þeir
vom hér um tíma, þeir emir sem
koma hingað em yfírleitt ungir em-
ir sem hverfa er fer að vora.“
Vímulaus æska:
Námsstefna
felld niður
vegna þátt-
tökuleysis
FJÖLDASAMTÖKIN Vímulaus
æska, sem hefur innan sinna vé-
banda þúsundir íslendinga,
hugðist halda tveggja daga
námsstefnu í Hagaskóla um
þessa helgi.
En vegna þátttökuleysis var
ákveðið að fella námsstefnuna nið-
ur, því við upphaf hennar í
gærmorgun vom aðeins örfáir
mættir utan fyrirlesara.
Meðaltekjur sjómanna áætl-
aðar 1,2 milljónir króna í ár
FYRSTU 9 mánuði þessa árs er
afli 10 til 11% meiri en á sama
tíma í fyrra. Síðustu spár um
þjóðarhag á þessu ári eru miðað-
ar við að afli, reiknaður á föstu
verði, aukist um 6,5 til 7% en
framleiðsluverðmæti nokkru
meira. Hreinn hagnaður útgerð-
ar við botnfiskveiðar er talinn 7
til 10%, hagnaður botnfisk-
vinnslu 1 til 2% og hlutur
sjómanna hefur batnað. Meðal-
tekjur sjómanna í fullu starfi eru
á þessu ári áætlaðar um 1,2 millj-
ónir króna.
Upplýsingar þessar komu fram í
erindi Jóns Sigurðssonar, forstjóra
Þjóðhagsstofnunar á þingi Sjó-
mannasambandsins á föstudag.
Hann ræddi þar meðal annars um
hag sjávarútvegs. Hann sagði horf-
ur á afkomu útgerðar á þessu ári
bjartar og skilyrði betri en um langt
árabil. Því ylli mestu aukinn afli
án tilsvarandi ijölgunar fískiskipa,
lækkun olíuverðs, hagstætt fersk-
fískverð og útflutningur í gámum.
Hreinn hagnaður af tekjum væri
því um 7 til 10%. Því ætti útgerðin
að geta grynnkað á skuldum og
væri ekki vanþörf á.
Staða botnfiskvinnslu væri slæm
og hagur erfíður. Afkoma saltfísk-
verkunar væri góð á þessu ári.
Frystingin væri rekin með 1 til 2%
hagnaði, en það dygði ekki til að
bæta erfiða stöðu.
Skattframtöl sjómanna sýndu að
tekjur sjómanna í hlutfalli við tekjur
verkamanna færu hærra nú en áður
á þessum áratug og hefðu árin
1980 og 1981 bæði verið metafla-
ár. Hins vegar skorti um 5% á að
skiptaverð héldi í við hækkanir á
kauptöxtum í Iandi um komandi
áramót. Tekjur sjómanna á botn-
fiskveiðum væru með bezta móti í
hlutfalli við tekjur annarra, þegar
NOKKUR hálka var á götum á
höfuðborgarsvæðinu í fyrrinótt
og lögreglan í Kópavogi hafði í
nógu að snúast. Þar misstu tveir
ökumenn stjórn á bifreiðum
sinum vegna hálkunnar.
Fyrra óhappið varð um kl. 1:30
um nóttina. Þá valt bifreið á Hafn-
litið væri yfír síðastliðin þrjú ár, en
samkvæmt skattframtölum væru
meðaltekjur allra sjómanna í fullu
starfí á þessu ári áætlaðar um 1,2
milljónir króna.
arfjarðarvegi á móts við elliheimiiið
í Kópavogi. Engin slys urðu á mönn-
um. Síðara óhappið varð skömmu
fyrir kl. 5, en þá missti ökumaður
stjóm á bifreið sinni á Digranesvegi
og skall hún á stoðmúr við Digra-
nesbrú. Ökumaður og farþegi voru
fluttir á slysadeild, en meiðsli þeirra
munu ekki vera alvarleg.
Kópavognr:
Tvö slys vegna hálku