Morgunblaðið - 02.11.1986, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1986
1814
HUTSCHENREUTHER
OERMANY
DE PARIS
MAXIM’S
sameinar snilld listamannsins PIERRE CARDIN
og handbragð HUTSCHENREUTHER,
sem er eitt af virtustu framleiðendum postulíns í veröldinni.
MAXIM'S
hefur hlotið alþjóða lof fyrir frábæra hönnun
og einstaka framleiðslu.
Pess vegna hefur SILFURBÚÐIN
valið MAXIM'S frá HUTSCHENREUTHER
sem postulín fyrir þá vandlátu.
(Q)SILFURBÚÐIN
\XS LAUGAVEG 55 SÍMIH066
Svarjta
skutan
fyrir unga sem aidna
Magnús B. finnbogason
Þrjár smá-
sögur í
einni bók
BÓKIN, Svarta skútan, eftir
Magnús B. Finnbogason er komin
út.
I bókinni eru þijár smásögur,
Svarta skútan, Konungskoman og
í leit að frönsku skútunum. Sögurn-
ar eru ætlaðar ungum sem öldnum
og fjalla um veröld forfeðranna.
Höfundur segir sjálfur á bókarkápu,
„Við höfum að vísu verið það lán-
samir að eiga þess nokkurn kost,
því að þær sögur og sagnir, sem
sagðar hafa verið mann fram af
manni gegnum aldimar hafa gefíð
okkur nokkra innsýn í þessa dular-
fullu veröld."
Otgefandi bókarinnar, sem er
113 blaðsíður, er Magnús B. Finn-
bogason og er hún prentuð í
Prentsmiðjunni Odda hf.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíðum Moggans!
mm
ERÓBIKK - STUDIO
JÓNÍNU OG ÁGÚSTU
RÉTTINDASKJAL
Námskeið fyrir þá sem vilja læra að verða Eróbikk kennarar.
Námskeiðið hefst 8. nóvember, kennt verður 50 klst. kvöld og helgar í 4 vikur.
Eróbikk stúdíó Jónínu og Ágústu er með róttindi frá IDEA (International Dance and Exercise Association) og
sækir námskeið erlendis, minnst 5 á ári, til þess að öryggi nemendanna sé tryggt. Sem dæmi þá eru ótal
nýjungar hvað varðar þol-, styrk- og liðleikaþjálfun í gangi, til þess að draga úr meiðslum. Meiðsli koma oft ekki
í Ijós fyrr en löngu eftir að hætt er að æfa.
Varist ofálag, hættulegar teygjuæfingar, varasamar bak- og magaæfingar og kennara sem hafa ekki réttindi.
Það eru til tvenns konar Eróbikk-kennarar, þeir sem eru með réttindi og hinir sem ættu að hafa þau.
Námsefni: Vöðvafræði, hreyfingarfræöi, lífeðlisfræði, forvarnir, öryggi, líkamsbeiting, öndun, næringarfræði,
fyrsta hjálp, stjórnun, tónlistarval, eróbikk-æfingar, réttarteygjuæfingar, styrktaræfingar.íþróttasál-
arfræði, verkleg æfingakennsla, Eróbikk með þyngingum, Eróbikk með teygjuböndum, Eróbikk
meðfélaga.
í lok námskeiðs gangast þátttakendur undir bóklegt og verklegt próf. Þeir sem ná prófinu fá
réttindaskjal útgefiö af Eróbikk-stúdíóinu, undirritað af Jónínu Ben. íþróttakennara og Ágústu John-
son Eróbikk-kennara (International Dance & Exercise Association).
Jónína Benediktsdóttir — íþróttafræði Mc-Gill University, meðlimurílDEA.
Ágústa Johnson — Eróbikk réttindi frá IDEA Recreation Colorado University.
Stefán Einar Matthíasson læknir, Læknadeild Háskólaíslands.
Sigrún Arnar — kennari í Eróbikk stúdíóinu, læknanemi Háskóla íslands.
Mark Wilson — Eróbikk kennari í Eróbikkstúdíóinu, námskeiöfrá Body Work íWinnipeg.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 29191 eða f Borgartúni 31.
IDEA
ÍSfpl
. ■ ifel
Keflavíkurflug-
völlur:
Hitaveitan
gaf sig á
300 stöðum
Keflavfk.
„Það er Ijóst að hér hefur orð-
ið umtalsvert fjón“, sagði Frið-
þór Eydal blaðafulltrúi
Varnarliðsins í samtali við Morg-
unblaðið um það tjón sem varð
á Keflavíkurflugvelli í sl. viku
þegar hluti af hitaveitukerfi í
íbúðarliúsum varnarliðsmanna
gaf sig. Friðþór sagði að um 300
lekar hefðu myndast á 60 stöð-
um. Ekki væri Ijóst hvað hefði
valdið, en verið væri að rannsaka
hvað hefði orðið þess valdandi
að kerfin gáfu sig.
Albert Albertsson framkvæmda-
stjóri tæknisviðs Hitaveitu Suður-
nesja sagði að óhappið hefði orðið
eftir rafmagnsbilun í dælustöð við
Fitjar. Við það hefði þrýstiskynjari
farið úr sambandi með þeim afleið-
ingum að vatnsþrýstingurinn til
Keflavíkurflugvallar og Hafna hefði
nær tvöfaldast og hefði þetta
ástand varað í minna en 20 mínút-
ur. Ekkert óeðlilegt hefði komið
fram í Höfnum þótt þrýstingurinn
þar hefði orðið hærri en á Keflavík-
urflugvelli vegna hæðarmismunar.
En kerfín þar yrðu samt athuguð
í öryggisskyni.
Albert sagði ennfremur að sér
kæmi þetta óhapp einkennilega fyr-
ir sjónir og spuming hvort búnaður-
inn á Keflavíkurflugvelli hefði ekki
átt að þola þennan mismun.
B.B.
Ný Tosca
______Tónlist
Jón Ásgeirsson
Nú hefur verið skipt um söng-
konu í Tosca og á sýningunni sl.
föstudagskvöld tók Elín Ósk
Óskarsdóttir við titilhlutverkinu.
Eftir að Elín Ósk lauk námi við
Söngskólann í Reykjavík hefur hún
stundað framhaldsnám á Ítalíu og
þegar náð þeim árangri, að teljast
ein af allra efnilegustu söngkonum
okkar. Það er sannarlega ekki allra
að hlaupa inn í mótaða sýningu,
eftir fáar og ófullkomlega uppsettar
æfingar og komast ekki aðeins vel
frá verki, heldur bókstaflega að slá
í gegn. Vissulega er það varasöm
ráðstöfun að fá ungri og lítt reyndri
söngkonu svo erfitt hlutverk en
Elín Ósk tókst á við Toscu af skyn-
semi, ofgerði sér aldrei og hafði
full tök, bæði á söng og leik. I sam-
anburði við frumsýninguna var
þessi sýning mun hraðari og kraft-
meiri. Hljómsveitin var einnig mun
betri og bókstaflega lék með Elínu
Ósk í Vissi d’arte, sem hún söng
frábærlega vel. Aðrir söngvarar í
sýningunni voru þeir sömu og
sungu allir ágætlega og auk þess
var leikurinn mun betri, einkum hjá
Malcholm Amold í hlutverki
Scarpia.
Wterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiöill!