Morgunblaðið - 08.11.1986, Síða 1
72 SIÐUR OG LESBOK
STOFNAÐ 1913
252. tbl. 72. árg.
LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1986
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Þingkosningum
spáð í Bretlandi
á næsta ári
London, AP.
RÍKISSTJÓRN íhaldsflokksins í Bretlandi er talin hafa gefíð
greinilega vísbendingu um að hún stefni nú að kosningum fyrr
en áður var ætlað. I frumvarpi, sem Nigel Lawson fjármálaráð-
herra lagði fram á fimmtudag, er gert ráð fyrir því, að útgjöld
ríkisins verði aukin um 10 milljarða punda á næstu tveimur árum.
Þykir þetta fela í ser míkla stefnubreytingu hjá stjórninni, sem
til þessa hefur lagt megináherzlu á samdrátt í ríkisútgjöldum og
minnkandi verðbólgu.
Þessi ákvörðun hefur komið
mörgum efnahagsmálasérfræð-
ingum mjög á óvart og margir
hafa þegar látið í ljós áhyggjur
út af því, að þetta kunni að leiða
til mikillar eyðslu fjár hjá almenn-
ingi, sem síðan verði til að auka
mjög á verðbólguna í landinu.
Sumir hafa látið í ljós þá skoð-
un, að brezki fjármálaráðherrann
treysti á, að þetta verði til þess
að sannfæra erlenda fjárfesting-
araðila um sigur íhaldsflokksins
í komandi kosningum. Eins og er
þá hefur íhaldsflokkurinn 5% for-
skot samkvæmt skoðanakönnun-
um.
Stjórninni er skylt að láta þing-
kosningar fara fram eigi síðar en
á árinu 1988, en nú er gert ráð
fyrir, að þær verði látnar fara
Skapazt hefur nýr hugsunar-
háttur í stjórnmálum heimsins
Mikhail Gorbachev á afmæli byltingarinnar;
að renna til menntamála og heil-
brigðismála og spurði síðan: „Ef
það er rétt að auka íjárframlög á
þessum mikilvægu sviðum nú,
hvers vegna var það þá ekki talið
rétt fyrir sex árum?“
Á Rauða torginu i Moskvu i gær vakti mikla athygli vagn með skripamynd af manni með hatt, þar sem
á stóð „Bandaríkjastjórn" á hattbörðunum. Sprengjurnar sem beinast að höfði mannsins, eru merktar
„SDI“ (geimvarnaáætlunin). Á borðanum til vinstri stendur svo „Reykjavík 1986.“
Ekki verður snúið aftur til þess ástands,
sem ríkti fyrir fundinn 1 Reykjavík
fram einhvem tímann á næsta
ári, þegar staða stjómarinnar er
sterk.
Neil Kinnock, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, lýsti þessari
ákvörðun á þann veg, að með
henni ætlaði stjómin sér „að fjár-
magna Ihaldsflokkinn í kosning-
unurn" og bandalagið sakaði
stjómina um að „kynda undir
eyðslu fyrir kosningamar."
Blaðið Guardian benti á, að
mestur hluti þessa fjár ætti eftir'
Moskvu, AP, Reuter.
MIKHAIL S. Gorbachev, leiðtogi
Sovétrikjanna, sagði í gær, að
ekki yrði aftur snúið frá því
ástandi, sem skapazt hefði í al-
þjóðamálum eftir fund hans og
Reagans Bandaríkjaforseta í
Reykjavík. Nú hefði skapazt „nýr
hugsunarháttur í stjórnmálum í
heiminum“, þar sem þjóðir heims
tækju tillit til vilja hverrar ann-
arrar. Kom þetta fram i ávarpi,
sem Gorbachev flutti við mót-
töku eftir mikla hersýningu á
Rauða torginu.
Pyotr Lushev aðstoðarvamarmála-
ráðherra var annars aðalræðumað-
urinn við hátíðahöldin, sem fram
fóm til þess að halda upp á hið
árlega aftnæli byltingarinnar. Flutti
hann ræðu sfna af grafhýsi Lenins,
þar sem Gorbachev, Nikolai I. Ryzh-
kov forsætisráðherra og aðrir
helztu valdamenn Sovétmannanna
höfðu tekið sér stöðu til þess að
fylgjast með hersýningunni.
Sovétmenn lögðu í gær fram
nýjar tillögur í afvopnunarviðræð-
unum í Genf, þar sem lagt var til,
að risvaveldin útrýmdu öllum lang-
drægum kjarnorkueldflaugum fyrir
1996, miklar takmarkanir yrðu
settar við rannsóknum á geim-
vopnum og kjamorkavopnatilraunir
yrðu bannaðar.
Bandaríkjamenn hafa lagt það
til við Sovétmenn, að sérfræðingar
þeirra beggja á sviði afvopnunar-
mála haldi með sér fund, áður en
samningamenn þeirra koma saman
á ný í Genf í janúar til viðræðna
um afvopnunarmál.
Svíþjóð:
Tilraun Nezar Hindawi til að sprengja þotu E1 Al:
Stóð leyniþjónustan í
ísrael bak við tilræðið?
Bonn, Washington, Tel Aviv, Reuter.
JACQUES Chirac, forsætisráð-
herra Frakklands, segir The
Washingtoh Times ranglega
bera sig fyrir þvi að Helmut
Kohl, kanzlari Vestur-Þýzka-
lands, og Hans-Dietrich
Genscher, utanríkisráðherra,
væru þeirrar skoðunar að ísra-
elska leyniþjónustan Mossad
hafí leitt Sýrlendinga í gildru
vegna tilraunar til að sprengja
ísraelska þotu i loft upp. Bretar
slitu stjórnmálasambandi við
Sýrlendinga vegna meintrar
aðildar þeirra að tilræðinu.
Chirac sagði frétt blaðsins út í
Jacques Chirac
bláinn og að honum væri lögð í
munn orð, sem hann hefði aldrei
sagt. Jafnframt hefði blaðamað-
urinn, Amaud de Borchgrave
ritstjóri, brotið trúnað með því að
nefna sig á nafn. Blaðið segir
Chirac hafa sagt að Kohl og
Genscher hefðu sagt ísraela hafa
ætlað að koma Sýrlendingum í
bobba með því að bendla þá við
tilræðið. Jafnframt segir það
Chirac vera sannfærðan um að
Sýrlendingar hefðu enga aðild átt
að tilræðinu. Chirac kveðst aðeins
hafa sagt að ekki væri hægt að
draga neina ályktun um aðild
Sýrlendinga af þeim gögnum, sem
Bretar hefðu látið þeim í té.
Talsmenn stjómarinnar í Bonn
vísuðu því á bug að þarlendir
ráðamenn hefðu bendlað Mossad
við tilræðið. ísraelskir embættis-
menn sögðu fréttina fjarri sann-
leikanum. Samkvæmt fréttinni
áttu ísraelskir leyniþjónustumenn
að hafa fengið Nezar Hindawi til
að koma sprengju um borð í þotu
E1 A1 á Heathrow-flugvelli og
gefa sig síðan fram við sýrlenzka
sendiráðið þegar vinkona hans
hefði tekið við tösku, sem sprengj-
an var falin í.
Smygl á há-
tæknibúnaði
til Rússlands
Stokkhólmi, frá fréttaritara Morgun-
blaðsins, Erik Liden.
TOLLVERÐIR í Haparanda í
Norður-Svíþjóð stöðvuðu í gær-
morgtm vörubifreið við finnsku
Iandamærin á leið til Sovétríkj-
anna. í farmi bifreiðarinnar
fannst hátæknibúnaður frá fyrir-
tæki í Stokkhólmi, en jafnframt
tölvubúnaður frá Bandaríkjun-
um, sem ekki hafði verið veitt
leyfi fyrir til útflutnings á til
annarra landa. Var bifreiðin
kyrrsett við landamærin, unz
frekari rannsókn hefði farið
fram.
Atvik af þessu tagi hafa gerzt áð-
ur. Þegar Saab-fyrirtækið flutti
fyrir 10 árum út hátæknibúnað á
sviði flugs til Moskvu, þá leiddi það
til mikilla deilna milli Svíþjóðar og
Bandaríkjanna. Það var fyrst eftir
langar samningaumræður við
Bandaríkjamenn, sem Svíar fengu
að kaupa þaðan háþróaðar tölvur á
ný og þá fyrir flugher sinn.