Morgunblaðið - 16.11.1986, Side 22
STRIK
í>22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1986
ananas-
og appelsínubragði.
Sanitas
Ný hljómplata:
Sólrún og Bergþór
syngja sívinsæl lög
HLJÓMPLATA og krómsnælda
með söng þeirra Sólrúnar
Bragadóttur og Bergþórs Páls-
sonar og píanóleik Jónasar
Ingimundarsonar, eru komnar
út hjá bókaútgáfunni Erni og
Örlygi. Platan heitir Hjartans
mál og er fyrsta hljómplata
þeirra Sólrúnar og Bergþórs.
Sólrún Bragadóttir og Bergþór
Pálsson stunda nú bæði söngnám á
masterstigi við söngdeild háskólans
í Indiana í Bandaríkjunum, en það-
an luku þau BA prófi að undan-
gengnu söngnámi hér heima. Þau
hafa haldið tónleika víðsvegar hér-
lendis og f Bandaríkjunum og hafa
auk þess sungið í útvarp og komið
fram í sjónvarpi.
Um tónlistina á plötunnu farast
Halldóri Hansen svo orð í inngangs-
orðum á plötuumslagi: „Það er
eitthvað undravert við þá tónlist,
sem hefur sungið sig inn í vitund
hvers mannsbams og haldið vin-
sældum sínum óskertum um allan
heim meðal almennings, jafnvel
þótt spekingar á þessu sviði tónlist-
arinnar velti vöngum og komi ekki
auga á mikilvægið. Því að eðli sínu
samkvæmt ættu þessi lög að vera
„dægurflugur". Sjálft „undrið"
kemur fram í því að dægurflugan
biýtur sín eigin lögmál og verður
Hjartans nml
Viíom IVfthor
UH. KlfiXM,
<% Mtkw
allt í einu „sígild".
Mikið af þeim lögum, sem Sólrún
og Bergþór hafa valið að syngja á
þessari plötu, eru einmitt með þessu
marki brennd. Annað hvort þekkja
þau allir eða þau koma kunnuglega
fyrir eyru. Og söngræn eru þau í
besta skilningi þess orðs.“
Platan er hljóðrituð í Hlégarði.
Upptöku annaðist Halldór Víkings-
son en umslag hannaði Sigurþór
Jakobsson.
sa
Stíerri mynd
i jólakortio
13x18 sm
Aðeins
39 kr.
Þetta er einfalt mál. Þú sendir filmurnar
í pósti til okkar og færð kortin send til
baka eftir 6—10 daga.
Engin lágmarkspöntun.
Gildir aðeins fyrir 35 mm filmur.
Hringdu strax, ef þig vantar nánari
upplýsingar. Opið alla daga til kl. 22.
Eurinn
Hafnargötu 35 230 Keffovík Box 213
Simi 92-3634