Morgunblaðið - 26.11.1986, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986
Tillaga borgarsljóra til borgarráðs:
Borgin kaupi
V ölundareignir
- við Klapparstíg og Lindargötu
Á FUNDI borgarráðs í gser var lögð fram tillaga borgarstjóra þess
efnis, að Reykjavíkurborg kaupi fasteignir Klappareignarinnar hf.
við Klapparstíg 1 og Lindargötu 27 fyrir 61,8 milljónir króna, en
Klappareignin hf. er fasteignafélag Timburverzlunarinnar Völundar
hf. I tillögu borgarstjóra segir, að eignarhald borgarsjóðs á þessum
fasteignum muni auðvelda alla framkvæmd á skipulagi Skúlagötu-
reitsins t.d. að þvi er varðar staðsetningu á íbúðum fyrir aldraða
og leiksvæði fyrir hverfið. Borgarstjóri Ieggur tál við borgarráð að
þessi kaup verði heimiluð og má gera ráð fyrir að tUlaga hans verði
afgreidd á næsta fundi borgarráðs.
Borgarráð samþykkti hinn 11. árinu 1987 en 50 milljónir króna
w
nóv. sl. að heimila borgarstjóra að
taka upp viðræður við lóðaeigendur
við Skúlagötu um hugsanleg kaup
eða makaskipti á lóðum til þess að
hrinda í framkvæmd þeim mark-
miðum, sem stefnt er að með
skipulagi á Skúlagötureitnum. í
framhaldi af þessari samþykkt fóru
fram viðræður við forsvarsmenn
Völundar.
I bréfi borgarstjóra til borgarráðs
um þetta efni kemur fram, að hægt
sé að ná samningum um kaup á
þessum eignum fyrir 61,8 milljónir
króna. Er hér um að ræða lóðir og
mannvirki að Klapparstíg 1 og
Lindargötu 27. Útborgun yrði 11,8
milljónir, sem dreifðist fram eftir
greiddar með verðtryggðu skulda-
bréfi til 15 ára með sömu vöxtum
og Landsbanki íslands tekur hverju
sinni af samsvarandi skuldabréfum.
Lóðin á Klapparstíg 1 er 7889
fermetrar að stærð en lóðin á Lind-
argötu 27 er 360 fermetrar.
Fasteignamat lóðarinnar við Klapp-
arstíg verður rúmlega 25,3 milljónir
hinn 1. desember nk. og við Lindar-
götu tæplega 1,3 milljónir. Bruna-
bótamat húsa á lóðunum er nú
tæpar 51,7 milljónir. í bréfi borgar-
stjóra kemur fram, að fasteignamat
nærliggjandi lóða, t.d. við Kalkofns-
veg, Sölvhólsgötu og lóð Amar-
hvols, er mun hærra reiknað á
lóðafermetra.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Bifreiðin, sem lenti út af Hamarsvegi i Vestmannaeyjum á mánudag og skall á stórum steini, er ónýt
eftir. Þrír menn voru í bifreiðinni og er einn þeirra enn í lifshættu.
A
I lífshættu eftir umferðarslys
ALVARLEGT umferðarslys varð
i Vestmannaeyjum á mánudag,
eins og sagt var frá í Morgun-
blaðinu í gær. Bifreið lenti út af
Hamarsvegi og skall á stórum
steini utan vegar. Þrír menn voru
í bifreiðinni og er einn þeirra enn
í lífshættu.
Það var íslendingur sem ók bif-
reiðinni, en farþegar hans voru
Kenýamaður og Israelsmaður, sem
hafa að undanfömu dvalist í Vest-
mannaeyjum við störf í fiskvinnslu.
Þegar bifreiðin skall á steininum
lagðist hún að miklu leyti saman
að aftan. Ökumaðurinn slapp án
teljandi meiðsla og sömuleiðis
Kenýamaðurinn og er talið að þeir
fari af sjúkrahúsi í dag. ísraelsmað-
urinn hlaut hins vegar mikil inn-
vortis meiðsli og gekkst undir langa
skurðaðgerð á sjúkrahúsinu í Vest-
mannaeyjum. Hann er skaddaður í
bijóstholi, með brotin rif og hrygg.
Hann er ekki enn talinn úr
lífshættu.
Útlit fyrir að veitt verði
upp í allan síldarkvótann
Um tugur skipa hefur þegar lokið veiðum
Kindakj ötsdeilan:
Aranffurslaus fund-
ur hja sáttasemjara
Á YFIRSTANDANDI síldar-
vertíð er áætlaður heildarkvóti í
nót 57.580 tonn, í reknet 6.504
tonn og í lagnet 1.500 tonn, sam-
tals 65.584 tonn. Var kvótanum
úthlutað til 91 skips. 51 skip hef-
ur nú hafið veiðar og á hádegi
á þriðjudag höfðu þau landað
42.400 tonnum.
Öm Traustason veiðieftirlits-
maður í sjávarútvegsráðuneyt-
inu telur allt benda til að veitt
verði upp í allan kvótann, fyrir
utan lagnetakvótann. Hann telur
að ekki fari öllu fieiri skip til
veiða en þau sem þegar eru að
og að þau sem ekki hafa þegar
framselt kvóta til annarra geri
það næstu daga. Hvert nótarskip
fékk í upphafi 700 tonna kvóta
en er heimilt að veiða tvöfalt það
magn eftir að hafa keypt kvóta
af öðrum. Mörg skipanna hafa
gert það og sum þegar lokið við
að veiða upp í tvo kvóta. Nálægt
einum tug báta hefur lokið við
kvótann og hætt veiðum.
Aflinn skiptist þannig á miUi
skipa, í tonnum talið, samkvæmt
upplýsingum veiðieftirlits-
manna:
Ágúst Guðmundsson GK 1.359,
Albert Ólafsson KE 532, Amey KE
1.103, Amþór EA 1.466, Björg
Jónsdóttir ÞH 1.409, Boði GK 879,
Búrfell KE 830, Dala Rafn VE
536, Frejrja GK 805, Friðrik Sig-
urðsson AR 532, Gandí VE 944,
Gaukur GK 537, Geir goði GK 294,
Geirfugl GK 719, Geiri Péturs
1.205, Glófaxi VE 1.085, Guð-
mundur Kristinn SU 1.228, Guðrún
GK 667, Gunnar Bjamason SH
613, Hafnarvík ÁR 338, Hamar SH
864, Haukafell SF 586, Heiðrún
EIA 1.106, Hópsnes GK 314, Höfr-
ungur II GK 667, Höfrungur III
445, Hrafn Sveinbjamarson III GK
328, Hringur GK 937, Kópur GK
717, Mummi GK 744, Sif SH 1.013,
Sigþór ÞH 1.077, Skagaröst KE
668, Skinney SF 945, Skímir AK
939, Skógey SF 174, Snæfari RE
670, Sólborg SU 1.096, Stafnes
KE 1.069, Steinunn SF 1.251,
Suðurey VE 1.196, Sæborg RE
455, Sæljón SU 1.042, Valdimar
Sveins VE 927, Vísir SF 339, Vörð-
ur ÞH 879, Þorl. Guðjónsson ÁR
152, Þorri SU 1.052, Þórsnes SH
545, Þórsnes II SH 415 og Þuríður
Halldórsdóttir GK 551.
RÍKISSÁTTASEMJARI, Guð-
laugur Þorvaldsson, boðaði
sexmannanefnd á fund sinn í gær
vegna ágreinings fulltrúa bænda
og neytenda í nefndinni um
framreikning verðlagsgrund-
vallar kindakjöts þann 1. des-
ember næstkomandi. Sáttasemj-
ari hefur boðað sexmannanefnd
til annars fundar næstkomandi
föstudag.
Guðlaugur sagði í gær að þetta
mál væri þess eðlis að það yrði
varla leyst á hans vegum. Þama
væri um að ræða ágreining lagalegs
eðlis og þyrfti úrskurð um hann.
Takist sáttaumleitanir ekki hjá
ríkissáttasemjara gengur málið
Veður hamlar
loðnuveiðum
LOÐNUVEIÐIFLOTINN liggur í
vari við Norðurland vegna slæms
veðurs á miðunum og var ekki búist
við veiðiveðri síðastliðna nótt. Veð-
ur hefur hamlað veiðum frá því á
fímmtudag, er síðast var tilkynnt
um afla.
sjálfkrafa til yfímefndar eftir tíu
daga.
*
Osæmileg-
hegðan við
unga stúlku
LÖGREGLAN handtók síðdegis
á mánudag mann sem hafði sýnt
ungri stúlku kynferðislega
áreitni.
Maðurinn var á ferð í bifreið um
austurhluta borgarinnar. Hann
kallaði til unglingsstúlku sem var
gangandi og sýndi maðurinn á sér
kynfærin. Stúlkan tók eftir skrá-
setningamúmeri bílsins og gerði
Iögreglunni viðvart. Maðurinn var
handtekinn skömmu síðar og hefur
nú viðurkennt að hafa verið með
ósæmilega hegðan.
Rannsóknarlögreglan hefur með
málið að gera. Þar á bæ telja menn
ekki líklegt að hér sé um sama
mann að ræða og sýndi tveimur sjö
ára stúlkum áreitni við Kjarvals-
staði í síðustu viku.
Morgunblaðið/Einar Falur
Arfari kominn til landsins, á myndinni eru Gunnar Árnason,
Jón Péturssson og Sveinn Haraldsson.
Árfari kominn úr viðgerð
í GÆR kom Árfari tíl landsins, en flugvélin hefur verið í við-
gerð I Hollandi frá því hún lenti í óhappi á Reykjavíkurflugvelli
í mars s.I.
Að sögn Andra Hrólfssonar stöðvarstjóra á Reykjavíkurflug-
velli er búið að smíða fremri hluta vélarinnar svo að segja á
nýjan leik. Hann sagðist ekki vita hvað viðgerðin kostaði, en
tryggingamar borga viðgerðina.
Kjartan Jóhannsson:
Ferjuflutningar yfir
Hvalfjörð hagkvæmir
Gæti sparað slit á tveimur bílum á viku
FERJUFLUTNINGAR yfir Hvalfjörð milli Grundatanga og Hvaleyr-
ár gætu skilað hagnaði. Samkvæmt könnun, sem Kjartan Jóhannson,
alþingismaður, gerði fyrir Málmblendiverksmiðjuna á Grundar-
tanga, væri hagkvæmt að reka tvær bílfeijur sem flyttu 30 bíla hver
á þessari leið. Ökumaður sem færi með feijunni, í stað þess að keyra
fyrir Hvalfjörð sparaði sér 45 km akstur og flýtti för sinni um 20
minútur. Miðað við daglega umferð á þessum vegi, gætu ökumenn
í heild sparað 200.000 km akstur á viku, en það samsvarar þeirri
vegalengd sem tveir smábílar aka á sinni „ævi“.
Kjartan kynnti niðurstöður at-
hugunar sinnar á almennum fundi
Aðgerðarrannsóknarfélags íslands
í gær. Að sögn Kjartans fékk verk-
smiðjan honum það verkefni að
reikna út hvort feijuflutningar á
þessari leið svöraðu kostnaði. Hann
sagðist hafa byggt á tiltækum
gögnum, og er í útreikningum hans
tekið mið af umferð um Hvalfjörð
árið 1984, en þá óku 400.000 bílar
þessa leið. „Niðurstaða mín er sú
að ef þrír af hveijum tjóram öku-
mönnum sem aka Hvalfjörðinn
myndu velja feijuna gætum við með
þessum tveimur feijum flutt meiri-
hluta þeirra og miða ég þá við að
sem fæstir þurfi að bíða eftir fari.
Með tilkomu feijunnar spara öku-
menn tíma og eldsneyti en ríkið
kostnað við að steypa veginn fyrir
Hvalfjörð. Hinsvegar myndi feijan
taka hluta viðskiptanna frá Akra-
borginni og því er endanleg ákvörð-
un í þessu máli politísk. Eg hætti
mér ekki út á þær brautir," sagði
Kjartan.
Kostnaður við smíði feijanna
tveggja er samkvæmt tilboðum sem
Jámblendiverksmiðjan aflaði um
140 milljónir króna. Við þann stofn-
kostnað bætist hafnargerð beggja
megin fjarðarins sem nemur um 60
milljónum króna. í útreikningum
Kjartans kemur í ljós að miðað við
10% raunvexti myndu feijumar
borga sig á 7-8 áram. Þá er ekki
gert ráð fyrir hugsanlegri aukningu
umferðar, sem þó er nær undan-
tekningalaust fylgifiskur vegabóta.