Morgunblaðið - 26.11.1986, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986
ÚTVARP / SJÓNVARP
Fáðu þér bita
skilegast væri að geta stöð-
ugt brosað framan í heiminn
jafnvel í útsynningi og sudda en
stundum brestur á óveður í sálar-
kimunni og öldur ýfast á pollinum.
Eða einsog skáldið Tómas sagði í
Víxilkvæðinu: Og ég hef verið
tryggur og trúr við bankanna minn.
/Eins tæki hann sér nærri að þurfa
að sleppa mér. /Og núna verð ég
framlengdur í fertugasta sinn, / á
fímmtudaginn kemur.þann
6.október. Og fyrr í kvæðinu segir
Tómas: Og víxill er ég enn,þótt ég
aldrei væri hár,/og vildi mega
benda þeim,sem stærri eru,á það,/
að margan víxil þekkti ég.sem
entist varla ár,/en áleit sig þó veru-
lega háan fyrst í Stað.
Betri lýsingu getur vart á basli
hversdagsmannsins. Eða eru menn
ekki daginn út og inn að strita fyr-
ir salti í grautinn og dugir vart til
á stundum.og verður mér þá hugsað
til vesalings útgerðarmannanna á
Vestfjörðum er hljóta sumir hverjir
að lifa á fríum físki af framtölunum
að dæma. En þótt launamenn og
atvinnurekendur þessa lands séu
sumir hveijir að drukna í víxlasúp-
unni og hafí þar af leiðandi úti allar
klær þá verða menn að gæta hófs
og mættu þá gjaman minnast orða
píanósnillingsins og fjármála-
mannsins Vladimir Horowiz er
svarði því til er honum voru boðnir
200 þús. dollarar af Hollywood-
framleiðendum fyrir að sjá um
baksviðstónlist kvikmynda er lýstu
æfí Schumanns og Chopin: Ég vil
fá vel borgað-mjög vel-en ég sel
ekki sjálfan mig.
Vissulega hafa. menn rétt á að
reyna eftir föngum að koma sjálfum
sér og sinni vöru á framfæri í fjöl-
miðlunum en öllu eru takmörk sett.
Er skéytinu beint til þáttasljóra
ljósvakafjölmiðlanna ekki síst
Bylgjunnar þar sem kaupahéðnar
troða í tíma og ótíma inn allskyns“-
vinningum“og þá einkum matar-
boðum og er jafnvel ekki hægt að
hlusta á klukkuslátt á Bylgjunni
nema ónefndur úraframleiðandi
læði í leiðinni sínu“seikói“í eyru
hlustenda.í gamla góða Gufuradíó-
inu gátu menn hlustað á Stóra-Ben
íslands án þess að vera stöðugt
minntir á hver framleiddi klukkuna.
Ég veit að sumir fijáishyggjupostu-
lar telja að kaupahéðnar eigi að
hafa allt okkar líf í hendi sér og í
hryllingssamfélögum framtíðar-
skáldsagna búa þegnamir gjaman
við stöðugt flæði áróðurs þar sem
ekki er nokkur leið að greina á
milli innrætingar og vitrænnar
umræðu. Vilja menn þannig sam-
félag eða samfélag upplýstra
einstaklinga er setja skorður við
áróðri og auglýsingamennsku þann-
ig að nóg pláss er fyrir vitræn
skoðanaskipti?
Að lokum vil ég taka dæmi af
dagskrá Bylgjunnar þar sem aug-
lýsingamennskan reið ekki við
einteyming. Það var svo sannarlega
helgarstuð á Hemma Gunn síðast-
liðinn sunnudag og hafði ég ein-
staklega gaman af leikþættinum
er starfsfólk Plastprents flutti.
Einnig hafði ég gaman af spum-
ingaleikjunum en því miður gat
Hemmi ekki stillt sig um að veita
verðlaun þar sem meðal gripanna
var plata þar sem Hemmi aðstoðar
við sönginn(2 eintök). Þá heyrði ég
ekki betur en að ákveðið súkkulaði
er Hemmi hefír auglýst í sjónvarp-
inu væri meðal verðlaunagripa.
Hinn ágæti þáttur Erlings Sig-
urðarsonar Daglegt mál er hljómar
frá Akureyri er á afleitum tíma við
upphaf fyrri sjónvarpsfrétta. Mætti
gjaman færa þáttinn til kl. 18:55
rétt áður en seikóklukkan gellur á
Bylgjunni því hér knýr dyra einn
kólfur sjálfrar íslandsklukkunnar.
Ólafur M.
Jóhannesson
Stöð tvö:
Ókindin II
■■■■ Framhald hinn-
oo oo ar víðfrægu
myndar, Ókind-
arinnar, eða „Jaws“ verður
á læstri dagskrá Stöðvar
tvö í kvöld.
Fyrri myndin fjallaði um
mannætuhákarl, sem byij-
aði að leggja sér bað-
strandargesti við bæinn
Amity til munns. Lögreglu-
stjórinn Martin Brody sá
að við svo búið mátti ekki
standa og gekk frá hákarl-
inum eftir langa og blóð-
uga viðureign.
Þessi mynd fjallar um
það þegar aftur ríkir friður
og ró í Amity. Staðurinn
er að fullu búinn að ná sér
eftir ágang hákarlsins og
ferðamenn famir að
streyma að að nýju. Þó
vekur ýmislegt grun lög-
reglustjórans um að sagan
sé ekki öll, en hvorki bæjar-
yfírvöld né eiginkona hans
taka mark á vamaðarorð-
um Brodys og telja að
dæmisagan „Úlfur, úlfur!"
sé að endurtaka sig.
í ljós kemur þó — um
seinan að sjálfsögðu — að
hann hefur rétt fyrir sér
og áður en yfír lýkur eru
strendur Amity blóði roðn-
ar á ný.
Svæðisútvarp, FM 90,1:
Usending frá
Suðurnesjum
■■■■ Dagskrá Svæð-
■J rn 30 isútvarps
1 Reykjavíkur og
nágrennis verður með sér-
stökum hætti í dag, því hún
verður send út frá Fjöl-
brautaskóla Suðumesja, en
ekki úr Útvarpshúsinu að
Efstaleiti 1, eins og venja
er til.
Þessi þáttur verður helg-
aður málefnum Suður-
nesja, atvinnumálum,
skólamálum o.s.frv. Ymsir
Suðumesjanesjabúar verða
teknir tali og við þá spjallað
um líf og starf á Suðumesj-
um.
Þess ber að geta að öll
tónlist í þættinum verður
eftir höfunda, sem eiga ætt
og uppmna að rekja suður
með sjó, en þeir em ófáir.
1
UTVARP
MIÐVIKUDAGUR
26. nóvember
6.46 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin
— Páll Benediktsson,
Þorgrímur Gestsson og
Guömundur Benediktsson.
Fréttir eru sagðar kl. 7.30
og 8.00 og veöurfregnir kl.
8.15. Tilkynningar eru lesn-
ar kl. 7.25, 7.55 og 8.25.
9.00 Fréttir.
9.03 Morgunstund barn-
anna: „Húsið á klöppinni''
eftir Hreiðar Stefánsson.
Þórunn Hjartardóttir les (3).
9.20 Morguntrimm — Til-
kynningar.
9.36 Lesið úrforustugreinum
dagblaðanna.
9.45 Þingfréttir.
«
10.00 Fréttir
10.10 Veðurfregnir
10.30 Land og saga. Umsjón.
Ragnar Ágústsson.
11.00 Fréttir.
11.03 íslenskt mál. Endurtek-
inn þáttur frá laugardegi
serri Ásgeir Blöndal Magn-
ússon flytur.
11.18 Morguntónleikar:
a. Flæmski kvartettinn leik-
ur Kvartettþátt í F-dúr eftir
Franz Schubert.
b. Margaret Price syngur
lög eftir Franz Schubert.
Wolfgang Sawalisch og
Hans Schöneberger leika
með á píanó og klarinettu.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.46 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 i dagsins önn — Börn
og skóli. Umsjón: Sverrir
Guðjónsson.
14.00 Miödegissagan: „Ör-
lagasteinninn" eftir Sigbjörn
Hölmebakk. Sigurður Gunn-
arsson les þýðingu sína
(17).
14.30 Noröurlandanótur.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
16.20 Landpósturinn. Frá
Vestfjörðum. Umsjón. Finn-
bogi Hermannsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.16 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið. Stjórn-
endur: Kristín Helgadóttir
og Sigurlaug M. Jónasdóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Síödegistónleikar
a. Fantasía í h-moll op. 32
eftir Alexander Skrjabin.
John Ogdon leikur á píanó.
b. Fiölusónata nr. 1 í f-moll
op. 80 eftir Sergej Prokof-
jeff. Itzhak Perlman og
Vladimir Ashkenazy leika.
17.40 Torgið — Samfélags-
mál. Umsjón: Bjarni Sig-
tryggsson og Anna G.
Magnúsdóttir.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
Létt tónlist
20.00 Ekkert mál. Bryndís
Jónsdóttir og Sigurður
Blöndal sjá um þátt fyrir
ungt fólk.
20.40 Gömul tónlist
21.00 Bókaþing
Gunnar Stefánsson stjórnar
kynningarþætti um nýjar
bækur.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.16 Veöurfregnir.
22.20 I Aðaldalshrauni. Jó-
hanna Á. Steingrímsdóttir
segir frá. (Frá Akureyri.)
/í
SJÓNVARP
MIÐVIKUDAGUR
26. nóvember
17.55 Fréttaágrip á táknmáli
18.00 Úr myndabókinni
— 30. þáttur.
Barnaþáttur með innlendu
og erlendu efni. Umsjón
Agnes Johansen. Kynnir
Anna María Pétursdóttir.
18.50 Auglýsingarogdagskrá
19.00 Prúðuleikararnir
— Valdir þættir.
9. Með Ethel Merman.
Brúðumyndasyrpa með
bestu þáttunum frá gullöld
prúðuleikara Jim Hensons
og samstarfsmanna hans.
Þýðandi Þrándur Thorodd-
sen.
19.30 Fréttir og veður
20.00 Auglýsingar
.20.10 ( takt við tímann
Blandaður þáttur um fólk
og fréttnæmt efni. Umsjón-
armenn: Ólafur Hauksson,
Elísabet Sveinsdóttir og Jón
Hákon Magnússon.
21.10 Sjúkrahúsið f Svarta-
skógi
(Die Schwarzwaldklinik)
12. Röng sjúkdómsgrein-
ing. Þýskur myndaflokkur
sem gerist meðal lækna og
sjúklinga í sjúkrahúsi í fögru
héraði. Aöalhlutverk: Klaus-
jurgen Wussow, Gaby
Dohm, Sascha Hehn, Karin
Hardt og Heidelinde Weis.
Þýðandi Jóhanna Þráins-
dóttir.
21.50 Nýjasta tækni og vísindi
Umsjón Sigurður H. Richter.
22.16 Seinni fréttir
22.20 Ingrid Bergman
Heimildamynd um eina
frægustu kvikmyndaleik-
konu fyrr og síöar. Einkalíf
hennar varð mörgum
hneykslunarheilla fyrr á
árum en hæfileikar hennar
voru óumdeildir eins og
þrenn Óskarsverölaun bera
vott um. I myndinni er rakin
ævi og afrek Ingrid Berg-
man, samferöamenn segja
frá og brugöið er upp atrið-
um úr fjölmörgum kvik-
myndum sem hún lék í um
ævina. Þýðandi Guðni Kol-
beinsson.
23.35 Dagskrárlok
STODTVO
MIÐVIKUDAGUR
26. nóvember
17.30 Myndrokk
18.30 Teiknimynd
19.00 Þorparar
(Minder). Sakamálaþáttur.
20.00 Fréttir
20.30 Dallas
Bandarískur framhalds-
myndaþáttur. Priscilla
Presley blandast í leikinn.
21.15 Hardcastle og Mac-
Cormic. Bandarfskur
myndaflokkur.
22.00 Ókindin 2
(Jaws II).
Bandarísk spennumynd frá
1978 með Roy Scheider og
Lorraine Gary í aðalhlut-
verki. Liðin eru 4 ár siöan
hvíti risahákarlinn skelfdi
fólk á baöströndinni í Amity.
En það eru fleiri stórir fiskar
í sjónum.
23.60 Fyrstu skrefin
(First Steps).
Ný sjónvarpskvikmynd. Nan
Davis stundar nám við
íþróttaskóla. Hún lendir í
bflslysi og lamast fyrir neðan
mitti. Hún er ákveöin i að
ganga á ný. Þessi mynd er
byggð á sönnum atburðum.
Með aðalhlutverk fer Judd
Hirch.
01.20 Dagskrárlok.
23.00 Hljóð-varp. Ævar Kjart-
ansson sér um þátt í
samvinnu við hlustendur.
23.10 Djassþáttur - Jón Múli
Árnason.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR
26. nóvember
9.00 Morgunþáttur i umsjá
Kolbrúnar Halldórsdóttur og
Kristjáns Sigurjónssonar.
Meðal efnis: Barnadagbók
i umsjá Guöríðar Haralds-
dóttur að loknum fréttum
kl. 10.00, gestaplötusnúöur
og miövikudagsgetraun.
12.00 Hádegisútvarp með
fréttum og léttri tónlist i
umsjá Margrétar Blöndal.
13.00 Kliður
Þáttur i umsjá Gunnars
Svanbergssonar.
15.00 Nú er lag
Gunnar Salvarssonar kynnir
gömul og ný úrvalslög.
16.00 Taktar
Stjórnandi: Heiðbjört Jó-
hannsdóttir.
17.00 Erill og ferill
Erna Arnardóttir sér um tón-
listarþátt blandaðan spjalli
við gesti og hlustendur.
18.00 Hlé
20.00 Tekið á rás
Ingólfur Hannesson og
Samúel Örn Erlingsson lýsa
tveimur leikjum í fyrstu deild
karla í handknattleik og
segja fréttir af öðrum þrem-
ur. Einnig verður sagt frá
þremur leikjum í fyrstu deild
kvenna i handknattleik og
leikjum á Evrópumóti fé-
lagsliða í knattspyrnu.
22.00 Dagskrárlok
Fréttir eru sagðar kl. 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00 og 17.00.
SVÆÐISÚTVARP
SVÆÐISÚTVARP VIRKA
DAGA VIKUNNAR
17.30 Svæðisútvarp fyrir
Reykjavík og nágrenni.
18.00 Svæðisútvarp fyrir Akur-
eyri og nágrenni
989
/•inwAcy
MIÐVIKUDAGUR
26. nóvember
06.00—07.00 Tónlist í morg-
unsárið.
Fréttir kl. 7.00.
07.00—09.00 Á fætur með
Sigurði G. Tómassyni. Létt
tónlist með morgunkaffinu.
Sigurður lítur yfir blöðin og
spjallar við hlustendur og
gesti.
Fréttir kl. 8.00 og 9.00.
09.00-12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Palli
leikur öll uppáhaldslög
hlustenda, gömul og ný.
Opin lína til hlustenda, mat-
aruppskrift og sitthvað
fleira.
Fréttir kl. 10.00, 11.00 og
12.00.
12.00—14.00 Á hádegismark-
aði með Jóhönnu Haröar-
dóttur.
Jóhanna og fréttamenn
Bylgjunnar fylgjast með þvi
sem er í fréttum, segja frá
og spjalla við fólk.
Fréttir kl. 13.00 og 14.00.
14.00—17.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Pétur spil-
ar siðdegispoppið og spjall-
ar við hlustendur og
tónlistarmenn.
Fréttir kl. 15.00, 16.00 og
17.00.
17.00—19.00 Hallgrimur
Thorsteinsson í Reykjavik
síðdegis. Hallgrímur leikur
tónlist, litur yfir fréttirnar og
spjallar við fólk sem kemur
við sögu.
Fréttir kl. 18.00.
19.00—21.00 Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson leikur létta tónlist
og kannar hvað er helst á
seyði i íþróttalífinu.
21.00—23.00 Vilborg Hall-
dórsdóttir. Vilborg sníður
dagskrána við hæfi ungl-
inga á öllum aldri.
23.00—24.00 Vökulok. Frétta-
menn Bylgjunnar með
fréttatengt efni og Ijúfa tón-
list.
24.00—01.00 Inn i nóttina
með Bylgjunni. Þægileg
tónlist fyrir svefninn.