Morgunblaðið - 26.11.1986, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986
Jón eða séra Jón
eftir Ragnar
Kjartansson
í Helgarpóstinum í síðustu viku
eru Helenu Albertsdóttur Guð-
mundssonar gerð sérstök skil með
hefðbundnum smekklegheitum
þess blaðs.
Er henni gefíð að sök að hafa
fengið verulegan afslátt hjá Haf-
skip hf. af búslóðarflutningum
ijölskyldu sinnar til Banda-
ríkjanna.
Nú er það rétt að oft kom fyr-
ir að ýmsir aðilar fengu búslóðir
og bíla flutta á milli landa á lág-
marksverði, þannig að í það
minnsta hefði útgerðin ekki bein
útgjöld af flutningunum. Er þetta
landlægt og mun ekkert síður
tíðkað hjá öðrum skipafélögum
en Hafskip hf., forðum, enda
ásókn hörð og á stundum óvægin.
Þar sem þetta tiltekna atriði
hefur hvergi komið fram áður,
hvorki tengt umfjöliun fjölmiðla
né eðliiega ekki rannsókn hins
svokallaða Hafskipsmáls, aflaði
undirritaður sér upplýsinga hjá
fyrrverandi starfsmönnum mark-
aðsdeildar félagsins og forstjóra
þess. Þeir könnuðust við að Þor-
valdur Mawby, eiginmaður
Helenu Aibertsdóttur, hefði samið
um búslóðarflutninga með félag-
inu, þó þannig að Hafskip hf. bar
ekki beinan útlagðan kostnað
vegna flutninganna. Var þetta
réttlætt með því að Þorvaldur
Mawby hefði í gegnum árin beint
miklum viðskiptum til félagsins.
Það sem vakti ekki síður at-
hygli undirritaðs er að sömu
fýrrverandi starfsmenn Hafskips
hf. upplýstu að Ingólfur Margeirs-
son, ritstjóri Helgarpóstsins, hefði
tvívegis notið hliðstæðrar fýrir-
greiðslu hjá félaginu.
1. Á árinu 1983 flutti hann bú-
slóð milli landa án greiðslu flutn-
ingsgjalda.
2. A árinu 1984 flutti hann bif-
reið milli landa án greiðslu flutn-
ingsgjalda.
Ætla má að framreiknuð gjöld
vegna þessara flutninga gætu
numið kr. 70—100.000, miðað við
leyfða flutningstaxta.
Ég hefí enga frambærilega
skýringu fengið á því af hveiju
Ingólfur, ritstjóri Helgarpóstsins,
naut þessarar niðurfellingar á
flutningsgjöldum hjá Hafskip hf.,
og læt það útaf fyrir sig í léttu
rúmi liggja, nema vegna þess að
nú gerir blað hans, Helgarpóstur-
inn, aðför að saklausu fólki vegna
sambærilegs máls, sem þó var
rökstutt hjá félaginu. Er slík tvö-
feldni vægast sagt ógeðfelld og
sækir reyndar að sú hugsun, að
margir þeir sem njóta athygli
Helgarpóstsins séu sem gíslar í
höndum hefndarverkamanna.
Njörður P. Njarðvík skrifar at-
hyglisverða grein í síðasta helgar-
blað íjóðviljans undir fýrirsögn-
inni „Lýst eftir afruglara".
Hann fjallar þar m.a. um af-
þreyingariðnaðinn og stöðu
fjölmiðlunar. Á einum stað segir
hann:
„Það þykir víst fínt nú á dögum
að vera töff og harður í blaða-
mennsku. I raun hefur það hvað
eftir annað þýtt óvægnar og
stundum beinlínis fólskulegar
árásir á persónuhelgi manna sem
hafa leitt til endalausra slúður-
sagna meðal fólks sem virðist
gleðjast ákaft yfir ógæfu annarra.
Hér þarf að greina miklu meira á
milii athafna manna, milli rétt-
mætrar gagnrýni á spillingu og
siðleysi, og persónuhelgi. Og leitt
er til þess að vita, að svo virðist
sem heilt blað þrífíst að töluverðu
leyti á þjónustu við þennan ljóta
þjóðarlöst okkar. En þá verður
líka jafnframt að gæta að því, að
slíkt segir sína sögu um lesendur
blaðsins, ekki síður en um blaðið
sjálft."
Um málatilbúnað Helgarpósts-
Ragnar Kjartansson
ins fjalia ég ekki að öðru leyti að
svo stöddu, en hvet þessa boðbera
„heiðarleika" og „siðgæðis" að
kynna sér mál „Extrabladet" í
Danmörku og aðför þeirrar gulu
pressu að Jan Bonde Nielsen, sem
veitti Burmeister & Wain forstöðu
í eina tíð. Ekki er útilokað að
nokkurn lærdóm megi af því
draga jafnvel þótt síðar verði.
Höfundur er fyrrverandi stjórn-
arformaður Hafskips hf.
Alþýðuflokkurinn:
Próflgör
haldiðum
næstuhelgi
FRAMBOÐSFRESTUR
vegna prófkjörs Alþýðu-
flokksins í Reykjavík til að
velja menn í fjögur efstu
sæti á framboðslista flokksins
við næstu þingkosningar rann
út 19. nóvember.
I þijú efstu sæti listans bár-
ust þessi framboð: í 1. sæti Jón
Sigurðsson hagfræðingur, í 2.
sæti Jóhanna Sigurðardóttir al-
þingismaður, í 3. sæti Jón
Baldvin Hannibalsson alþingis-
maður. í þessi sæti bárust ekki
fleiri framboð og er því sjálfkjör-
ið í þau.
í fjórða sæti listans bárust
þijú framboð. Frambjóðendur í
fjórða sætið eru Björgvin Guð-
mundsson viðskiptafræðingur,
Jón Bragi Bjamason prófessor
og Lára V. Júlíusdóttir lögfræð-
ingur.
Prófkjör um hver skipi fjórða
sæti listans fer fram dagana 29.
og 30. nóvember næstkomandi
kl. 13—18 í Félagsmiðstöð jafn-
aðarmanna á Hverfisgötu 8—10.
Það er ekki
alltaf hægt að
hlaupa
úr vinnunni til
þess að greiða
reikningana
Enda ástæðulaust þegar hægt er að fara í Hraðbankann hvenær sem er sólarhringsins.
Afgreiösiustaöir Hraðbankans eru á eftirtöldum stöðum:
• Borgarspítalanum • Landsbankanum Breiðholti • Landsbankanum Akureyri • Landspítalanum
• Búnaðarbankanum, aðalbanka • Búnaðarbankanum við Hlemm • Búnaðarbankanum Garðabæ
• Sparisjóði Vélstjóra • Samvinnubankanum Háaleitisbraut • Útvegsbankanum Hafnartirði
• Sparisjóði Keflavíkur • Sparisjóði Reykjavikur og nágrennis • Landsbankanum, aðalbanka.
NOTAÐU SKYNSEMINA - NOTAÐU HRADBANKANN!
og gerðu upp reikningana