Morgunblaðið - 26.11.1986, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986
Norðurslóðir - rannsóknir ogþróun:
Áætlun Bandaríkj anna
- og þáttur Islands
eftir Þór Jakobsson
Ekki alls fyrir löngu, nánar til-
tekið 10. október sl., sem raunar
var daginn fyrir upphaf leiðtoga-
fundar stórveldanna, birtist grein
eftir mig í Morgunblaðinu. Nefnd-
ist hún „ísland í framtíð —
heimshöfn í þjóðleið" og var þar
greint frá hugsanlegri skipaleið
um Norður-Ishaf milli Atlants-
hafs og Kyrrahafs.
Vegna tækniframfara við
smíði ísbrjóta og flutningaskipa
og við gerð veðurtungla og fjar-
könnunartækja gerist æ tíðförulla
norður af Sovétríkjunum, en hafís
er þar mun minni en norður af
Ameríku.
Búast má við þróun á þessu
sviði næstu áratugi, sem Islend-
ingar ættu að fylgjast með og
færa sér í nyt. En standa þarf
skynsamlega að verki. Þótt heill-
andi möguleikar leynist í hug-
myndinni verður að kanna hliðar
málsins fagmannlega, bæði út frá
náttúrufræðilegu og viðskiptalegu
sjónarmiði. Síðan verður að prófa
sig áfram, gera skipulegar til-
raunir og kemur þá í ljós hver
hagur er í hinni nýju leið.
Skal ekki fyölyrt að sinni um
sjóleiðina milli íslands og Japan —
Reyðarfjarðar og Tókýó! — en
þess má geta að viðbrögð ýmissa
íslenskra kunnáttumanna, sem vit
hafa á einstökum hlekkjum eða
tengiliðum hugmyndarinnar, hafa
verið ánægjulegar. Sömuleiðis
hafa íslenskir fréttamenn verið
mjög áhugasamir að kanna og
kynna þessa möguleikar. Þá hafði
stuttur fræðsluþáttur í breska
sjónvarpinu (Tomorrow’s Worlds
í BBC) það í för með sér að rann-
sókna- og þróunardeild hjá hol-
lensk-ensku skipafélagi bauð mér
samstarf.
Dr. Þór Jakobsson
„íslendingar taka
þátt í hervarnar-
samstarf i þar sem
athygli beinist mjög
að norðurslóðum.
En hafa skal í huga
að unnt er að hafa
fleira fyrir stafni
þar nyrðra, þótt
margt tengist her-
vörnum beint eða
óbeint.“
Ætlun mín er að mynda áhuga-
hóp eða starfshóp um þetta
málefni, að loknum yfírvofandi
árshátíðum, jólaundirbúningi og
bókaflóði, jólum og áramótum og
ef til vill janúarprófum í háskólan-
um. Mun ég þá hóa í þá sem nú
þegar hafa látið í ljós áhuga á
þessari framtíðarmúsík, en bið
aðra að gefa sig fram sem fyrst.
Auk sérfræðinga á ýmsum svið-
um slæst vonandi í hópinn ungt
fólk að forvitnast og leggja til
málanna. Hvað sem líður hug-
myndinni um siglingaleið þvert
yfír Norður-íshaf leikur ekki vafi
á því að miklar rannsóknir og
umsvif — friðsamleg umsvif — eru
framundan á norðurslóðum og er
þar verk að vinna fyrir íslendinga.
Bandaríkin á
norðurslóðum:
hin rnikla áætlun
Þá er ég raunar kominn að er-
indi greinarkoms þessa, nefnilega
að greina lítillega frá viðamiklum
framtíðaráætlunum Banda-
rikjanna um rannsónir á norður-
slóðum.
Vitanlega hafa bandarískir
vísindamenn komið mjög við sögu
á norðurslóðum og hafa ýmsar
öflugar rannsóknastofnanir í
Bandaríkjunum lagt mikið fé í
rannsóknir þar um dagana.
En fullyrða má að þáttaskil
hafi orðið er Reagan Bandaríkja-
forseti undirritaði í júlí 1984 lög
um stórefldar rannsóknir og
starfsemi á norðurslóðum. Er
þá átt við rannsóknir á öllum svið-
um jarðeðlisfræði, veður- og
haffræði, líffræði, þjóðfélags-
fræði, samgöngum og þannig
mætti lengi telja. Norðurslóðir
(Arctic) kallast lönd og höf norðan
heimskautsbaugs og auk þess
vesturhluti Alaska og Berings-
hafs.
Áætlanir Bandaríkjanna hafa
birst í bæklingum, t.d. „National
íssues and Research Priorities in
the Arctic“ (júlí 1985) og „Nation-
al Needs and Arctic Research: A
Framework for Action“ (maí
1986). Ennfremur hafa birst yfir-
litsgreinar í timaritum, t.d. grein
„Arctic Research in the National
Interest" — norðurslóðarannsókn-
ir í þágu þjóðarinnar.
Bandarískar vísindastofnanir
hafa að vonum áhuga á sam-
starfi við lönd, sem hlut eiga að
máli, og hafa fyrirætlanir þessar
verið kynntar allvíða. Verður þess
væntanlega gætt að þær tengist
öðrum rannsóknafyrirætlunum á
gagnlegan hátt. Hér á landi hefur
framkvæmdastjóri Rannsókna-
ráðs ríkisins, dr. Vilhjálmur
Lúðvíksson, ásamt nokkrum sér-
fræðingum á Veðurstofu Islands,
Hafrannsóknastofnun og ef til vill
víðar, fylgst alltaf með framvindu
mála.
íslendingar taka þátt í hervam-
arsamstarfi þar sem athygli
beinist mjög að norðurslóðum. En
hafa skal í huga að unnt er að
hafa fleira fyrir stafni þar nyrðra,
þótt margt tengist hervömum
beint eða óbeint.
Hver veit nema friður haldist
með stórveldunum næstu áratugi
og má þá búast við auknum, frið-
samlegum samskiptum þeirra og
samstarfi á norðurslóðum — á og
umhverfis Norður-íshaf. Islend-
ingar ættu því að temja sér
alhliða áhuga á norðurslóðum,
umhverfi, lífsskilyrðum og mögu-
leikum til athafna. Við ættum eftir
megni að taka þátt í þekkingar-
leit og þróunarsamstarfi, sem þar
mun eiga sér stað í auknum
mæli. Þiggjum boð um samstarf
og verum í fararbroddi. ísland er
þjóðleið í norður og við stöndum
því vel að vígi.
Höfundur er deildarstjóri hafis-
rannsóknadeildar Veðurstofu
íslands.
Viðskipta- og hagfræðingatal
Bókmenntir
Sigurjón Björnsson
Viðskipta- og hagfræðingatai.
Almenna bókafélagið,
Reykjavík 1986. XXXII + 629
bls.
Viðskipta- og hagfræðingatal
er mikið rit að vöxtum og virðu-
lega og smekklega útgefíð. Það
er verk samstarfshóps. Í fyrsta
lagi fjögurra manna ritnefndar:
Brynjólfs Bjamasonar, Gylfa Þ.
Gíslasonar, Kristjáns Jóhannsson-
ar og Tryggva Pálssonar. í öðru
lagi annarra samstarfsmanna,
sem fengnir voru til að sja um
einstök verkefni: Jóns Júlíussonar,
Kristínar Bjamadóttur og Klem-
ensar Tryggvasonar.
Ritið hefst á tveimur fróðlegum
ritgerðum. Hin fyrri þeirra, sem
Bjöm Matthíasson hefur samið,
heitir Saga félagssamtaka hag-
fræðinga og viðskiptafræðinga á
íslandi. Þar kemur fram að fyrsta
félagið, Hagfræðingafélag ís-
lands, var stofnað árið 1938. Árið
1946 tók svo Félag viðskiptafræð-
inga til starfa. Þessi tvö félög
sameinuðust í eitt félag árið 1959.
Hét það fyrst Hagfræðingafélag
íslands, en nafninu var breytt árið
1972 í Félag viðskiptafræðinga
og hagfræðinga, en það heiti ber
félagið nú. Starfsemi þessara fé-
laga er rakin í greininni og virðist
hún hafa verið blómleg á köflum.
Seinni greinin heitir Upphaf og
þróun kennslu í viðskiptafræðum
við Háskóla íslands og er hún eft-
ir Gylfa Þ. Gíslason, en hann var
einmitt fyrsti fastráðni háskóla-
kennarinn í þessari grein hér á
landi og kennir raunar enn.
Kennsla í viðskiptafræðum hófst
haustið 1938. Fyrst var kennslan
veitt í sérstökum skóla, Viðskipta-
háskóla íslands. Sá skóli var svo
innlimaður í Háskóla íslands árið
1941 og tengdur lagadeildinni,
sem þá breytti um nafn, fyrst í
laga- og hagfræðideild, en síðar í
laga- og viðskiptadeild. Árið 1962
breyttist þetta enn, því að þá tók
til starfa sjálfstæð viðskiptadeild
í Háskóla Islands og er svo nú.
Fyrstu stúdentamir sem luku
prófí í viðskiptafræðum hérlendis
útskrifuðust í janúar 1943. Voru
þeir fímm talsins. Frá því að við-
skiptafræðinám hófst hér og til
sumarsins 1984 hafa 914 kandíd-
atar lokið prófi í viðskiptafræðum.
Fyrstu fímm árin luku að meðal-
tali sex prófi á ári, en á ámnum
1979—1984 luku að meðaltali 53
prófi árlega. Á þessu ári hefur 91
stúdent útskrifast og nú í haust
innrituðust 326 nýnemar í deild-
ina.
Svo að vikið sé að aðalefni bók-
arinnar, viðskipta- og hagfræð-
ingatali, þá er fyrst fyrir að það
tekur til 999 einstaklinga, sem
luku prófí fram til 1982. Auk þess
er skrá yfír kandídata útskrifaða
1983 og 1984. Eru þeir 136 tals-
ins.
Sjálft aðaltalið fylgir ákveðinni
reglu, sem farið hefur verið eftir
þar sem við varð komið: Nafn og
föðumafn viðkomanda, fæðingar-
dagur og ár, fæðingarstaður.
Foreldrar: Nafn og föðumafn,
fæðingardagur, ár, starf, dánar-
dagur og ár, þar sem við á.
Föðurfor. og móðurfor. em til-
greinir á sama hátt nema fæðing-
ardegi og ári er sleppt. Þá kemur
náms- og starfsferilsskýrsla og
talin era upp prentuð rit, ef ein-
hver em. Þá er giftingardagur og
ár tilgreint. Nafn og föðumafn
maka, fæðingardagur og ár,
námstitill og starf. Foreldrar
maka: nafn og foðumafn, svo og
starf. Böm em talin upp með
nafni, fæðingardegi og ári. Ef
böm em uppkomin er maki þeirra
tilgreindur og starfs getið. Loks
er getið skyldleikatengsla við aðra
sem í talinu em. Mynd af viðkom-
anda fylgir í flestum tilvikum.
Allt virðist þetta vera mjög vel
og skipulega unnið. Á stöku stað
hefur þó skort upplýsingar til að
fylla alveg inn í þennan ramma.
Virðist þó að stundum hefði mátt
bæta úr betur með smávægilegri
vinnu.
Skráin yfir þá sem útskrifuðust
árin 1983 og 1984 er æði stuttara-
leg. Þar er að sjálfsögðu nafn og
föðumafn viðkomanda. Auk þess
fæðingardagur og ár. Nöfn og
föðumöfn foreldra. Menntun og
starf. Nafn maka og föðumafn,
fæðingardagur og ár. Þá er bama-
fjöldi tilgreindur, en ekki getið
nafns þeirra eða fæðingardags og
árs. Engin mynd fylgir.
Eðlilegast hefði mér þótt að
vinna þessa skrá með sama hætti
og talið allt og fella hana inn í
aðaltalið. Það hefði að vísu lengt
bókina um 50—60 bls., en hún
hefði þolað það, þó að stór sé.
Ástæðumar fyrir því að svo var
ekki gert get ég ekki séð, allra
síst þar sem talið var unnið á tölvu
og því auðvelt að bæta þessum
viðbótarskrám inn í talið með IftiIIi
fyrirhöfn.
Úr tölum sem þessum má margt
lesa, ef grannt er skoðað, fleira
en æviferil, ætt og kvonfang. Nú
á tölvuöld væri hægurinn hjá að
gera mönnum þann lestur auðveld-
an. í rauninni ætti það að fara
að verða sjálfsagður siður að láta
sfyttartölum og öðmm slíkum rit-
um fylgja tölfræðilegan inngang
eða bókarauka. Myndi það auka
gildi þeirra vemlega. Þessháttar
fræðilegar nytjar stéttartala ætla
ég þó ekki að ræða frekar hér,
heldur geta þess sem augljóst er.
Stétt hagfræðinga og viðskipta-
fræðinga er ung að ámm. Einung-
is 48 manns úr stéttinni frá
upphafí em látnir. Þegar Hag-
fræðingafélag íslands var stofnað
árið 1938 fylltu félagar naumast
tuginn og á næstu ámm fjölgaði
hægt. Aukningin hefur að því að
mér skilst einkum orðið á síðustu
10—20 ámm. Nú bætast í stéttina
um 100 manns árlega. Og á þessu
hausti em 816 nemendur skráðir
í viðskiptadeild Háskóla íslands.
Þegar þetta er ritað skortir varla
mikið á að stéttin telji hálft annað
þúsund félaga. Fátt endurspeglar
betur en þetta þær miklu breyting-
ar sem orðið hafa á íslensku
þjóðfélagi síðustu áratugina. Iðn-
væðing, tæknivæðing, flókinn ogf
margþættur rekstur, markaðsmál-
o.m.fl. láta sér ekki lengur duga
bijóstvitið eitt, heldur kreíjast sér-
hæfðrar þekkingar og þjálfunar.
Svo hratt hefur okkur borið burt
frá hinu einfalda samfélagi á fyrri
hluta aldarinnar að nú dugar þess-
ari litlu þjóð ekki minna en á annað
þúsund viðskiptafræðingar, fyrir
utan alla aðra sérfræðinga á fjöl-
mörgum sviðum. Og ekki virðast
neinar líkur á að viðskiptafræðing-
ar verði atvinnulausir á næstunni,
þó að þeim fjölgi ört.
Ég sé ekki ástæðu til að teygja
lopann lengur um þetta efni, þar
eð það er í raun utangama við
eiginlega bókammsögn. Þess má
aðeins geta að lokum að bók þessi
er mjög vel og smekklega útgefin
og vel frá henni gengið í alla staði.