Morgunblaðið - 26.11.1986, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986
25
V estur-Þýskaland:
Kínverskur embættís-
maður biður um hæli
Bonn, Reuter, AP.
SENDIRÁÐSRITARI kinverska
sendiráðsins í Bonn hefur beiðst
pólitísks hælis fyrir sig og konu
sína, að því er haft er eftir emb-
ættismönnum vestur-þýsku
stjórnar.
Mannréttindasamtök í Frankfurt
hafa einnig greint frá því að Tu
Pingju og kona hans, Chu Meilan,
hafi gerst landflótta.
í yfírlýsingu samtakanna sagði:
„Þessi háttsetti stjómarerindreki
tók þetta skref í gær (mánudag),
vegna þess að hann hafði fyrir
löngu síðan hafnað stjómarfarinu í
föðurlandi sínu.“
Talsmaður kínverska sendiráðs-
Bretland:
Dæmdur í 28
ára fangelsi
-fyrir heróínsmygl
London. Reuter.
FORSPRAKKI eiturlyfjahrings,
sem stóð fyrir heróinsmygli frá
Bretlandi til Bandarikjanna, hef-
ur verið dæmdur til 28 ára
fangelsisvistar fyrir sakamála-
rétti í London.
Paul Dye, sem handtekinn var í
júlí 1985, hlaut þennan dóm fyrir
Oid Bailey-réttinum á mánudags-
kvöld, og var hann sekur fundinn
fyrir að hafa smyglað heróíni að
verðmæti um 100 milljón sterlings-
pund um Heathrow-flugvöll.
Dye verður að sitja inni tvö ár
til viðbótar, ef hann lætur undir
höfuð leggjast að greiða 201.000
punda sekt, sem hann var dæmdur
til að greiða. Fangelsisdómurinn
yfír honum er hinn þyngsti, sem
kveðinn hefur verið upp í Bretlandi
fyrir eiturlyfjasmygl.
Fimm Bretar, sem unnu með
honum við að smygla heróíninu frá
Pakistan um Bretland til Banda-
ríkjanna voru dæmdir í sjö til 17
ára fangelsi.
Saksóknarinn kvað eiturlyfja-
hringinn hafa verið upprættan fyrir
samstarf löggæslustoftiana í Bret-
landi, Bandaríkjunum, Pakistan,
Hollandi og Vestur-Þýskalandi.
ins í Bonn hefur neitað að segja
orð um málið. Embættismaður í
viðskiptadeild sendiráðsins sagði
aðeins: „Tu Pingju er ekki lengur
hér.“
Talsmaður útlendingaeftirlitsins
í Bonn asgði að tveir Kínverjar
hefðu sótt um hæli á mánudag
vegna þess að þeir hefðu mátt þola
pólitískar ofsóknir heima fyrir.
Sagði talsmaðurinn að Kínver-
jamir hefðu átt að koma aftur í
gær, en hefðu ekki látið sjá sig.
Talsmaðurinn vildi ekki nefna
Kínveijana á nafn.
Tu er að öllum líkindum fyrsti
kínverski stjómarerindrekinn, sem
sækir um pólitískt hæli, síðan Vest-
ur-Þjóðveijar og Kínveijar tóku upp
stjórmálasamband 1972.
John Poindexter ásamt Ronald Reagan Bandaríkjaforseta þegar
hann var skipaður öryggismálaráðgjafi í desember i fyrra.
John Poindexter, fyrrum öryggisráðgjafi:
Hatursmaður fjölniiðla
-snjall áróðursmeistari
Washington, Reuter.
JOHN POINDEXTER, öryggis-
málaráðgjafi Reagans Banda-
ríkjaforseta, hafði marga hildi
háð áður en vopnasala Banda-
ríkjastjórnar, sem leiddi til
afsagnar hans í gær, var gerð
opinber. Hann er sagður hafa
skipulagt „lygaherferð“ í ágúst
á þessu ári í því skyni að koma
Gaddafi leiðtoga Líbýu frá völd-
um. Fyrirskipaði hann að
uppspunnum fréttum skyldi
komið á framfæri við fjölmiðla
þess efnis að Bandaríkjamenn
hygðust ráðast gegn Libýu. Hann
er svarinn hatursmaður fjölmiðla
og bandarískir embættismenn
segja leynilegar ráðagerðir og
baktjaldamakk vera hans ær og
kýr.
John Poindexter var skipaður
öryggismálaráðgjafi Ronalds Reag-
an 4. desember 1985-og tók hann
við stöðunni af Robert McFarlane.
Embættismenn í Hvíta húsinu segja
hann einstaklega gefínn fyrir alls
kyns ráðabrugg fyrir luktum dyrum
og vitað er að hann ráðlagði Reag-
an forseta að gangast ekki við
vopnasölunni þar til fokið var í flest
skjól. Hann gagnrýndi fjölmiðla
harðlega fyrir umfjöllun þeirra og
skipulagði áróðursherferð þar sem
þvi var óspart haldið fram að frétta-
flutningur af málinu gæti stefnt lífi
bandaríkskra gísla í Líbanon í .
hættu. George Shultz, utanríkisráð-
herra, sem fékk að því talið er
ákaflega takmarkaðar upplýsingar
um vopnasöluna, er sagður hafa
tilkynnt Reagan að hann myndi
segja af sér af Poindexter yrði ekki
vikið úr starfi. Allar þessar fréttir
virtust hafa lítil áhrif á Poindexter
og lýsti hann því yfir að hann myndi
ekki segja af sér.
Árið 1983 bárust fréttir um að
Bandaríkjastjóm hefði uppi áætlan-
ir um að gera innrás á eyjuna
Grenada. Poindexter skipulagði við-
brögð stjómvalda og ráðlagði hann
Larry Speakes, talsmanni Reagans
Bandaríkjaforseta, að lýsa því yfir
að orðrómur þessi væri „fráleitur".
Daginn eftir gengu bandarískar
sveitir þar á land. Nánustu starfs-
mönnum hans var ekki sagt frá því
að innrásin væri fyrirhuguð og
sagði einn þeirra af sér til að mót-
mæla starfsaðferðum Poindexters,
sem þá gekk næstur McFarlane að
völdum í Öryggisráðinu.
John Poindexter vann einnig
ýmsa sigra í valdatíð sinni. Hann
var óspart lofaður þegar banda-
rískar orustuþotur flugu í veg fyrir
egypska farþegaþotu í október árið
1985 og neyddu hana til að lenda
á Ítalíu. Um borð í þotunni vom
menn sem rænt höfðu farþegaskip-
inu „Achille Lauro" og voru þeir
handteknir.
Poindexter er fimmtugur að
aldri. Hann lauk námi í Liðsfor-
ingjaskóla bandaríska sjóhersins
árið 1958 og lauk síðan doktors-
prófi í eðlisfræði frá Massachusetts
Institute of Technology.
Sovétríkin:
Kjör gyðinga hafa
aldrei verið verri
— segir sendiherra fsrael hjá S.þ.
Sameinuðu þjóðimar, AP, Reuter.
KJÖR gyðinga í Sovétríkjunum hafa versnað mjög síðan Mikhail
Gorbachev tók við stjórn, að því er sendiherra ísrael hjá Sameinuðu
þjóðunum sagði á mánudag.
Benjamin Netanhayu, sendiherra,
sagði á fundi nefndar er fjallar
m.a. um mannréttindi, að Sovét-
stjórnin hefði lofað sveigjanleika í
ýmsum málum þ.á.m. málum er
snertu mannréttindi. En að undanf-
ömu hefði herferð þeirra gegn
sovéskum gyðingum verið harðari
en um margra ára skeið. Að meðal-
tali fá nú 70 gyðingar að flytjast
úr landi í Sovétríkjunum á mánuði,
en voru flestir 4,200 á mánuði árið
1979. Um 400.000 gyðingar hafa
sótt um siíkt leyfi. Netanhayu sak-
aði sovésk stjórnvöld um að reyna
að þurrka út menningu gyðinga,
sem verðust af hörku, þrátt fyrir
mjög erfiðar aðstæður. Vladimir
Petrovsky, aðstoðarutanríkisráð-
herra og yfirmaður sovésku sendi-
nefndarinnar á allsherjarþinginu,
neitaði þessum ásökunum á fundi
nefndarinnar. Annar sovéskur full-
trúi, Ivan Yakovlev, sagði gyðinga
eiga sína fulltrúa í öllum stofnunum
sem kosið væri til í landi sínu og á
sviði vísinda og lista væru þeir í
raun hlutfallslega fleiri en þeir ættu
að vera. ísraelski fulltrúinn, Ephra-
im Dowek, lét í ljósi undrun yfir
því, að aðeins væru 60 bænarhús
fyrir 2,5 milljónir gyðinga, 5 æðstu-
prestar og þeim væri ekki leyft að
greftra látna samkvæmt venjum
trúar sinnar, ef þeir nytu fullra
réttinda á við aðra sovéska borgara.
skipta- og hagfræð-
inga.