Morgunblaðið - 26.11.1986, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986
33
Stuttar þingfréttir
Heimilis- o g hússtjórn-
arfræðsla
Sverrir Hermannsson, mennta-
málaráðherra, hefur skipað þriggja
manna nefnd til að gera áætlun um
nám í hússtjórnar- og heimilis-
fræðum í framhaldsskólum, einkum
Qöibrautarskólum. Formaður
nefndarinnar er Þór Vigfússon,
skólameistari, en með honum starfa
Ingibjörg Þórarinsdóttir, skóla-
stjóri, og Gerður Hulda Jóhanns-
dóttir, hússtjómarkennari.
Menntamálaráðherra segir í svari
við fyrirspurn frá Þórami Sigur-
jónssyni (F.-Sl.), að aðsókn að
hússtjómarskólum hafí farið stöð-
ugt minnkandi. Ekki hafi reynst
fært, af þessum sökum, að halda
uppi hússtjómarfræðslu í samræmi
við gildandi lög þar um. Þessvegna
sé stefnt að því að færa þetta mikil-
væga nám inn f almenna fram-
haldsskóla.
Fasteigna- og skipasala
Fram hefur verið lagt stjómar-
frumvarp til að taka af öll tvímæli
um að fasteignasala skuli skylt að
leggja fram tryggingu fyrir greiðslu
kostnaðar og tjóns, sem viðskipta-
menn hans kunna að verða fyrir
af hans völdum, samanber 5. tölu-
lið 1. málsgreinar 2. greinar laga
um þetta efni. Ákvæði þetta skal
ótvírætt ná til allra þeirra sem þessa
starfssemi stunda, hvort sem þeir
hafa starfað lengur eða skemur á
þessum vettvangi.
Borðtennis
Friðjón Þórðarson, Ólafur Þ. Þórð-
arson og Pálmi Jónsson hafa flutt
frumvarp til breytinga á lögum um
tollskrá, þessefnis, að tollur af borð-
tennisbúnaði lækki úr 50% í 35%.
Skólanefndir
Skúli Alexandersson hefur flutt
frumvarp, þessefnis, að skólanefnd-
ir í kaupstöðum og kauptúnahrepp:
um skuli skipuð fimm mönnum. I
gildandi lögum eru skólanefndir í
sveitarfélögum með undir 900 íbúa
skipaðar þremur mönnum.
’ffr'
t
Rannsóknarskipið Fengur í Reykjavlkurhöfn. Nú er gert ráð fyrir þvi, að skipið fari á ný til Græn-
höfðaeyja og verði þar i eitt ár.
Fyrirspurnir
Orðaskak á þingi
um þróunarhjálp
Stöðugildi á heilbrigð-
isstofnunum
Kolbrún Jónsdóttir (A.-Ne.)
spyr heilbrigðisráðherra: 1) Hvað
eru mörg stöðugildi hjúkrunarfræð-
inga, sjúkraliða og lækna á heil-
brigðisstofnunum? Hvaða breyting-
ar urðu á stöðugildum vegna
afnáms starfsskyldu hjúkruna-
rnema? Hvað er ráðið í margar af
þessum stöðum?
Löggjöf um heilbrigðis-
mál
Kristín Halldórsdóttir (Kl.-
Rn.) spyr félagsmálaráðherra, hvað
líði undirbúningi heildarlöggjafar
sem boðuð var í upphafi Iq'örtíma-
bilsins.
FRAM er komið á Alþingi stjórn-
arfrumvarp til laga um veitingu
prestakalla, sem gerir ráð fyrir
því sem meginreglu að svokaUað-
ir kjörmenn í kirkjusóknum velji
presta með leynilegu vali. Frum-
varp sama efnis var lagt fram á
Alþingi 1978-1979 en hlaut ekki
afgreiðslu.
I frumvarpinu segir, að kjörmenn
séu sóknamefndarmenn í hlutað-
Sjúkranuddarar
Guðrún Helgadóttir (Abl.-
Rvk.) spyr heilbrigðisráðherra:
Hvers vegna var reglugerð nr.
13/1986 um menntun, réttindi og
skyldur sjúkranuddara numin úr
gildi? Er ný reglugerð fyrirhuguð?
Sé svo, hvenær er hennar að vænta?
Heimilisstörf - starfs-
reynsla
Sigríður Dúna Kristmunds-
dóttir (Kl.-Rvk.) spyr félagsmála-
ráðherra: Hvað líður framkvæmd
þingsályktunar um mat heimilis-
starfa til starfsreynslu sem sam-
þykkt var á Alþingi 22. apríl 1986?
eigandi prestakalli. Ef 3/4 kjör-
manna prestakallsins eru einhuga
um að kalla tiltekin presta eða guð-
fræðikandidat til embættis án
umsóknar er það heimilt og fer þá
ekki kosning fram. í slfkum tilvik-
um er embættið veitt tímabundið
og ekki lengur en til fjögurra ára
í senn.
Ákvæði er einnig í frumvarpinu,
sem heimilar almennar prestkosn-
NOKKURT orðaskak varð í fyr-
irspurnartima í sameinuðu þingi
í gær um málefni Þróunarsam-
vinnustofnunar íslands og
þróunarhjálp íslendinga. Sigríð-
ur Dúna Kristmundsdóttir (Kl.-
Rvk.) gagnrýndi harðlega, hve
litlu fé væri veitt til þróunarað-
stoðar og gaf í skyn, að Þróun-
arsamvinnustofnunin vanrækti
undirbúning nýrra verkefna með
fjárskort að yfirvarpi. Hjörleifur
Guttormsson (Abl.-Al.) tók í sama
ingar, ef 25% atkvæðisbærra
sóknarbarna í prestakallinu krefjast
þess að loknu vali kjörmanna. Fari
almenn kosning fram þarf þátttaka
að vera 50% og einhver umsælq-
anda að fá helming greiddra
atkvæðatil þess að kosning sé bind-
andi. Á kjörmannafundi þarf
umsækjandi að fá helming greiddra
atkvæða séu umsælqendur fleiri en
einn, en 2/3 ef einn er í kjöri, ef
streng.
Þingmennimir Haraldur Ólafs-
son (F.-Rvk.) og Arni Gunnarsson
(A.-Nv.) töldu nauðsynlegt, að fram
færu ýtarlegar umræður á Alþingi
um þróunaraðstoð íslendinga. Þeir
lýstu báðir jrfir stuðningi við aukin
útgjöld til þessa málaflokks. Gunn-
ar G.Schram (S.Rn.) og Mattliías
Á. Mathiesen, utanríkisráðherra
vísuðu á bug sem tómum getsökum
gagnrýni Sigríðar Dúnu Krist-
mundsdóttur og Hjörleifs Gutt-
í athugasemdum við frumvarpið
segir, að ákvæðið sem heimilar al-
mennar prestkosningar, ef krafa
þess efnis kemur frá 25% sóknar-
bama, sé ný leið „er ætti að verða
til málamiðlunar og sætta hin ólíku
sjónarmið þeirra, er vilja afnema
alfarið prestkosningu og þeirra, er
vilja óbreytt ástand."
ormssonar á Þróunarsamvinnu-
stofnunina. Utanríkisráðherra vakti
jafnframt athygli á því, að rðuneyti
hans hefði skrifað fjárveitingar-
nefnd Alþingis bréf og óskað eftir
því að fjárveiting til þróunaraðstoð-
ar yrði hækkuð í samræmi við
ályktun Alþingis.
í máli utanríkisráðherra kom
fram, að Þróunarsamvinnustofnun-
in hefur undanfarin misseri unnið
annars vegar almennt undirbún-
ingsstarf vegna nýrra verkefna og
hins vegar starf, sem beinst hefur
að sérstökum verkefnum. Hið al-
menna starf lyti að nánari stefnu-
mótun varðandi val verkefna og
grundvallaratriðum sem byggja
bæri á. Stefnt væri að því, að ný
verkefni yrðu einkum í formi
íslenskrar sérfræðiþekkingar og
reynslu. Áhersla yrði lögð á þróun-
arsamvinnu við þau ríki, sem
fátækust væru og þyrftu þvl stuðn-
ings mest með. Hann sagði, að nú
væri stefnt að nýjum verkefnum á
Grænhöfðaeyjum. í því sambandi
væri m.a. gert ráð fyrir því, að rann-
sóknarskipið Fengur færi á ný til
eyjanna og yrði þar um eins árs
skeið.
Erró:
Verk fyrir
íslendinga
„Alþingi ályktar að fela
menntamálaráðherra að taka
upp viðræður við myndlistar-
manninn Erró, Guðmund
Guðmundsson, í þvi skyni að
hann taki að sér myndlistar-
verkefni fyrir tslendinga,
tengd menningu, sögu, at-
vinnulífi og náttúru landsins
og stöðu íslands á alþjóðavett-
vangi“.
Þannig hljóðar þingsályktun-
artillaga sem Ámi Johnsen
(S.-Sl.) hefur lagt fram á Al-
þingi. í greinargerð segir að
Erró hafí tekið að sér ákveðin
verkefni fyrir stjómvöld erlendis
og stórfyrirtæki og að stíll hans
höfði til þorra fólks óháð landa-
mærum. Sérhæfðir hæfíleikar
Errós geti nýzt íslenzkri menn-
ingu og sýningarherferð á
slíkum verkum á alþjóðavett-
vangi tengst kynningu á landinu
og markaðssókn í öðrum lönd-
um.
Nýtt stjómarfrumvarp gerir ráð fyrir því að almennar prestkosningar verði ekki lengur almenn regla.
Endurflutt stjórnarfrumvarp:
Sóknarnefndir kjósi presta
25% sóknarbarna geti óskað eftir almennri kosningu að ve™bindandi fynr 140