Morgunblaðið - 26.11.1986, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986
JOLIN KOMA
Flugið lengi lifi
Þakkir til þingmanna
Wmm
eftir Rúnar Pálsson
Kæru þingmenn.
Nú er senn liðið 50 ára afmælis-
ár flugs á íslandi. Saga flugsins
hefur verið rifjuð upp og hin miklu
afrek og fómfýsi frumkvöðlanna
og þeirra, sem í fótspor þeirra fet-
uðu, lofuð. Ykkur ber einnig að
þakka þann skilning, sem þið hafíð
sýnt íslenskum flugmálum í gegn-
um árin og allt það fé sem þið hafið
látið af hendi rakna til íslenskra
flugsamgangna. Að vísu byggðu
útlendingar bæði Reykjavíkur- og
Keflavíkurflugvöll, en ykkur hefur
tekist að gera Akureyrarflugvöll að
alvöruflugvelli, sem er vel gert á
ekki lengri tíma.
Hvar stæðum við nú í flugörygg-
ismálum, ef þið hefðuð ekki tekið
þá hárréttu ákvörðun að halda
stjómmálalegu sambandi og vin-
skap við Bandaríkin? Þá hefði
Agnar heitinn flugmálastjóri ekki
kynnst Glen Goudie, yfírmanni
tæknideildar flugmálastjómar
Bandaríkjanna. Þessi kynni urðu til
þess að Goudie lét gera upp gífur-
legt magn tækjabúnaðar frá
stríðsárunum til uppsetningar á ís-
landi. Að auki útvegaði hann ýmsan
viðbótarbúnað, sem íslendingum
var lánaður á vildarlqömm til 15
ára, svo ísland var komið með eitt
besta flugfjarskiptasamband í Evr-
ópu. Hvorutveggja mátti heita gjöf
til íslendinga þótt ekkert væri af-
mælið.
Ykkur hefur tekist að koma upp
lendingarstöðum víða um land, sem
hefur aukið samgönguöryggi til
muna fyrir hin einangruðu byggð-
arlög, þótt þeir eigi langt í land til
■■■
UTBOÐ A
PRENTUN
TÉKKHEFTA
Landsbanki íslands óskar eftir tilboöum í
prentun tékkaeyðublaða og frágang þeirra í
25 og 50 eyðublaða hefti fyrir alla
afgreiðslustaði bankans.
Útboðsgögn verða afhent hjá
tæknisviði bankans, Álfabakka 10,
109 Reykjavík, frá og með miðvikudeginum
26. nóvember 1986.
Frestur til að skila tilboði rennur út
föstudaginn 19. desember 1986, kl. 11:00.
Landsbanki
íslands
Banki altra landsmanna
að geta kallast flugvellir. Þið hafíð
verið svo góðir að fella niður tolla
og aðflutningsgjöld af bráðnauð-
synlegum tækjum til flugmála-
stjómar, þó blikur séu nú á lofti
um hið gagnstæða. Atvinnuleysi er
völvaldur sérhvers þjóðfélags og
íslenskir flugvirkjar munu örugg-
lega vera ykkur ævarandi þakklátir
fyrir þá vinnu, sem þið hafíð skapað
þeim, þótt þeir þurfi að vinna
myrkranna á milli til að hafa undan
við viðhald flugvélanna eftir þá út-
reið, sem þær fá á íslenskum
lendingarstöðum.
Nýsköpun í atvinnulífi er slagorð,
sem allir stjómmálaflokkar hafa á
oddinum. Hefur ykkur ekki dottið
í hug að setja á stofn verksmiðju,
sem hannaði og framleiddi nýja
tegund flugvéla, sem sniðin yrði að
íslenskum aðstæðum með drifí á
öllum hjólum svo hún kæmist um
forarpyttina, sem við köllum flug-
velli? Þessi hugmynd er ekki lakari
en fiskeldi og framleiðsla hug-
búnaðar.
Það er þakkarvert að íþyngja
skattborgurum þessa lands ekki um
of með því að auka fjárframiög til
flugmála, því flestir aðrir þættir í
fjárlögum em miklu mikilvægari
og þyldu ekki niðurskurð til eflingar
flugmálum. Það er miklu auðveld-
ara að láta almenning skamma
flugfélögin fyrir há fargjöld en eyða
óþarfa fjármagni til uppbyggingar
flugvalla, sem myndi spara stórfé
í rekstrarkostnaði og þar með lækk-
uð fargjöld.
Það er ánægjuefni að hinir ýmsu
samgönguþættir skuli sitja við
sama borð á hinu háa Alþingi.
Nýlega var ákveðið að reisa brú
yfír Olfusárósa, til að stytta vega-
lengd á milli þriggja byggðakjama,
enda lífsnauðsyn, ef byggð ætti að
haldast þar. Þessi framkvæmd mun
kosta yfír 200 milljónir. Flestir, sem
búa annars staðar á landsbyggð-
inni, munu fagna þessari ákvörðun,
þrátt fyrir að fjárveitingin samsvari
fjögurra árá fjárveitingu til flug-
málaframkvæmda á íslandi.
Þeir skilja þá miklu samgöngu-
erfíðleika, sem viðkomandi byggð-
arlög eiga við að stríða vegna
snjóþyngsla og mikilla Qarlægða á
miili staða.
Að lokum ber að þakka þá ein-
stöku ákvörðun þingmanna á hinu
háa Alþingi íslendinga, að þeir
skuli, í tilefni 50 ára afmælis flug-
sögu á íslandi, veita sömu upphæð
á fjárlögum í ár til flugmálafram-
kvæmda og veitt var tvö síðastliðin
ár. 60 milljónir er ekki lítið fé að
ekki sé talað um ef flugmálastjóm
þarf ekki að greiða af þessu u.þ.b.
10 milljónir aftur í ríkissjóð vegna
tolia og aðflutningsgjalda af nauð-
synlegum tækjum til starfseminnar.
Kæru þingmenn. Það er ljóst, að
afrek ykkar og forvera ykkar í þágu
íslenskra flugmála munu verða
Rúnar Pálsson
„Kæru þingtnenn. Það
er ljóst, að afrek ykkar
og forvera ykkar í þágn
íslenskra f lugmála
munu verða skráð á
spjöld sögunnar og af-
mælisgjöfin á 50 ára
afmælinu þar sérstak-
lega tíunduð. Þið hafið
ennþá tækifæri til að
bæta þar úr, til að koma
í veg fyrir að niðjar
ykkar fyllist sektar-
kennd vegna laklegrar
frammistöðu og hugs-
anlegs dómgreindar-
skorts.“
skráð á spjöld sögunnar og afmælis-
gjöfín á 50 ára afmælinu þar
sérstaklega tíunduð. Þið hafíð enn-
þá tækifæri til að bæta þar úr, til
að koma í veg fyrir að niðjar ykkar
fyllist sektarkennd vegna laklegrar
frammistöðu og hugsanlegs dóm-
greindarskorts. Þið vitið, ef þið
viljið, að mikilvægi góðra og ör-
uggra flugsamgangna er lífsspurs-
mál meginhluta landsbyggðarinnar.
Þið búið með þjóð, sem notar flug-
samgöngur meira en flestar þjóðir
á jarðarkringlunni. Þrátt fyrir það
er sú staðreynd, að evrópskar flug-
vélaverksmiðjur, sem eru að þróa
flugvélar fyrir erfíðustu aðstæður
í vanþróuðum löndum, koma hingað
með vélar sínar til prófunar, því
skilyrði eru hvað líkust hér.
Þessi grein er skrifuð í nokkrum
hálfkæringi en samt í fullri vinsemd
með von um að söguspjöldin taki á
sig glæstari mynd, fyrir ykkar til-
stilli, af þátttöku Alþingis í upp-
byggingu íslenskra flugmála.
Höfundur er umdæmisstfóri Flug-
leiða & Egilsstöðum.
Fyrsta kvöldvaka
Ferðafélagsins
FYRSTA kvöldvaka vetrarins
verður haldinn í Risinu, Hverfis-
götu 105, í kvöld, miðvikudaginn
26. nóvember, segir í frétt frá
Ferðafélagi íslands. Helgi
Bjömsson jöklafræðingur sér um
efni þessarar kvöldvöku í máli
og myndum og ætlar hann að
„svipast um fjallaklasa undir
jöklum“.
Helgi upplýsir að kort hafí verið
gert af yfírborði og botni á vestan-
verðum Vatnajökli, Hofsjökli öllum,
hluta Mýrdalsjökuls og stök snið
mæld á austurhluta Vatnajökls. Um
er að ræða fyrstu nákvæmu kortin
af yfírborði og botni þessara jökla.
Sagt mun frá ferðum um jöklana
og svipast um á yfirborði og jökul-
botni, forvitni okkar svalað um áður
óþekkt landslag, legu eldstöðva og
vatnslóna undir jökli, rennslisleiðir
iss og vatns að virkjuðum fallvötn-
um og líklega farvegi jökulhlaupa
við gos í jökli.
Hér er einstakt tækifæri til þess
að kynnast áður óþekktu landslagi,
sem blasir ekki við augum ferða-
mannsins. Ferðafélagið leggur
áherslu á að kynna sem flesta þætti
í náttúru landsins fyrir íslending-
um.
Að venju verður myndagetraun
sem Tryggvi Halldórsson sér um
og verða bækur veittar í verðlaun
fyrir réttar lausnir.