Morgunblaðið - 26.11.1986, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986
T
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
AÐALBJÖRN KRISTBJARNARSON,
er látinn.
Jaröarförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 28. nóvember
kl. 10.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Styrktar- og
líknarsjóð Oddfellowa.
Ellen Aðalbjarnard. Maastad, Svein Maastad,
Jóhann Aðalbjarnarson, Yordanos Afework,
Unnur, Erik og Morten.
t
Útför móðurbróður míns,
ÓLAFS ALBERTSSONAR,
frá Hesteyri,
síðast til heimilis á Hrafnistu, Hafnarfirði, fer fram frá Fossvogs-
kirkju fimmtudaginn 27. nóvember kl. 15.00.
Blóm og kransar afþakkað, en þeim sem vilja minnast hins látna
er bent á minningarsjóð um foreldra hans hjá Slysavarnafélagi
íslands.
F.h. systra hins látna og annarra ættingja og vina,
Hans Hilaríusson.
t
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa
JÓNS JÓHANNSSONAR,
Mímisvegi 2,
Reykjavfk,
Ásta Þorbjörnsdóttir, börn,
tengdabörn, barnabörn og barna-
barnabörn.
t
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og út-
för eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og bróður,
SIGURÐAR SIGURGEIRSSONAR.
Pólfna Guðmundsdóttir,
Sigurgeir Sigurðsson,
Sigrún Sigurðardóttir,
Anna S. Sigurðardóttir,
Guðrún R. Siguröardóttir,
Kjartan Sigurðsson,
Haraldur Sigurðsson,
Pétur Sigurgeirsson,
Svanhildur Sigurgeirsdóttir,
Guðlaug Sigurgeirsdóttir,
og barnabörn.
Halldór M. Gunnarsson,
Særún Jónasdóttir,
Sólveig Ásgeirsdóttir,
Sigmundur Magnússon,
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall eiginmanns míns,
fööur, tengdaföður, afa, og langafa,
REINHARDTS REINHARDTSSONAR
Æsufelli 2.
Ólöf Önundardóttir,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartans þakkir sendum við öllum er sýndu okkur samhúð og
hlýhug við andlát og útför
SIGURÐAR SVEINSSONAR,
Engihlfð 14.
Margrét Ágústsdóttir, Sfmon Gissurarson,
Linda Sigurðardóttir, Eirfkur Sigurösson.
t
Þökkum hjartanlega vináttu ykkar og samúð við andlát og jarðarför
MAGNÚSAR EINARSSONAR,
Laugum.
Bræöur, mágkonur,
bræðrabörn og tengdabörn.
Ragnhildur Bjama-
dóttir — Minning
Fædd 18. apríl 1893
Dáin 9. nóvember 1986
Ragnhildur Bjamadóttir var ein
þeirra sem lagði meir af mörkum
til annarra en hún viðtók. Þótt
hennar verði ef til vill ekki getið í
annálum eða sögubókum hefur hún
haft jákvæðari áhrif en margir
frægari menn. Því gleði hennar,
gjafmildi og hressileiki smitaði út
frá sér og hefur verið og er mörgum
góð fyrirmynd um það hvemig beri
að lifa lífinu með reisn.
Ég var hjá henni nokkrum dögum
áður en hún lést og útskýrði fyrir
henni hvers vegna mér fannst líf
hennar hafa verið mikilvægt. Ég
gerði það meðal annars vegna þess
að mér fannst eins og hún sjálf
legði ekki mikið uppúr því. Ef til
vill vegna þess að hún var mjög
lítillát og hógvær kona. Ég sagði
henni að ég væri þar að auki mjög
þakklátur henni því ef hún hefði
ekki lifað hefði Helga kona mín og
sonardóttir hennar ekki orðið til.
Heldur ekki sólargeislinn hennar,
Ragnar litli, næst yngsti sonur
minn, sem fékk nafn í höfuðið á
langömmu sinni meðal annars
vegna þess að hún var þess fullviss
að hann yrði strákur. Ég sagði
henni að góðu gjörðir hennar
mundu lifa í minningum fólks og í
breytni þeirra og hún mundi lifa
sterklega í gegnum afkomendur
sína, þá ekki síst litla nafna sinn.
Við þetta brosti hún og virtist öll
hin sáttasta.
Ég kynntist Rögnu, eins og hún
var kölluð, fyrst á menntaskólaár-
unum þegar ég las undir próf á
Landsbókasafninu þar sem hún
vann í fatageymslunni. Seinna meir
styrktust þau kynni er ég vann að
ýmsum rannsóknarverkefnum fyrir
háskólanám mitt í Bandaríkjunum.
Ragna stakk mikið í stúf við al-
varleikann, oft uppgerðan, og
þyngslin á Landsbókasafninu. Hún
var alltaf ljómandi af gleði og fersk-
leika og fljót að koma fólki í gott
skap ef það á annað borð var mót-
tækilegt fyrir jákvæðri hvatningu.
En það sem mest er minnisstæðast
frá starfi hennar var viðhorf hennar
gagnvart því. Þótt starfíð hafi í
augum margra ef til vill ekki verið
mjög hátt skrifað í þjóðfélaginu
sinnti hún því af reisn og ábyrgð
og það var næstum því hátíðleg
athöfn þegar maður lét hana Rögnu
fá yfirföt sín eða bað um þau. Og
hún hafði einstakt lag á því að láta
fólki finnast að það væri sérlega
velkomið í þetta „musteri" fræði-
mennskunnar, jafnvel strákpjakka
úr menntaskóla sem voru vart
komnir uppí lestrarsal þegar þeir
dottuðu yfir skruddunum.
Ragna var elsti flokksfélaginn í
flokknum mínum, Flokki mannsins.
Fyrst hélt ég að hún hefði verið að
gera henni Helgu minni til geðs en
komst fljótt að því að Ragna var
flokksfélagi af lífi og sál. Hún fylgd-
ist vel með þjóðmálum og fannst
einfaldlega.nauðsyn á því að styðja
eitthvert göfugt hugsjónaafl sem
gæti komið hér á manneskjulegu
þjóðfélagi. Enda rak hún mikinn
áróður fyrir flokkinn á elliheimilinu
í Lönguhlíðinni þar sem hún bjó.
Og hún sagðist ekki ætla að fara
úr þessari veröld fyrr en hún væri
þó búin að kjósa flokkinn sinn.
Enda var hún við sæmilega heilsu
fram yfír kosningamar síðustu.
Með þátttöku sinni í flokknum sýndi
hún enn einu sinni að hún lét sig
varða þjóðfélagið og velferð ann-
arra jafnvel þegar hún var það vel
komin til ára sinna að flestir hefðu
algjörlega dregið sig í hlé frá þjóð-
félagsumræðunni.
Ragna gaf af sér fram á síðustu
stund. Betri fyrirmynd um góða
manneskju er ekki hægt að biðja
um. Ef ég ætti að skrifa eftirmála
um Rögnu í einni setningu yrði
hann á þessa leið: „Þetta var
lífsglöð manneskja og tilvera henn-
ar skipti miklu máli.“
Pétur Guðjónsson
Asta Sigmjóns-
dóttir - Minning
Fædd 9. janúar 1897
Dáin 17. nóvember 1986
Ásta Siguijónsdóttir, amma
mannsins míns og langamma dætra
minna, lést á Borgarspítalanum 17.
nóvember sl.
Amma Ásta er mér minnisstæð-
ust sem ættmóðir sem var stolt af
sínu fólki. Hún efaðist aldrei um
að böm hennar, bamaböm og svo
bamabamaböm væm best. Samt
fann ég aldrei annað en hlýju í
minn garð þótt ég væri bara
tengdabam hennar. Og ég held að
hin tengdaböm hennar geti tekið
undir það. Ásta treysti bömum
sínum til að velja sér maka.
Ásta átti þijú böm, Ragnar, Ástu
og Ásgeir, tíu bamaböm og sex
bamabamaböm. Nú eru afkomend-
ur hennar dreifðir út um allan heim,
í þremur heimsálfum. En Ásta
fylgdist vel með þeim öllum og gat
alltaf sagt okkur nýjustu fréttir af
þeim.
Ásta hafði miklar áhyggjur af
bömum nútímans. Skildi ekki
hvemig við nútímamæður gætum
verið að heiman frá bömum okkar
við nám og störf. Okkur ungu kon-
unum fannst hún gamaldags. En
kannski var hún bara raunsæ; sá
að frelsi okkar kvenna liggur ekki
í margfaldri vinnu. Hún valdi sjálf
húsmóðurstarfíð þegar henni
bauðst að taka að sér rekstur Sam-
komuhússins á Akureyri. Það hlýtur
að hafa verið sárt, en þegar hún
sagði okkur frá þessu var hún stolt.
Ásta bjó við mikið baraalán og
átti góða ævi. Hún ólst upp á
Homafírði, en bjó lengst af á Ákur-
ejri með manni sínum, Karli
Ásgeirssyni símritara, sem nú lifir
í hárri elli. Síðustu árin bjuggu þau
í Reykjavík.
Ég kveð þessa glæsilegu konu
með virðingu og þökk.
Ragnheiður Margrét Guð-
mundsdóttir
Birting a fmælis- og
minningargreina
Morgrinblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki
eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er
að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfund-
ar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú,
að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar
eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er
50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
Blómabúöin
C^(é
'44Mm
Hótel Sögu
sími12013
Blóm og
skreytingar
gjafavörur
heimsendingar-
þjónusta
HRINGDU
og fáðu áskriftargjöldin
skuldfærð á greiðslukorta
TH7nnn^Tmr:im.nirTrw
SIMINN ER
691140
691141