Morgunblaðið - 26.11.1986, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1986
Fimmtán af bestu
fimmtarþrautarmönnum
heimsins dæmdir í
langt keppnisbann
- fyrir lyfjanotkun á heimsmeistaramóti
FIMMTÁN af fremstu fimmtar-
► þrautarmönnum heimsins, þeirra
á meöal heimsmethafinn, voru í
fyrradag dæmdir f tveggja og
hálfs árs keppnisbann vegna
ólöglegrar lyfjanotkunnar á
heimsmeistaramótinu í greininni
á ítaliu f sumar. Allir fimmtar-
þrautarmennirnir brutu af sór á
sama hátt — meö því að taka
róandi lyf fyrir skotkeppnina, en
hún er síðasta grein fimmta-
þrautarinnar. Þetta er mesta
lyfjanotkunarmál í fþróttum sem
upp hefur komið um árabil.
Sund:
íslands-
met
KR-ingar settu á laugar-
daginn íslandsmet í 4x50
metra bringusundi karla í
Vesturbæjarlauginni.
Sveitin synti á 2:15.4 mínút-
um og bætti gamla metið um
eina sekúndu. í sveitinni voru
þeir Albert Jakobsson, Jens
Sigurðsson, Arnar Birgisson og
Gunngeir Friðriksson.
Allir íþróttamennirnir nema tveir
koma frá Austur-Evrópu. Fimm eru
frá Sovétríkjunum, þrír frá Búlg-
aríu, fimm frá Póllandi og tveir frá
Bandaríkjunum. Þeirra frægastur
er núverandi heimsmeistari og
fyrrum ólympíumeistari, Anatoly
Starostin frá Sovétríkjunum. Ban-
nið þýðir að enginn þessara
íþróttamanna getur tekið þátt í
ólympíuleikunum í Seoul 1988, og
er reiknað með því að fæstir þeirra
eigi afturkvæmt á íþróttavöliinn
eftir bannið.
Fyrst var keppt í fimmtarþraut
á ólympíuleikunum í Stokkhólmi
1912. Það var Pierre De Coubert-
in, upphafsmaður ólympíuleika
nútímans, sem var aðal hvatamað-
urinn að því að farið var að keppa
í fimmtarþraut. Fimmtarþrautin
byggir á keppni í fimm algjörlega
óskyldum greinum — hesta-
mennsku, skylmingum, sundi,
víðavangshlaupi og skotfimi.
Keppnin tekur fimm daga og er
keppt í einni grein á hverjum degi.
Skotfimin rekur lestina, og það var
fyrir hana sem fimmtánmenning-
arnir tóku ákveðið lyf sem eykur
stöðugleika skothandarinnar með
því að draga úr hjartsláttartíðni.
Þeir hafa sagt að þeim hafi ekki
verið kunnugt um að lyfið væri á
bannlista.
Að sögn Thor Henning, forseta
alþjóðasambands fimmtarþrautar-
manna, hefur lengi leikið grunur á
um að lyfjanotkun væri til staðar
í fimmtarautinni, en engar sannan-
ir hefðu borist þar til í sumar. Talið
er líklegt að keppnisfyrirkomulagi
fimmtarþrautar verði breytt í fram-
haldi af máli þessu og skotfimi og
víðavangshlaup látið fara fram á
einum og sama deginum. Þá
myndu róandi lyf fyrir skotkeppn-
ina gera keppendum útilokað að
ná árangri í hlaupinu.
• Larry Bird hefur leikið mjög vel fyrir Boston það sem af er keppn-
istfmabilinu.
Bandaríski körfuknattleikurinn:
Bird hefur haldið
Boston á floti
Frá Gunnari Valgelrasyni, fréttaritara Morgunblaðsins í Bandaríkjunum:
NÚ þegar tæplega fjórar vikur eru
liðnar af keppnistfmabilinu f
bandarfsku NBA deildinni í körfu-
knattleik er komin upp kunnugleg
staða - Boston hefur forystu í
Austurdeildinni en Los Angeles
Lakers í Vesturdeildinni.
Mikil meiðsli hafa hrjáð leik-
menn Boston það sem af er og
fyrst liðið er í forystu þrátt fyrir
það er búist við að þegar allir verða
heilir þá muni liðið verða óstöðv-
andi. Larry Bird hefur leikið geysi-
lega vel í haust og barátta hans
um allan völl er ótrúleg. Hann skor-
ar mikið, leikur félaga sína upp og
tekur aragrúa frákasta. Boston
hefur unnið átta leiki og tapað
Handknattleikur:
Allt á fullu
hjá kvenfólkinu
• Erla Rafnsdóttir er ein leikreyndusta handknattleikskona íslands,
hún á að baki 57 landsleiki.
— deildin í kvöld og þrír
landsleikir íkjölfarið
ÞAÐ má svo sannarlega segja að
handknattleiksstúlkur hór á landi
hafi í nógu að snúast næstu dag-
ana. Heil umferð er f kvöld hjá
þeim í 1. deildinni og sfðan taka
við þrír landsleikir við Bandaríkin.
Fyrsti leikurinn er annað kvöld
að Varmá í Mosfellssveit og sfðan
á förstudaginn á Seltjarnarnesinu
en sfðasti leikurinn verður f
Digranesi á laugardaginn.
ísland og Bandaríkin hafa leikið
15 kvennalandsleiki í handknatt-
leik. ísland hefur sigrað í átta,
þrívegis hefur orðið jafntefli en
þær bandarísku hafa unniö fjórum
sinnum. Síðasta leik unnu þær
bandarísku 17:20 og var sá leikur
í B-keppninni í fyrra.
Bandarískur handknattleikur er
í mikilli framför um þessar mundir
og réðu þeir til sín hinn þekkta
markvörð Svía, Claes Hellgren, til
þess að rífa landslið þeirra upp.
Bandaríska liðið er á leiðinni í A-
heimsmeistarakeppnina sem
verður í Hollandi 4. — 14. desemb-
er.
Hilmar Björnssdon, landsliðs-
þjálfari sagði í gær að hann vænti
þess að við myndum ná að
minnsta kosti 50% árangri út úr
þessum þremur leikjum.
„Ég vonast til að við snúum þró-
uninni við í þessum leikjum.
Bandaríkin hafa unnið okkur í
síðustu leikjum en nú ætlum við
að vinna þær. Vonandi náum við
jafntefli út úr þessum þremur leikj-
um, það r að segja einn sigur, eitt
tap og eitt jafntefli.
Við erum nú meðfjóra landsliðs-
hópa í kvennaboltanum og erum
að reyna að byggja þetta upp frá
grunni. Landsliöið hefur leikið
marga landsleiki á því ári sem nú
er að líða og stelpurnar eru í betri
æfingu nú en oftast áður þannig
að við vonumst eftir góðum og
skemmtilegum leikjum," sagði
Hilmar Björnsson landsliðþjáfari.
Þess má að lokum geta að á
morgun verður forleikur að Varmá
sem hefst klukkan 18.30 en þar
leika A og B-liö stúlkna úr 3. ald-
ursflokki.
Búist er við að eldri landsliðs-
konur fjölmenni á þessa leiki og
stiðji við bakið á þeim stúlkum sem
nú eru í landsliðinu.
Það kostar aðeins 150 krónur á
hvern leik fyrir fullorðna og 50
krónur fyrir börn.
tveimur. Atlanta, Philadelphia og
Milwaukee eru næst Boston í röð-
inni.
Eftir tap fyrir Houston í fyrsta
leiknum hefur Los Angeles Lakers
unnið átta leiki í röð og getur fyrst
og fremst þakkað það Magic John-
son sem hefur líklega aldrei verið
betri en um þessar mundir. Ég
horfði á leik með Los Angeles í
sjónvarpi hér á dögunum og þá
kom fram hjá íþróttafréttamönnum
sjónvarpsstöðvarinnar að það væri
slæmt fyrir liðið að hafa ekki Pétur
Guðmundsson, því Pétur væri eini
raunverulegi varamiðherji þess fyr-
ir Kareem Abduul Jabbar.
Houston Rockets hafa átt í
nokkrum vandræðum að undan-
förnu og hafa tapað tveimur leikj-
um. Lið Houston er einkum frægt
fyrir turntvíbura sína, eða „twin
towers" eins og miðherjarnir Ralph
Sampson og Akeem Olajuwan eru
gjarnan nefndir. Báðir eru um 2.20
m á hæð. Ralph Sampson hefur
hinsvegar verið frá í nokkrar vikur
vegna meiðsla sem hann hlaut
þegar hann sneri sig á vinstra
fæti. í síöasta leik Houston kom
Sampson aftur inn í liðið en eftir
stutta stund sneri hann sig á
hægra fætinum og verður frá
keppni um óákveðinn tíma.
Félagi Sampsons, Akeem
Olajuwan, þykir einn allra besti
miðherji heims og hann fær laun
í samræmi við það. Hann hefur
núna um 60 milljónir íslenskra
króna í grunnlaun á ári frá félagi
sínu - auk bónusa og auglýsinga-
samninga. Nýlega undirritaði svo
Olajuwan nýjan samning við Hous-
ton Rockets, sem tekur gildi eftir
þrjú ár. Sá samningur er til átta
ára og fær kappinn tvær milljónir
dollara á ári í þessi átta ár, eða
um 80 milljónir íslenskar. Mánað-
arkaupið er því tæplega sjö milljón-
ir króna.
En það þarf heilmikið til að verða
toppleikmaður í atvinnumanna-
deildinni í Bandaríkjunum. Það
sést best á því að sovéska körfu-
knattleikslandsliðið, sem er eitt hið
besta í heimi, er hér á keppnis-
ferðalagi um þessar mundir og
reynir ekki að keppa viö atvinnulið-
in. Það hefur leikið við ellefu
háskólalið til þessa - unnið sex
leiki en tapað fimm. Og forráða-
menn liðsins eru himinlifandi með
þann árangur.