Morgunblaðið - 29.11.1986, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1986
25
og styrkir bílinn um leið. Þá eru
gluggakarmar á hliðunum þannig
gerðir að þeir grípi sem minnst í
loftið.
Klæðningin er vönduð og lagleg,
þar er öllu vei fyrir komið, smá-
munageymslur eru góðar og
margar. Farangursrýmið er einkar
aðgengilegt og rúmgott, stækkan-
legt með því að fella bök aftursæt-
anna.
Niðurstöður
Renault 21 RX er um flest
nýtískulegur bíll hvað tækni og út-
lit varðar, rúmgóður og þægilegur,
sérlega skemmtilegur í akstri, enda
vélarafl yfrið nóg og fjöðrun af-
burða góð.
Honum er ætlað að keppa um
markaðinn í efri flokki millistærðar
og hér á landi a.m.k. ætti hann að
vera fullfær í þá samkeppni, bæði
hvað verð og hæfni varðar.
Renault 21 er ný gerð, var fyrst
settur á markaðinn síðastliðið vor
og er nýkominn til íslands. Hér
ætti hann að geta sýnt hvað í hon-
um býr, mín reynsla er að hann sé
lipur bæjarbíll, þægilegur til ferða-
laga og ekki spillir að útlitið er
laglegt og ber vitni um nýja hönnun.
Helstu kostir
Frábært vélarafl, góð fjöðrun,
gott rými, aksturseiginleikar mjög
góðir.
Helstu gallar
Hemlar ónákvæmir, skálabrems-
ur aftan, þurrkur taka of lítinn
hluta rúðu.
Reynsluakstur:
Renault
21 RX
Verð kr.: 625.081 (nóv. 1986).
Umboð: Kristinn Guðnason hf.
Helstu stadreyndir:
Mesta lengd mm 4465
Mesta breidd mm 1716
Mesta hœð mm 1414
Veg-hæð mm 120
Kigin þyng-d kg 1096
Mesta þyngd kg 1530
Farangursgeymsla ltr. 490
Tankur ltr. 66
SætaQöldi 5
Hám.hraði km/klst. 200
Hröðun 0—100 km/klst., sek. 9,7
Beygjuradíus m 5,3
Vél ererð 4ra strokka
vatnskæld, rafeindastýrð inn-
spýting og kveikja.
Slagrúmmál sm8 1995
þjöppunarhlutfall 10,0:1
afl hö/sn. mín. 120&5500
Togkr. kgm/sn. mín. 17,1/4500
Gírkassi 5 gtra
Fjöðrun framan MacPherson
Fjöðrunaftan sveifluarmar
vindingsstengur
Hemlar framan diskar m. kæliraufum
Hemlar aftan skálar
Hjálparafl, tvöf. kerfi.
Dekk 185/65srl4H
Eyðsla ltr./lOO km
90 km/klst. 5,8
120 km/klst. 7,1
bæjarakstur 10,7
Helsti
búnaður
Hliðarlistar
Þokuljós framan
ÚtispegiU, stillanl. innanfrá
Álímd framrúða
Álímd afturrúða m. hitara
Ökum.sæti m. stillanlegri hæð
Fellanleg sætisbök aftan, 60/40%
Snúningshraðamælir
Mælir f. oltuþrýsting og -hæð
Aðvörunarljós fyrir lítið bensín
Stafræn klukka í mælaborði
Viðvörunarflauta fyrir aðalljós
kveikt
Belti t öllum sætum
Lagnir og loftnet fyrir útvarp
Fáanlegur aukabún-
aður
Rafdrifin sóllúga
Rafdrifnar hliðarrúður og læsingar
m. Qarstýringu
Aflstýri
Leðurklæðning (aðeins TXE-gerð)
Léttmálmfelgur
Gerðir
Renault 21:
Vélarstærð smVhí) Geró
1721/76 TL
1721/90 TS, GTS, RS
1995/120 RX.TXE
2068/67 DIESEL GTD
2068/88 DIESEL TURBO-D
Frá félögum
innan LIF
FRÍMERKI
Jón Aðalsteinn Jónsson
Þeir, sem eitthvað hafa fylgzt
með þessum frímerkjaþætti í
Morgunblaðinu, hafa einstaka
sinnum orðið þess varir, að rætt
hefur verið um starfsemi
frímerkjasafnara úti á lands-
byggðinni. Því miður hefur það
þó of sjaldan verið gert, en þar
er sú afsökun til, að þrátt fyrir
beiðni hefur fátt eitt borizt af
fréttum til þáttarins. Ég vona
samt, að það sé ekki merki um
dvínandi áhuga á frímerkjasöfn-
un. Auðvitað eru mörg tóm-
stundaefnin á þessum tímum,
sem voru áður lítt þekkt og jafn-
vel óþekkt. Þess vegna er ekki
óeðlilegt, þótt tími manna utan
daglegra skyldustarfa nýtist verr
til ýmissa tómstunda en áður
var. Og ég hygg, að frímerkja-
söfnun gjaldi þess að einhveiju
leyti. Engu að síður eru þeir fjöl-
margir hér á landi sem annars
staðar, sem sækja ómælda
ánægju og um leið hvíld í þá iðju
að safna þessum litlu bréfmiðum
— og það á margvíslegan hátt.
Hér á landi eru um þessar
mundir starfandi sex félög og
ktúbbar, sem hafa frímerkjasöfn-
un að aðalmarkmiði. Eru fímm
þeirra í Landssambandj íslenzkra
frímerkjasafnara (LÍF). Eitt
þessara félaga er Frímerkja-
klúbburinn Askja á Húsavík, en
hann hélt tíu ára afmæli sitt
hátíðlegt á þessu ári og m.a. með
frímerkjasýningu, FRÍMÞING
86, í apríl. Frá þessu hefur áður
verið sagt allrækilega og eins
annarri starfsemi Oskjumanna
innan samtaka safnara. Núver-
andi formaður klúbbsins, Eiður
Árnason, hefur sent þættinum
ágæta greinargerð um starfsemi
þeirra á Húsavík og í Þingeyjar-
sýslu. Hefur hún verið ótrúlega
mikil, og eru engin merki þess,
að hún fari minnkandi.
Hinn 15. þ.m var haldinn af-
mælisfundur í klúbbnum á Hótel
Húsavík, þar sem félögum og
gestum var boðið í afmæliskaffí.
Sóttu þennan fund 17 félagar og
gestir. Formaður rakti sögu
klúbbsins í stórum dráttum.
Verðlaunaafhending fór síðan
fram til heimamanna vegna af-
mælissýningarinnar í vor, en
utanhéraðsmenn, sem tóku þátt
í henni, höfðu áður fengið sín
verðlaun send með pósti. Þá voru
þeim Eysteini Hallgrímssyni,
formanni Öskju 1976—1986, og
Óla Kristinssyni, gjaldkera Öskju
um sama tíma, afhentir heiðurs-
peningar með merki FRÍMÞING
86 fyrir störf þeirra um þessi ár.
Þakkaði formaður þeim vel unnin
verk og óeigingjöm.
Gunnar R. Einarsson, stjómar-
maður í LÍF, sat þennan hátíða-
fund sem gestur Öskjumanna
ásamt konu sinni. Flutti hann
kveðjur og ámaðaróskir frá
Landssambandinu og færði
klúbbnum afmælisgjöf sem lítinn
þakklætisvott fyrir ágætt starf
innan sambandsins.
Annars hófst vetrarstarf
Frímerkjaklúbbsins Öskju með
fundi 29. okt. sl. að Höfðabrekku
11 á Húsavík. Þar verða fundir
í vetur annan miðvikudag hvers
mánaðar. Á þennan fyrsta fund
komu tíu félagsmenn og sumir
um alllangan veg. Er þetta vissu-
lega mjög góð fundarsókn, ef
miðað er við höfðatöluregluna,
og mætti verða söfnurum hér á
Stór-Reykjavíkursvæðinu nokkur
ábending um að sækja vel fundi
í félögum sínum.
Aðalverkefni Frímerkja-
klúbbsins Öskju á þessum vetri
verður tilraun til að auka áhuga
bama og unglinga á frímerkja-
söfnun, bæði í skólum á Húsavík
og Laugum, og e.t.v. víðar, ef
áhugi er fyrir hendi meðal nem-
enda. Þetta er vissulega brýnt
verkefni, sem oft hefur verið
rætt og bíður úrlausna meðal
annarra félaga innan LÍF, en
virðist nokkuð torleyst. Enda
þótt umsvif Öskjumanna hafí
verið töluverð á afmælisárinu,
mun fjárhagur klúbbsins verða
allgóður um næstu áramót. Er
vel, að svo verður, en vitaskuld
þarf nokkurt átak til. Þá verða
haldnir sérstakir skiptifundir í
desember og janúar.
Af því, sem hér hefur verið
rakið úr skýrslu formanns
Frímerkjaklúbbsins Öskju, er
ekki annað að sjá en vemlegt líf
sé í starfsemi hinna þingeysku
safnara. Má það vera öðmm fé-
lögum hvatning til dáða. Nú
vænti ég þess, að fá fréttir frá
fleiri félögum til birtingar hér í
þættinum.
Fróðlegt erindi um
íslenzka póstsögu
Hinn 1. nóv. sl. flutti dr. Ebbe
Eldmp, læknir í Kaupmannahöfn,
erindi um íslenzka póstsögu á
vegum Landssambands íslenzkra
frímerkjasafnara. Var það flutt í
hinum rúmgóða sal Landssam-
bandsins í Síðumúla 17. í þætti
25. okt. sl. var sagt nokkuð frá
dr. Eldrup og söfnun hans, og
vísast til þess. Erindi hans var
bæði fróðlegt og skemmtilegt, og
er ljóst, að hann hefur kynnt sér
íslenzka póst- og frímerkjasögu
mjög rækilega frá 1776 og fram
á þessa öld. Dr. Eldrup sýndi með
rabbi sínu mjög vel teknar lit-
skyggnur af fjölda bréfa og
stimpla, sem hann hafði sjálfur
tekið. Gerðu fundarmenn, sem
urðu alls nær 30, mjög góðan róm
að máli læknisins og bám fram
ýmsar spumingar, meðan á því
stóð. Þetta efni er að sjálfsögðu
viðamikið, enda tók flutningur
þess um fjórar stundir. Erindið
skiptist í tvo hluta, og var gert
nokkurt hlé á milli þeirra.
Vídeó-upptaka er til af myndum
og skýringum dr. Eldrups, og mun
hún hafa tekizt allvel. Er ætlunin,
að félög innan LÍF geti fengið
hana að láni síðar í vetur til nota
á fundum, ef áhugi er fyrir hendi.
Heimilisfang:
Póstnúmer: . Borg: ................
—
Menntaöu þig í
Bygginga-
og iðnfræði
Vinsamlegast sendiö mér eintak af upplýsingabæklingnum BTH
Kennsla hefst 12. janúar 1987. Innritun á sama tíma. Hringiö
og fáið sendan upplýsingabækling i síma 05-625088 eöa send-
iö úrklippuna til:
Byggteknisk Hojskole
Slotsgade 11-8700 Horsens — Danmark
ASEA CYLIINIDA
Þvottavélar og þurrkarar
...eins og hlutirnir gerast bestir:
Árangur náinnar samvinnu sænsku neytendastofnunarinnar KONSUMENTVERKET,
textilrannsóknastofnunarinnar TEFO og tæknirisans ASEA. Nýsköpun sem fær hæstu
einkunnir á upplýstasta og kröfuharðasta markaði heims fyrir árangur, taumeðferð
og rekstrarhagkvæmni.
ASEA CYUNDA tauþurrkari
Skynjar sjálfur hvenær tauið er þurrt, en
þú getur lika stillt á tíma.
114 lítra tromla, sú stærsta á markaðin-
um. Það þarf nefnilega 2,5 sinnum stærri
tromlu til að þurrka i en til að þvo í.
Tekur því úr þvottavélinni í einu lagi.
Mikið tromlurými og kröftugt útsog í
stað innblásturs stytta þurrktíma, spara
rafmagn og leyfa allt að 8m barka.
Neytendarannsóknir sýna að tauið slitnar
ekki né hleypur í þurrkaranum, heldur
losnar aðeins um lóna af notkunarslitinu.
Það er kostur, ekki síst fyrir ofnæmisfólk.
Sparar tíma, snúrupláss og strauningu.
Tauið verður mjúkt, þjált og slétt, og æ
fleiri efni eru gerð fyrir þurrkara.
Getur staðið á gólfi eða ofan á þvottavél-
inni.
ASEA CYLINDA þvottavélar
Þvo best, skola best, vinda best, fara best
með tauið, nota minnst rafmagn.
Vottorð upp á það.
Gerðar til að endast, og i búðinni bjóðum
við þér að skyggnast undir glæsilegt
yfirborðið, því þar er ekki síður að finna
muninn sem máli skiptir: trausta og
stöðuga undirstöðu, vöggu á dempurum
í stað gormaupphengju, ekta sænskt
ryðfrítt krómnikkelstál, SKF-kúlulegur á
35 mm öxli, jafnvægisklossa úr járni i
stað sandpoka eða brothætts steins o.fl.
Athyglisverð er líka 5-laga ryð-og rispu-
vörn, hosulaus taulúga, hreinsilúga,
grófsía, sápusparnaðarkerfi með lyktar-
og hljóðgildru, stjórnkerf: með framtið-
arsyn og fjölhraða lotuvinding upp í
1100 snúninga.
NYTT SIMANUMER
69-11-00
JHovxymiþTútiivi
ASEA CYLINDA er nú eini framleiðandi heimilisþvottavéla á Norðurlöndum. Með stóraukinni framleiðslu og tollalækkun er verðið hagstætt. Og víst er, að gæðin borga sig, STRAX vegna betri og ódýrari þvottar, SÍÐAR vegna
betri endingar.
E JFQniX &
HÁTÚNI6A SÍMI (91)24420
j