Morgunblaðið - 03.12.1986, Qupperneq 1
64 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
273. tbl. 72. árg.
MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
íhaldsflokkurinn
styrkir stöðu sína
■
London, Reuter.
BREZKI íhaldsflokkurinn,
flokkur Margaret Thatcher, for-
sætisráðherra, hefur ekki notið
meira fylgis siðustu tvö árin,
samkvæmt nýrri skoðanakönnun
MORI, sem birt var í gær.
Samkvæmt könnuninni myndu
41% kjósenda styðja íhaldsflokkinn,
ef kosið væri nú, en 39% Verka-
mannaflokkinn. Kosningabandalag
Fijálslynda flokksins og Jafnaðar-
mannaflokksins nýtur fylgis 18%
kjósenda.
Verkamannaflokkurinn hafði
mest fylgi í byijun árs, en íhalds-
flokkurinn heftir sótt verulega á og
komið betur út í sjö umfangsmiklum
skoðanakönnunum í röð. Sam-
kvæmt lögum þurfa kosningar ekki
að fara fram í Bretlandi fyrr en
1988, en búizt er við að Thatcher
boði til kosninga með vorinu.
Carlucci sagður
vera fyrirmynd-
ar embættísmaður
AP/SImamynd
Frank Carlucci
Washington, AP.
RONALD
Reagan,
Bandaríkja-
forseti, út-
nefndi Frank
Carlucci ör-
yggisráðgjafa
sinn í stað
Johns Poin-
dexter, sem
hrökklaðist
frá á dögun-
um vegna
vopnasölunn-
ar til írans.
Hann er sagð-
ur fyrirmyndar embættismaður.
Carlucci var tekinn fram yfir
David Abshire, sendiherra Banda-
ríkjanna hjá NATO, Jeane Kirk-
patrick, fyrrum sendiherra hjá
Sameinuðu þjóðunum, Brent
Snowcroft hershöfðingja og Bobby
Inman, fyrrum aðstoðarforstjóra
CIA.
Talið er að útnefning Carluccis
sé málamiðlun og er hermt að
George Shultz, utanríkisráðherra,
og Caspar Weinberger, varnarmála-
ráðherra, haft báðir stutt útnefn-
ingu hans þar sem hann hafi haft
það orð á sér sem embættismaður
að geta haldið stjórnmálum utan
starfsins.
Hann gekk í bandarísku utanrík-
isþjónustuna árið 1956, skömmu
eftir að hann útskrifaðist úr Prince-
ton-háskólanum. Hann var sendi-
herra í Portúgal um þriggja ára
skeið. Hann gegndi háum ábyrgðar-
stöðum í valdatíð Geralds Ford,
Jimmys Carter og Reagans, en
hvarf árið 1982 úr opinberri þjón-
ustu og stofnaði eigið ráðgjafarfyr-
irtæki í Washington.
Jimmy Carter, fyrrum forseti,
útnefndi Carlucci sem aðstoðarfor-
stjóra leyniþjónustunnar (CIA) árið
1978 og tveimur árum seinna gerði
Reagan hann að aðstoðarvarnar-
málaráðherra sínum.
Með seglin þanin
AP/Sfmamynd
Brezka skútan White Crusader (fjær) tæpri bátslengd á undan
bandarísku skútunni Eagle í undankeppni siglingakeppninnar
víðfrægu, America’s Cup. Margar skútur frá öllum heimsálfun-
um taka um þessar mundir þátt í undankeppninni, sem fram
fer við Fremantle í Ástralíu. Eftir sigurinn í gær er brezka
skútan í fimmta sæti. Fjórða umferðin hefst í dag en úrslita-
keppnin fer fram á næsta ári.
Noregs-
banki
hækkar
vexti
Osló, AP.
NORSKI seðlabankinn, Norges
Bank, hækkaði forvexti í gær úr
14% í 16%. í yfirlýsingu frá bank-
anum sagði að hækkunin væri
nauðsynleg vegna stöðu norsku
krónunnar.
í yfirlýsingunni sagði að staða
krónunnar hefði versnað vegua nei-
kvæðs greiðslujafnaðar, mikillar
verðbólgu heimafyrir og óvissu á
gjaldeyrismarkaði, sem rekja mætti
fyrst og fremst til pólitísks óstöðug-
leika. Gunnar Berge, fjármálaráð-
herra, lýsti yfir að gengi krónunnar
yrði ekki fellt þrátt fyrir þrýsting.
Norska krónan var lækkuð um 12%
gagnvart 13 öðrum gjaldmiðlum í
maí sl., aðeins tveimur dögum eftir
að stjóm Verkamannaflokksins
komst til valda. Að undanfömu hefur
norski seðlabankinn hvað eftir annað
gripið tii ráðstafana til að gengi krón-
unnar gagnvart viðmiðunargjaldmiðl-
unum héldist óbreytt.
Ríkisstjóm Frakklands ákvað í gær
að ganga til samninga um kaup á
jarðgasi af Norðmönnum á tímabilinu
1993-2023. Bjóðast Frakkar til að
kaupa árlega 6 milljónir rúmmetra
af jarðgasi af Trölla- og Sleipnis-
svæðunum í Norðursjó og vilja halda
opnum möguleika á að auka magnið
í 8 milljónir rúmmetra. Frakkar settu
það skilyrði fyrir kaupunum að Norð-
menn ykju innflutning frá Frakk-
landi. Norska stjórnin synjaði
Frökkum um sérstök forréttindi en
lofaði að stuðla að auknum viðskipt-
Reagan óskar eftír
rannsóknardómara
Washington, AP. Reuter.
RONALD Reagan, Bandaríkja-
forseti, sagði að innanhússrann-
sókn í Hvita húsinu á vopnasöl-
unni til Irans og peningagreiðsl-
Hljóðnemar finnast enn í
sendiráði Svía í Moskvu
Stokkhólmi, frá Erik Liden, fréttaritara Morgnnblaðsins.
RÚMLEGA hundrað hljóðnem- veggjareininga. Nú er í ljós komið
ar hafa fundizt í sænska
sendiráðinu í Moskvu og koma
nýir fram nær daglega. Sovézk
yfirvöld hafa neitað allri vitn-
eskju um hljóðnemana.
Skýrt hefur verið frá því að
þegar sendiráðið var í byggingu
á árunum 1968-72 hafí Sovét-
menn þvingað bygginganefndina
til að samþykkja notkun sovézkra
að þær voru útbúnar með hlerun
í huga. Hljóðnemar voru faldir
inni í múmum og leiðslur lagðar
í steypustyrktaijárnið í veggjar-
einingunum. Útbúnaðurinn var
þannig úr garði gerður að útilokað
var fyrir sænska öryggisverði og
leyniþjónustumenn að uppgötva
hleranirnar. Meðal annars var
ytra borð veggjareininganna úr
plasti sem á að útiloka hlerun.
Þessu mættu Rússar með því að
leggja leiðslur í hljóðnemana um
steypustyrktarstálið.
Upp komst um hleranir í sendi-
ráðinu þegar unnið var að lagfær-
ingum á húsakynnum þess. Hafin
var nánari leit, sem stendur enn
yfír, og hefur á annað hundrað
hljóðnema fundizt. Sérfræðingar
segja að vilji menn tryggja sig
fyrir hlerunum verði að endur-
byggja sendiráðið stein fyrir stein.
um til Contra-skæruliða i
Nicaragua hefði leitt í ljós að
ástæða væri til að óska eftir
útnefningu óháðs rannsóknar-
dómara til að kanna vopnasölu-
málið ofan í kjölinn. „Ekkert
verður undan dregið og ef í ljós
kemur að lög hafi verið brotin
verða hinir seku látnir gjalda
þess,“ sagði forsetinn í sjón-
varpsávarpi til bandarísku
þjóðarinnar.
Reagan sagðist hafa skipað
Edwin Meese, dómsmálaráðherra,
að útnefna rannsóknardómara til
að rannsaka vopnasöluna til írans.
Búizt er við að hæstaréttardómari
verði fyrir valinu.
Reagan sagði að tryggt hefði
verið í bak og fyrir að allir angar
vopnasölumálsins yrðu dregnir
fram í dagsljósið þar sem hann
hefði skipað sérstaka nefnd til að
gera úttekt á málinu auk þess sem
hann hefði nú ákveðið að fela sér-
stökum rannsóknardómara að
kanna málið.
Skoðanakönnun, sem gerð var
fyrir New York Times og ABC-
sjónvarpsstöðina, og birt í gær,
sýndi að traust þjóðarinnar á Reag-
an fer þverrandi. 46% styðja hann
nú en 67% fyrir mánuði. Þingfylgi
hans hefur einnig minnkað og í
gær krafðist Richard Lugar, einn
helzti stuðningsmaður hans í öld-
ungadeildinni, að forsetinn viki
starfsmannastjóra sínum, Donald
Regan, og William Casey, yfir-
manni leyniþjónustunnar (CIA), úr
starfi.
Talsmaður Richards Nixon,
fyrrum Bandaríkjaforseta, sagði í
gær að Reagan hefði haft samband
við Nixon 21. og 29. nóvember og
ráðfært sig við hann vegna þeirra
örðugleika sem hann væri kominn
í út af vopnasölunni til írans. Nix-
on hrökklaðist frá völdum 1974
vegna Watergate-hneykslisins.