Morgunblaðið - 03.12.1986, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 3. DESEMBER 1986
31
AP/Símamynd.
Sigri fagnað
Kínameistarinn í vaxtarrækt kvenna þetta árið, Chen Jing, hampar
sigri hrósandi verðlaunagripnum í keppninni er fram fór í borginni
Shenzhen um sl. helgi. Þetta var í fyrsta skipti sem konum var leyft
að klæðast bikinifötum opinberlega í keppni sem þessari í Kína og
vakti það gífurlega athygli áhorfenda sem flykktust til að sjá keppn-
ina. Chen Jing er 27 ára gömul og starfar sem loftfimleikamaður.
Miinchen:
Hlýjasti nóvem-
ber í heila öld
MUnchen, frá Berg^jótu Friðríksdóttur, fréttaritara Morgunbladsins
VEÐRIÐ hér í Vestur Þýzkalandi undanfarna mánuði hefur
verið með eindæmum gott, og muna elztu menn ekki aðra eins
blíðu. Enda varla von, þvi að nóvembermánuður nú, mældist sá
hlýjasti í heila öld, að því er fram kemur í Siiddeutsche Zeitung
nú um helgina.
Þangað til fyrir viku, hengu
vetrarflíkur flestra Miinchenbúa
enn í skápum og menn sprönguðu
um léttklæddir. Fyrri hluta mán-
aðarins fór hiti í 21 stig og lágu
borgarbúar í Enska garðinum og
sóluðu sig, eins og á vori væri.
Segja má, að sól hafi skinið nær
hvern dag undanfarinn mánuð og
er þetta því ekki aðeins heitasti
nóvember í hundrað ár, heldur
einnig sá sólríkasti.
Nú á allra síðustu dögum hefur
kólnað lítillega um allt land og eru
Þjóðveijar minntir á, að veturinn
er í nánd. Enn hefur þó ekki fallið
snjókorn í Munchen og nágrenni
og aðeins fjallatoppar snæviþaktir.
Margir höfðu vart leitt hugann að
því, að jólin væru í nánd, enda
15-21 stiga hiti ekkert venjulegt
jólaveður hér um slóðir.
Síðast liðinn laugardag var þó
séð til þess að borgarbúar kæmust
í jólaskap, þegar tendruð voru ljós
á 28 metra háu grenitré sem reist
hefur verið á Maríutorgi, aðaltorgi
borgarinnar. Sama dag hófst hinn
árlegi jólamarkaður Miinchenbúa,
sem á rætur að rekja allt til ársins
1310. Á útimarkaðnum er boðið
upp á alls kyns jólaskraut og
gjafavöru og svo auðvitað það,
sem er ómissandi í ,jólavertíð-
inni“, jólaglöggið.
En það er fleira, sem er ómiss-
andi um jólin að margra mati. Það
er auðvitað snjórinn og telja ýmsir
varla hægt að halda hátíðleg jól,
ef auð er jörð. Því verður vafa-
laust beðið með óþreyyju þess,
hvort Munchenbúar fá hvít jól,
eftir þetta óvenjulega hlýja haust.
Island á 19. öld
eftir Frank
Ponzi listfræð-
ing.
Góð bók
A annað hundrað
mynda sem sumar
hafa aldrei birst áður
Áðuróbirtardag-
bækur úr íslandsferð
um tveggja prinsa.
Á íslensku og ensku.
Óskagjöf tilvinaer-
rrank Ponzi
ÍSLAND Á 19. ÖLD
LAbangrar og listamenn
jpjljj§j|§
19TH CENTURY
Artists and Odysseys