Morgunblaðið - 03.12.1986, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1986
53
Kjarvalsmálverkið sem afhent var er málað i Svínahrauninu 1939.
Selfoss:
Árvökunefndin frá 1972
afhendir bæjarstjórn
Kjarvalsmálverk
Málverkið var keypt fyrir verðtryggðan
hagnað af hátíðahöldunum 1972
Selfossi.
FRAMKVÆMDANEFND . Ár-
vöku Selfoss 1972 afhenti
bæjarstjórn Selfoss til eignar
Kjarvalsmálverk sem skreyta á
sali félagsheimilisins Ársala.
Málverkið var keypt fyrir ágóða
af Árvökunni 1972 og sölu heim-
ildarrits um Selfoss sem kom út
í tilefni hátíðarinnar.
Árvakan 1972 var haldin að
frumkvæði þriggja manna, Haf-
steins Þorvaldssonar, Jónasar
Ingimundarsonar og Guðmundar
Daníelssonar. Þeir fengu síðan til
liðs við sig fleira fólk til að vinna
að undirbúningnum.
Hátíðahöld þessi stóðu dagana
29. mars-3. apríl 1972 og voru þau
fyrstu sinnar tegundar á Selfossi.
Fyrirtæki og stofnanir kynntu
starfsemi sína, haldin var heimilis-
iðnaðarsýning og hin ýmsu félög
stóðu fyrir dagskráratriðum.
Guðmundur Daníelsson flutti
ávarp við afhendingu málverksins
þar s'ern hann gerði grein fyrir til-
urð þessarar hátíðar og hvemig
þeir Hafsteinn og Jónas hefðu lokk-
að hann til að ganga í félag með
sér til að vinna að framgangi máls-
ins. Þeir Jónas og Hafsteinn sögðu
að þörf hefði verið á fjölmiðlamanni
og enginn sterkari á svellinu í þeim
efnum en Guðmundur.
Jónas sagði við afhendinguna frá
því að haldinn hefði verið blaða-
mannafundur um þessa hátíð 1972,
í Skíðaskálanum. Þar mætti ein-
ungis einn blaðamaður og hálftíma
of seint. Þá gripu þeir félagar til
þess ráðs að fara inn á allar rit-
stjómarskrifstofur blaðanna í
Reykjavík. Á skrifstofu Vísis, sem
var síðust í röðinni, hefði Guðmund-
ur haft á orði, þegar ritstjórinn
ætlaði að hafa uppi afsakanir yfir
því að hafa ekki sent mann í Skíða-
skálann, að þeim hefðu líklega orðið
á mistök að drepa ekki kokkinn og
brenna skálann því þá hefðu þeir
örugglega komið blaðamennimir og
ljósmyndarar með. En brýning Guð-
mundar á ritstjómarskrifstofunum
hreif og öll birtu blöðin frásagnir
af hátíðahöldunum og fólk kom víða
að til að fylgjast með þeim.
Jónas Ingimundarson, Hafsteinn
Þorvaldsson og Guðmundur
Daníelsson voru frumkvöðlar að
Árvökunni 1972.
Árvakan 72 er öllum Selfoss-
búum, sem hana muna, vel í minni
og tókst mjög vel í alla staði. Þeg-
ar framkvæmdanefndin gerði upp
reikningana kom í ljós að hagnaður
nam krónum 218.574,20, gömlum
að sjálfsögðu. Þá vom keypt verð-
tryggð skuldabréf ríkissjóðs fyrir
215 þúsund og þau afhent hrepp-
stjóranum Ingva Ebenhardssyni til
varðveislu. Tími þessara bréfa rann
út í september sl. og þá var verð-
gildi þeirra komið í 499.832,40
krónur.
Forsprakkar Árvökunnar komust
að þeirri sameiginlegu niðurstöðu
að kaupa Kjarvalsmálverk fyrir 525
þúsund og velja því stað í giæsilegu
félagsheimili Selfossbúa. Til að fjár-
magna þau 25 þúsund sem á milli
ber hyggst nefndin halda áfram
sölu upplýsingaritsins frá 72, sem
er mjög greinargott, 155 bls. í nokk-
uð stóru broti og geymir sögu
Selfoss fram til ársins 1972. Það
var Guðmundur Daníelsson sem
hafði veg og vanda af því riti. Ritið
má fá keypt í Prentsmiðju Suður-
lands- Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Arvökunefndin ásamt bæjarstjóm Selfoss.
Kirkja vors Guðs
er gamalt hús
Bíldudalskirkja stendur á lítt
áberandi stað á sléttri eyri, en hún
myndi sóma sér vel hvar sem er
því hún er hið reisulegasta hús.
Svo rúmgóð að hún tekur tvö-
hundurð og fimmtíu manns í sæti,
sem er mikið miðað við stærð
safnaðarins þegar hún var byggð.
En þá er þess að geta að Bíldudal-
ur var í hröðum uppgangi og fór
fólki þar fjölgandi þegar mesti
athafnamaður landsins, Pétur
Thorsteinsson, var búinn að
byggja upp staðinn í athafna- og
félagsmálum. Sumir kölluðu hann
Amarfjarðarkónginn og vissulega
var hann kóngur í ríki sínu. Mað-
ur með hugsjónir langt á undan
sinni samtíð. Þeir voru ekki á
hveiju strái í þá daga. Enda gerð-
ust hér þeir hlutir sem hreinlega
þekktust hvergi annars staðar á
landinu. Hér í kauptúninu stendur
minnisvarði um hjónin Pétur og
Ásthildi eftir Ríkharð Jónsson.
Þau hjónin áttu mörg böm. Eitt
þeirra var Muggur listmálari, en
honum vr reistur minnisvarði
1981 á 90 ára afmæli hans.
Muggur var mjög ástsæll með
þjóðinni. Eitt verka hans er altari-
staflan í Bessastaðakirkju. Það
mun hafa kostað tólf þúsund
krónur að byggja kirkjuna hér á
Bíldudal, sem mun hafa verið
mikið fé í þá daga, því þá kotuðu
allir hlutir færri aura en krónur
nú. Bíldudalskirkja er úr steini
með viðarinnréttingu. Stöpullinn
er einnig steyptur með áttstrend-
um timburtumi. Krossmarkið efst
Bíldudalskirkja
y
á tuminum er í 17,5 m hæð.
Ymsa gamla merka muni á Bfldu-
dalskirkja sem hún fékk úr
Otradal. Þar var áður prestsetur
og sóknarkirkja suðfírðinga svo
og kirkjugarður. Þessir munir eru
altaristafla fi-á 1737 með síðustu
kvöldmáltíðinni, hún hangir ekki
yfír altarinu, þar er nýrri tafla
máluð af Þórami B. Þorlákssyni
1916, sem sýnir Maríu við gröfína
er Kristur mælti til hennar og
segir. „Kona, því grætur þú?“
Annar fomgripur kirkjunnar er
predikunarstóllinn frá 1699. Á
honum em myndir af Kristi og
postulunum.
Þriðji fomgripurinn er skímar-
fomtur með mynd af skím Jesú.
En munir Bfldudalskirkju minna
ekki aðeins á liðna tíð. Inn í þess-
um helgidómi er stór og mikil bók
er geymir minningar og svipmót
og æviatriði þeirra mörgu
Bflddælinga er fórust með vélskip-
inu Þórmóði nóttina milli 17. og
Altaristaflan og predikunarstóllinn i Bildudalskirkju.
18. febrúar 1943. Mun Jens Her-
mannsson skólastjóri hafa staðið
fyrir því að þessi bók er til f dag.
Að sumri verður reistur minni-
svarði um þá sem fórust með
Þormóði og alla sem farist hafa
frá Amarfírði í tímans rás og
verður honum valinn staður við
kirkjuna inni á lóð hennar. Enn-
fremur eru silfurskildir sem
tilheyra þessu sjóslysi og öðmm.
Til minningar um þá sem með hug
og hönd unnu mikið starf við að
byggja hér þetta kirkjuhús skal
fyrstan telja Rögnvald Ólafsson,
en hann teiknaði kirkjuná. Rögn-
valdur var fyrsti arkitekt landsins.
Múrarar voru þessin Þorkell Ól-
afsson, Reykjavík, Þorsteinn
Guðmundsson og Finnbogi Jó-
hannsson, báðir frá Bíldudal.
Trésmiðir: Bjöm Jónsson, Krist-
inn Grímur Kjartansson og
Valdimar Guðbjartsson, allir frá
Bfldudal.
Þessi minnisvarði þeirra er nú
orðinn 80 ára gamall og sem von-
andi á eftir að þjóna um langan
tíma og bjóða kynslóðum sóknar-
innar skjól í stormbyljum lífsins.
Megi hún standa sem lengst.
Þeir prestar sem þjónað hafa
við Bíldudalskirkju frá fyrstu tíð
I til þessa dags eru: Jón Amason,
Helgi Konráðsson, Jón Jakobsson,
Jón Kr. ísfeld, Sigurpáll Óskars-
son, Óskar Finnbogason, Tómas
Guðmundsson (þjónaði frá Pat-
reksfírði), Hörður Þ. Ásbjömsson,
Erlendur Sigmundsson, Þórarinn
Þór (prófastur á Patreksfirði),
Dalla Þórðardóttir og núverandi
prestur, Flosi Magnússon.
Meðal annars af þessum tíma-
mótum kirkjunnar var henni að
berast vegleg peningagjöf frá
Fiskvinnslunni á Bfldudal hf. Mun
þetta fé verða notað til endurbóta
á kirkjunni. Guð blessi glaða gef-
endur. Ég læt þess líka getið hér
að á þessu árí átti Bfldudalskirkju-
garður 60 ára afmæli, þann 7.
febrúar sL Þann grafreit vígði
séra Jón Ámason, og um 1980
var garðurinn stækkaður og þá
var sá hluti vígður af séra Þór-
ami Þór prófasti á Patreksfírði.
Garðurinn var mikið endurbættur
í sumar og annaðist Ómar Óskars-
son listamaður það verk.
Höfundur er umsjónarmaður
kirkjunnar á Bíldudal.
eftirJón Kr. Ólafs-
son
Bfldudalskirkja verður 80 ára
2. desember 1986. Kom mér þá
í hug að vel væri þess vert að
minnast þessara tímamóta í stuttu
máli. Bjami Símonarson prófastur
á Bijánslæk vígði kirkjuna 2. des-
ember 1906. Ásamt honum voru
við athöfnina séra Jón Amason
sem var að taka við sem fyrsti
sóknarprestur Bíldudalskirkju, en
þar áður var hann prestur í Otra-
dal. Við þessa athöfn var einnig
séra Böðvar Bjamason prestur á
Hrafnseyri.