Morgunblaðið - 10.12.1986, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 10.12.1986, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 1986 Oratorían Messías: „Aldrei hefur jafn- fögur tónlist heyrst“ Pólýfónkórinn og Sinfóníuhljómsveit íslands í Hallgrímskirkju Pólýfónkórinn og Sinfóníuhljóm- sveit Islands flytur Oratoriuna Messías eftir Handel í Hallgríms- kirkju, fimmtudaginn 11. desem- ber kl. 20.00. Pólífónkórinn hefur nokkrum sinnum áður flutt þessa Oratoriu undir stjórn Ingólfs Guðbrandssonar, en þetta er fyrsti heildarflutningur verksins hér á landi. Það lá því beint við að spyija Ingólf hvaða sess Oratorian Messias skipaði i tónlistarlífinu: „Messías er sennilega vinsælasta verk allra tíma og langþekktasta verk barrokktímans." Hvers konar verk er Messias? Er þetta kirlqulegt verk? „Texti óratoriunnar er settur saman úr ýmsum ritum Biblíunnar, einkum Gamla testamentinu. Að því leyti er verkið trúarlegs eðlis, en er ekki miðað við neina kirkjulega athöfn og var ekki samið til flutn- ings í kirkju. Messías er dramatískt verk, sa- mið til flutnings í leikhúsi. Frum- flutningnum árið 1742 var svo vel tekið að fólk gekk af göflununum af hrifningu og vitnað er í samtíma- heimildir sem segja „Aldrei hefur jafn fögur tónlist áður heyrst. Okunnugir ímynda sér að verk um trúarleg efni hljóti að vera með miklum alvöruþunga og langdregið áheymar. En frá upphafí leit al- menningur á Oratoríuna Messías sem skemmtitónlist. Fólk þyrptist að Hándel til að þakka honum fyrir skemmtunina, eftir flutning Orato- ríunnar, „Þetta er frábær skemmt- un,“ og annað í þeim dúr voru fyrirsagnir blaðanna á þeim tíma. En Hándel sagði sjálfur: „Mér þykir leitt ef ég hef aðeins skemmt ykkur, vegna þess að mig langaði að gera ykkur að betri mönnum." I mínum augum skipar Oratorían Messías þennan óvenjulega sess. Þetta samband af gleði og trúar- legri alvöru. Hándel var fyrst og fremst óperutónskáld en tók að semja óratoríur þegar áhuginn á óperum hans fór dvínandi í London, en Hándel var mikill heimsmaður og hafði áratugum saman umgeng- ist aðals- og kóngafólk og unnið í þeirra þágu. Hann var viðhafnar- persóna og því er alltaf grunnt á því veraldlega í verkum hans, jafn- vel þótt textinn fjalli um trúarlegt efni. Þeir sem þekkja Gamla testa- mentið vita líka að frásögn þess er mjög veraldleg og kemur inn á flest VEBURHORFUR í DAG: YFIRLIT á hádegi í gœr: Um 200 kílómetra suður af Vestmannaeyj- um er 984 millibara smálægð sem hreyfist lítið, en 600 kílómetra suður af Hvarfi er 950 millibara viðáttumikil og vaxandi lægð á leið norðaustur. Hlýna mun í veðri þegar líður á nóttina. SPÁ: í nótt og í morgun var búist við að skil gengju norðaustur yfir landið með suðaustan hvassviðri eða stormi og rigningu. Á hádegi verða skilin því sem næst komin yfir landið, en við tekur hægari sunnan- eöa suðaustanátt með skúrum eða slydduéljum. Talsvert hlýnar meðan skilin ganga yfir, en síðdegis ætti að verða 1 til 5 stiga hiti. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: FIMMTUDAGUR og FÖSTUDAGUR: Suðlæg eða suðaustlæg átt og viðast frostlaust, þó heldur kólnandi á föstudag. Slydduél um sunnan- og vestanvert landiö, en úrkomulítiö norðaustanlands. TÁKN: Heiðskírt ▼ á Léttskýjað Háifskýjað A m Skýjað Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: " Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * 0 Hitastig: 10 gráður á Celsíus V Skúrir * V E1 — Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld CXD Mistur —Skafrenningur Þrumuveður 'Wi w w ék VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 í aær að ísl. tíma hltl veftur Akureyri —6 alskýjað Reykjavlk -2 skýjað Bergen 9 rlgnlng Helslnkl 1 súld Jan Mayen 1 þokumóða Kaupmannah. 5 þokumóða Narssarssuaq -14 skýjað Nuuk -7 alskýjað Osló 6 rignlng Stokkhólmur 5 þokumóða Þórshöfn 3 skýjað Algarve 15 lóttskýjað Amsterdam vantar Aþena 12 hátfskýjað Barcelona 10 rignlng Berlín 4 mlstur Chlcago vantar Glasgow 8 lóttskýjað Feneyjar 8 þokumóða Frankfurt 5 þokumóða Hamborg 10 heiðskírt Las Palmas 20 skýjað London 8 lóttskýjað LosAngeles vantar Lúxemborg 7 skýjað Madrfd 9 lóttskýjað Malaga 14 lóttskýjað Mallorca 16 úrk. fgr. Mlaml vantar Montreal vantar Nlce 11 rigning NewYork vantar Parfs 9 lóttskýjað Róm 14 þokumóða Vfn -3 þokumóða Washlngton vantar Winnlpeg vantar Pólýfónkórinn og Sinfóníuhljómsveitin við æfingu á Messíasi svið mannlífsins og frásögnin er mjög dramatísk. Allra þessara áhrifa gætir í Messí- asi. Verkið er afar fjölbreytt og blæbrigðaríkt. Líklega hefur ekkert verk tónbókmenntanna haft jafn- sterk áhrif á almenning. I ensku- mælandi löndum er flutningur þess fastur þáttur í jólahaldinu. Eg held að sönnum Breta fínnist engin jól, án þess að fara á hljómleika og hlýða á Messías. Það má fullyrða að engin æðri tónlist hafí notið slíkra vinsælda og haft jafnsterk menningarleg áhrif á almenning og Oratorían Messías eftir Hándel. Verkið er óendanleg uppspretta af fegurð í orðum og tónum og því betur sem það er les- ið niður í kjölinn, kemur í ljós, að e.t.v. rúmar það alla speki hins kristna heirns." Hvaða sögu segir verkið? „Verkið skiptist í þijá þætti: Sá fyrsti fjallar um spádómana um komu Krists, fæðingu hans og hin fyrstu jól. Annar þáttur ijallar um pínu og kvöl frelsarans og endur- lausn mannkynsins fyrir friðþæg- ingu hans. Þriðji þátturinn er einskonar þakkargjörð fyrir þá gjöf til mannkynsins að Kristur kom niður til jarðar til að frelsa allt mannkyn. Verkinu lýkur með tvö- faldri ftigu, þar sem raddir kórsins og hljóðfæranna spinna meistara- legan tónvef, sem er eitt þekktasta dæmið um snilld Hándels og bar- rokktimans." Hvemig er Pólýfónkórinn skipað- ur núna? „Hann er skipaður níutíu söng- röddum, heldur fámennari en oftast áður, en ég geri mér vonir um að þetta verði besti Pólýfónkórinn sem heyrst hefur á Islandi. Eg þori ekki að vonast eftir að kórinn fari fram úr því besta sem hann hefur gert erlendis við bestu hljómskilyrði.“ Hvert er álit þitt á hljómburði Hallgrímskirlq'u? „Starfsemi Pólífónkórsins hefur alla tíð liðið fyrir það að ekki var til hús sem hljómaði nógu vel fyrir flutning hinna stærri verka. Fyrir allmörgum árum lagði ég talsvert fé af mörkum til Hallgrímskirkju með því skilyrði að hljómburður yrði þar eins góður og í mannlegu valdi stendur. Við fyrstu heym tónlistar í kirkj- unni fannst mér hljómurinn fremur daufur og óskýr. Ur því hefur nú verið reynt að bæta með því að fjar- lægja um 80 fm. af steinullarein- angmn úr gafli kirkjunnar, andspænis kór, þar sem orgel kirkj- unnar á að koma í framtíðinni. Settar hafa verið harðar þilplötur í staðinn og mér virðist hljómurinn miklu skýrari síðan. Auk þess hef ég fengið leyfi til að allir flytjendur verði upp í kómum og með því móti vonast ég til að hljómurinn flytjist betur. Þetta kemur allt í ljós á fimmtudagskvöldið. Eg hef oft stjómað Messíasi áð- ur, en það er alveg sérstök tilfinning að fá tækifæri til að flytja Oratorí- una í hinni nývígðu kirkju og e.t.v. meira spennandi verkefni en ég hef fengist við um dagana." Skreiðarskipið enn í Lagos: 25.000 pakkar seldir, 35.000 enn um borð Vonast til að kostnaður vegna fjög- urra mánaða tafar verði greiddur af kaupendum SKREIÐARSKIPIÐ Horsham er enn statt í Lagos S Nígeríu, en það fór héðan I ágústmánuði síðastliðnum með rúmlega 60.000 pakka af skreið. Þá var veitt útflutningsleyfi fyrir 35.000 pökkum, en hitt flutt utan leyfis- laust. Nú hefur um 25.000 pökkum verið skipað upp og þeir seldir, en vonast er til að afgang- urinn seljist í vikunni. Umboðs- maður framleiðenda skreiðar- innar telur líklegast, að kostnaður vegna tafa á sölu skreiðarinnar leggist á kaupend- ur og lækki ekki verð til fram- leiðenda. Skreiðin er á vegum íslenzku umboðssölunnar og sagði starfs- maður hennar, Ámi Bjamason, í samtali við Morgunblaðið, að er skipið hefði farið utan, hefði verið búið að semja um sölu á öllum farm- inum. Síðan hefði hluti kaupenda gengið úr skaptinu með fyrrgreind- um afleiðingum. Matthías Bjamason, viðskipta- ráðherra, sagði í samtali við Morgunblaðið, að viðskiptaráðu- neytið hefði á sínum tíma gefíð útflutningsleyfi fyrir 35.000 pökk- um af skreið, sem fara áttu með skipinu Horsham. Þetta hefði verið gert að beiðni eigenda skreiðarinnar og með vitneskju bankanna. Hins vegar hefði ekki verið veitt útflutn- ingsleyfi fyrir öllum farminum, enda hefði í upphafi ekki verið sótt um leyfí fyrir meiru en 35.000 pökkum. Umsókn um leyfi fyrir hinum hluta farmsins hefði komið eftir að skipið var farið utan og engin leyfi verið gefin út fyrir hann, enda væri útflutningur án leyfís ólöglegur. Ráðuneytið hefði reynt að fylgjast með gangi mála, en það hefði gengið erfiðlega að öðm leyti en því, að upplýsingar um, að þetta væri alveg að ganga, væri mjög auðvelt að fá og hefðu þær reyndar fengizt oft. Hingað til virtist sem þær fregnir væm stórlega ýktar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.