Morgunblaðið - 10.12.1986, Page 5

Morgunblaðið - 10.12.1986, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 10. DESEMBER 1986 5 Almenna bókafélagið: Bók um leiðtoga- fundinn í Reykjavík AliMENNA bókaféiagið hefur sent frá sér bókina Leiðtoga- fundurinn í Reykjavík eftir Guðmund Magnússon, blaða- mann á Morgunblaðinu. Þar er fjallað í máli og myndum um fund Ronalds Reagan, forseta Bandarikjanna, og Mikhails Gorbachev, leiðtoga Sovétríkj- Skartgripaþj ófnaður- inn óupplýstur: Eigendur heita 100 þúsund kr. verðlaunum anna, í Reykjavík 11. og 12. október s.l. í bókinni er greint frá því, hvem- ig fyrstu fréttir um leiðtogafundinn bárust til íslands, frá viðbrögðum hér á landi og hinu margþætta undirbúnings- og skipulagsstarfí, sem unnið var á tíu dögum. Þá er fjallað um ástæður þess, að ísland varð fyrir valinu sem fundarstaður og um áhrif fundarins fyrir land og þjóð. I bókinni er einnig greint er frá ýmsum atburðum, sem gerðust í Reykjavík samhliða leiðtogafundin- um, þ.á m. mótmælum gyðinga og friðarsamkomum. Sagt er frá helstu deiluefnum stórveldanna, breyttum til kjamorkuvopna og ýtarlega er skýrt frá viðræðum Reagans og Gorbachevs í Höfða. Þá er fjallað um lyktir leiðtogafund- arins og þýðingu hans fyrir samskipti stórveldanna. Bókinni fylgir útdráttur á ensku. Fjölmargar myndir, svarthvítar og í lit, prýða hana og em mjmdatext- ar bæði á ensku og íslensku. Ytri Brekka í Blönduhlíð: Stórtjón þegar vélageymsla brann VÉLAGEYMSLA við bæinn Ytri Brekku i Blönduhlíð brann til kaldra kola í fyrrinótt. í geymsl- unnu voru meðal annars jarðýta og vörubíll og eyðilögðust tækin í eldinum svo og verkfæri og aðrir hlutir sem í geymslunni voru. Bóndinn á bænum segir að mikið Ijón hafi orðið í eldinum og trygging nái hvergi nærri að bæta skaðann. Eldurinn sást frá næsta bæ við Ytri Brekku og var kallað þaðan á slökkviliðið á Sauðárkróki um klukkan 3.15. Yfír 20 kílómetrar eru á milli staðanna og veður með versta móti og var klukkan orðin rúmlega 4 þegar slökkviliðið kom að Ytri Brekku en þá var véla- geymslan bmnnin til ösku. A Ytri Brekku búa hjónin Konráð Vilhjálmsson og Valgerður Sigur- bergsdóttir. í samtali við Morgun- blaðið sagði Konráð að mikið tjón hefði orðið í. bmnanum og næðu tryggingar engan veginn til að bæta það. Konráð sagði að alls óvíst væri með eldsupptök, þó mönnum hefði helst dottið í hug að þau hefðu orðið út ffa rafmagni. Vélageymslan var bámjáms- skemma með trégrind, tæplega 100 fermetrar að stærð. Hún hafði ve- rið innréttuð sem verkstæði, m.a. með smurgryfju. Skartgripaþjófnaðurinn í Úra- og skartgripaverslun Guðmund- ar Þorsteinssonar í Bankastræti var enn óupplýstur er Morgun- blaðið leitaði upplýsinga þar að lútandi í gærkvöldi. Að sögn Helga Daníelssonar, yfírlögregluþjóns hjá RLR, er unnið af kappi að rannsókn málsins og hafa eigendur verslunarinnar meðal annars heitið 100 þúsund króna verðlaunum fyrir upplýsingar, sem leiða til þess að málið upplýsist og þýfíð komist til skila. Banka- viðræður verða í dag FORMLEGUR fundur í samn- ingaviðræðum um stofnun nýs einkabanka með sameiningu Ut- vegsbanka, Iðnaðarbanka og Verslunarbanka og þátttöku fleiri aðila verður í dag. Geir Hallgrímsson seðlabankastjóri bjóst ekki við að mál skýrðust fyrr en síðar. A fundinn, sem haldinn verður í Seðlabankanum, koma fulltrúar Verslunarbankans og Iðnaðarbank- ans og trúnaðarmenn ráðherra. Sanitas CT AUGtÝSINGAWÖNUSTAN / SÍA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.