Morgunblaðið - 10.12.1986, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 1986
9
Valskonur
Muniðjólafundinn íkvöld á Hlíðarenda
kl. 20.30. Mætið stundvíslega. Stjórnin
VELOUR-
SLOPPAR
Innisett
Baðmullar-
náttföt
Inniskór
Peysur
Skyrtur
Hanskar
Treflar
Frakkar
Jakkar
Buxur
Nytsamar
jólagjafír
finnweor
GEísiP
Stjórn Alþýðiiflokksfélags ísafjarðar:
Ræðir afskipti for-
mannshjónanna af
prófkj örsbaráttunni
Hvar eru nýju andlitin?
Deilur alþýðuflokksmanna á Vestfjörðum í
kjölfar prófkjörsins á dögunum, þar sem
gömlu pólitíkusarnir Sighvatur Björgvinsson
og Karvel Pálmason áttust við, beina athygl-
inni að þeirri staðreynd, hve fá ný andlit eru
á framboðslistum flokksins fyrir næstu þing-
kosningar. Að þessu er hugað í Staksteinum
í dag.
Ný andlit?
Framboðslistar stjórn-
málaflokkanna fyrir
nœstu alþingiskosningar
eru smám saman að taka
á sig mynd. Athygli vek-
ur, að fátt er um nýja
frambjóðendur í „örugg-
ura“ sœtum; þorri núver-
andi þingmanna hefur
áhuga á áframhaldandi
þingsetu. Alþýðuflokks-
menn hafa talað niikið
um nauðsyn endurnýjun-
ar á Alþingi og þess
vegna er fróðlegt að at-
huga, hveijir skipa efstu
sætin á framboðslistum
flokksins.
í Reykjavik hefur Jón
Sigurðsson, efnahags-
ráðunautur ríkisstjórn-
arinnar, tekið 1. sætið á
lista Alþýðuflokksins eft-
ir gervipróflqörið fræga,
en Jón Baldvin Hanni-
balsson, flokksformaður,
skipar baráttusætið ef
miðað er við úrslit
síðustu þingkosninga. Á
milli þeirra situr Jóhanna
Sigurðardóttir alþingis-
maður. Jón Sigurðsson
er að sönnu nýtt andlit i
stjómmálunum (þótt
hann sé að öðru leyti
gamalkunnur úr fjöl-
miðlum fyrir talnafróð-
leik) og sumir segja að
hann eigi eftir að verða
Jóni Baldvini skæður
keppinautur þegar fram
líða stundir.
En hér er líka alit
upptalið! Efnahagsráðu-
nautur rikisstj ómarinn-
ar er í rauninni eini nýi
frambjóðandinn, sem Al-
þýðuflokkurinn býður
upp á og fullvíst má tejja
að nái kjöri. Litum á önn-
ur kjördæmi. f Reykja-
nesi eru þingmennimir
Kjartan Jóhannsson og
Karl Steinar Guðnason
enn á ferðinni. Á Suður-
landi (þar sem flokkur-
inn hefur engan
þingmann) er boðið upp
á Magnús Magnússon
fyrrverandi ráðherra og
þingmann nm árabil. Á
Austurlandi (þar sem
flokkurinn hefur heldur
ekki neinn þingmann) er
Guðmundur Einarsson
þingmaður úr Bandalagi
jafnaðarmanna i efsta
sætinu. Á Norðurlandi
eystra (enginn þingmað-
ur) verða Ámi Gunnars-
son ritstjóri og
varaþingmaður og Kol-
brún Jónsdóttir þing-
maður úr BJ væntanlega
í efstu sætunum. Á Norð-
urlandi vestra (enginn
þingmaður) er Jón Sæ-
mundur Siguijónsson,
hagfræðingur, í efsta
sætinu, en hann er fall-
kandidat frá kosningun-
um 1983, þar sem hann
skipaði sama sæti. Á
Vestfjörðum em það
annað hvort Karvel
Pálmason alþingismaður
eða Sighvatur Björgvins-
son fyrrverandi þing-
maður sem verða
oddvitar flokksins. Það
var ekki Ijóst þegar þetta
var skrifað. Og á Vest-
urlandi er Eiður Guðna-
son alþingismaður á ný í
efsta sætinu.
Var einhver að tala um
ný andlit? Um enduraýj-
un á Alþingi?
„Fordæman-
íeg afskipti“
Vestfirðir hafa um
langt árabil 'verið eitt
höfuðvígi Alþýðuflokks-
ins. Deilumar vegna
prófkjörs flokksins þar
kunna hins , vegar að
draga.dilk á eftir sér og
valda þð að einhveijir
kjósendur flokksins sitji
heima eða greiði öðrum
flokkum atkvæði sitt.
Sem fyrr segir kepptu
þeir Karvel Pálmason
núverandi þingmaður
flokksins og Sighvatur
Björgvinsson fyrrver-
andi þingmaður um efsta
sætið og þegar þetta er
skrifað er óvíst um úr-
slit, en flestir veðja
liklega á Karvel. Sig-
hvatsmenn cm mjög
ósáttir við ýmislegt í
framkvæmd prófkjörs-
ins, en sérstaklega er
þeim þó í nöp við Jón
Baldvin Hannibalsson,
flokksformann, og konu
hans Bryndísi Schram,
sem þeir segja að hafi
stutt Karvel leynt og
Ijóst. Þeir telja slika
framkomu ekki samrým-
ast formannsstarfi Jóns.
í drögum að ályktun
stjómar Alþýðuflokks-
félags tsafjarðar um
þetta mál, sem birt vom
hér í blaðinu i gær, er
athygii stjómar Alþýðu-
flokksins vakin á þeim
„fordæmanlegu afskipt-
um sem formaður
Alþýðuflokksins og eig-
inkona hans, varaborgar-
fulltrúi flokksins i
Reykjavík, höfðu af próf-
kjöri flokksins á Vest-
fjörðum." Orðrétt segir:
„Stjómin veit mörg dæmi
þess að með simhringing-
um og á annan hátt
reyndu þau að hafa áhrif
á fólk, m.a. hér á ísafirði
til þess að kjósa gegn
öðrum frambjóðandan-
um i prófkjörinu Sig-
hvati Björgvinssyni.“
Svo mörg em þau orð.
Jóni Baldvini kann að að
hafa tekist að koma i veg
fyrir að Sighvatur komi
á þing fyrir Alþýðuflokk-
inn á ný og þar með
haldið keppinaut um for-
ystu í flokknum i skefj-
um. Spumingin er hins
vegar sú, hvort þetta
hafi verið of dým verði
keypt og Alþýðuflokkur-
inn muni gjalda þess í
kosningunum.
■>
Concord lampar
S: 42120 OG 42433 AUÐBREKKU 18, KÓP
RAFBÚÐIN