Morgunblaðið - 10.12.1986, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 1986
13
Leikur með drykki
að þau nái saman með leiðinda-
slúðri. Leiðir elskendanna skilja í
nokkur ár, en auðvitað sigrar ástin
að lokum.
Eftir hugsanagangi persónanna
og því samfélagi sem birtist í bók-
inni er hugsanlegt að sagan gerist
í upphafi þessarar aldar. Fólk er
þó farið að ferðast um á hjólhestum
og bílum.
Aðdáendur Ingibjargar verða
varla fyrir vonbrigðum með þessa
bók, því hún er alveg eins og hinar
bækumar hennar.
Frágangur bókarinnar er til
skammar fyrir forlagið sem gefur
hana út. Nokkuð er um prentvillur
og í lok bókarinnar er nokkurra línu
brenglun. Svona nokkuð á ekki að
eiga sér stað hjá vönduðu og grónu
forlagi, komnu fast að níræðu.
Ástin sigrar allt
Békmenntir
Súsanna Svavarsdóttir
Beggja skauta byr
Höf.: Ingibjörg Sigurðardóttir
Útg.: Bókaforlag Odds Björns-
sonar
Sögusviðið er Hymuvík, þorp
norður í landi. Við sögu koma lækn-
isfjölskyldan, sýslumannsQölskyld-
an, verkakona sem kölluð er Indíana
í Skúmum, og sonur hennar, auk
Albínu, sem er vinnukona hjá lækn-
isfjölskyldunni.
Læknishjónin eiga soninn Svan,
sýslumannshjónin dótturina Steinu
Rún. Sýslumannssetrið og læknis-
bústaðurinn em rétt utan við
þorpið. Indíana í Skúmum á soninn
Sævald Má. Hann er sjómaður.
Ingibjörg byijar á því að segja
frá metnaði læknisfrúarinnar vegna
sonarins sem er ekki eins mikill
námshestur og Sævaldur Már. En
Sævaldur er fátækur og fær því
ekki tækifæri til að mennta sig í
skóla. Það vefst þó ekki fyrir hon-
um. Hann fer í Stýrimannaskólann
þegar hann verður stór og „briller-
ar“ í lífinu.
Sýslumannsdóttirin elskar hann.
Það er ekki gott þegar læknissonur
er á svæðinu. Báðir em skotnir í
henni. Læknissonurinn er óráðsíu-
pési. Auðvitað sá Steina Rún það
strax. Enda bamar hann Albínu á
meðan hann er að eltast við Steinu
Rún, stingur af frá öllu saman og
fer í soliinn.
Mæðramæða er mikil í sögunni.
Sýslumannsfrúin og læknisfrúin
vilja að bömin þeirra verði hjón.
Þær fyrirlíta Indíönu í Skúmum.
Hún er algóð og allir leita til henn-
ar. Þær, fínu frúmar, em aftur á
móti leiðinlegar snobbhænur, hafa
þó ekkert að snobba fyrir nema
hvor aðra. Þær em alvondar. Þess
vegna er allt á móti þeim. Þær
sætta sig þó við hlutskipti sitt í
lokin.
Sýslumaðurinn og læknirinn em
yndislegir menn í alla staði. Halda
báðir með Indíönu í Skúmum. Þeir
em mannúðin uppmáluð.
Albína er bóndadóttir úr sveit.
Hún veit ekkert í sinn haus. Hún
ræður sig í vist hjá lækninum þeg-
ar frúin handleggsbrotnar. Prestur-
inn sjálfur ábyrgist hana og
læknissonurinn bamar hana. Hún
flýr til Indíönu og elur bam sitt upp
hjá henni, ófeðrað, þangað til Svan-
ur snýr til baka úr ræsinu og
ákveður að fara í guðfræði.
Steina Rún er algóð. Hún er að
klára Kennaraskólann, vinnur í físki
sumarið sem meginhluti sögunnar
gerist, þvert ofan í vilja móðurinn-
ar. Hún vinnur við sama borð og
Indíana. Þær verða miklar vinkon-
ur. Steina Rún og Sævaldur Indí-
önuson fella hugi saman. Indíönu
finnst drengurinn hugsa heldur
hátt en er ánægð. Læknisfrúin og
sýslumannsfrúin koma í veg fyrir
Ingibjörg Sigurðardóttir.
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
DRYKKIR Vlð ALLRA HÆFI.
186 bls. Vaka/Helgafell.
Reykjavík, 1986.
Bók þessi er mikið myndskreytt
og afar glæsileg útlits. I inngangi
er upplýst að hún sé þýdd og stað-
færð úr sænsku. íslensk þýðing —
og þá væntanlega einnig viðaukar
— em eftir Einar Öm Stefánsson.
Meðal annars er hér að fínna verð-
launadrykki frá íslenskum barþjón-
um.
Engin afstaða er í bók þessari
tekin til áfengisins sem slíks.
Óáfengir drykkir era hér líka á
boðstólum. Eru þær uppskriftimar
ekki síður gagnlegar. Kaffið, sem
hér er á borðum ár og síð, er gott
í hófi en getur orðið leiðigjamt eins
og annað. Auk þess sem draga verð-
ur í efa hollustu þess eins mikið
og af því er dmkkið. Tilbreytni er
því æskileg.
Flest kemur hér nýstárlega fyrir
sjónir. Þó rekst maður á gamal-
kunnar blöndur, til að mynda eina
sem heitir því kynlega nafni
»þorstaslökkvari« og oft hefur verið
á borðum hjá ungum og gömlum á
landi hér við hátíðleg tækifæri
(óáfengt).
Bók þessi er alls ekki fyrir svelgi
(þeir gefa sér engan tíma til að
blanda) heldur fyrir hina sem hafa
gaman af að möndla og mixa, prófa
og kanna. Við veisluhald og aðra
tilbreyting er bók þessi öðm fremur
miðuð, síður við daglega neyslu, að
minnsta kosti hvað áfengið varðar;
enda alkunna að áfengi hentar
hreint ekki til þess háttar brúks.
Ekki er gert upp á milli tegunda.
Þó má víða ráða af orðalagi að
mælt sé með léttum vínum fremur
en sterkum, enda mun breytileiki
þeirra vera meiri og hefðin lengri.
0g svo em þau vitanlega nær því
að geta talist ómenguð náttúmaf-
urð.
Þáttur, mjög myndskreyttur, er
hér um glös. Glasatíska breytist
eins og annað. Og glös af því tagi,
sem við notum undir vatn eða gos
eða mjólk eða svokallaða long
VJterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
drinks, kallast þama slétt og fellt
— »gamaldags glös«. Þá er kafli
sem Skreyting nefnist. Þar em
taldar upp ávaxtategundir ýmsar
með meira sem hlýða þykir að hafa
til skrauts; og kannski lfka einhvers
bragðbætis, þegar drykkir em fram
bomir.
Langur kafli er þama um kokkt-
eila sem sumir kalla hanastél, aðrir
vínblöndur. Hið síðartalda er þó
rangnefni því vín er í raun einung-
is það sem bmggað er úr vínberja-
safa. Ætli Suðurlandabúi yrði ekki
skrítinn á svipinn ef honum væri
rétt brennivínsstaup og honum
væri sagt að það væri vín!
Tekið er fram að ekki sé við
hæfi að halda áfengi að þeim sem
ekki vilja. Algengast mun að þeim
sé borinn annaðhvort ávaxtasafi
eða kók þegar hinum em bomar
dýrindis blöndur. í bók þessari em
hins vegar uppskriftir til þess ætl-
aðar að gera jafn vel við þá og
aðra og er það líka sjálfsagt.
Þá er hér kafli um bjór, bæði
sterkan og veikan. Það sem sagt
er um hinn fyrrtalda kemur aðeins
fáum útvöldum að notum. En léttur
pilsner er líka prýðisdrykkur — ef
hann uppfyllir gæðakröfur — og
hans telja flestir saklaust að neyta.
Auk þess sem gaman er að fletta
bók þessari má um hana segja eins
og tekið er fram í inngangi: »Hér
em diykkir sem eiga við hin ólík-
ustu tilefni og allir ættu að fínna
eitthvað við sitt hæfi.«
JÓLAUÓS
40 ljósa útisería Hvít — Rauð — Blá
Hver sería er 40 ljós og spennubreytir.
Hægt er að nota tvær seríur við hvem spennubreyti.
Yönduð sería og hættulaus.
Samþykkt af Rafmagnsefíirliti ríkisins.
Verð: 1 sería og spennubreytir kr. 1.650
— aukasería kr. 825.
Rafkaup
Suðurlandsbraut 4
108 Reykjavík
Sími 681518
ÚTSÖLUSTAÐIR:
RAFVÖRUR/Reykjavík
BLÓMAVAL/Reykjavík
RAFVIÐGERÐIR/Reykjavík
MOSRAF/Mosfellssveit
RAFLAGNAVINNUSTOFA
SIGURÐAR INGVASONAR/Garöi
STAPAFELL/Keflavík
KJARNI/Vestmannaeyjum
ÓTTAR SVEINBJÖRNSSON/Hellissandi
VERSLUN EINARS STEFÁNSS/Búöardal
PÓLLINN/ísafirði
SVEINN Ó. ELÍASSON/Neskaupstaö
RAFSJÁ HF/Sauðárkróki
Jólatilboð
Verð áður:
bára er íullkomin þvottavél sérhönnuð tyiir íslenskar
aðstœður
bára tekur inn á sig bœði heitt og kalt vatn
bára vindur allt að 800 snún./mín. og er með
spamaðanoía
Sérhver bára er tölvuprófuð, fyrir aíhendingu.
bára hefur 18 íullkomin þvottakerti og íslenskar
merkingar.
Ekki bara best, líka ódýrust
V
Gerðu verð- og
gæðasamanburð
Vörumarkaðurinnhl.
Eiöistorgi 11 - sími 622200