Morgunblaðið - 10.12.1986, Page 16

Morgunblaðið - 10.12.1986, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 1986 Við verðum að glíma við guð... og mennina með Bókmenntir Jóhanna Kristjónsdóttir I sannleika sagt: Lífssaga Bjarn- fríðar Leósdóttur Elísabet Þorgeirsdóttir skráði Útg. Forlagið 1986. Bjamfríður Leósdóttir er lands- fræg baráttumanneskja og hefur unnið í verklýðshreyfingunni og gegnt trúnaðarstörfum. Hún hefur unnið fyrir Alþýðubandalagið og verið varaþingmaður Vesturlands. Bjamfríður gekk úr Alþýðubanda- laginu eftir langa vem þar, ekki var það hávaðalaust og hún starfar ekki lengur í ASI. Þær kveðjur, sem Bjamfríður fékk frá ýmsum félög- um, sem hún hafði unnið með um árabil vom ekki beinlínis ástúðlegar og þaðan af síður málefnalegar. Það var ekki bara látið að því liggja, heldur staðhæft fullum fetum, að skapsmunir hennar, ráðríki og yfír- gangur væri slíkur, að hún væri óboðleg og óhæf í samvinnu. Þegar •þeim Guðmundi J. kom ekki saman í samningaviðræðum, sagði hann bara„Mikið er ég orðinn þreyttur á þér, Bjamfríður.“Þetta mynduég ætla að karlar kölluðu „kvenna- svar, “eða eitthvað enn ómerki- legra. Enda hefur Bjamfríður greinilega ekki rekizt vel, hvorki í verklýðshreyfíngunni né í flokki, enda virðist hún með þessum ósköp- um gerð að vilja hlýða rödd samvizku sinnar. Bjamfríður segir, að upphaflega hafí hún hugsað sér þessa bók sem uppgjör við fyrri félaga. Síðan hafí þær Elísabet far- ið að ræða fleira. Útkoman varð þessi lífssaga. Ég er fegin því. Bókin er ekki bara þörf saga um baráttu hennar fyrir bættum kjörum kvenna og láglaunafólksins. Við kynnumst ekki síður konunni Bjanrfríði, hvað hún hugsar, hvað knýr hana áfram. Við kynnumst trúarþörf hennar og það gefur bókinni gildi, að Bjamf- ríður, hversu pólitísk, sem hún Fiskaflinn 90 lestum meiri en á sama tíma í fyrra FISKAFLI landsmanna fyrstu 11 mánuði þessa árs er nánast sá sami að magni til og á sama tima í fyrra, eða aðeins 90 lestum meirí. Nú öfluðust 1.476.853 lest- ir þetta tímabil en 1.476.763 í fyrra. Mismunurinn felst því nán- ast í slökum dagsafla eins sfldar- báts. Þorskafli þetta tímabil nú er 330.459 lestir en var á sama tíma í fyrra 298.523; 31.936 lest- um meirí nú. Loðnuaflinn nú er um 52.000 lestum minni en á sama tíma í fyrra, 798.184 lestir á móti 850.390 lestum þá. Aflinn í nóvember síðastliðnum varð alls 237.023 lestir eða 16.873 lestum minni en í fyrra. Munar þar mestu um minni loðnuveiði vegna ótíðar. Þorskafli báta varð litlu meiri í nóvember nú en í fyrra, afli af öðrum botnfíski litlu minni, loðnuaflinn varð um 40.000 lestum minni en sfldarafli 21.000 lestum meiri. Heildarafli bátanna varð því um 19.000 lestum minni nú en í fyrra. Togarar öfluðu alls 26.604 lesta í nóvember nú en 24.368 í fyrra. Þorskafli þeirra varð 17.868 lestir nú og er það 6.256 lestum meira en í sama mánuði í fyrra. Afli af öðrum botnfíski varð hins vegar um 4.000 lestum minni nú. segist vera metur fólk ekki eftir flokksstimplum, heldur út frá eigin tilfínningu og dómgreind. Sú ráðríka og hamslausa Bjamfríður, sem við höfum kannski talið hana vera, tekur ekki hamskiptum fyrir augum okkar. Og er það vel. En manneskjan Bjamfríður Leósdóttir verður svo ótrúlega lifandi, kröftug og auðmjúk, baráttuglöð og við- kvæm. Og sjálfri sér trú. Baráttan hennar, hvort sem hún er fyrir því að komast í skóla, bæta kjör verka- kvenna á Akranesi og síðan víðar, og baráttan í verklýðshreyfíngunni og Alþýðubandalaginu: allt á þetta sinn tilgang, sem við verðum að virða, hvort sem við emm sammála henni eða ekki. Af fyrri köflunum fannst mér sérstaklega skemmtilegt og lær- dómsríkt að lesa um skólavist í Samvinnuskólanum. Það er í þess- ari frásögn léttur tónn og vingjam- legur, lýsir undur vel löngun ungrar stúlku til lærdóms, þegar tækifæri og efni em af skomum skammti. Frásögn Bjamfríðar af hjóna- bandi sínu er sjarmerandi, opinská og falleg. Maður hennar neytti áfengis í óhófi, hún segir frá, en hún veltir sér ekki upp úr neinu. En dregur ekki fjöður yfír erfíðleik- ana í sambúð þeirra. Hún reynir ekki að fegra neitt né hrista úr það leiðinlega, og sjálfri sér hlífír hún ekki. Síðan hann dó hefur tíminn liðið. Samt er þetta sárt. En meiðir senni- lega ekki lengur. Skilnaður kom aldrei til greina, þrátt fyrir allt, hún gat ekki hugsað sér að önnur kona ætti hann. Hispursleysi hennar er tilgerðarlaust og ekta. Mikið rými fer til að segja frá starfínu innan verklýðshreyfingar- innar. Ekki ríða allir forystumenn alþýðuvina feitum hesti frá starfínu þar. Ég treysti mér ekki til að segja til um, hversu nákvæmlega er farið með atburði. Hún segir söguna firá sínum sjónarhóli, en reynir að horfa á málin í víðara samhengi og fjarri, að hún skelli alltaf skuld á alla og standi eftir sjálf eins og guðsengill. Það gerir frásögnina trúverðuga. Að hún tekur á sig ábyrgð, viður- kennir ýms mistök og veit, að hún á áreiðanlega einhveija sök. Það má vera dauður maður sem er ós- nortinn eftir að hafa lesið kaflana um það, þegar svo er komið að henni fínnst lífsbarátta sín hafí ve- rið rústuð og hún þolað auðmýk- ingu, sem hún getur naumast risið undir. En gerir það samt. Og það er ekki illvilji í þessari bók. Það er hiti og sár reiði, einlægni og kraft- ur. Elísabet Þorgeirsdóttir skrifar söguna af eldmóði, en á marga fína drætti í penna sínum. Eins og hæf- ir þessari bók. Sem er einhver bezta sinnar gjörðar, sem ég hef lesið í langan tíma.Þær eiga báðar, Elísa- bet og Bjamfríður sinn hlut og geta unað glaðar við. Og lesendur ekki síður. J0 wrsáta®*-' ....... Kaup á sumum vörum ákvarðast af því sem stendur á botninum. Viðbit með fjölómettaðri fitu á stöðugt vaxandi gengi að fagna vegna þess að fjölmargir telja harða fitu lítt holla. AKRABLÓMI hefur hærra hlutfall af fjölómettuðum jurtaolíum en almennt gerist mmjSI í viðbiti - þess vegna færðu hann mjúkan úr ísskápnum beint á brauðið - í steikinguna, baksturinn og matseldina. Kynntu þér hvað stendur á botni öskjunnar um hlutfall harðrar og fjölómettaðrar fitu. Hiklaus kaup þeirra sem hugsa um hollustuna -og verðið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.