Morgunblaðið - 10.12.1986, Side 25

Morgunblaðið - 10.12.1986, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 1986 ekki að taka upp á þeirri vitleysu að kaupa húsnæði undir þessa litlu spítala. Þú mundir bara leigja eins og við flestir tannlæknanna. Ef þú ætlaðir að kaupa, þá gætir þú lent í að borga ca. 800 milljónir króna í viðbót, og þá er ég nú bara hrædd- ur um að Þorsteinn Pálsson segði stopp. Þó að Þorsteinn Pálsson eigi kannske einhverstaðar smákassa handa þér með þúsund milljónum, sem hann þarf ekki að brúka, er ekki víst að hann láti þig fá sam- tals 1.800 milljónir. Þá er bara eitt vandamál eftir. Eg er bara ekki viss um að allir kollegar mínir væru til í að selja þér litlu spítalana sína og ráða sig svo í vinnu hjá þér upp á fast kaup, jafnvel þótt þú byðir þeim nú mann- sæmandi laun á íslenskan mæli- kvarða. Þeir eru eitthvað hræddir um að þú færir að miðstýra þessu of mik- ið og tækir þér þá kratana í Svíþjóð þér til fyrirmyndar og skipaðir fólki til ákveðinna tannlækna, sem væru með stofur í hverfínu, sem það býr í. Þú mundir nú aldrei láta þér detta í hug að taka réttinn af fólkinu með að velja sér tannlækni. Þessi misskilningur kollega minna stafar auðvitað af þroska- leysi þeirra og bjánaskap, því að þeir átta sig bara ekki á hvað þetta yrði stórkostlegt og áhyggjulaust fyrir þá! Eg sé alveg fyrir mér hvemig þetta myndi fara fram. Tannlæknir- inn mundi koma á stofuna á morgnana og þegar í stað yrði kom- ið á fundi með starfsfólkinu til þess að átta sig nú vel á hvað gera skuli þann daginn, því að gott skipulag þarf að vera á öllu, sem ríkið sér um reksturinn á. Það er best að skjóta því hér inn, að heppilegast væri að ráða læknaritara handa tannlækninum, eins og læknamir á alvöru spítölum fá, til þess að skriffinnskan sé nú í lagi og ekki fari milli mála að eitt- hvað sé verið að pauvast þar. Að loknum þessum fundi með starfs- fólkinu, þar sem allt er skipulagt, getur tannlæknirinn nú farið að gera einhveijar aðgerðir. Bráðlega er kominn kaffitími fyrir starfs- fólkið. Að honum loknum verða gerðar einhverjar aðgerðir. Og þá er komið að matartíma. Ekki trúi ég öðm, Jóhanna mín, en þú mundir sjá þér fært að láta starfsfólkið á litlu spítölunum fá ódýran mat eins og aðra ríkisstarfs- menn. Að afloknu matarhléi heflast aðgerðir aftur, og svo kemur kaffi og svo fer að líða að lokum dags- verks. Jóhanna mín. Ef tannlæknar gerðu sér bara grein fyrir þvi hversu áhyggjulaust líf þetta yrði fyrir þá, yrðu þeir örugglega allir til í að selja þér stofumar og vinna svo hjá þér. Þeir kæmu til vinnu á morgn- ana áhyggjulausir og fæm aftur heim, kannski kl. 5 á daginn, alger- lega áhyggjulausir út af rekstrin- um. Þú sæir um þetta allt saman. Afköstin skipta engu máli. Ef einn tannlæknir væri t.d. duglegri eða flinkari en annar, mátt þú ekki heyra minnst á það. Þeir skulu all- ir vera á sama fasta kaupinu. Ef tannlæknirinn væri illa fyrir kallað- ur einhvem daginn, boðar hann bara veikindi eins og hver annar ríkisstarfsmaður. Engar áhyggjur, Jóhanna borgar hinu starfsfólkinu og allan annan kostnað. Tannlæknar þurfa auðvitað að fá sumarfrí eins og aðrir ríkisstarfs- menn. Þú mundir nú ekki telja eftir þér svoleiðis „skitirí" eins og að borga hinu starfsfólkinu á meðan, Jóhanna mín. Svo er það nú þetta með endur- menntunina. Þú mundir nú ekki láta þig muna um að kosta tann- lækna í smáferðalag til útlanda, eins og hálfan eða einn mánuð á ári á tannlæknaráðstefiiu eða end- urmenntunamámskeið, eins og þú gerir fyrir læknana á hinum spítölunum. Ef tannlæknar bara áttuðu sig á hvað þetta yrði stórkostlegt fyrir þá, væm engin vandræði að koma þessu í kring. Þú skalt bara, Jó- hanna mín, drífa í þessu, því að kosningamar nálgast óðum. Og hugsaðu þér bara hvað það væri flott hjá þér að geta sagt við kjós- endur: Nú er ég búin að þjóðnýta tannlæknana og nú verður allt fh'tt fyrir alla. Eitt ráð ætla ég að gefa þér í viðbót, kæra Jóhanna. Þú og flokks- bræður þínir, kratamir, skulið kaupa prentsmiðju, svo að þið getið prentað peninga, þvi að þið hafið aldrei skilið, að ef þið bjóðið ein- hveijum eitthvað frítt, þarf einhver annar að borga fyrir það! Kær kveðja, Höfundur er tanalæknir. heimsótt." Sigmar fer á kostum í bókinni og fjallar á „lystaukandi" hátt um ölstofur og sjávarréttastaði í kafl- anum um „Ö1 og ostmr til ánægju- auka“. Hann kemur við í Danmörku í kaflanum um „Besta smurbrauð í heimi“ og gerir aust- urlenskri matargerð skil í köflun- um „Gómsæt Asíuáhrif í Evrópu" °g „Byggt á 4000 ára reynslu". Heiti annarra kafla gefa hugmynd um efnistök: „Margs að njóta með- fram Mósel“, „Lon og don í London", „Frönsk hefð og þýskir skammtar", „Glaðir laxar og kven- kokkar" og „í París ertu Parísar- búi“.“ Bókin er kilja og er unnin hjá Prentstofu G. Benediktssonar í Kópavogi. Brian Pilkington teikn- aði kápumynd. 8,5% sam- dráttur í mjólkur- framleiðslu FRAMLEIÐSLA mjólkur heidur áfram að minnka á milli ára. Innvegin mjólk hjá mjólkursam- lögunum í nóvember var til dæmis 712 þúsund lítrum minni en í nóvember í fyrra og munar þar 8,5% Samkvæmt bráðabirgðatölum Framleiðsluráðs var innvegin mjólk hjá mjólkursamlögunum_ 7.648 þús- und lítrar í nóvember. í nóvember 1985 var framleiðslan 8.360 þúsund lítrar og er minnkunin á milli ára því 712 þúsund lítrar, eða 8,51%. Mest af minkuninni, bæði hlutfalls- lega og í lítrum talið, kemur fram á Suðurlandi, þar sem innvegin mjólk hjá Mjólkurbúi Flóamanna minnkaði um 620 þúsund lítra eða 18,68%. Mjólkurframleiðslan fyrstu 11 mánuði ársins var 101,5 milljón Iítrar, sem er 5,7 lítrum minni fram- leiðslan en sama tímabil ársins 1985, þegar framleiðslan var 107,2 milljónir lítra. Samdrátturinn er 5,31%. Mjólkurframleiðslan í ár verður því að öllum líkindum innan við 110 milljónir lítra. Sem fyrr er samdrátturinn mestur hjá Mjólkur- búi Flóamanna, eða 35,7 milljónir lítra á móti 39,4 milljónum árið áður. Munurinn er 3,7 miHjón lítrar eða 9,34%. 25 FULLTRÚARÁÐ SJÁLFSTÆÐISFÉLAGANNA í REYKJAVÍK AÐALFUNDUR Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík verður haldinn miðvikudaginn 10. desember nk. kl. 20.30 í Átthagasal Hótels Sögu. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Ræða Friðriks Sophussonar varafor- manns Sjálfstæðisflokksins um kosn- ingabaráttuna framundan. 3. Önnur mál. Stjórnin PHIUPS Því ekki að ákveða í eitt skipti fyrir öll hver áað vaska upp íkvöld! Heimilistæki hf HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI 8- S. 27500 orum að fá sendingu af 3 gerðum frábærra uppþvottavéla frá Philips á einu lægsta verði sem heyrst hefur á markaðn- um eða frá kr. 23.900 EKKI 27.500

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.