Morgunblaðið - 10.12.1986, Síða 26

Morgunblaðið - 10.12.1986, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 1986 ' Skjöl frá stjórnarárum Nixons opinberuð: og stjómarandstöðu að undan- fömu, muni bitna á starfsemi og starfsfriði breska þingsins. Sjást þess nú raunar þegar ýmis merki í neðri málstofunni að samskipti stjómarandstöðu em nú storma- samari en oft áður. Er síður en svo talið að öldur muni þar lægja eftir að Niel Kinnock snýr aftur úr Bandaríkjaför sinni, sem enn hefur orðið til að hella olíu á eld þeirra deilna sem staðið hafa milli íhaldsflokksins og Verka- mannaflokksins um öryggis- og vamarmál. Hafa íhaldsmenn, með Margréti Thatcher í broddi fýlkingar, fordæmt þá stefnu sem Kinnock hefur reynt að koma til skila meðal Bandaríkjamanna að undanfömu, sem hefði í för með sér að Bretland yrði gert kjam- orkuvopnalaust. Kinnock hefur hins vegar verið óspar á yfirlýs- ingar um utanríkisstefnu íhalds- flokksins. Hefur hann meðal annars sagt að það séu Bretum dapurleg örlög að lúta forystu forsætisráðherra, sem ófær sé um að marka sjálfstæða stefnu í utanríkismálum, Thatcher hafi ekki gert annað undanfarin ár en að sitja og standa eins og harðiínumenn í Hvíta húsinu hafa boðið. Sú heift, sem sett hefur svip sinn á samskipti stjómar og stjómarandstöðu hér á landi að undanfömu, sýnir glögglega hversu harðvítug barátta er framundan í breskum stjóm- málum. Þingkosningar em í sjónmáli og verða að líkindum haldnar þegar á næsta ári. Horf- ur em tvísýnar, íhaldsflokkur og Verkamannaflokkur skiptast á um forystu í skoðanakönnunum. Öllum ráðum verður beitt til að klekkja á andstæðingnum. Ein slík rimma er þegar hafin og ekki útlit fýrir að henni linni í bráð. Litu á Agnew sem nytsaman kjána Frá Guðmundi Heiðari Frimannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins í Skotlandi. ÞJÓÐSKJALASAFN Banda- ríkjanna hefur heimilað aðgang að meira en einni milljón skjala frá stjórnarárum Nixons forseta. f fréttum hefur verið getið löng- unar Elvis Presley til að verða starfsmaður eiturlyfjalögregl- unnar en þar er einnig að finna skjöl, sem varpa sérkennilegu ljósi á samband Nixons og Spiros Agnew, varaforseta, og á Donald T. Regan, núverandi starfs- mannastjóra Hvita hússins. Frá þessu sagði í Sunday Times sl. sunnudag. í skjólunum kemur fram, að að- stoðarmenn Nixons fyrirlitu Agnew og töldu hann hreinan kjána en nytsaman forsetanum. í skýrslu, sem gerð var fyrir Haldeman, þá- verandi starfsmannastjóra Hvíta hússins, um hlutverk varaforsetans í kosningabaráttunni 1972, segir, að hann eigi að fá sem minnstar upplýsingar og ekkert sjálfræði. „Hafa ber samband við varaforset- ann 15 mínútum áður en hann á að hitta forsetann. Tilgangurinn er sá, að varaforsetinn komi undirbún- ingslaus á fundinn, án aðstoðar- manna, svo hægt sé segja honum hvers forsetinn væntir af honum," segir í skýrslunni. Starfslið Hvíta hússins vildi einn- ig koma í veg fýrir, að Agnew sæti fundi um stefnu stjómarinnar. Einu sinni mótmælti Afnew því, að hann ætti að tala á fundi kvenfé- lags Repúblikanaflokksins og sagði, að á sama tfma ætti hann að sitja fund í þjóðaröryggisráðinu. Þetta setti starfsliðið út af laginu en þá skipaði Nixon Agnew að sitja að- eins fyrri hluta fundarins í þjóðarör- yggisráðinu til að hann gæti líka talað fyrir konumar. Meðal skjalanna er að fínna bréf frá Nixon dagsett 31. janúar 1973 til Donalds T. Regan, núverandi starfsmannastjóra en þá forseta fjárfestingafyrirtækisins Merrill Lynch. „Kæri Don. Ég þakka þér innilega fyrir að gefa Agnew sér- hannaða skyrtuhnappa, bindi og axlabönd í hádegisverði Merrill Lynch. Mér er sérstök ánægja af þessum vinargreiða og að þú skulir minnast mín með svo mikilli hugul- semi þegar ég er að hefja annað kjörtímabil mitt í embætti," sagði í bréfinu. Ekki er talið, að þetta þakkar- bréf frá Nixon muni verða vatn á myllu Regans nú þegar hann berst fyrir pólitísku lífí sínu. Bretland: Heift milli stjómar o g stjómarandstöðu EKKIFER á milli mála að sam- skipti Margrétar Thatcher, forsætisráðherra, og Niels Kinnock, formanns Verka- mannaflokksins, einkennast nú Morðið á for- eldrum Duffys: Táningar kveð- ast saklausir Boulder, Montana, Bandaríkjunum, Reut- cr. TVEIR táningar frá Montana í Bandaríkjunum, sem stefnt hef- ur verið fyrir að skjóta foreldra leikarans Patricks Duffy til bana með haglabyssu, kveðast sak- lausir af verknaðinum. Duffy þessi leikur Bobby Ewing í bandarísku sjónvarpsþáttunum „Dallas“. Sean Wentz og Kenneth Miller, sem báðir eru nítján ára, eru sakað- ir um rán, líkamsárás og morð að yfirlögðu ráði. Foreldrar Duffys, Terence og Marie, voru myrt 19. nóvember. Þyngsta refsing fyrir glæp sem þennan er 250 ára fangelsisdómur. Réttarhöld hefjast í máli Wntz og Millers 9. mars. af meiri heift og gagnkvæmari andúð en Bretar eiga að venj- ast af hálfu leiðtoga stjórnar og stjórnarandstöðu. Það er samdóma álit breskra stjómmálamanna, hvar í flokki sem þeir standa, að sjaldan hafi samskipti forsætisráðherra og leiðtoga stjómarandstöðunnar verið jafn heiftug og nú. Hafa sumir jafnvel tekið svo djúpt í árinni að segja að fullkomið hatur ríki nú milli Margrétar Thatcher, sem gegnt hefur forsætisráð- herraembætti í sjö ár, og Niels Kinnock, sem hyggst leggja allt í sölumar til að steypa ríkisstjóm Ihaldsflokksins í næstu þing- kosningum og koma verka- mannaflokknum til valda. Samskipti Kinnocks og Thatcher hafa aldrei þótt ein- kennast af gagnkvæmri virðingu eða trúnaðartrausti. Þvert á móti hafa leiðtogamir tveir ósjaldan gefíð í skyn með yfírlýsingum og orðaskiptum að fátt stefni framtíð bresks þjóðfélags í meiri voða en stjómarforysta andstæð- ingsins. Slík viðskipti stjómar og stjómarandstöðu væm í sjálfu sér ekki í frásögur færandi nema ef vera skyldi vegna þess að Thatch- er og Kinnock hafa verið óvenju Neil Kinnock iðin við kolann að undanfömu. Hafa stóryrtar yfírlýsingar geng- ið á víxl þar sem foringjamir tveir hafa meðal annars sakað hvor annan um að stefna öryggi bresku þjóðarinnar í hættu. Eitt meginágreiningsefnið hefur verið mál það sem breska ríkisstjómin rekur nú fyrir breskum dómstól- um gegn Peter Wright, fyrrver- andi starfsmanni bresku leyniþjónustunnar, MI5. Hafa Kinnock og flokksbræður hans Margaret Thatcher sakað Thatcher og stjóm hennar um afleitan málatilbúnað sem sé til þess eins fallinn að skaða ör- Íggishagsmuni Bretlands. haldsmenn hafa aftur á móti sagt að afstaða Verkamanna- flokksins til þessa máls og afskipti af því, ekki síst viðtöl sem Kinnock hefur átt við lögfræð- inga Wrights, séu ljós vottur þess að flokknum sé ekki treystandi til að standa vörð um breska ör- yggishagsmuni. Ymsir óttast að sú heift, sem einkennt hefur samskipti stjómar Góð bók Kristjan Albertsson. Márgs er að minnast. Skráð hef- ur Jakob F. Ásgeirs- son. Kristjan hefur margt séð og mörgu kynnst á sínum einstæða æviferli bæði hér heima og er- lendis. Bráðskemmti- legar minningar einhvers mesta heims- borgara íslands fyrr og

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.