Morgunblaðið - 10.12.1986, Síða 31

Morgunblaðið - 10.12.1986, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 1986 31 Mesta sölt- un af Suður- landssíld 57.000 lestir síldar veiddar og saltað í 270.000 tunnur SALTAÐ hafði verið í rúmlega 270.000 tunnur á yfirstandandi vertíð á mánudagskvöld og er það meira en áður hefur verið saltað af Suðurlandssíld. Mesta söltun af henni til þessa var árið 1980, 269.326 tunnur. Mesta síldarsöltun var hins vegar árið 1963, þegar saltað var i tæpar 463.000 tunnur af Norður- landssild. AIls á eftir að salta í um 10.000 tunnur og eftir er að veiða um 5.000 lestir af sQdinni. Á mánudag höfðu 34 stöðvar lokið við söltunarkvóta sinn, en 11 áttu eitthvað eftir. Mest hafði þá verið saltað hjá Fiskimjölsverk- smiðju Homafjarðar, 19.448 tunnur. Þar á eftir kemur Pól- arsfld/Pólarsær á Fáskrúðsfírði með 17.627 tunnur, Haraldur Böð- varsson og Co. á Akranesi með 12.024 og Norðursfld á Seyðisfírði með 11.483 tunnur. Af einstökum höfnum hefur mest verið saltað á Eskifírði eða í 44.186 tunnur, í Grindavík hefur verið saltað í 32.520 tunnur og 23.087 á Fá- skrúðsfirði. Alls hafa um 57.000 lestir borizt á land. Þar af hafa um 9.000 farið í bræðslu og nálægt 14.000 lestum hefur verið fryst. Að sögn Amar Traustasonar í veiðaeftirlitinu eru flestir fírðir austan lands fullir af sfld og nóg að fá. Hins vegar eiga aðeins 11 bátar eitthvað eftir af kvóta sínum eða samtals um 5.000 lestir. Veiðar verða heimilar fram að jólum. Á mánudag voru 13 bátar með afla á bilinu 100 til 200 lestir og fór mest af því til frystingar, en mikið af sfld var veitt til bræðslu á Austfjörðum um helgina. Á mánu- dag var Kópur með 150 lestir, Höfrungur 111 með 150, Dala Rafn 120, Þuríður Halldórsdóttir 120, Geir goði 110, Hrafn Sveinbjamar- son 111 110, Hópsnes 120, Skógey 200, Skagaröst 130, Þorleifur Guð- jónsson 100 og Hafnarvík 130 lestir. 62 krónur fyrir ufs- annog karfann HÁTT verð er nú á fiski á mörk- uðunum í Bremerhaven og Cuxhaven í Þýzkalandi. Síðustu daga hefur fiskverð þar verið að meðaltali um 62 krónur á kQó. Fiskverð í Bretlandi hefur einnig hækkað að nýju eftir slaka viku. Viðey RE lauk við að selja afla sinn í Cuxhaven í gær en sala úr skipinu hófst á mánudag. Alls voru seldar 231,7 lestir, mest karfi og ufsi. Heildarverð var 14.279.800 krónur, meðalverð 61,90. Snorri Sturluson RE seldi einnig í gær 197,6 lestir, mest karfa og ufsa í Bremerhaven. Heildarverð var 12. 232.900 krónur, meðalverð 61,90. Á mánudag voru seldar 347,2 lestir af gámafíski héðan í Hull og Grimsby. Heildarverð var 23.539. 100 krónur, meðalverð 67,79. 255,6 lestir af aflanum voru þorskur, sem fór að meðaltali á 66,69 krónur hvert kíló. Ýsan fór á 77,42 að meðaltali og kolinn á 72,96. < 03 2 Ekki kaupa gamalt Allt jólahangikjöt Sláturfélagsins er eingöngu unnið úr nýju og mögru fyrsta flokks hráefni. Síðan er því pakkað í lofttæmdar umbúðir og gæðin þannig innsigluð. Notaðu aðeins úrvals hangikjöt. Notaðu SS jólahangikjöt. SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.