Morgunblaðið - 10.12.1986, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 1986
LaRouche gat oft
uni morðið á Palme
Waöhington, AP.
NBC-sjónvarpsstöðin skýrði frá því á laugardag, að komið hefði í
ljós að morðið á Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, er margn-
efnt í dagbókum og skjölum hins öfgafulla stjórnmálamanns, Lyndon
LaRouche.
Hald var lagt á skjöl og dag-
bækur LaRouche í skrifstofu
samtaka hans. Að sögn manna, sem
vinna að rannsókn á umsvifum sam-
takanna, eru 45 tilvitnanir til
morðsins á Palme. Getið er m.a.
hverrar tegundar morðvopnið var
og minnst er jafnan á Gunnarsson,
sem um tíma lá undir grun og hafð-
ur var í varðhaldi.
Gunnarsson var félagi í Evrópska
verkamannaflokknum, sem aðild
átti að samtökum LaRouche, og
studdi hinn öfgafulla stjómmála-
mann leynt og ljóst. Hann var
handtekinn 12. maí í sambandi við
rannsóknina á morði Palme en
sleppt nokkrum dögum síðar. Hann
var margoft kallaður fyrir rann-
sóknarnefndina eftir það og leiddur
fyrir vitni.
Talsmenn LaRouche-samtak-
anna voru harðorðir í garð lögreglu-
yfirvalda, eftir að frásagnir um
dagbókina birtust. Þeir sökuðu þau
um að leka röngum upplýsingum í
fjölmiðla. Tilgangurinn væri að
stuðla að hleypidómum um samtök-
in, aðildarmenn þeirra og starfsemi.
Þeir héldu því fram að sovézk yfír-
völd hefðu staðið á bak við tilræðið
á Palme. Að sögn manna, sem rann-
saka mál LaRouche-samtakanna,
liggur ekki fyrir hvort dagbókar-
færslur um morðið á Palme hafí
verið skrifaðar fyrir eða eftir verk-
naðinn, né hvort þær hafí eitthvað
vægi fyrir rannsókn morðsins.
#
BIACK&DECKER
/ Kaupféiaginu
Hristari DN41
■ Borvél D 154 R
Borvél H551
Hjólsög DN229
Stingsög DN531
■ Hefill DN710
FYRIR EKKI NEITT
Þegar þú kaupir fullkomið Black og Decker verkfærasett í kaupfélaginu
færð þú meiri afsiátt en nemur verði vinsælustu borvélar sem seld hefur
verið hérlendis, Black og Decker H551.
Þú þarft ekki að kaupa allt settið til að njóta afsláttar. Kynntu þér
afsláttarkjörin sem kaupfélagið býður á Black og Decker verkfærum.
Mundu að þessi einstöku kjör bjóðast aðeins í kaupfélögunum í landinu.
MÁLVERKÁ METVERÐI
Málverk Edouards Manet, „La Rue Mosnier aux Paveurs" (neðst
til hægri) seldist fyrir 7,7 millj. pund (um 446 millj. ísl. kr.) á
uppboði hjá Christie’s í London í síðustu viku. Kaupandinn var
óþekktur aðili í Evrópu. Þetta er hæsta verð, sem vitað er um,
að fengizt hafi fyrir málverk á uppboði. Fjárhæðin var það há,
að skráningarskjárinn rúmaði hana ekki lengur i japönskum
jenum, þvi að þar stendur eins og sjá má „overflow".
Chernobylslysið:
Kostar yfir 120 milljarða kr.
London;AP.
ÚTGJÖLD Sovétstjórnarinnar
vegna slyssins í lqarnorkuverinu
1 Chernobyl 26. apríl sl. hafa
farið langt fram úr hinni upphaf-
legu áætlun, sem hljóðaði upp á
2 milljarða rúblna (um 120 millj-
arðar ísl. kr.), að því er breska
blaðið The Times sagði í gær.
Mikhail Gorbachev, aðalritari so-
véska kommúnistaflokksins, sagði
þetta við Gro Harlem Brundtland,
forsætisráðherra Noregs, er hún
ræddi við hann í Moskvu sl. föstu-
dag, að því er hún tjáði fréttamanni
The Times á sunnudag. Brundtland
sagði að Gorbachev hefði ekki nefnt
neina ákveðna tölu, en sagt að ljóst
væri að kostnaður yrði_ mun hærri
en ætlað hefði verið. í september
hafði fjármálaráðherra Sovétríkj-
------.
Bandaríkj aþing:
Jim Wright
forseti full-
trúadeildar
Washingfton; Reuter.
ÞINGMENN Demókrataflokksins í
fulltrúadeild Bandaríkjaþings,
völdu í gær fyrrum leiðtoga sinn í
deildinni, Jim Wright, næsta forseta
deildarinnar. Enginn annar var í
kjöri og tekur Wright, sem er frá
Texas, við af Thomas O’Neill, sem
ekki gaf kost á sér f síðustu kosn-
ingum og gengt hafði þessu
embætti í 10 ár. Formlega mun
fulltrúadeildin kjósa forseta þegar
þing kemur saman 6. jan. nk, en
þar sem demókratar hafa þar 258
þingsæti á móti 177 sætum Repú-
blikana, þykir fullvíst að Wright
mun hreppa hnossið.
anna, Boris Gostev, gefíð áætlunar-
töluna upp á blaðamannafundi.
Er ms-
veikin
veirusjúk-
dómur?
Ftladelfíu, AP.
VÍSINDAMENN telja nú, að
það sé veira, sem valdi ms-
sjúkdómnum, heila- og
mænusiggi, a.m.k. sumum
myndum hans. Var frá þessu
skýrt í fyrradag á ráðstefnu
í Wistar-stofnuninni í Fílad-
elfíu í Bandaríkjunum.
Dr. Hilary Koprowski, yfír-
maður stofnunarinnar og einn
þeirra, sem í fyrra fundu veir-
una, kvaðst telja það „mjög
líklegt", að hún ylli ms-sjúk-
dómnum, sem hundruð þúsunda
manna um heim allan þjást af.
Undir það tók einnig Takahiko
Saida, japanskur vísindamaður,
sem sagði, að veiran hefði fund-
ist í blóði sumra ms-sjúklinga í
Japan. Voru allir sammála um,
að hér væri um mikil tíðindi að
ræða og að nú hillti e.t.v. undir
lyf eða jafnvel bóluefni við sjúk-
dómnum.
Veiran, sem um ræðir, er fjar-
skyld HTLV-I-veirunni, sem
veldur T-frumu-hvítblæði, en
hún á aftur sumt sameiginlegt
með alnæmisveirunni. Á það var
þó lögð áhersla, að ekkert væri
skylt með alnæmi og ms-sjúk-
dómnum. Eins og fyrr segir
hefur veiran aðeins fundist í
blóði sumra ms-sjúkiinga en
Koprowski telur, að hvað hina
varðar kunni aðrar veirur ná-
skyldar að vera sökudólgurinn.