Morgunblaðið - 10.12.1986, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 1986
57
Ævidagar Tómasar Þorvaldssonar,
útgerðarmanns.
Gylfi Gröndal hefur hér skrifað athyglisverða
bók, sem geymir minningar Tómasar
Þorvaldssonar, hins landsþekkta útgerðarmanns í
Grindavik. Hann segir ýtarlega frá mannlífi og
menningu, sem nú heyrir fortíðinni til; tímum, sem
eru liðnir og koma ekki aftur. „Leið mín hefur legið
frá gamla íslandi til hins nýja, “ segir Tómas á
einum stað í bókinni, „frá kröppum kjörum til
aUsnægta; frá þrotlausu striti til þæginda og tækni
nútímans."
Þetta er viðamikil og áhrifarik ævisaga.
Eiguleg bók með miklum fjölda ljósmynda.
Isaac Bashevis Singer
Ást og útlegð.
Þessi bók Nóbelsskáldsins er í raun 3 bækur
ásamt ævisögulegum formála. Lesandinn kynnist
hugarheimi pólskra gyðinga í gyðingahverfum
Evrópu á fyrri hluta þessarar aldar. Þar mótast lífið
af fomri trúararfleifð og uppreisnaranda.
Fróðleiksþyrstur drengur brýtur heilann um
þversagnir tilverunnar. Hann kveður Varsjá og
leitar fótfestu í Bandaríkjunum.
Ást og útlegð hefur hlotið einróma lof
gagnrýnenda og hefur bestu kosti bóka Singers.
Hún er gædd spennu og kímni og ímyndunarafl
hins heimsfræga höfundar gerir hana að ósviknum
skemmtilestri. Þýðandi er Hjörtur Pálsson.
Öskar Ingimarsson
ÓSKAR INGIMARSSON
Eg spyr, þú svarar.
í þessari bók em á annað þúsund spumingar, felumyndir og
allskyns þrautir. Hvaða köttur át allt? Úr hverju er sykur unninn?
Hvað heitir höfuðborgin í írak?
Þetta er spennandi og fræðandi leikur fyrir alla fjölskylduna.
Bestu brandarar Svavars Gests.
A ANNAÖ ÞUSUND SPURNINGAR. FBJJMYNOlR CX5 ÞRAUTJR
MEO YFtfX SJOTÍU STÓTIUM TEKNINOUM
í þessari bók em 1111 skrýtlur og skopsögur sem hinn
landsþekkti „húmoristi" hefur safnað. Svavar Gests kann
kúnstina að segja rétta skrýtlu á réttum stað og réttri stund.
Kjörin bók fyrir þá sem hafa gaman af góðri kímni og þá sem
vilja slá á létta strengi. Brian Pilkington myndskreytti.
Kokkteilar og aðrir blandaðir drykkir,
Hinn landsþekkti barþjónn Símon Sigurjónsson hefur hér
búið til góða blöndu.
Hér em uppskriftir ótal úrvalsdrykkja. Kokkteilar, langir
drykkir, sterkir, léttir og óáfengir drykkir.
Skemmtileg bók fyrir þá sem hafa gaman af móttöku gesta
eða einfaldlega að gleðja sjálfan sig.
Joe Kaufinai
ÆVINTYRI
OG SI'GILDAR
SÖGUR
»e>ðum til f|„8|
'®ru'»0Shms
°B starfar.
Ævintýri og sígildar sögur
Litprentuð ævintýrabók með sívinsælum og þekktum ævintýmm:
Mjallhvít og dvergamir sjö, Gullgæsin, Piparkökumaðurinn, Aladdín og
töfralampinn, Jói og baunagrasið og aðrar sögur.
Þetta er skemmtileg bók fyrir bömin; fjöldi litmynda í hverri opnu.
Svona erumvið.
MjallhvU í>r dvergamír vjri,
OuHöæsin, Iripsrkókumaóurnui,
HcimvWi Jói, ALnldui og tófralamphm,
aaUlfopouurinn, Jói og baunagrastö
og mörg onmir owrfttttýri
ímtltm Tb.
Böm þurfa, ekki síður en annað fólk, að þekkja líkama sinn og starfsemi
hans. Þessi bók kynnir í máli og myndum líffæri og líkamshluta mannsins. Hún
er skipulega skrifuð og er með fjölda skemmtilegra teikninga.
Nauðsynlegt fróðleiks- og uppsláttarit, jafnvel fyrir alla fjölskylduna.
Ömólfur Thorlacius þýddi.